Morgunblaðið - 05.06.2021, Side 25
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 25
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
F
rá gamalli tíð hafa skip og
bátar Síldarvinnslunnar
byrjað á nöfnum sem byrja
á B. Sá Börkur sem kom til
heimahafnar í Neskaupstað
á fimmtudag er fimmta skipið sem
ber Barkarnafnið. Í þeirri nafnasögu
er þekktast skip sem gjarnan gekk
undir heitinu Stóri-Börkur og það
þóttu mikil firn þegar skipið kom með
1.350 tonn af loðnu.
Smári Geirsson, rithöfundur í Nes-
kaupstað, hefur fjallað um sögu Síld-
arvinnslunnar, en fyrirtækið var
stofnað 1957. Útgerð byrjaði fyrir-
tækið 1965 og þá á bátunum Barða og
Bjarti. Fyrra nafnið tengist þjóðsögu
úr Norðfirði, að sögn Smára, það síð-
ara fannst mönnum við hæfi þar sem
bjart var yfir starfsemi fyrirtækisins.
Fyrsti Börkur kom 1966 og var
hann einkum gerður út á síld og loðnu
til 1972, en nafnið þýðir meðal annars
bátur eða skip. Skip með Birtings-
nafni voru lengi í eigu Síldarvinnsl-
unnar, en nafnið er dregið af nafninu
Bjartur. Þegar togari var keyptur frá
Spáni 1973 var haldin nafnasam-
keppni og varð heitið Blængur fyrir
valinu, en það er meðal nafna sem
notuð eru um hrafninn, að sögn
Smára. Loks er það uppsjávarskipið
Beitir, sá sem siglir beitivind.
Stóri-Börkur, sem svo er nefndur,
var gerður út af Síldarvinnslunni
1973-2016 og bar nafnið Birtingur
undir það síðasta. Nýtt uppsjávarskip
bar Barkarnafnið 2012-14, en þá tók
fjórða skipið með þessu nafni við. Það
var smíðað í Noregi 2012 og er til
sölu.
Margir voru efins um kaupin
Í samantekt Smára í tilefni af 60 ára
afmæli Síldarvinnslunnar 2017 kem-
ur fram að í upphafi útgerðar hafi
áhersla verið lögð á síldveiðar. Þegar
síldin brást í lok sjöunda áratugarins
voru skip fyrirtækisins endurnýjuð
og 1973 festi fyrirtækið þá kaup á
stóru uppsjávarskipi, Stóra-Berki,
sem var þúsund lestir að stærð.
Margir voru efins um þessi skipa-
kaup og hvort svo stórt skip væri
hagkvæmt til loðnuveiða, en á næstu
árum sannaði skipið sig. Það hentaði
vel til loðnuveiða og til að sigla með
fullfermi heim til Neskaupstaðar,
stundum 14-18 tíma stím í misjöfnum
vetrarveðrum. Einnig var reiknað
með að það yrði drjúgt á kolmunna-
veiðum.
Börkur var smíðaður í Noregi 1968
og hafði verið í eigu norsks fyrirtækis
en skráð með heimahöfn á Bermúda-
eyjum. Skipið hafði verið gert til
nótaveiða við strendur Afríku, en út-
gerðin gengið illa. Þegar Síld-
arvinnslan festi kaup á skipinu var
fiskimjölsverksmiðja um borð en hún
var tekin úr skipinu og seld. Eftir því
sem árin liðu, einkum 1998 og 1999,
voru gerðar miklar endurbætur á
skipinu.
Árum saman gekk erfiðlega að
finna Berki nægjanleg verkefni og
var eilíft verið að leita verkefna sem
hentuðu. Meðal annars var Börkur
við síld- og makrílveiðar í Barentshafi
fyrstu fjögur sumrin sem Síldar-
vinnslan átti hann. Fyrri hluta árs
1975 hafði Börkur veitt hrossamakríl
undan ströndum Norðvestur-Afríku
og síðla sumars það ár var skipið sent
til loðnuveiða í Barentshafi. Um ára-
bil var skipið nýtt til að sigla með ís-
aðan fisk frá Neskaupstað til
Grimsby yfir sumarmánuðina og til
baka flutti hann ódýra olíu sem
Síldarvinnsluskipin nýttu.
Gæfuspor fyrir fyrirtækið
Með tímanum jukust verkefni Barkar
og að því kom að unnt var að halda
honum til fiskjar á heimamiðum
stærstan hluta ársins. Í upphafi voru
sett 750 tonn í skipið, en stærsti
farmurinn var 1.350 tonn og þótti það
gríðarlega stór farmur. Til sam-
anburðar má nefna að Beitir NK ber
yfir þrjú þúsund tonn.
Árið 2012 festi Síldarvinnslan kaup
á nýum Berki og fékk gamli Börkur
þá nafnið Birtingur og bar það nafn
þar til hann var seldur úr landi 2016.
Aflasaga skipsins er einstök eins og
fram kemur í niðurlagi greinar
Smára Geirssonar um Stóra-Börk:
„Afli Barkar (síðar Birtings) á
þeim 43 árum sem hann var í eigu
Síldarvinnslunnar nam 1.546.235
tonnum og eru líkur á að ekkert ís-
lenskt fiskiskip hafi borið jafn mikinn
afla að landi. Því má segja að kaup
Sildarvinnslunnar á „stóru“ loðnu- og
kolmunnaveiðiskipi árið 1973 hafi
reynst vera gæfuspor fyrir fyrir-
tækið.“
Ljósmynd/Haraldur Bjarnason
Stóri-Börkur
var einstakt
skip í sögunni
Nöfnin á skipum Síldarvinnslunnar í Neskaupstað
byrja öll á upphafsstafnum B. Nýr Börkur er
fimmta skipið með þessu nafni í flota Norðfirðinga.
Stóri-Börkur er mörgum minisstæður, en skipið
kom með 1.546.235 tonn að landi á þeim 43 árum
sem það var gert út frá Neskaupstað.
Stóri-Börkur NK kemur til
hafnar í Neskaupstað með
fullfermi af loðnu árið 1989.