Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 05.06.2021, Blaðsíða 45
LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 MORGUNBLAÐIÐ 45 Starfsfólk NAUTIC óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með SJÓMANNADAGINN Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Þ rátt fyrir að víða hafi tekist að ná tökum á faraldrinum hafa skipuleggjendur Ís- lensku sjávarútvegssýn- ingarinnar einnig gert ráðstafanir til að draga úr áhrifum faraldursins með því að koma á staf- rænni sýningu sem haldin verður samhliða þeirri í Fífunni. „Við köll- um þetta tvíþætta sýningu þar sem veraldleg sýning fer fram á sama tíma og stafræn sýning. Hægt verð- ur að mæta á staðinn, takast í hend- ur og tala saman augliti til auglitis, eins og flestir vilja gera enda erum við í eðli okkar félagsverur. En einn- ig er hægt að taka þátt í gegnum fjarskiptabúnað sem veitir þeim sem ekki geta ferðast til Íslands tækifæri til að mæta á sýninguna,“ útskýrir Coulling-Rasmussen. Sýningin í ár verður þrettánda al- þjóðlega sýningin sem haldin er hér á landi og átti að halda hana í fyrra en ákveðið var að fresta henni vegna kórónu- veirufaraldurs- ins. Spurð hvort það hafi verið erfið ákvörðun svarar hún: „Þetta vakti blendnar tilfinn- ingar [að fresta sýningunni]. Auðvitað viljum við öll að heimurinn verði eins og hann var og við hugð- umst halda sýninguna í september í fyrra, en eina leiðin til þess að gera það var að fólk væri bólusett gegn kórónuveirunni. Í september í fyrra vorum við fjarri þeirri stöðu og hefði töluverð áhætta fylgt því að halda hana. Ég ræddi við sýnendur og aðra sem koma að sýningunni og þeir voru allir sammála mér um að ekki myndi vera hægt að halda þá sýn- ingu sem við vildum hafa. Þannig að við ákváðum að fresta henni um eitt ár og tryggja að við gætum haldið sýningu sem myndi mæta þeim væntingum sem til hennar eru gerð- ar. Það er aldrei gott að þurfa að fresta einhverju, en þetta var vegna ytri aðstæðna sem við höfðum enga stjórn yfir og maður verður að að- lagast þeim því það er enginn annar valkostur.“ Áhugi á reynslu Íslendinga Aukin áhersla er á fullnýtingu hrá- efnis og aukna verðmætasköpun í vinnslu á sýningu ársins. „Enda hef- ur verið mikil þróun á því sviði síð- ustu ár. Við munum varpa ljósi á þetta á málþinginu „afskurður að hagnaði“ (e. fish waste for profit) sem mun standa í einn og hálfan dag. […] Íslenski sjávarklasinn er með okkur í þessu. Staðreyndin er að nýting hliðaraf- urða getur einnig skapað fyr- irtækjum í sjávarútvegi tekjur. Ís- land hefur staðið sig mjög vel í þessu samhengi og við finnum fyrir aukn- um áhuga frá aðilum frá öðrum heimshornum sem vilja heyra reynslu Íslendinga og annarra af nýtingu þess hluta hráefnisins sem venjulega hefur verið fargað,“ segir Coulling-Rasmussen. Hún segir að í samstarfi við Ný- sköpunarmiðstöð Íslands verði unn- ið að því að tengja saman þá aðila sem geta átt samleið. „Þeir sem skrá sig á sýninguna geta látið vita hvaða tegund af fyrirtækjum þeir vilja eiga fundi með og hjálpar Nýsköp- unarmiðstöðin okkur að skipuleggja þetta. Mesti árangur sem við höfum náð á þessu sviði var á sýningunni 2017 þegar okkur tókst að koma á tæplega hundrað fundum með að- ilum frá um 26 löndum.“ Hún segir skipuleggjendur vinna að vel heppnaðri sýningu og eru 80% sýningarbásanna þegar pantaðir. Áhersla á full- nýtingu hráefnis Mikill áhugi er á Íslensku sjávarútvegssýning- unni sem verður haldin í Fífunni í Kópavogi í september. Marianne Coulling-Rasmussen, framkvæmdastjóri sýningarinnar, segir ekki annan valkost hafa verið í stöðunni í fyrra en að fresta sýningunni. Nú verður hægt að taka þátt í gegnum fjarskiptabúnað. Morgunblaðið/Ómar Íslenska sjávarútvegssýningin hefur verið gríðarlega vinsæl og hafa þúsundir sótt hana í gegnum árin. Marianne Coulling- Rasmussen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.