Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 50

Morgunblaðið - 05.06.2021, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is S tarfsemi Voot hefur þróast hratt undanfarinn áratug og félagið , sem áður var smáfyrirtæki í Grindavík, er núna byrjað að skjóta rótum á erlendum mörkuðum sam- hliða því að þjónusta sjávarútvegs- fyrirtæki hringinn í kringum Ís- land. Reksturinn hófst árið 2012 og framan af snerist starfsemin fyrst og fremst um sölu á beitu. „Upp úr 2014 tókum við að bæta við vöruúr- valið og gátum skaffað meira eða minna allt sem viðskiptavinir okkar þurftu til að stunda króka- og línu- veiðar,“ útskýrir Þorsteinn, mark- aðsstjóri Voot. „Um miðjan síðasta áratug varð svo úr að bjóða útgerð- um upp á að kaupa á einum stað flestar þær vörur sem þarf fyrir fiskveiðitúra. Með þessari þjónustu spöruðum við viðskiptavinum okkar mikið umstang og tíma sem annars hefði þurft að verja í að safna saman hinum ýmsu rekstrarvörum,“ segir Þorsteinn. Sjómenn leiða þróun sjófatnaðarins Næsti kafli hófst árið 2016 þegar Voot tók að þróa og selja eigin sjó- fatnað. Þessi nýja viðbót við vöruúr- valið hitti í mark hjá sjómönnum enda hönnunin og efnisvalið af- rakstur náins samstarfs við íslenska sjómenn. „Lykillinn að árangrinum var að við áttum í daglegum sam- skiptum við þá sem nota fatnaðinn, fengum sjómennina til að prófa fatnaðinn með okkur og fengum frá þeim fjölda góðra ábendinga um ýmis smáatriði sem mætti bæta hér og þar. Þessu höfum við haldið áfram allt til þessa dags,“ segir Þor- steinn. Áfram hélt Voot að stækka og bæta við bæði nýjum vörum og við- skiptavinum. Þorsteinn segir hrein- lætisvörur og hreinsiefni nýjustu viðbótina, og að Voot státi m.a. af einstaklega góðu framboði af ein- nota vörum. Kaupendahópurinn er ekki lengur bara útgerðarmenn heldur fiskvinnslur, kjötvinnslur, mötuneyti og hvers kyns fyrirtæki sem vantar rekstrarvöru fyrir mat- vælaiðnað. Þorsteinn bætir við að þrátt fyrir ört vaxandi vöruframboð leggi fyrirtækið vitaskuld áfram ríka áherslu á beitusölu og veiðarfæri. „Við erum m.a. umboðsaðilar Mus- tad króka á Íslandi og bjóðum upp á hágæða beitu fyrir línu- og króka- veiðar.“ Sjómenn erlendis þekkja íslensku gæðin Árangur Voot fór ekki fram hjá stjórnendum Hampiðjunnar sem ákváðu árið 2018 að veiðarfæra- framleiðandinn framsækni skyldi kaupa hlut í rekstri Voot. Þorsteinn segir starfsemi Hampiðjunnar og Voot fara vel saman enda kunni kaupendur veiðarfæra að meta að geta fengið allar mögulegar útgerð- arvörur á einum stað. Í gegnum sölu veiðarfæra hefur Voot fundið nýja kaupendur, og í gegnum gæða- vörur Voot hefur Hampiðjan eign- ast nýja viðskiptavini. Það var síðan í gegnum sam- starfið við Hampiðjuna að Voot tókst smám saman að sækja á fleiri markaðssvæði erlendis. Eins og les- endur þekkja er Hampiðjan al- þjóðlegt stórfyrirtæki með starfs- stöðvar í sjávarplássum frá Alaska í vestri til Nýja-Sjálands í austri. „Í dag selur Voot vörur á fimm stöðum á Grænlandi, víðs vegar í Noregi og Danmörku og á 20 stöðum í Kanada og Bandaríkjunum,“ útskýrir Þor- steinn en á þessum markaðs- svæðum er sjófatnaður Voot seldur undir vörumerkinu Mar Wear. Reyndist góð spurn eftir þjónustu Voot utan Íslands og hefur sjófatn- aðurinn gert mikla lukku. Þorsteinn segir greinilegt að fyrirtækið njóti góðs af því að á meðal sjómanna er- lendis fari það orðspor af Íslandi að vera leiðandi í gæðum í öllu sem við kemur sjávarútvegi, og skartar sjó- fatnaður Mar Wear íslenska fán- anum til að undirstrika uppruna vörunnar. „Það eru tiltölulega fáir um hituna á sjóklæðamarkaði en samkeppnin engu að síður hörð, og kemur sér tvímælalaust vel að hafa þann gæðastimpil að vera íslenskur framleiðandi. Eru erlendir kaup- endur mjög áhugasamir um allt sem frá Íslandi kemur og líta upp til okkar sem eins konar ólympíu- meistara í fiskveiðum.“ Að því sögðu þá þurfti að aðlaga vörurnar að hverju markaðssvæði og játar Þorsteinn að sniðin séu ekki þau sömu á sjófatnaðinum sem er seldur vestanhafs. „Það þurfti að víkka sniðin fyrir þann markað en á Grænlandi og á meginlandi Evrópu getum við notað sömu snið og við höfum þróað fyrir Ísland.“ Taka á móti viðskiptavinum í nýjum sal og verslun Höfuðstövar Voot eru ekki lengur á Grindavík heldur á Skarfagörðum 4 í Reykjavík. Þar hefur verið innrétt- aður nýr sýningarsalur þar sem við- skiptavinir Voot og Hampiðjunnar geta skoðað vöruframboðið og mát- að sjófatnað. Voot er á annarri hæð með skrifstofur sínar og sýning- arsal en fremst í byggingunni er ný sameiginleg verslun Voot og Hamp- iðjunnar. Verður formleg opnun sýningarsalarins og verslunarinnar um þessa helgi. „Það er allt annað líf að geta kynnt vörurnar með þessum hætti, frekar en að fá viðskiptavini inn á skrifstofu eða vörulager og hentug leið til að sýna allt það úrval sem fyrirtækin tvö hafa upp á að bjóða,“ segir Þorsteinn og bætir við að á dögunum hafi nýr starfsmaður ver- ið ráðinn með bækistöð á Akureyri og verður hann svæðisstjóri Voot fyrir Norður- og Austurland. „Úr- valið heldur svo áfram að stækka og gerðum við nýlega umboðssamning við hollenska framleiðandann Mat- rix Lubricants og munum innan skamms hefja sölu á hágæða mat- vælaframleiðsluvottuðum glussa-, olíu- og smurefnum frá þeim.“ Sækja á erlenda markaði með sjófatnað og allt sem þarf fyrir fiskveiðitúrinn Þökk sé nánu sam- starfi við íslenska sjó- menn hefur Voot þró- að sjófatnað sem þykir bera af. Mikil samlegð- aráhrif fólust í því þegar Hampiðjan kom inn í eigendahóp fyrir- tækisins og greiddi Voot leið út í heim. Morgunblaðið/Árni Sæberg „Það eru tiltölulega fáir um hituna á sjóklæðamarkaði en samkeppnin engu að síður hörð, og kemur sér tvímælalaust vel að hafa þann gæðastimpil að vera íslenskur framleiðandi,“ segir Þorsteinn Finnbogason markaðsstjóri Voot. Ljósmynd/Voot Reffilegir sjómenn í fatnaði frá Voot. Þorsteinn segir gæði og eiginleika vörunnar mega þakka nánu samráði við fólkið sem notar fatnaðinn bæði í landi og á hafi úti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.