Skólablaðið

Ukioqatigiit

Skólablaðið - 01.02.1973, Qupperneq 19

Skólablaðið - 01.02.1973, Qupperneq 19
Atvinnutilboð til félaga 1 DBF Kæru félagar. Hér bjóðum við dreyfbýlismenn ykkur framtlðarvinnu. Það er sama hversu stórkostlegar hugmyndir ykkar um framtíðina hafa verið, að þá mun þessi hugmynd kollvarpa þeim öllum og þá sjáið þið hversu óraunverulegar þær hafa verið. Eins og dreyfbýlismenn vita, að þá er sá atvinnuvegur sem minka- eldi framkallar ekki arðbær at- vinnugrein. Stafar það a£ ínörgu m.a. að læðurnar eru geldar, undan- eldin hrökkva uppaf í fæðingu, rekturskostnaður er geysilegur og siðast en ekki slzt, að þá er tizkan óðum að breytast og minka- skinn eru að komast úr tizku og verða orðin verðlaus eftir nokkur ár. En þá verður kominn fram á sjónarsviðið ný tegund skinna, kattarskinn, sem mun tröllríða tizkuheiminum. Og þá er komið að kjarna málsins. I stað minkabúa verður komið upp kattabúum vlðs vegar um dreifbýlið. Eini kostn- aðurinn við þetta fyrirtæki er stofnkostnaðurinn. Þá hugsa ef til vill margir eru þeir i DBF búnir að taþa þvl litla af viti sem þeir höfðu? Halda þeir að þetta gangi að sjálfu sér og þurfi engan reksturskosnað ? Nei, kæri DBF félagi. Það ert þú,sem ert alger módmaður-'áð þú skulir ekki hafa komið auga á þetta fyrr. Hugmynd okkar er svohljóðandi. Fyrst verða keyptir kettir úr dreifbýlinu og smlðaður hjallur yfir þá. Þá verða fengnar rottur úr þéttbýlinu (eini kosturinn við þéttbýlið er að það skuli vera hægt að fá rottur þar) og kettirnir aldir á þeim. Rott- urnar verða slðan sprautaðar með frjóaukandi hormónum til að viðkoman verði meiri og heiladlng- ulshormónum svo að þær stækki fyrr. Þarf þá ekki að fá nema örfáar rottur þvl að þær vaxa óhemjulega fljótt. En þá er komið að vanda- málinu sem fæstir myndu sjálfsagt koma auga á, hvernig ætti að leipa á sem hagkvæmastann hátt. En það er vandamálið. A hverju eiga þá rotturnar að lifa á: Jú, við dreif- býlismenn drepumst ekki ráðalausir þótt eitthvað bjáti á. Við látum rotturnar einfaldlega éta hræin af köttunum, þegar að búið er að drepa þá og hirða af þeim skinnin. Þannig myndast hringrás, sem aldrei parf að endurnýja og fjármagnið flæðir upp í hendurnar á okkur og við verðum orðnir auðvaldshundar áður en við áttum okkur. En þetta fyrirtæki þarfnast töluverðs mann- afla, svo sem lækna, tæknifræðinga, verkfræðinga, sölumanna, skrif- stofustjóra o.fl. Munum við verða með net af söluskrifstofum og úti- búum vlða um heim. Þarna er kjörið tækifæri til að útvega sér arð- bæra atvinnu og ef einhverjir, hafa ekki ákveðið það strax hvað þeir ætla að verða ,þá þurfa þeir ekkert að vera að tvínóna við það. undarqerd Fundargerð og ályktun DBF stress- fundarins, sem haldinn var 1 X-stofu Casa Nova þann 24/10 1972 Fyrir fundinum lá, að rætt skyldi um streytu 1 nútímaþjóðfélagi og var Sören Sörensen fyrrverandi heilbrigðisfulltrúi fenginn til' þess. Mættir voru allir þáverandi félagar_D.3.F. sum sé 100$ og ef miðað er við félagatölu DBF að þá voru á fundinum 200$ mættir umfram DBF félaga sem voru áhugamenn og þetta gerir samtals 300$ sem er algert met, hér I skóla og verður aldrei slegið út. Ef skólafélagið ætlaði að reyna að slá það út þá þyrftu um 2400 manns að sækja e einhvern skólafund, en oftast eru mættir um 2-300 manns á þá.(Fyrir þá sem ekki skilja 100$ eru um 800 og önnur 200$ eru um 1600 samtals 2400) Sýnir þessi fundur hversu óhemjulegum viflsældum DBF á að fagna hér 1 skóla. Ráðsmaður setti fundinn og þakkaði þessa frábæru mætingu og hóf þvi næst Sören Sörensen upp raust sina og talaði í um 40 min. og voru almen almennar umræður um efnið á eftir og stóðu þær'í um 50 mln. Eftir- farandi ályktun var gerð á fundinum. Stressfundur DBF ályktar að þar sem streyta, mesti bölvaldur þjóðfélag- sins er að brjóta niður viðnárnsþrek hins almenna þéttbýlismanns,,að þá muni DBF standa fyrir hópferðum út i" dreifbýlið, þar sem þéttbýlis-,i maðurinn getur slappað af. Höfum við í þessu sambandi hugsað okkur að þessar hópferðir verði farnar upp á heiðar þar sem þéttbýlis- maðurinn getur lagzt niður i dún- mjúkt grasið, hlustað á fuglana syngja um daginn og veginn, heyra íækinn seytla um steina og heyra iflugunum þegar að þær eru að eðla sig og finna hvernig köngu- lær og önnur illyrmi skrlðá um allan líkamann svo að maður s afstréssast. Einnig kom það fram að stress-less hvíldarstóllinn frá Skeiðunni 1 Kjörgarði er mjög heppilegur 1 þessum efnum og mun DBF beita sér fyrir þvl að honum Lög og málamyndasamningur DBF 1. Félagið skal heita Dreifbýlis- félagið. 2. Félagið hefur aðsetur sitt 1 I Menntaskólanum I Reykjavík. 3. Allir nemendur 1 Menntaskólanum 1 Reykjavík geta gerst félagar í Dreifbýlisfélaginu. 4. fimm menn skulu sitja í stjórn DBF og skulu þeir skipta með sér eftirtöldum embættum: Ráðsmaður, Markari, Smali, Fjósamaður og Blaðurskjóða miðstjórnarinnar. 5. Ef stjórnarmeðlimur segir af sér störfum, undir sérstökum krin kringumstæðum, skal skipa mann í hans stað. Annars skal í kosið 1 vorkosningunum og hafa félagar Dreifbýlisfelagsins einir kosninga- rétt. 6. Lagmarksgjald er 10 krónur til x krónur. 7. Allur ágóði af starfi félagsins að=liðnum vetri skal afhendast Bræðrasjóði að vori. 8. Verði félagið lagt niður,skulu eignir þess ef nokkrar eru renna 1 Bræðrasjóð. 9. Félagið skal stuðla að kynningu á sveitallfi landsins nú^og tilu forna, meðal nemenda M.R. 10. Félagið skal stuðla að almennri uppfræðslu nemenda M.R. á vanda- málum nútimaþjóðfélags. 11. Félagið skal berjast gegn júgur- bólgu. 12. Félagið berst gegn blöndun hins góða Islenzka kúastofns. 13. Félagið skal birta stefnuskrá og lög sln I fyrsta eða öðru tölu- blaði skólablaðsins ár hvert. 14. Félagið ber hagsmuni dreif- býlisbúa sér fyrir brjósti. 15-Félagið berst fyrir réttlátri dreifingu vændisstofnana um Fyrir hönd DBF Ráðsmaður landið. lö.Félagið berst gegn auknum þétt- býliskjarna við Faxaflóa og vill að Reykjavlk verði dreift smárn saman út um landsbyggðina. lý.Félagið berst gegn júgurbólgu og fá þar af leiðandi ekki stelpur I M.R. sem eru með júgurbólgu inn- göngu I félagið. l8.Félagið er óflokksbundið. 19.Stjórnarmeðlimir skulu þvl fara dult með stjórnmálaskoðanir slnar. 20.Stjórnmál eiga ekki heima 1 Dreifbýlisfélaginu. 21.0heimilt er að ræða um stjórn- mál á fundum Dreifbýlisfélagsins. 22. Dreifbýlisfélagið áir ekki vinstrisinnað. 23. Undantekning á reglum no 18,19, 20,21,22, er heimil og sannar þar með að þær reglur eru ekki sannar. 24. Félagið berst gegn útrýmingu þarfasta þjónsins. 25. Félagið er á móti innflutningi og ræktun minka hér á landi, vegna hinnar geigvænlegu hættu, sem fiður- fé landsmanna stafar af þeim ófögnuði. 26. Félagið er á móti innflutningi Galloway nauta til landsins vegna hættu á sýkingu af gin og klaufa- veiki. 27. Félagið fordæmir harðlega þá aðferð sem nú er notúð við frjóvgun kúa hér á landi og æskir þess að upp verði aftur tekinn sá siður að kefla kúna. 28. D.B;F. félagar skulu styrja kaupfélagið 1 einu og öllu og veitir D.B.F. afsláttarkort I kaupfélagihu. Kaupfélagið er eina og sanna verzl- unin sem viðskipti skal hafa við. Fyrir hönd D.B.F. Ráðsmaður og Markari. dvorun Aðvörun til D.B.F.félaga. Þar sem ákveðið hefur verið að flytja eigi inn Galloway naut og D.B.F. fordæmir harðlega, varar D.B.F. félaga slna við að fara út 1 Hrlsey þar sem setja á nautin 1 sóttkvl. Astæðan fyrir þvi, er að alls konar sjúkdómar, svo sem gin og klaufaveiki, bronkltis asmi, andateppa eða ræpa getur fylgt þeim og getur farið svo að þú, kæri D.B.F. félagj.,náir þér aldrei. Fyrir hönd D.B.F. Ráðsmaður. Félagatal D.B.F. mun nú hvað úr hverju að koma 1 bekkina og og hefur miðstjórn D.B.F. aðsetur ísitt 1 4-M eftir hád. 1 Þrúðv. Miðstjórnin hvetur D.B.F. félaga að skrifa I D.B.F. slðuna I skóla- blaðinu sem mun verða framvegis 1 þvl 1 vetur. Ath. Eins og sjá má á þessum greinum virðast þeir D.B.F. menn ekki hrifnir af löggiltu stafsetningu- nni, má kenna þeirri sérvizku um "villur" 1 greininni. En hins vegar erum við 1 rdtnafnd sam- mála um að þetta sé sóðalegasta handrit sem hér hafi sézt. Eiga Kverúlantar slikt skilið? Ath. aftur. Litlu seinna rákum við augun I þessi orð:"miðstjórnin hvetur D.B.F. félaga að skrifa I D.B.F. slðuna I Skólablaðinu sem mun verða fram- vegis I þvl 1 vetur." Það var von að ritnefnd ræki I rogastanz, þegar hún hafði lesið þessi orð. það er aldeilis upp á þeim typpið. D.B.F. hefur ekki neitt leyfi til að lofa neinu sllku ritbulli einsog birtist hér að ofan, stað á slðum blaðsins I vetur. Hvaðan þessir illar fá þá hugmynd er okkur hrein gáta. P Nýjustu fregnir herma að ‘ \ þetta bráðfyndna félagatal D. B.F. hafi glatazt I höndum ónefnds umsjónamanns I ó- nefndum bekk hér I skóla. Standi allir umsjónarmenn sig i svona vel 1 stykkinu. ’þá er vel.

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.