Skólablaðið

Årgang

Skólablaðið - 01.02.1973, Side 27

Skólablaðið - 01.02.1973, Side 27
kvenmaður lætur það, hann leyfir það, karlmaður fær það, gerir það. Kvenmaðurinn lætur gera á sér óperas.jón. Halldóra: Strákar tala um það sín á milli; Þröstur: Fékkstu það hjá henni? Ilalldóra: -Iá, fékkstu það hja henni. Stelpur gera þetta ekki. Pröstur: Vegna þess að samkeppnin stendur um þetta hjá kvenfólki. Hjá karl- manni er þetta stoltsatriði: að fá það. Páll: Það er stöðutákn. Þröstur: En kvenmenn eru aldnir upp við það að skammast sín fyrir að leyfa það. Halldóra: En svo verða til sambönd úr þessu Þröstur: Þau eru nátturlega mjög mismunandi þessi sambönd, t.d. hvað varðar aðstöðu til að praktísera þau. .Halldóra: Já, en þetta týbíska samband, • þau svona hringja á hvert annað, fara út saman, bíó og drasl, um helgar sofa þau saman. Þröstur: Auðvitað eru ekki öll sambönd svona firrt og vitlaus. Þau geta jafnvel myndast fyrir tilviljun. Tilfinn- ingar milli fólks eru ekki alltaf firrtar og útí hött. Páll: Eg held að þessi sambönd, þau geti aldrei orðið eðlileg. Umhverfið er það tryllt að það er ekki hægt að að krefjast þess að slík sambönd séu normal. atriði í fáranleika þessara sam- banda, það er að um lelð og par hefur samskipti útfyrir eina nótt þá er eignarrétturinn farinn að spila inní. Þá eiga þau hvort annað. Þá hefur enginn annar rétt til að nálgast þau Qg þau hafa ekki rétt til að nálgast neítt annað fólk. það er álitinn voðalegur dónaskapur og skepnuskapur. Svo Þerða gífurleg tryggðabrot og allt fer í vitleysu ef annað fer að blanda sér út á við. Halldóra: Að láta maka sinn ekki sjálfráðan um hvað hann vill kynnast öðru fólki náið — er eins og að þanna honum að lesa vissar bækur. Þá kemur að því að þetta þjóðfelag er hjónabands- þjóðfelag, þetta er einn stór hjónaklúbbur. Annað er ekki accept- erað. Þröstur: Aðrir eru frávik. Páll: Misþyrmið ekki krakkagreyjunum. En annars, er þá til eitthvað í okkar þjóðfelagi sem heitir ást? Er einhver ást í sambandi sem þessu, sem byggist á svona miklum grundvallarblekkingum? Er þá einhver kynferðisleg fullnægja til í svona sambandi? Þröstur: Við verðum að taka fram að við erum ekkert frávik frá þvi sem við höfum verið að rabba hér um. Eini munurinn er sá að við höfum spekúlerað í þessum málum.. Við spyrjum okkur bara hvort að í svona samböndum, sem eru undir pressu frá umhverfi, fordómum frá foreldrum, skólum, fjölmiðlum, hvort að fullnæging undir svona aðstæðum geti verið fullnæging. Hvort einhverju sé ekki áfátt í slíkri fullnægingu. Hvort tveir einstaklingar sem eru svona háðir þessum aðilum, hvort þeir eru hæfir að veafta sér og mót- herjanum fullnægingu, kynferðislega. Halldóra: Alla tíð, þeir eiga að leyfa hinum elna útvalda ........ pröstur: Allavega sem fæstum. Halldóra: Sem fæstum. Og það á að vera dýrt. Páll: Annars er hún lauslát. Þröstur: Springdýna. Almannagjá. Páll: Eftir þetta sendir hann hana heim, pantar fyrir hana bílinn í bezta falli. Þá hefst eftirleikurinn. Ætlar hann að halda áfram eða ætlar hann ekki að gera það, vegna þess að hann er ákveðandi í málinu. Halldóra: Þá er kannski beðið eftir hringingu. Þröstur: Hann hefur ekkl beint ákvörðunar- réttinn, því hún getur afsakað þetta sem feilspor hjá sér. Hún hafi verið ölvuð. Halldóra: liann verður að gera eitthvað. Kvenpersónan getur ekki verið þekkt fyrir að hringja upp einhvern strák og segja....... Páll: Nel, þá fær hún á sig heiti eins og Lif.la Oröð eða.... Þröstur: Framtak eða eftirlátsemi í þessum málum og þa'er hún óðara stimpluð. Ef hún ekki er passíf, streitist á móti og lætur dekstra sig, þá er hún bara ekki nógu góð. Páll: Þá fellur hún í veröi á markaðnum 52. Þröstur: Já, normalítet sé í mótun af umhverfi. Við búum til ideöl einsog normalt, við búum til ídeöl einsog frjáls. Við skulum ekki ætla okkur það að það sé hægt að framkvæma þau full- komlega. Það er aðeins hægt að nálgast þau. Páll: Við sjáum það bara á samböndum, sem við álítum prívat og persónu- lega að séu góð, við sjáum þau oft taka á sig fáránlegustu myndir. Þau haga sér ákaflega mikið eftir ákveðnu normi. Halldóra: Einmitt. Sama hvað þau eru góð, sama hvað þessu fólki líður vel saman og hvað það er í góðu jafnvægi sín á milli. Þröstur: Það er nu eitt sem er grundvallar- Páll: Hvað getum við gert? Hvað getur okkar kynslóð gert? Það fólk rembist eins og rjúpan við staurinn, en er háð sínu upp- eldi og sínum aðstæðum og er raunar knúð til þess að vera óeinlægt, óeðlilegt, óframfærið, nema það drekki sig mígandi fullt, o.s.fr. Þröstur: Eg vil meina að það sé ekki mögu- legt fyrir okkar kynslóð, vegna þess hve hún er mótuð af sínu upp- eldi, að framkvæma útopíuna á sjálfri sér, hina sexúölu byltingu. En náttúrlega getur hún nálgast hana. Það sem er okkar hlutverk og það sem er vænlegast til árangurs fyrir okkur er að berjast gegn nú- ríkjandi sambýlisháttum, það er kjarnafjölskyldunni, og fyrir hlutum einsog kommúnulifnaði og frjálsari samskiptum milli fólks, frjálsari samlífi; og berjast gegn hlutum einsog fjölskyldurétti, móðurrétti, hjónabandsrétti. Halldóra: Öllum lygumi sem eru falin undir orðum einsog föðurást og móðurást. Þröstur: öllum lygunum sem umvefja þessi hugtök, en berjast fyrir hlutum einsog barnarétti; það er rétti barna til eðlilegs og réttláts upp- eldis og valdi yfir sjálfu sér. Einsog danirnir kalla, eins og þeirra jafna er vandi yndislega og þeirra jafnan er vandi: börnemagt. Það sem okkur ber að leggja áherzlu á er uppeldi okkar arna. Halldóra: Hugsa sér, þetta sagði Wilhelm Reich líka. Hvað erum við margar kynslóð- ir frá honum? Þrjár? Halldóra: We wonder whether something i s missing? Really? SYM "D

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.