Morgunblaðið - 05.07.2021, Side 2

Morgunblaðið - 05.07.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021 TILBOÐ Í SÓL FRÁBÆRT FJÖLSKYLDUHÓTEL RÉTT VIÐ STÖNDINA GF ISABEL 4* COSTA ADEJE, TENERIFE WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS 09. - 14. JÚLÍ VERÐ FRÁ: 79.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN BEINT FLUGTIL TENERIFE Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is „Við vorum búin að vara við því í byrjun að þetta væri óvissuferð og nú er komið í ljós að það kostar milljarð að laga húsið og það er miklu meira en nýtt húsnæði myndi kosta,“ segir Eyþór Arn- alds, oddviti Sjálfstæðis- flokksins í borg- inni, í samtali við Morgunblaðið og bendir á að talan sem hafi verið áætluð í byrjun hafi líka verið of há. Samkvæmt nýrri kostnaðaráætlun mun kosta 989 milljónir að breyta húsnæði, sem áð- ur var kynlífstækjaverslun við Kleppsveg, í leikskóla. Í frumkostn- aðaráætlun borgaryfirvalda var gert ráð fyrir að framkvæmdirnar kæmu til með að kosta 623 milljónir. „Maður spyr sig eftir aðrar hremmingar í endurbótum, hvort sem það er bragginn eða Fossvogs- skóli, hvers vegna er farin svona leið í staðinn fyrir að fara einhverja öruggari leið,“ segir Eyþór. „Við erum að sjá dálítið mörg skólabókardæmi, þetta er aftur og aftur sem þetta kemur upp,“ segir Eyþór og bendir á Braggamálið í byrjun kjörtímabilsins en þá var gerður upp braggi fyrir 500 milljónir króna. „Menn ætla alltaf að læra af reynslunni en það virðist ganga illa.“ Þá segist hann hafa það á tilfinn- ingunni að þessi leið hafi verið farin í skyndi, verkefnið beri þess merki að hafa verið gert á síðustu stundu án þess að búið væri að skoða hvað framkvæmdirnar kæmu til með að kosta á endanum. „Þetta var liður í áætlun um að brúa bilið og reyna að efna kosninga- loforð sem var gefið fyrir þremur ár- um síðan og þá er stundum ekki búið að vinna heimavinnuna.“ Eyþór segir þetta bera þess merki að húsið hafi ekki verið kannað áður en það var keypt. „Það er farið af stað og húsnæði keypt, gert ráð fyrir að það kosti eitthvað ákveðið mikið að laga það og svo kemur í ljós að það er miklu meira og menn höfðu nú varað við því. Það hefði verið miklu betra að gera áætlun áður en þessu var lofað.“ Kostnaðurinn langt fram úr áætlun - Samkvæmt kostnaðaráætlun kostar það 989 milljónir að breyta kynlífstækjaverslun í leikskóla Morgunblaðið/Eggert Kynlífstækjaverslun Húsnæðið hýsti áður verslunina Adam og Evu. Eyþór Arnalds Ferðamönnum á landinu fjölgar með hverjum deginum. Sú þróun er í takti við að umferð um Kefla- víkurflugvöll eykst stöðugt. Þang- að komu 43 vélar að utan í gær og vélar sem var flogið utan voru ámóta margar. Á vinsælum áfangastöðum fjölgar fólki frá fjarlægum löndum, sem gjarnan finnst veruleikinn og umhverfið á þessari undarlegu eyju norður í höfum engu öðru líkt. Landslagið er vinsælt myndefni margra, en köttur í búðarglugga við Lauga- veginn í Reykjavík vakti sérstaka eftirtekt þessa ferðalangs. Vænta má að erlendum ferða- mönnum fjölgi áfram næstu vikur, nú um hásumar, eftir að tekist hefur að brjóta veiruna vondu á bak aftur með bólusetningu á all- flestum mannanna börnum hér á landi. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Gluggakisa myndefni ferðamanns Eva Björg Ægisdóttir sló í gegn með sinni fyrstu bók, Marrinu í stig- anum, sem hlaut glæpasagnaverð- launin Svartfuglinn 2018 og nýverið hreppti hún rýting Samtaka breskra glæpasagnahöfunda árið 2021 í flokknum frumraun ársins, en það er í fyrsta sinn sem þýdd bók hlýtur þá viðurkenningu. Í kjölfar Marrsins í stiganum komu Stelpur sem ljúga árið 2019 og Næturskuggar á síðasta ári. Öllum bókum Evu hefur verið vel tekið, en hún segir að þrátt fyrir afköstin veit- ist henni ekki létt að skrifa. „Ég hélt að þetta yrði kannski auðveldara með hverri bókinni en maður er einhvern veginn alltaf að finna upp hjólið. Það er aldrei létt en þetta er samt gerlegt á nokkrum mánuðum. Ég vinn alfarið við þetta og tek daginn bara eins ég myndi fara í vinnu.“ Velgengnin ytra grundvöllur Fjórða bók hennar er tilbúin að hennar sögn. „Síðasta ár var ég að skrifa Næturskugga og þá var fyrst verkfall hjá Eflingu og svo í fram- haldinu Covid þannig að ég var heima með krakkana mína allan daginn. Ég varð því sein með bókina, hún kom seint út og ég var mjög stressuð að skila þannig að ég ákvað núna að vera mjög snemma.“ Eva hefur ekki bara notið hylli hér á landi heldur hafa bækur henn- ar gengið vel ytra, aðallega í Frakk- landi en líka í Bretlandi. Hún segir að sú velgengni skipti hana eðlilega máli. „Ísland er lítill markaður og ég held að það sé erfitt að lifa af rit- störfum hér heima, þannig að það að fá góða samninga úti var grundvöll- urinn að því að ég gæti starfað við ritstörf.“ Rætt er við Evu í Dag- málum á mbl.is í dag. Hélt að þetta yrði auðveld- ara með hverri bókinni - Fjórða bókin tilbúin - Hreppti rýtinginn í Bretlandi Morgunblaðið/Hallur Hallsson Dagmál Eva hefur ekki bara notið hylli hér á landi fyrir bækur sínar. Gunnar Smári Egilsson, stofn- andi og formaður framkvæmda- stjórnar Sósíal- istaflokksins, hef- ur ákveðið að gefa kost á sér á lista flokksins fyr- ir komandi al- þingiskosningar. Um helgina var haldið sósíalistaþing, aðalfundur flokksins. Röðun á lista flokksins fer þannig fram að 30 manna slembivalinn hópur með fulltrúum allra kjördæma raðar á listana. „Þau ræða við fulltrúa sem gefa kost á sér og raða inn á listana,“ segir Gunnar Smári en Sósíalistaflokkurinn mun bjóða fram í öllum kjördæmum. Sósíalistaflokkurinn hefur mælst inni á þingi samkvæmt hinum ýmsu könn- unum fyrri hluta þessa árs og mælist nú með ríflega 5 prósenta fylgi sam- kvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallups. Gunnar Smári býður sig fram til Alþingis Gunnar Smári Egilsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.