Morgunblaðið - 05.07.2021, Side 8

Morgunblaðið - 05.07.2021, Side 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021 HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Kommúnistaflokkur Kína fagn- aði á fimmtudag 100 ára af- mæli sínu. Hann er langlífur af kommúnistaflokki að vera og hefur að auki stjórnað meginlandi Kína í á áttunda áratug. En þó að efnahags- lega hafi gengið vel á allra síðustu ára- tugum er margt við stjórnarfarið sem vekur upp efasemd- ir. Sigurður Már Jónsson fjallar um ástandið í nýlegum pistli á mbl.is og segir meðal annars: „Afstaða kínverskra yfirvalda til frelsis einstaklinga, tján- ingarfrelsis, eign- arréttar og annarra mannréttinda virð- ist enn vera á reiki og stjórnvöld virðast tilbúin til að grípa til harka- legra aðgerða til að tryggja völd og stöðu Kommúnistaflokksins og þeirra sem þar ráða ríkjum. Allt með heldur óljósum rökum um að Kommúnistaflokkurinn einn geti tryggt framtíð landsins. Við höfum þannig í forundran fylgst með framferði kínverskra yfirvalda gagnvart þjóðarbroti múslima í Xinjian-héraði.“ - - - Þá bendir hann á hvernig stjórn- völd hafa gengið fram gegn Jack Ma, sem fyrir ári var talinn ríkastur í Kína en hefur síðan ýmist horfið eða skotið upp kollinum, að því er virðist af völdum kínverska ríkisins, auk þess sem það er nú að lima í sundur fyrirtækjaveldi hans. - - - Allt gerist þetta með þeim hætti að með ólíkindum er. En segja má að þetta sé ágæt áminning um að þó að lífskjör hafi almennt batn- að í Kína og afl ríkisins hafi aukist, þá er Kína fjarri því að geta talist réttarríki. Og Kína verður það ekki á meðan Kommúnistaflokkurinn er þar einráður. Jack Ma Áminning um einræði STAKSTEINAR Sigurður Már Jónsson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Viður úr gömlum úr útihúsum á bænum Steinstúni var eldiviður í bálkesti sem var tendraður í fjör- unni í Norðurfirði í Árneshreppi á Ströndum sl. laugardagskvöld. Guð- laugur Agnar Ágústsson í Steinstúni er að bregða búskap og hefur vegna þess farið í tiltekt á staðnum. Timb- ur úr gömlu fjósi var tekið til og brennt þegar fólk kom saman í flæð- armálinu og skemmti sér og söng á fallegu sumarkvöldi. Þarna voru bæði heimafólk og ferðamenn. „Já, ég er að flytja héðan,“ segir Guðlaugur í samtali við Morg- unblaðið. „Ég er þreyttur á því að vegurinn hingað norður sé lokaður þrjá mánuði á ári og eins á binding- unni sem fylgir sauðfjárbúskap og umsjón með flugvellinum á Gjögri. Fer væntanlega á sjóinn, slíkt er eitt sem kemur til greina. Vélstjórarétt- indin sem ég hef frá yngri árum upp á vasann koma sér vel.“ Um fimmtán manns höfðu síðasta vetur heimilisfesti í Norðurfirði og hefur fækkað umtalsvert á allra síð- ustu árum. „Eftir að virkjun Hvalár í Ófeigsfirði var slegið á frest tel ég ekki miklar líkur á uppbyggingu hér. Ég ætla því að reyna fyrir mér annars staðar og hlakka til að takast á við ný viðfangsefni,“ segir Guð- laugur. sbs@mbl.is Ljósmynd/Einar Sveinbjörnsson Strandir Guðlaugur í Steinstúni við varðeldinn í fjörunni í Norðurfirði. Brennir nú timbri og er að bregða búskap - Áfram er fækkun í Árneshreppi Hluti Dyrfjallaeldstöðvarinnar og náttúruvættið Stóraurð eru nú frið- lýst svæði eftir að Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra undirritaði plögg um friðlýsingu jarðanna Hrafnabjarga, hluta Sand- brekku, Unaóss og Heyskála á Út- héraði sl. föstudag. Markmið friðlýsingarinnar er að varðveita sérstæðar jarðminjar og landslag á svæðinu og verja fjöl- breytt lífríkið þar. Svæðið er hluti af þyrpingu eldstöðva sem teljast með- al þeirra elstu á Austfjörðum. Víða þarna eru grjótjökla- og berghlaup. Frægast þeirra er Stórurð, skriða úr móbergsbjörgum. „Stórurðin sjálf er náttúrudjásn sem nú hefur verið tryggð vernd og umsjón með svæð- inu,“ segir umhverfisráðherra. Jafn- hliða þessu var gengið frá samningi milli Umhverfisstofnunar og Ferða- félags Fljótsdalshéraðs sem sinnt hefur svæðinu lengi. sbs@mbl.is Friðlýsa Dyrfjallaeldstöð og Stórurð - Djásn á Austurlandi - Jarðminjar Vernd Umhverfisráðherra og fleira fólk í ferð um svæðið sem var friðlýst.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.