Morgunblaðið - 05.07.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 05.07.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021 Sumarkvöld Töfrasvipur er á landinu nú í júlíbyrjun, þegar gróður er í blóma og nóttin björt. Lúpínan er áberandi í Heiðmörk og gamli Elliðavatnsbærinn setur sterkan svip á umhverfi staðarins. Sigurður Bogi Börn í Fossvogs- skóla hafa á síðustu tveimur árum sótt skóla við ýmsar að- stæður. Við foreldrar höfum sett traust okk- ar á stjórnendur borg- arinnar um að þeir gæti þess að þær séu hagfelldar fyrir börnin. Enginn átti von á því að stjórnendur og eft- irlitsaðilar myndu horfa í hina áttina eða stinga gögn- um djúpt niður í skúffu, vitandi að á hverjum degi sækja um 350 börn og 60 starfsmenn skólann í aðstæðum hættulegum heilsu þeirra. Kannski fannst borgarstjóra þetta ekki mikill fjöldi enda álíka stór hópur og starf- ar fyrir hann á skrif- stofu borgarstjóra. Það er einnig ámæl- isvert að aðstoð- armaður borgarstjóra skuli grípa inn í með af- gerandi hætti og fá sex aðra stjórnendur borg- arinnar í lið með sér til að þagga málið niður til að koma í veg fyrir að „móðursýki“ brytist út. Hvar er móðursýki að finna? Hjá þeim sem fórnaði heilsu barna til að gæta að áliti almennings á borg- arstjóra eða foreldrinu sem bar hag barns síns fyrir brjósti? Sinnuleysi borgarstjóra er algört. Ef borgarstjóri hefði staðið undir nafni og komið að degi til í skólann, hefði hann viljað setjast niður með börnunum og snæða hádegisverð sem matreiddur var yfir opinni klóaklögn? Næsta vetur munu 1. til 3. bekkur Fossvogsskóla vera í færanlegum kennslustofum nærri Fossvogsskóla vegna framkvæmda. Þau eru þó enn innan hverfis. Nemendur í 4. til 7. bekk munu sækja skóla, alla vega fram að jólum, sem er í um 11 kíló- metra fjarlægð frá skólanum þeirra, eða u.þ.b. 15 mínútna akstri í greiðri umferð. Það eru um 30 mínútur á hverjum degi eða 2,5 klukkustundir á viku. Það samsvarar þeim tíma sem stytting vinnuvikunnar er hjá öðrum. Nú þegar er ljóst að breytingar verða á hverjir munu annast kennslu og umsjón barnanna á næsta skóla- ári enda aðstæður ekki boðlegar starfsfólki frekar en börnunum. Það að glíma við heilsubrest og kvilla því tengdu er krefjandi. Ég velti því fyr- ir mér hvort borgin hafi hugsað sér að bæta kennurum þetta upp og tryggja bætur eða álagsgreiðslur vegna sérstakra aðstæðna yfir það tímabil. Það kann að verða áhyggjuefni hvort starfsfólk fáist til starfa við þær ömurlegu aðstæður sem börnin i Fossvogsskóla stunda nám. Börn eiga að búa við öryggi eða eins og segir í barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að þegar „fullorðnir taka ákvarðanir eiga þeir að hugsa um hvaða áhrif þær hafa á börn og eiga að gera það sem er best fyrir þau“. Þetta hefur orðið undir hjá borg- arstjóra og starfsliði hans. Það er enga móðursýki að finna í Fossvoginum en klóaklögn skólans rennur opin og óheft eins og síki sem betur hefði mátt stöðva í byrjun meints faraldurs i Fossvogi. Borg- arstjóri verður að axla ábyrgð á þeim vanda sem hann hefur komið nemendum og kennurum Fossvogs- skóla í með vanrækslu í viðhaldi og viðgerðum á skólahúsnæðinu. Vala Pálsdóttir » Það kann að verða áhyggjuefni hvort starfsfólk fáist til starfa við þær ömurlegu að- stæður sem börnin í Fossvogsskóla stunda nám. Vala Pálsdóttir Höfundur er móðir barna í Fossvogsskóla. Síki og ekki sýki í boði borgarstjóra Hinn 23. júní sl. hafnaði meirihluti Hæstaréttar í málinu nr 24/2021 kröfu sak- bornings í sakamáli um að tveir af þremur dómurum við Lands- rétt skyldu víkja sæti í endurtekinni með- ferð á máli hans í Landsrétti, en Hæsti- réttur hafði ómerkt fyrri dóm Landsréttar á þeirri forsendu að ekki hefði farið fram munnleg sönnunarfærsla í málinu. Með öðrum orðum stóð svo á að dómararnir tveir höfðu sak- fellt manninn við fyrri meðferðina án þess að til hefði komið munn- legur framburður fyrir dómi. Hæstiréttur hafði ómerkt þennan fyrri dóm af þessari ástæðu. Sakborningur taldi eðlilega að hann þyrfti ekki að sæta því að þessir tveir dómarar, sem væru búnir að sakfella hann á ófullnægjandi grundvelli, settust í dóm í máli hans þar sem bætt yrði úr fyrri annmörkum á meðferð málsins. Gerði hann því kröfu um að þessir tveir dómarar yrðu látnir víkja sæti þegar málið yrði dæmt á ný. Í forsendum Hæsta- réttar virðist koma fram skilningur á nauðsyn þess að sak- borningur hafi ekki ástæðu til að vantreysta dómurum máls, því þar segir m.a.: „Þegar lagt er mat á hæfi dómara til að fara með mál verður að gæta að því að tilgangur hæfisreglna í réttar- farslögum er ekki einungis að tryggja að dómari sitji ekki í máli nema hann sé óhlutdrægur gagn- vart bæði aðilum máls og efni þess heldur einnig að tryggja traust að- ila jafnt sem almennings til dóm- stóla með því að koma í veg fyrir að dómari komi að úrlausn máls ef réttmæt tortryggni gæti risið um óhlutdrægni hans.“ Þessari einföldu hugsun sýnist svo varpað fyrir borð síðar í for- sendunum þar sem segir svo orð- rétt: „Þótt að sínu leyti sé skilj- anlegt að ákærði sem sakfelldur hefur verið af þremur dómurum hafi efasemdir um að þessir dóm- arar muni líta málið öðrum augum við nýja efnislega meðferð þess og telji að þeir muni síður fallast á rök hans fyrir sýknu en nýir dómarar sem ekki hafa komið að því áður getur það eitt og sér ekki talist grundvöllur undir réttmætan efa um að þeir teljist óhlutdrægir.“ Kröfu mannsins var því synjað. Í þessum forsendum felst alvar- leg þversögn. Engin réttarfarsleg þörf er á að synja kröfu mannsins. Hann vildi bara að málið dæmdu dómarar sem hann hefði ekki ástæðu til að ætla að hefðu fyrir fram mótað afstöðu sína til sak- arinnar. Það er í raun óskiljanlegt að fjórir af fimm hæstaréttardóm- urum skuli synja honum um þetta. Það er lítið hald í því fyrir mann- inn að einn dómaranna fimm skuli hafa skilað sératkvæði, þar sem hann færir einföld rök fyrir því að taka beri kröfu mannsins til greina. Í atkvæði hans segir m.a. svo: „Fjölmörg dæmi eru um að dómari hafi talist vanhæfur þótt afskipti hans af málefni, meðal annars við meðferð máls fyrir dómi, hafi verið mun veigaminni en að kveða upp efnisdóm í máli, […]. Vanhæf- isreglur laganna hafa auk þess að geyma víðtæk ákvæði sem mæla fyrir um að hlutrænt séð skuli dómarar taldir vanhæfir þótt síður en svo verði fullyrt að tengsl þeirra við mál séu með þeim hætti að áhrif þurfi að hafa á afstöðu þeirra.“ Nefnir þessi dómari m.a. til sög- unnar dæmi úr lögum, þar sem kveðið er á um þetta. Fullyrða má að traust almenn- ings til Hæstaréttar hafi látið veru- lega á sjá á undanförnum miss- erum og árum. Því hefur ráðið ófullnægjandi dómsýsla réttarins. Hafi dómarar við Hæstarétt áhuga á að reyna að bæta traust almenn- ings til dómstólsins ættu þeir að reyna að forðast dóma þar sem bersýnilega er brotið freklega á rétti borgara til hlutlausrar með- ferðar mála þeirra. Furðulegur dómur Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson Jón Steinar Gunnlaugsson » „Í þessum for- sendum felst alvar- leg þversögn. Engin réttarfarsleg þörf er á að synja kröfu manns- ins. Hann vildi bara að málið dæmdu dómarar sem hann hefði ekki ástæðu til að ætla að hefðu fyrir fram mótað afstöðu sína til sak- arinnar.“ Höfundur er lögmaður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.