Morgunblaðið - 05.07.2021, Page 20

Morgunblaðið - 05.07.2021, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021 ✝ Steinunn Árna- dóttir fæddist á Laufásvegi 3 í Reykjavík 15. maí 1929. Hún andaðist á Hrafnistu í Boða- þingi 22. júní 2021. Foreldrar hennar voru Guðrún Ein- arsdóttir, f. 7.1. 1899, og Árni J. Árnason, f. 9.5. 1896. Systkini Steinunnar eru: 1) Inga, f. 1932. 2) Guðrún Lilja, f. 1934. 3) Árni Jón, f. 1939. 4) Erna, f. 1943. Steinunn giftist 17.6. 1950 Gunnari A. Aðalsteinssyni, f. 3.9. 1926. Foreldrar hans voru Ingileif Björnsdóttir, f. 15.6. 1899, og Aðalsteinn Baldvins- son, f. 12.9. 1897. Börn Stein- unnar og Gunnars eru: 1) Sól- rún, f. 25.3. 1950, gift Gylfa Má Guðjónssyni, f. 19.3. 1943. Börn þeirra eru: a) Sunna Björk, í samb. með Salvador Escalona. b) Gunnar og c) Haukur. Dóttir Hauks er Sigrún Sól. 2) Hafdís Aðils, f. 8.5. 1951, gift Nikulási Árna Halldórssyni, f. 3.5. 1946. Börn þeirra eru: a) Gunnur Steinunn, gift Þorkeli Má Hreinssyni. Þeirra börn: Nikulás Árni, í sambúð með Hrafnhildi Helgadóttur, Hafdís Hennar börn: a) Ágúst Skorri, kvæntur Stefanie Bade. Börn: Wolfram Orri og Hinrik Árni. b) Sigrún Erna, gift Karim Aouini. c) Steinþór, kvæntur Arndísi Nínu. Barn: Ynja Rán. 5) Ingileif Aðalheiður, f. 16.12. 1958. Eiginmaður hennar var Magnús Valsson, f. 2.10. 1955, d. 12.4. 2016. Dætur þeirra eru: a) Sigríður Aðils, gift Halldóri Hauki Sigurðssyni. Börn þeirra eru: Aníta Sól, Hug- inn Aðils og Iðunn Aðils. b) Ás- rún Ester, í samb. með Agli Kaktusi Wild. 6) Árný Guðrún, f. 13.5. 1964, í samb. með Guðjóni Bjarnasyni, f. 26.2. 1963. Synir þeirra eru: a) Bjarni Aðils og b) Orsen. Steinunn ólst upp í Reykjavík. Að lokinni skólagöngu stundaði hún verslunarstörf þar til hún giftist. Þá flutti hún vestur í Dali þar sem þau Gunnar reistu sér nýbýlið Brautarholt II og bjuggu þar í 20 ár. Þá fluttu þau í Borgarnes þar sem Gunnar veitti sláturhúsi kaupfélagsins forstöðu. Þau undu hag sínum vel í Borgarnesi og litu á sig sem Borgnesinga þótt þau gleymdu ekki rótum sínum í Dölunum og Reykjavík. Steinunn bjó þar lengi eftir að Gunnar lést en flutti síðan í Kópavog þar sem hún eyddi síðustu æviárunum í námunda við flest barna sinna. Síðustu árin dvaldi hún á Hrafn- istu við Boðaþing. Útför Steinunnar fer fram frá Háteigskirkju í dag, 5. júlí 2021, og hefst athöfnin klukkan 13. Guðrún og Lárus Aðils. b) Halldór Þorsteinn. Börn: Nikulás Árni og Eva Björt. c) Stein- ar Árni, kvæntur Karen Björns- dóttur. Börn: Krist- ján Bjarni, Haf- steinn Árni og Guðrún Auður. 3) Trausti, f. 30.5. 1953, kvæntur Ástríði Gunnarsdóttur, f. 9.10. 1953. Synir þeirra: a) Gunnar Ingi, kvæntur Margréti Heiðu Guðbrandsdóttur. Börn þeirra: Ísak Snorri, Hrafnkell Kári, Ás- dís Mía og Freydís Lísa. b) Bjarki, kvæntur Ástu Friðriks- dóttur. Þeirra börn: Friðrik Þór og Margrét Mirra. c) Hlynur Torfi, kvæntur Erlu Hlín Hen- rýsdóttur. Synir þeirra: Henrý Trausti og Hilmir Ingi. 4) Tryggvi, f. 9.3. 1956. Fyrri kona hans var Elsa Friðriksdóttir, f. 4.1. 1957. Börn þeirra eru: a) Jenný Lind, gift Markusi Menc- zymski. Börn þeirra eru: Jó- hannes Aron, Jakob Aron og Sara María. b) Gunnar Aðils, kvæntur Villimey Sigurbjörns- dóttur og c) Friðrik Árni. Seinni kona Tryggva er Halldóra Ágústsdóttir, f. 30.3. 1963. Mig langar að skrifa nokkur orð um elskulega tengdamóður mína er lést þann 22. júni 2021. Ég kynntist Steinunni vorið 1974 þegar ég kom í fyrsta sinn inn á heimili þeirra Gunnars með syni þeirra. Við höfum átt ótalmargar stundir saman, margt spjallað og margir spábollarnir drukknir við eldhúsborðið hjá henni í Borg- arnesi. Alltaf gátum við spjallað um heima og geima, þar á meðal kóngafólkið og fræga fólkið sem var í bresku Hello-blöðunum og skandinavíska kóngafólkið í dönsku blöðunum. Eftir að Steinunn flutti í bæ- inn fyrir fjórum árum gátum við hizt miklu oftar þar sem hún bjó rétt hjá okkur. Það var alltaf gaman að koma til hennar. Við fórum í marga bíltúra, meðal annars í haustlita- ferðir á Þingvelli, Suðurnesja- hring, heimsóttum Stranda- kirkju og ótal ferðir um miðbæinn í Reykjavík. Ógleym- anleg var ferðin með henni í bú- staðinn okkar Trausta vestur í Dölum. Steinunn og Gunnar bjuggu í Brautarholti í Haukadal í 20 ár. Þar eignuðust þau börnin sín sex og lifði Steinunn anna- sömu lífi bóndakonunnar sem var alltaf með standandi veislu- borð. Henni þótti skemmtilegt að fara í amerísku búðina, Costco, það fannst henni mikil upplifun. Steinunn var mikið jólabarn og voru jólin og jólatónlistin sér kapítuli út af fyrir sig, hún bak- aði ótal smákökusortir, skreytti húsið hátt og lágt og eldaði mat upp á danska vísu svo sem svína- steik, heimagert rauðkál og fleira sem var ekki venjulegt hér á landi á þeim tíma. Ég veit að Gunnar, ástin í lífi hennar, hefur tekið vel á móti henni í sumarlandinu og kveð hana með þessum ljóðlínum eftir Tómas Guðmundsson. Já, þannig endar lífsins sólskinssaga. Vort sumar stendur aðeins fáa daga. En kannski á upprisunnar mikla morgni, við mætumst öll á nýju götuhorni. Elsku Steinunn hjartans þakkir fyrir samfylgdina. Guð geymi þig. Þín tengdadóttir, Ástríður Gunnarsdóttir (Addý). Elskuleg systir mín og vin- kona er látin. Steinunn var stóra systir mín og fyrstu minningar mínar af henni eru af Bjarn- arstígnum þar sem ég fæddist. Ég man líka vel eftir því þegar pabbi tók myndir af okkur báð- um við Leifsstyttuna á Skóla- vörðuholti. Þá hef ég verið tveggja ára og Steinunn fimm ára. Steinunn passaði vel upp á litlu systur sína og tók aldrei annað í mál en að halda í hend- ina á henni hvert sem farið var. Svo liðu árin. Steinunn flutti vestur í Dali með sínum elsku- lega Gunnari og eignaðist með honum sex börn. Á sama tíma stofnaði ég heimili í Reykjavík með Sigurði, eiginmanni mínum, og flutti svo með fjölskyldunni til útlanda þar sem við bjuggum í átta ár. Þrátt fyrir að bæði sam- göngur og fjarskipti væru með öðrum hætti á þessum tíma en nú, héldum við góðu sambandi með bréfaskriftum. Það var allt- af tilhlökkun að fá bréf frá Steinunni. Þegar um fór að hægjast og börnin uppkomin, fórum við systurnar ásamt eiginmönnum okkar, nokkrar ferðir saman til útlanda sem eru mér ógleyman- legar. Þannig fórum við nokkr- um sinnum til Þýskalands og eins til Skotlands. Í einni ferð- inni leigðum við hús í vínrækt- arhéraði og þegar gestgjafinn heyrði af því að Steinunn og Gunnar áttu gullbrúðkaup var ekki um annað að ræða en að drífa okkur öll saman í upp- skeruveislu. Þar var mikið klappað, spilað, sungið og dans- að og allir skemmtu sér kon- unglega. Elsku Steinunn, ég á eftir að sakna þín óendanlega mikið og minnist allra góðu stundanna sem við áttum saman. Guð vaki yfir þér allar stundir. Þín systir, Inga Árnadóttir. Sumarið á Íslandi er lang- þráður tími. Hækkandi sól veitir öllu lífi birtu og yl. Þá renna stundum saman í eina hljóm- kviðu mild birtan og fágaðir litir landsins. Það var einmitt á slík- um degi sem móðursystir mín Steinunn kvaddi þennan heim. Ævisól hennar var gengin til við- ar eftir langa og góða ævi en minningarnar lifa og hún skilur eftir sig stóran og glæsilegan ættboga. Það hafa alltaf verið miklir kærleikar milli Steinunnar og Ingu, móður minnar. Amma og afi voru bæði fædd vestur í Döl- um og þannig eru þær báðar af fyrstu kynslóð Reykvíkinga sem bæði fæddust og ólust þar upp. Þær drukku í sig mannlífið og eignuðust góðar og traustar vin- konur sem héldu hópinn fyrir lífstíð. Þær systur voru á marg- an hátt samstíga í lífinu en oft var langt á milli þeirra. Stein- unn bjó lengst af vestur í Dölum og í Borgarnesi og fjölskyldan mín bjó langdvölum erlendis. Þrátt fyrir fjarlægðina höfðu þær alltaf reglulegt samband sín á milli og töluðu nánast dag- lega saman síðustu áratugina. Á uppvaxtarárum mínum voru þau jafnan nefnd í sömu andrá Steinunn og Gunnar. Mikill og góður vinskapur var á milli fjölskyldnanna og fjöl- skyldufeðurnir góðir vinir. Það var alltaf mikil tilhlökkun að fá að heimsækja þau vestur í Dali í Brautarholt. Það var mikið æv- intýri fyrir ungan strák að fá að taka þátt í hefðbundnum bú- störfum og öllu sem því fylgir. Systkinahóparnir voru einnig á svipuðu reki og því var oft glatt á hjalla þegar frændsystkinin hittust. Steinunn og Gunnar voru ein- staklega gestrisin og skemmti- legt fólk að sækja heim. Mér er það minnisstætt sem barni að vera tekið sem jafningja og spjallað um heima og geima. Alla tíð voru þau mjög áhuga- söm um allt það sem maður var að gera í leik, námi og starfi. Ég á einstaklega góðar minningar af notalegum samverustundum með þeim. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti til Steinunnar og sendi börnum hennar og fjöl- skyldum þeirra mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guðbrandur Sigurðsson. Það er mánudagur 15. maí 1967, afmælisdagur Steinunnar móðursystur minnar. Við tvær sitjum saman í rútu á leið vestur í Dali. Snjóa hafði ekki leyst á Bröttubrekku og ég man að það vakti athygli mína enda nýflutt til Íslands eftir átta ára búsetu erlendis með foreldrum mínum og systkinum. Í þessari ferð fékk ég að dvelja mánaðarlangt hjá Steinunni og Gunnari og börnum þeirra sex í Brautar- holti. Það er skemmst frá því að segja að mér var tekið opnum örmum af öllum og aldrei leið mér eins og gesti heldur sem hluta af fjölskyldunni. Ég tel það ómetanlegt að hafa kynnst sveitastörfum á barnsaldri. Margt var brallað fyrir utan að reka kýrnar kvölds og morgna, fylgjast með sauðburði og leika sér í heyinu. Þarna lærði ég í fyrsta skipti að nota saumavél og drekka caffè latte löngu áður en það nafn var notað fyrir kaffidrykkinn hér á landi. Heimabakaða brauðið hennar Steinunnar var algjört lostæti. Ég varð sólgin í mysing og það var alltaf passað upp á að mys- ingurinn væri til fyrir „út- lenska“ borgarbarnið! Þessi dvöl í Brautarholti var upphafið að fjöldamörgum stuttum sem og löngum heimsóknum til Gunn- ars og Steinunnar í sveitina og seinna í Borgarnes. Stundum skil ég ekki hvernig Steinunn hafði orku til þess að taka á móti þeim fjölmörgu gestum sem komu til þeirra en þau hjónin voru höfðingjar heim að sækja. Meira að segja var boðin næturgisting í Borgarnesi þótt vegalengdin til Reykjavíkur væri ekki löng. Dóttir mín minn- ist margra heimsókna til þeirra með hlýju og þakklæti. Steinunn var einstaklega skemmtileg, létt og kát og alltaf stutt í hláturinn hjá henni. Hún hafði gaman af því að fylgjast með því sem var að gerast og bækur voru aldrei langt undan. Nú er höggvið skarð í hóp systkinanna á Mánagötunni þegar elsta systirin kveður. Ég veit að hvíldin var henni kær- komin en engu að síður er sárt að sjá á eftir Steinunni. Ég votta börnum hennar og fjölskyldum þeirra mína innilegustu samúð. Þau hafa verið vakin og sofin yf- ir velferð hennar. Blessuð sé minning Steinunnar. Guðríður St. Sigurðardóttir. Steinunn Árnadóttir HINSTA KVEÐJA Elsku amma, Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þökkum alla væntum- þykjuna, faðmlögin og ynd- islegu samverustundirnar. Þín barnabörn, Gunnur, Halldór og Steinar. Elsku Kiddi minn! Að fæðast hefur sinn tíma og að deyja hefur sinn tíma. Nú ertu farinn og það er svo sárt ástin mín. En þú fórst alveg eins og þú óskaðir þér. Það eru örugglega ekki margir sem hjóla á mótor- hjóli 87 ára gamlir á 150 km hraða á laugardegi og kveðja daginn eftir. Þú varst svo lifandi, alltaf eitthvað að brasa. Þú sagðir alltaf þegar mér ofbauð kapp- semin í þér: „Það er nægur tími til að hvíla sig þegar maður er dauður!“ Já ástin mín, það var á fimmtu- dagskvöldi 26. apríl 2007 að ótrú- lega flottur maður bauð mér upp í dans á Örkinni í Hveragerði. Síð- an þá höfum við dansað saman í gegnum lífið, og það hefur verið svo ljúft. Börnin mín og þeirra af- komendur elskuðu þig og voru Kristinn Georgsson ✝ Kristinn Georgsson (Kiddi G.) fæddist 31. desember 1933. Hann lést 13. júní 2021. Útför hans fór fram í kyrrþey 19. júní 2021. svo glöð með hvað ég hafði hitt góðan og vandaðan mann. Þín börn og afkom- endur tóku mér af- skaplega vel, að þú værir ekki lengur einn, og þeim þakka ég innilega fyrir. Við áttum dásam- leg 14 ár saman. Alltaf að gera eitt- hvað skemmtilegt. Í húsbílnum úti um allar trissur, með mótorhjólið í kerru í eftir- dragi. Margir túrar á mótorhjól- inu og ekki má gleyma sjóferð- unum á Togaranum að veiða okkur í soðið. Óteljandi utan- landsferðir, flestar til Kanarí en líka til Tenerife og Torrevieja. Þú varst ótrúlega vinmargur, áttir t.d. mótorhjólavini úti um allt land. Já, það er margs að minnast hjartað mitt. Nú er ég í sorg en þú vildir að ég lifði lífinu áfram þangað til minn tími kæmi og við hittumst í blómabrekkunni. 13. júní stóð í dagbókinni minni: „Horfðu upp en ekki niður, fram en ekki til baka.“ Það ætla ég að gera. Guð veri með okkur öllum sem elskuðum og söknum Kidda G. Ég elskaði þig af öllu hjarta og takk fyrir allt. Þín Ester Guðlaug Karlsdóttir. Fyrir u.þ.b. 14 árum kom mað- ur inn í fjölskyldu okkar. Maður sem hefur markað djúp spor í huga okkar og skilur eftir sig já- kvæðar minningar um góðan dreng. Ester móðir okkar hafði verið ein um nokkurt skeið þrátt fyrir tilraunir okkar til að benda henni á að hugsanlega gæti verið gott fyrir hana að eignast góðan vin. Hún var nú ekki alveg á þeim buxunum en gat þó hugsað sér slíkt ef hinn fullkomni maður birtist. Og viti menn! Það gerðist. Hún hitti mann á Örkinni í Hveragerði sem kom eins og riddarinn á hvíta hestinum og hreif hana með sér á vit ævintýra á áður óþekktum slóðum. Mamma geislaði og maðurinn hennar var Kiddi Georgs. Hans hvíti fákur var þó hinn jákvæði andi og drifkraftur sem fylgdi honum hvert fótmál. Aðra fáka eins og stóra rauða mótorhjólið, húsbílinn og litlu julluna notaði hann til að ferðast með móður okkar í raunheimum á nýjar slóð- ir. Þess á milli fóru þau til sólar- landa til að sækja sér birtu og yl þar sem hjörtu þeirra skinu skært í hópi góðra vina. Það var því mikil Guðsgjöf fyrir mömmu að finna þennan fullkomna mann, en Guð gefur og Guð tekur. Nú er Kiddi á sínum hvíta hesti á leið í sælu himnaríkis. Við í fjölskyldu mömmu viljum með þessum fá- tæklegu orðum koma til skila okkar besta þakklæti til Kidda fyrir þessi frábæru 14 ár. Við fengum að kynnast manni sem var tekið opnum örmum af öllum og stóri faðmur hans var sömu- leiðis okkur alltaf opinn. Sem merki um það voru minnstu börn okkar strax farin að kalla hann afa Kidda. Við þökkum mömmu og Kidda fyrir að vera okkur svona miklar fyrirmyndir í því hvernig hægt er að lifa lífinu lif- andi. Gera það sem mann langar helst til og njóta hvers dags til hins ýtrasta. Það þurfti ekki mjög glöggt fólk til að sjá og skynja hamingju þeirra nánast öllum stundum. Hamingjan skein frá þeim eins og geislar sólarinn- ar þar sem traustið þeirra á milli var einstakt. Elsku mamma/tengdamamma og amma, missir þinn er mikill. Þinn besti vinur og sambýlismað- ur hefur nú kvatt að sinni. Hann mun örugglega taka á móti þér þegar þar að kemur, býður þér að setjast á bak og þeysir með þig í nýjan ævintýraheim. Styrkur þinn er mikill til að halda áfram og munum við reyna okkar besta til að styðja þig á erfiðum tímum. Vottum við þér og fjölskyldu Kidda okkar dýpstu samúð. Roland, Christine, Tómas, Björn, Hafþór og fjölskyldur. Fallinn er frá héraðshöfðinginn Gunnar Ingi Birgis- son. Hann var stór maður í sjón og raun. Mikill að vallarsýn og sannkallað athafna- skáld sem lét um sig muna á mörgum sviðum sem verkfræð- ingur, sveitarstjórnarmaður, bæjarstjóri og þingmaður. Hann hafði mikilfenglega tal- rödd, dökka og hljómmikla. Það fór ekki fram hjá neinum ef hann var mættur á svæðið. Hann hafði þétta hönd og traustvekjandi, var snareygur og skjótráður. Gunnar var drengur góður með gullhjarta. Fundum okkar bar saman í kjölfar þess að menningarfulltrúi Kópavogsbæjar Björn Þorsteins- son bauð mér starf í umboði bæj- arstjórnar til að lyfta undir tón- listarlífið í Kópavogi. Þeir Gunnar og Sigurður Geirdal, þá- Gunnar Ingi Birgisson ✝ Gunnar Ingi Birgisson fæddist 30. sept- ember 1947. Hann lést 14. júní 2021. Útför Gunnars fór fram 24. júní 2021. verandi bæjarstjóri, voru nánir sam- starfsmenn. Fundahöld og spekúlasjónir við þessa heiðursmenn fæddu af sér fyrsta tónleikasalinn á Ís- landi, Salinn í Kópa- vogi. Það er bauta- steinn sem muna má ókomna tíð. Tónlist- arhúsið í Kópavogi hafði áhrif til framtíðar tónlist- inni í landinu. Mér þótti snöggt um Gunnar Birgisson en þannig var einnig um þá Sigurð Geirdal og Björn Þorsteinsson. Blessuð sé minning þessara heiðursmanna. Ég átti mér þann draum og var stundum að því spurður hvort mér hefði ekki tekist að fá Gunn- ar til að syngja með mér lagstúf, hann með þessa hljómmiklu rödd. Við Gunnar ræddum þetta stund- um og höfðum gaman af. Því mið- ur fórst það fyrir en ég verð und- irbúinn þegar að því kemur. Aðstandendum öllum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Ágústa Hauksdóttir og Jónas Ingimundarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.