Morgunblaðið - 05.07.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.07.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021 ÁR 1921-2021 Í Y KKA R ÞJÓNUSTU 10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri 40 ÁRA Lísa fæddist í Reykjavík, en ólst upp bæði á Akureyri og í Svíþjóð, en hún lauk grunnskólagöngu í Hlíðaskóla í Reykja- vík. Þá tók við Menntaskólinn við Hamrahlíð en þaðan lauk hún stúdentsprófi árið 2000. „Ég er ný- flutt í Hlíðarnar aftur eftir tíu ár í Vest- mannaeyjum og það er gott að koma heim í gamla hverfið mitt aft- ur, þótt ég sakni líka Vestmannaeyja mjög mikið.“ Eftir stúdents- prófið flutti Lísa til Malmö í Svíþjóð og þar lauk hún við félags- ráðgjafanám. Í dag er Lísa skólafélagsráðgjafi í Klettaskóla og vinnur sem fé- lagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg. Lísa á þrjú börn með eiginmanni sínum, Heiðari, og mikið að gera á heimilinu. Þau hafa mikinn áhuga á útivist og ferðalögum þegar tími gefst. „Svo er það bara allt sem lýtur að áhugamálum barnanna. Ég var í handbolta í Val þegar ég var yngri og fannst það mjög gaman og núna eru börnin mín tvö í fótbolta og eitt í handbolta hjá besta félaginu, Val. Ég er því orðin svolítil boltamamma líka,“ segir hún og hlær. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Lísu er Heiðar Þór Pálsson málmiðnaðar- maður, f. 1975. Þau eiga börnin Íseyju, f. 2006, Emblu, f. 2008 og Erni, f. 2010. Foreldrar Lísu er Njáll Eiðsson, f. 1958, kennari í Laugarnes- skóla, og Hjördís Nanna Jónasdóttir, f. 1961, heimavinnandi húsmóðir í Svíþjóð. Lísa Njálsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Það er allt í lagi að hlusta á ann- arra ráð en ástæðulaust að hlaupa eftir þeim ef þín eigin dómgreind segir þér ann- að. 20. apríl - 20. maí + Naut Það eru fyrst og fremst fjárhags- málin sem þú þarft að gefa gætur þessa dagana. Gættu þess að þú fáir þá viður- kenningu sem þú átt skilið. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þér finnst þú enn eiga margt ógert en mundu að veraldlegum hlutum má auðveldlega skjóta á frest. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Láttu ekki smáatriðin vefjast fyrir þér heldur einbeittu þér að aðalatriðunum og þeim verkefnum sem mest liggur á. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þú hefur þurft að læra að standa á eigin fótum að undanförnu þar sem þú hefur notið minni stuðnings frá öðrum. Það sýnir að þér er ekki sama, sem er frá- bært. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Þú átt auðvelt með að leysa úr hvers kyns vandamálum í dag. Fáðu hlut- lausan aðila til aðstoðar því hann sér mál- ið öðrum augum. 23. sept. - 22. okt. k Vog Hristu af þér alla hræðslu og helltu þér í það sem þér langar mest að gera. Brettið bara upp ermarnar og gangið í málin því hálfnað er verk þá hafið er. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú þarft að fara gætilega í ákvarðanatöku þinni því þú veist að ekki verður aftur snúið. Leggðu áherslu á það að líta björtum augum á tilveruna. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Enginn gefur þér tíma fyrir sjálfan þig, þess vegna þarftu bara að búa þér hann til. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Það er klókt að vera jafnan viðbúinn einhverjum skakkaföllum því þá valda þau ekki jafnmiklu tjóni og annars þegar þau gerast. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Ekki er allt gull sem glóir og margt fyrirheitið fer fyrir lítið þegar til kastanna kemur. Traust undirstaða er það sem gerir þér kleift að hugsa um það sem getur orðið. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þú átt sérlega auðvelt með öll samskipti og munt því hugsanlega stofna til nýrrar vináttu á þessum tíma í lífi þínu. félagsins og sá hann m.a. um þáttinn Spjallað við bændur í Ríkisútvarp- inu um tíma. „Árið 1977 var mér boðin staða verkefnisstjóra við Útflutnings- miðstöð iðnaðarins, ullariðnaður á Íslandi var þá á mikilli siglingu. Ég sneri aftur til Búnaðarfélags Íslands tveimur árum síðar í starf sauð- fjárræktarráðunauts með breyttum áherslum. Ég sá m.a. um að vinna að nýbreytni í sauðfjárrækt. Sveinn kom með margar tillögur til ný- breytni og má nefna m.a. feld- við útreikninga á erfðastuðlum og öll gögnin voru færð á gataspjöld og var afrit vistað hjá Búnaðardeild at- vinnudeildar HÍ þar til hann kæmi heim frá námi. Doktorsritgerðin var um áhrif nokkurra þátta á frjósemi sauðfjár. Hinn 1. september 1966 hóf hann störf hjá Búnaðarfélagi Ís- lands sem ráðunautur í kynbótum sauðfjár og var meginverkefnið að koma skýrsluhaldi sauðfjárræktar í tölvutækt form og að skipuleggja af- kvæmarannsóknir. Auk þess vann hann ýmis störf á vegum Búnaðar- S veinn Hallgrímsson fædd- ist á Hálsi í Eyrarsveit 5. júlí 1936. „Faðir minn varð fyrir alvarlegu slysi í Kirkjufellinu og þurfti að hætta búskap og 1944 flutti fjöl- skyldan í Grafarnes þar sem þau gerðust símstöðvarstjórar. Síðan skildu þau og ég var sendur í uppeldi til móðurbróður míns, Halldórs E. Sigurðssonar, inni á Staðarfelli í Dölum.“ Sveinn var í farskóla í 3-4 mánuði á vetri og tók fullnaðarpróf árið 1950. Næstu þrjú árin var hann vinnumaður hjá Halldóri og sá um fjósið. „Þá var Húsmæðraskóli á Staðarfelli og við seldum mjólk í skólann. Ekkert matvælaeftirlit var þá, en bændum treyst fyrir eigin framleiðslu.“ Síðan fór hann í Hér- aðsskólann á Laugavatni. „Ég hafði aldrei séð dönsku eða ensku fyrr og var svolítið undanveltu. Í farskól- anum var kennarinn bóndi og ég held að hann hafi lítið verið í skóla.“ Eftir landspróf árið 1955 hóf hann búfræðinám á Hvanneyri og útskrif- aðist 1956. Þá fór hann í undirbún- ingsdeild fyrir Framhaldsdeild Bændaskólans við Menntaskólann á Laugarvatni. Hann útskrifaðist sem búfræðikandídat frá Hvanneyri 1959 og var fyrsti nemandi skólans til að skrifa lokaritgerð og halda opinber- an fyrirlestur um efnið. Síðan vann hann sem aðstoðarmaður hjá Bún- aðarfélagi Íslands, Atvinnudeild HÍ og Búnaðardeild og víðar. „Auðvitað ætlaði ég að verða bóndi, en ég átti ekki jörð og þá þurfti ég að gera eitt- hvað annað til að afla mér lífsvið- urværis.“ Því var ákveðið að fara í framhaldsnám. Sveinn sótti um nám í almennri búfjárrækt í Norges Landbrukshögskole og komst inn og var fyrsti búfræðikandídatinn frá Hvanneyri til að hefja nám í viður- kenndum erlendum háskóla. „Með náminu vann ég á ullarrannsóknar- stofu, svo mér fannst þetta ekkert mjög erfitt. Til að læra norsku keypti ég reyfarabækur og las í belg og biðu.“ Sem efnivið í ritgerð safnaði Sveinn gögnum frá fjárræktar- félögum á Íslandi og notaði þau gögn fjárrækt, ostagerð úr sauðamjólk, lengingu sláturtíma til að hafa ferskt kjöt á markaði og ræktun sérstakra ullargæða með áherslu á tog.“ Þann 1. september 1980 veitti NLH Sveini rétt til að bera titilinn doctor scientiarum. Sveinn hafði stundað kennslu á Hvanneyri í gegnum árin eftir námið. Árið 1984 var hann skipaður skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri og kenndi m.a. erfða- og kynbótafræði og sauðfjárrækt. „Við gerðum marga góða hluti á Hvanneyri á þessum árum, fengum t.d. rann- sóknarhús, tilraunagróðurhús sem skapaði betri kennsluaðstæður. Þá var gerð mikil breyting á kennslu og kennsluháttum og við hófum al- vöru kennslu í skógrækt, lífrænni ræktun og nemendum var gefinn kostur á að taka valfög af ýmsu tagi. Einnig var boðið upp á eina önn í rekstrarfræði eftir búfræðipróf. Þá langar mig að nefna byggingu nem- endagarða Búvísindadeildar og var sá fyrsti tekinn í notkun árið 1987 og fyrir 100 ára afmæli skólans 1989 var gert mikið átak í að fegra stað- inn, m.a. í kringum kirkjuna og gömlu byggingarnar.“ Sveinn var gestaprófessor við Ut- ah State-háskólann í eitt ár. „Þar fórum við hjónin út að labba þegar rigndi.“ Hann hefur skrifað fjölda greina í innlend og erlend fagtíma- rit og flutt fyrirlestra bæði heima og erlendis. Hann hóf útgáfu ritisins „Sauðfjárræktin“ meðan hann var sauðfjárræktarráðunautur og hefur verið mjög virkur í félagsmálum og var m.a. formaður NJF og er þá margt ótalið. „Ég hef alla ævi stundað sund, skíði um tíma, hesta- mennsku og síðar golf. Við hjónin höfum ferðast mikið, t.d. um Banda- ríkin, fórum til Leníngrad og Ús- bekistan í gömlu Sovétríkjunum. Þá heimsóttum við hjónin Inkabyggðir í Suður-Ameríku á okkar fyrstu hjúskaparárum. En núna hef ég verið fjárhirðir og „starfsmaður á plani“ hér á Vatnshömrum frá 2010, en þó virkur í mörgum félögum og skrifa greinar í Moggann og Bændablaðið.“ Sveinn Hallgrímsson fv. skólastjóri á Hvanneyri – 85 ára Fjölskyldan Hér var fjölskyldan samankomin nýlega í vor. F.v.: Kristján Karl, Hallgrímur Sveinn, Guðrún Karítas, Rósa Björk, Kevin Martin, Sveinn, Gerður Karítas, Helga Jensína, Kiljan Kormákur og Sveinn Svavar. Fjárhirðirinn á Vatnshömrum Vatnshamrar Sveinn með fé sitt í bakgrunni á býli sínu, Vatnshömrum. Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.