Morgunblaðið - 05.07.2021, Síða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021
Pepsi Max-deild karla
Stjarnan – Keflavík .................................. 2:3
Breiðablik – Leiknir R............................. 4:0
Staðan:
Valur 12 8 3 1 21:11 27
Breiðablik 11 7 1 3 28:15 22
Víkingur R. 10 5 4 1 16:9 19
KA 9 5 2 2 14:5 17
KR 10 4 3 3 16:12 15
Keflavík 10 4 1 5 14:19 13
Stjarnan 12 3 4 5 12:18 13
FH 11 3 3 5 14:17 12
Fylkir 10 2 5 3 14:17 11
Leiknir R. 11 3 2 6 11:18 11
HK 10 1 3 6 12:20 6
ÍA 10 1 3 6 11:22 6
Lengjudeild karla
Vestri – Fjölnir ......................................... 2:1
Staðan:
Fram 9 8 1 0 27:6 25
ÍBV 9 6 1 2 19:10 19
Grindavík 9 5 2 2 17:15 17
Kórdrengir 9 4 4 1 13:10 16
Vestri 10 5 1 4 16:19 16
Fjölnir 10 4 2 4 11:11 14
Afturelding 9 3 3 3 18:18 12
Þór 9 3 2 4 17:16 11
Grótta 9 2 2 5 17:17 8
Selfoss 9 2 2 5 17:24 8
Þróttur R. 9 2 1 6 19:22 7
Víkingur Ó. 9 0 1 8 10:33 1
2. deild karla
Magni – Þróttur V .................................... 0:1
Njarðvík – Leiknir F................................ 9:1
Fjarðabyggð – Reynir S .......................... 2:2
ÍR – KF ..................................................... 6:0
KV – Völsungur ........................................ 2:3
Staðan:
Þróttur V. 10 6 3 1 24:11 21
Njarðvík 10 5 5 0 26:11 20
KV 10 5 4 1 22:15 19
Haukar 9 4 3 2 23:16 15
ÍR 10 4 3 3 21:17 15
Reynir S. 10 4 2 4 21:20 14
Völsungur 10 4 2 4 21:23 14
KF 10 4 2 4 15:17 14
Magni 10 2 4 4 19:23 10
Leiknir F. 10 3 0 7 15:27 9
Fjarðabyggð 10 0 5 5 6:22 5
Kári 9 0 3 6 11:22 3
3. deild karla
Elliði – Dalvík/Reynir .............................. 3:1
Höttur/Huginn – ÍH................................. 1:2
KFS – Sindri ............................................. 2:4
Einherji – Tindastóll ................................ 3:6
Staðan:
Höttur/Huginn 10 7 1 2 16:12 22
Augnablik 10 6 3 1 26:12 21
Elliði 10 6 0 4 25:13 18
KFG 9 5 3 1 15:8 18
Ægir 10 4 4 2 14:11 16
Sindri 10 4 3 3 19:17 15
Dalvík/Reynir 10 3 2 5 15:15 11
Víðir 10 2 4 4 13:19 10
Tindastóll 9 2 3 4 19:19 9
ÍH 10 1 5 4 13:22 8
Einherji 10 2 1 7 14:27 7
KFS 10 2 1 7 11:25 7
2. deild kvenna
Völsungur – Fjölnir.................................. 2:1
Staðan:
FHL 7 7 0 0 32:7 21
Völsungur 8 7 0 1 21:9 21
Fjölnir 7 5 0 2 31:9 15
KH 6 5 0 1 17:4 15
Fram 6 4 0 2 14:7 12
Hamar 7 2 2 3 13:17 8
Hamrarnir 7 2 1 4 18:18 7
ÍR 6 2 1 3 13:14 7
Sindri 5 2 0 3 12:15 6
Einherji 6 1 2 3 4:11 5
SR 6 1 0 5 13:11 3
Álftanes 6 1 0 5 6:12 3
KM 7 0 0 7 1:61 0
Noregur
Bodö/Glimt – Viking............................... 2:2
- Alfons Sampsted fór af velli hjá Bodö/
Glimt á 90. mínútu.
- Samúel Kári Friðjónsson fór af velli hjá
Viking á 68. mínútu.
Odd – Rosenborg ..................................... 2:2
- Hólmar Örn Eyjólfsson var á vara-
mannabekk Rosenborg allan tímann.
Stabæk – Sandefjord............................... 0:2
- Viðar Ari Jónsson skoraði fyrra mark
Sandefjord og lagði það seinna upp.
Sarpsborg – Molde .................................. 1:0
- Emil Pálsson kom inn á hjá Sarpsborg á
68. mínútu.
- Björn Bergmann Sigurðarson hjá Molde
er frá keppni vegna meiðsla.
Haugesund – Tromsö.............................. 3:0
- Adam Örn Arnarson lék fyrstu 72 mín-
úturnar með Tromsö.
Strömsgodset – Vålerenga..................... 1:1
- Ari Leifsson lék allan leikinn með
Strömsgodset en Valdimar Þór Ingimund-
arson var allan tímann á bekknum.
- Viðar Örn Kjartansson hjá Vålerenga er
frá keppni vegna meiðsla.
Staða efstu liða:
Molde 12 8 2 2 28:12 26
Bodø/Glimt 13 7 3 3 27:13 24
Vålerenga 12 5 5 2 22:15 20
Kristiansund 10 5 2 3 8:9 17
Viking 11 5 2 4 21:23 17
Rosenborg 12 4 4 4 22:18 16
Odd 10 4 4 2 15:11 16
Lillestrøm 9 5 1 3 12:11 16
Haugesund 9 4 3 2 12:6 15
50$99(/:+0$
_ Ari Freyr Skúlason landsliðsmaður
í knattspyrnu skoraði glæsilegt mark
fyrir Norrköping þegar liðið vann
meistara Malmö 3:2 í sænsku úrvals-
deildinni á laugardaginn. Ari fékk bolt-
ann frá Ísaki Bergmanni Jóhann-
essyni og skoraði með hörkuskoti rétt
utan vítateigs.
_ Landsliðsmarkvörðurinn ungi Ce-
cilía Rán Rúnarsdóttir vakti mikla at-
hygli þegar hún hélt marki Örebro
hreinu í 0:0 jafntefli gegn toppliði Ro-
sengård í sænsku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu á
laugardaginn. Ce-
cilía hafði nóg að
gera og varði
nokkrum sinnum
glæsilega frá leik-
mönnum Rosen-
gård í leiknum,
m.a. frá Glódísi Perlu Viggósdóttur í
uppbótartíma leiksins.
_ Frakkinn Patrick Vieira var í gær
ráðinn knattspyrnustjóri enska félags-
ins Crystal Palace til þriggja ára og
tekur því við af Roy Hodgson sem
hætti að loknu síðasta tímabili. Vieira
er 45 ára gamall og varð þrisvar ensk-
ur meistari og fjórum sinnum bik-
armeistari með Arsenal á árunum
1997 til 2005, og síðan þrisvar ítalskur
meistari með Inter Mílanó. Hann var í
heimsmeistaraliði Frakka árið 1998.
Vieira stýrði Nice í Frakklandi í tæp tvö
ár en var sagt upp störfum þar í des-
ember 2020.
_ Lionel Messi lagði upp tvö fyrstu
mörk Argentínu og skoraði það þriðja
sjálfur beint úr aukaspyrnu í sigri ggen
Ekvador 3:0 í átta liða úrslitum Am-
eríkubikarsins í fótbolta, Copa Am-
erica, í Brasilíu í fyrrinótt. Rodrigo de
Paul og Lautaro Martínez skoruðu tvö
fyrri mörkin. Argentína mætir í undan-
úrslitum liði Kólumbíu sem vann Úrú-
gvæ í vítaspyrnukeppni eftir marka-
laust jafntefli. Í hinum leiknum
mætast Brasilía og Perú.
_ Körfuboltamað-
urinn efnilegi
Styrmir Snær
Þrastarson er á
förum til Banda-
ríkjanna og gengur
þar til liðs við Dav-
idson-háskólann.
Styrmir sem er 19
ára gamall var í
lykilhlutverki hjá Íslandsmeistaraliði
Þórs í Þorlákshöfn sem lagði Keflavík í
úrslitaeinvíginu á dögunum. Hann var
valinn besti ungi leikmaður Íslands-
mótsins. Styrmir fetar í fótspor Jóns
Axels Guðmundssonar sem var í stóru
hlutverki hjá Davidson í fjögur ár.
_ Milwaukee Bucks mætir Phoenix
Suns í úrslitaeinvíginu um meist-
Eitt
ogannað
BREIÐABLIK – LEIKNIR R. 4:0
1:0 Kristinn Steindórsson 7.
2:0 Viktor Örn Margeirsson 27.
3:0 Gísli Eyjólfsson 73.
4:0 Gísli Eyjólfsson 77.
M
Anton Ari Einarsson (Breiðabliki)
Höskuldur Gunnlaugsson (Breiðabliki)
Kristinn Steindórsson (Breiðabliki)
Viktor Örn Margeirsson (Breiðabliki)
Davíð Ingvarsson (Breiðabliki)
Gísli Eyjólfsson (Breiðabliki)
Andri Rafn Yeoman (Breiðabliki)
Daníel Finns Matthíasson (Leikni)
Dómari: Sigurður H. Þrastarson – 7.
Áhorfendur: Um 500.
STJARNAN – KEFLAVÍK 2:3
0:1 Joey Gibbs 17.
0:2 Joey Gibbs 38.
0:3 Nacho Heras 48.
1:3 Hilmar Árni Halldórsson 57.(v)
2:3 Þorsteinn Már Ragnarsson 69.
MM
Joey Gibbs (Keflavík)
M
Hilmar Árni Halldórsson (Stjörnunni)
Tristan Freyr Ingólfsson (Stjörnunni)
Ástbjörn Þórðarson (Keflavík)
Frans Elvarsson (Keflavík)
Ingimundur Aron Guðnason (Keflavík)
Nacho Heras (Keflavík)
Sindri Þór Guðmundsson (Keflavík)
Dómari: Þorvaldur Árnason – 8.
Áhorfendur: Um 400.
FÓTBOLTINN
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Breiðablik hefur heldur betur náð að
gera Kópavogsvöllinn að vígi á und-
anförum vikum. Eftir ósigur gegn
KR á heimavelli í fyrstu umferð Ís-
landsmótsins í fótbolta í vor hefur
Breiðablik unnið alla fimm heima-
leiki sína, fjóra þeirra með markatöl-
unni 4:0 og einn 2:0.
Eftir 4:0 sigur á Leikni á laug-
ardaginn er markatalan í þessum
fimm síðustu heimaleikjum orðin
18:0.
Miðað við siglinguna á Blikum um
þessar mundir eru þeir líklegir til að
elta Valsmenn í baráttunni um
meistaratitilinn og frammistaða
þeirra upp á síðkastið gefur góð fyr-
irheit fyrir Evrópuleikina tvo sem
fram undan eru gegn Racing Union
frá Lúxemborg.
_ Kristinn Steindórsson heldur
áfram að bæta markamet Blika í
efstu deild en hann skoraði sitt 45.
mark fyrir félagið gegn Leikni.
_ Gísli Eyjólfsson kom inn á sem
varamaður og skoraði tvö mörk og
varð með því ellefti leikmaðurinn til
að skora 20 mörk fyrir Breiðablik í
efstu deild.
_ Guy Smit markvörður Leiknis
meiddist í byrjun síðari hálfleiks.
Viktor Freyr Sigurðsson kom inn á
og spilaði sinn fyrsta leik í efstu
deild.
_ Sævar Atli Magnússon og
Brynjar Hlöðversson léku ekki með
Leikni og munar um minna. „Leikn-
ir er ekki með breiðasta hópinn í
deildinni og má illa við slíkum áföll-
um,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórs-
son í grein um leikinn á mbl.is.
Gibbs skorar og skorar
Keflvíkingar héldu sigurgöngunni
áfram, lögðu Stjörnuna 3:2 í Garða-
bæ og hafa nú fengið tíu stig í síð-
ustu fjórum leikjum, auk þess að slá
Blika út úr bikarkeppninni.
_ Joey Gibbs skoraði ekki í fyrstu
fjórum leikjum Keflvíkinga og í kjöl-
farið voru vangaveltur um að þrátt
fyrir 21 mark í 1. deild væri hann
ekki nóg góður í úrvalsdeildina.
Gibbs hefur svarað fyrir það með sjö
mörkum í síðustu sex leikjum í deild-
inni. Hann gerði tvö fyrri mörkin og
Nacho Heras það þriðja, sitt fyrsta í
efstu deild.
_ Stjarnan tapaði í fyrsta skipti í
sex leikjum eftir góða stigasöfnun
liðsins í júnímánuði en liðið lenti 3:0
undir. „Stjörnumenn settu Keflvík-
inga undir gífurlega pressu það sem
eftir lifði leiks en auðnaðist ekki að
jafna metin þrátt fyrir nokkur afar
góð færi,“ skrifaði Gunnar Egill
Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is.
Með 18:0 í
fimm leikjum
Ljósmynd/Jón Helgi Pálmason
Markaregn Leikmenn Breiðabliks fagna marki Gísla Eyjólfssonar gegn
Leikni en hann kom inn á sem varamaður og skoraði tvívegis.
- Breiðablik hefur gert Kópavogsvöll-
inn að miklu vígi - Fjórum sinnum 4:0
íðardóttir bætti eigið Íslandsmet í
flokki 18-19 ára í 100 m grinda-
hlaupi, hljóp á 14,00 sek en fyrir átti
hún 14,03 sek. Glódís virtist svekkt
eftir hlaupið en hún stefndi á 13,97
sek. sem er lágmarkið fyrir Evr-
ópumeistaramótið 20 ára og yngri.
Júlía Kristín Jóhannesdóttir,
Breiðabliki, setti Íslandsmet í flokki
16-17 ára í 100 m grindahlaupi, hljóp
á 14,28 sek. Glódís Edda átti metið í
þessum aldursflokki en Júlía Kristín
bætti það um 0,01 sek.
Nokkur mótsmet féllu um helgina.
Bergur Sigurlinni Sigurðsson, ÍR,
stökk 6,50 m í langstökki 16-17 ára
og bætti fimm ára gamalt mótsmet
Örvars Eggertssonar, FH, um 10
sm. Erna Sóley Gunnarsdóttir, ÍR,
sigraði bæði í kúluvarpi og kringlu-
kasti í flokki 20-22 ára. Hún var tölu-
vert frá Íslandsmeti sínu í kúlunni,
sem er 16,77 m en kastaði 14,94 m
sem er nýtt mótsmet í flokknum.
Helga Þóra Sigurjónsdóttir,
Fjölni, bætti mótsmetið í hástökki
20-22 ára, stökk 1,71 m og Björg
Gunnlaugsdóttir, UÍA, bætti móts-
metið í 600 m hlaupi 15 ára, hljóp á
1:48,72 mín.
Tvö mótsmet í viðbót féllu í flokki
16-17 ára pilta. Markús Birgisson,
Breiðabliki, hljóp 110 m grindahlaup
á 15,97 sek. og Elías Óli Hilmarsson,
FH, stökk 1,90 m í hástökki. Birgir
Vagn Finnsson, UFA, bætti móts-
metið í 110 m grindahlaupi í 18-19
ára flokki, hljóp á 15,36 sek. Þá bætti
Róbert Mackay, UFA, mótsmetið í
200 m 15 ára pilta, hljóp á 23,73 sek.
Sögulegur sigur
Sunnlendinga
- HSK/Selfoss vann í stigakeppninni
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Selfoss Glódís Edda Þuríðardóttir og Júlía Kristín Jóhannesdóttir á fullri
ferð í 100 m grindahlaupinu þar sem þær settu báðar Íslandsmet.
FRJÁLSAR
Guðmundur Karl
sport@mbl.is
Lið HSK/Selfoss sigraði í heild-
arstigakeppni Meistaramóts Íslands
15-22 ára í frjálsum íþróttum en
mótið var haldið á Selfossi um
helgina.
HSK/Selfoss fékk 421,5 stig en ÍR
varð í 2. sæti með 379 stig. Sigur
heimaliðsins HSK/Selfoss er sögu-
legur því hann bindur enda á 17 ára
samfellda sigurgöngu ÍR-inga á
þessu móti. FH varð í 3. sæti með
270 stig eftir harða keppni við
Breiðablik sem varð í 4. sæti með
264 stig.
Tvö aldursflokkamet voru sett á
mótinu í gær. Glódís Edda Þur-