Morgunblaðið - 05.07.2021, Síða 27
aratitil bandarísku NBA-deildarinnar í
körfuknattleik en það varð ljóst í fyrri-
nótt þegar Milwaukee vann sjötta leik-
inn gegn Atlanta Hawks á útivelli,
118:107. Giannis Antetokounmpo,
einn besti leikmaður deildarinnar, var
ekki með Milwaukee vegna meiðsla en
Khris Middleton tók að sér forystu-
hlutverkið í staðinn. Hann skoraði 32
stig, þar af 23 í þriðja leikhluta þar
sem Milwaukee gerði út um leikinn, og
þá skoraði Jrue Holiday 27 stig. Fyrsti
úrslitaleikurinn fer fram í Phoenix að-
faranótt miðvikudagsins en fari einvíg-
ið í sjö leiki lýkur því aðfaranótt 23.
júlí.
_ Hinn sautján ára gamli Kristian
Nökkvi Hlynsson fékk tækifæri með
hollenska meistaraliðinu Ajax á laug-
ardaginn. Hann
nýtti það vel og
skoraði mark í 6:0
sigri Ajax á HFC í
æfingaleik. Kristi-
an lék með varaliði
Ajax í B-deildinni
síðasta vetur.
_ Þór á Akureyri
hefur náð sér í framherja í staðinn fyr-
ir Álvaro Montejo sem kvaddi félagið á
dögunum til að spila í spænsku C-
deildinni. Sá heitir Dominique Mal-
onga og er frá Kongó en hann er 32
ára gamall og lék á sínum yngri árum
níu leiki með Torino í ítölsku A-
deildinni. Hann á að baki sjö A-
landsleiki fyrir Kongó, lék með U19 ára
landsliði Frakklands á sínum tíma, en
síðast lék hann með Lokomotiv Plodiv
í Búlgaríu.
_ Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði
mark Vålerenga er liðið mátti þola 1:2-
tap fyrir Rosenborg á heimavelli í
norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær.
Ingibjörg lék allan leikinn með Våle-
renga og Amanda Andradóttir kom
inn á sem varamaður á 65. mínútu.
Roseborg er nú í toppsætinu með 21
stig, Sandviken í öðru með 19 stig og
Vålerenga í þriðja með 18.
_ Viðar Ari Jónsson skoraði fyrra
mark Sandefjord í 2:0 útisigri á Sta-
bæk í norsku úrvalsdeildinni í gær
með glæsilegum hætti. Hann skaut frá
vítateig efst í markhornið vinstra meg-
in. Viðar hefur þar með skorað þrjú
mörk í deildinni í
ár.
_ Ein hræðileg
hola skemmdi
annars góðan
hring hjá Guð-
mundi Ágústi
Kristjánssyni á
Kaskáda-golf-
mótinu í Áskorendamótaröð Evrópu
sem lauk í Brno í Tékklandi í gær. Guð-
mundur lék fjórða og síðasta hringinn
á 73 höggum, tveimur höggum yfir
pari. Hann fékk fimm fugla og tvo
skolla en 15. holan skemmdi algjörlega
fyrir honum því hann lék hana á 10
höggum, fimm höggum yfir pari. Hann
endaði því í 57. sæti á samanlagt
tveimur höggum yfir pari.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Dalvíkurvöllur: KA – KR..................... 19.15
Víkingsvöllur: Víkingur R. – ÍA .......... 19.15
1. deild karla, Lengjudeildin:
Jáverkvöllur: Selfoss – Þór ...................... 18
Eimskipsvöllur: Þróttur R. – ÍBV ........... 18
Framvöllur: Fram – Kórdrengir ........ 19.15
Vivaldi-völlur: Grótta – Víkingur Ó .... 19.15
Grindavík: Grindavík – Afturelding ... 19.15
2. deild karla:
Ásvellir: Haukar – Kári ....................... 19.15
Í KVÖLD!
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, úrslit:
Atlanta – Milwaukee ........................ 107:118
_ Milwaukee vann einvígið 4:2 og mætir
Phoenix Suns í úrslitum.
>73G,&:=/D
Vináttulandsleikir kvenna
Frakkland – Noregur ......................... 21:30
- Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs.
Holland – Svíþjóð ................................. 23:28
E(;R&:=/D
EM karla 2021
8-liða úrslit:
Tékkland – Danmörk ............................... 1:2
Úkraína – England................................... 0:4
_ Danmörk og England mætast í undan-
úrslitum á Wembley á miðvikudagskvöldið.
Bandaríkin
Houston Dash – OL Reign ...................... 2:0
- Andrea Rán Hauksdóttir var ekki í leik-
mannahópi Houston Dash.
Columbus Crew – New England ........... 2:2
- Arnór Ingvi Traustason kom inn á hjá
New England á 78. mínútu.
CF Montréal – Inter Miami..................... 1:0
- Róbert Orri Þorkelsson var ekki í leik-
mannahópi Montréal.
Svíþjóð
Norrköping – Malmö............................... 3:2
- Ari Freyr Skúlason skoraði annað mark
Norrköping eftir sendingu Ísaks B. Jó-
hannessonar en þeir léku báðir allan leik-
inn. Jóhannes Kristinn Bjarnason var vara-
maður hjá Norrköping.
Hammarby – Halmstad........................... 1:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
Häcken – AIK........................................... 2:1
- Oskar Tor Sverrisson kom inn á hjá Häc-
ken á 58. mínútu og Valgeir Lunddal Frið-
riksson á 74. mínútu.
Sirius – Mjällby ........................................ 2:1
- Aron Bjarnason var ekki í leikmanna-
hópi Sirius.
Staðan:
Malmö 10 6 2 2 20:16 20
Djurgården 8 5 2 1 13:6 17
Norrköping 9 4 2 3 13:9 14
Degerfors 9 4 2 3 12:8 14
AIK 9 4 2 3 11:10 14
Kalmar 9 3 5 1 9:8 14
Elfsborg 9 4 1 4 12:11 13
Hammarby 9 3 3 3 15:14 12
Sirius 9 3 3 3 11:14 12
Halmstad 9 2 4 3 8:9 10
Mjällby 9 2 4 3 7:9 10
Gautaborg 8 1 6 1 8:7 9
Häcken 9 2 3 4 12:13 9
Östersund 9 2 2 5 12:11 8
Varberg 9 2 2 5 11:18 8
Örebro 8 2 1 5 5:16 7
Djurgården – Linköping ........................ 2:2
- Guðrún Arnardóttir lék allan leikinn
með Djurgården.
Örebro – Rosengård................................ 0:0
- Berglind Rós Ágústsdóttir og Cecilía
Rán Rúnarsdóttir léku allan leikinn með
Örebro.
- Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn með Rosengård.
Staðan:
Rosengård 11 9 2 0 23:2 29
Häcken 11 7 2 2 30:7 23
Kristianstad 11 5 4 2 18:14 19
Hammarby 11 5 3 3 23:15 18
Linköping 11 4 5 2 17:13 17
Eskilstuna 11 4 4 3 11:10 16
Vittsjö 11 4 3 4 11:9 15
Djurgården 11 3 2 6 10:17 11
Örebro 11 3 2 6 9:19 11
Piteå 11 3 1 7 11:20 10
AIK 11 2 3 6 9:34 9
Växjö 11 0 3 8 3:15 3
B-deild:
Uppsala – Kalmar.................................... 2:3
- Andrea Thorisson lék í 78 mínútur með
Kalmar og skoraði eitt markanna.
Noregur
Vålerenga – Rosenborg.......................... 1:2
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn og skoraði markVålerenga. Amanda
Andradóttir kom inn á sem varamaður á 65.
mínútu.
Arna-Björnar – Avaldsnes ..................... 3:0
- Guðbjörg Gunnarsdóttir var varamark-
vörður hjá Arna-Björnar.
KNATTSPYRNA
EM 2021
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Englendingar og Danir mætast í af-
ar áhugaverðum undanúrslitaleik á
Evrópumóti karla í fótbolta á Wem-
bley í London á miðvikudagskvöldið.
Þetta lá fyrir að loknum átta liða úr-
slitum keppninnar á laugardaginn
þegar Danir lögðu harðsnúna Tékka
í Bakú, 2:1, og Englendingar fóru
merkilega létt með Úkraínumenn í
Rómarborg, 4:0.
Bæði lið ættu að mæta full sjálfs-
trausts í þennan stórleik. Englend-
ingar hafa enn ekki fengið á sig
mark á mótinu og eru með markatöl-
una 8:0 eftir fimm leiki. Þeir fóru létt
í gegnum eina leik sinn í keppninni
sem þeir leika utan heimalandsins
og eru því komnir heim á ný.
Danir eru fyrsta lið sögunnar sem
kemst í undanúrslit eftir að hafa tap-
að fyrstu tveimur leikjum sínum í
lokakeppninni en þeir hafa nú skor-
að tíu mörk í þremur sigurleikjum í
röð gegn Rússlandi, Wales og Tékk-
landi.
_ Thomas Delaney og Kasper
Dolberg komu Dönum í 2:0 gegn
Tékkum í fyrri hálfleik í Bakú.
_ Patrik Schick minnkaði muninn
fyrir Tékka í byrjun síðari hálfleiks
en þeir náðu ekki að jafna metin og
Danir voru nær því að bæta við
marki þegar leið á leikinn.
_ Harry Kane skoraði tvö marka
Englands gegn Úkraínu, það fyrra
strax á 4. mínútu leiksins.
_ Harry Maguire og Jordan
Henderson skoruðu annað og fjórða
markið en Englendingar skoruðu
þrjú síðari mörkin öll með skalla.
Uppgjöf Úkraínumanna var al-
gjör, þeir reyndu ekki að pressa
Englendingana á lokakafla leiksins
og Felix Brych dómari linaði þján-
ingar þeirra með því að sleppa upp-
bótartímanum.
Danska liðið hefur heldur betur
spjarað sig vel án Christians Er-
iksens og er í undanúrslitum í fyrsta
sinn frá árinu 1992 þegar Danir urðu
óvænt Evrópumeistarar. Þá mætt-
ust einmitt Danir og Englendingar í
fyrsta og eina skiptið til þessa í loka-
keppni EM og gerðu þar markalaust
jafntefli.
Englendingar náðu þá ekki að
skora hjá Peter Schmeichel og á
miðvikudag þurfa þeir að glíma við
son hans, Kasper Schmeichel, í
danska markinu.
Þeir markahæstu farnir heim
_ Cristiano Ronaldo frá Portúgal
og Patrik Schick frá Tékklandi eru
markahæstir á EM með 5 mörk hvor
en þeir eru báðir farnir heim með
sínum liðum.
_ Karim Benzema frá Frakk-
landi, Emil Forsberg frá Svíþjóð og
Romelu Lukaku frá Belgíu eru allir
með 4 mörk en þeir hafa líka allir
lokið keppni.
_ Þeir sem hafa skorað 3 mörk og
eru enn með á EM eru Englending-
arnir Harry Kane og Raheem Sterl-
ing og Daninn Kasper Dolberg.
Fyrri viðureign undanúrslitanna
milli Ítalíu og Spánar fer fram á
Wembley annað kvöld en leikirnir
hefjast kl. 19 bæði kvöldin. Úrslita-
leikur sigurliðanna fer síðan fram á
Wembley á sunnudagskvöldið kem-
ur.
Hvað gerist á Wembley?
- Danir og Englendingar mæta þangað fullir sjálfstrausts eftir góða sigra á
laugardaginn - Fyrsta viðureign á EM frá 1992 - Ítalía og Spánn annað kvöld
AFP
Heitir Raheem Sterling og Harry Kane fagna fyrsta marki Englands gegn
Úkraínu. Þeir hafa skorað sex af átta mörkum Englands á EM.
Guðjón Þórðarson, einn reyndasti
og sigursælasti knattspyrnuþjálfari
landsins, er kominn í slaginn á ný.
Hann var í gær ráðinn þjálfari Vík-
ings í Ólafsvík til loka tímabilsins
2022 og tekur við af Gunnari Ein-
arssyni sem sagði starfinu lausu
fyrir helgina. Víkingar eru á botni
1. deildar með aðeins eitt stig.
Guðjón, sem er 65 ára gamall,
var áður með lið Víkings frá
miðjum júlí 2020 til loka tímabils-
ins. Áður átti hann góðu gengi að
fagna sem þjálfari KA, ÍA og KR,
þjálfaði karlalandsliðið og var síðan
m.a. knattspyrnustjóri Stoke City,
Barnsley, Notts County og Crewe í
enska fótboltanum. Síðan þjálfaði
hann lið BÍ/Bolungarvíkur, Grinda-
víkur og NSÍ í Færeyjum.
Ljósmynd/Þröstur Albertsson
Ólafsvík Jóhann Pétursson og Guðjón Þórðarson handsala samninginn.
Guðjón snýr aftur
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Hlynur Andrésson langhlaupari frá
Vestmannaeyjum setti sitt áttunda
Íslandsmet í fimm greinum á einu
ári á laugardaginn.
Hann hljóp þá 5.000 metra á
13:45,20 mínútum á sterku móti í
Belgíu og bætti þriggja mánaða
gamalt met Baldvins Þórs Magn-
ússonar um 46/100 úr sekúndu.
Hlynur vann B-flokk mótsins og
varð alls í 13. sæti af 53 sem luku
keppni.
Hlynur hóf metasyrpuna 10. júlí
2020 og hefur frá þeim tíma þríveg-
is bætt Íslandsmetið í 3.000 metra
hlaupi, tvisvar í 10.000 metra
hlaupi ásamt því að slá metin í
5.000 metrum, maraþonhlaupi og
hálfu maraþoni. Fjögur metanna
komu á árinu 2020 og fjögur hafa
komið á síðustu fjórum mánuðum,
eitt í mars, eitt í maí, eitt í júní og
eitt í júlí.
Hlynur er nú handhafi sex Ís-
landsmeta en auk fimm áð-
urnefndra greina á hann Íslands-
metið í 10 km götuhlaupi frá árinu
2019.
Áttunda Íslandsmet
Hlyns á einu ári
Ljósmynd/FRÍ
Methafi Hlynur Andrésson náði
metinu í 5.000 metrum á ný.