Morgunblaðið - 05.07.2021, Síða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ein af eftirtektarverðum sýningum á
hátíðinni Reykjavík Fringe í ár er
uppistand Rússans Oleg Denisov.
Hann kemur fyrst fram annað kvöld,
þriðjudaginn 6. júlí, og síðan aftur 9.,
10. og 11. júlí. Denisov er búsettur í
Moskvu og verður þetta fyrsta sýn-
ing hans erlendis í yfir fjórtán mán-
uði. Fyrir faraldurinn sýndi hann um
alla Evrópu, m.a. á ýmsum Fringe-
hátíðum, t.d. í Edinborg, Gautaborg
og Turku í Finnlandi. Sýningar hans
hafa verið afar fjölsóttar.
„Ég er að koma til Íslands í fyrsta
sinn en mér líður ekki eins og það sé
algjörlega framandi því þar verða
kunnugleg andlit,“ segir grínistinn
þegar blaðamaður nær til hans í
Moskvu símleiðis. Hann segir grín-
istasamfélagið í Evrópu mjög
skemmtilegt og að þar séu allir til-
búnir að hjálpa.
„Mig langar að koma fram fyrir
hönd Rússlands án þess að ýta undir
þær staðalímyndir sem fólk hefur um
Rússa, ég nota til dæmis ekki rúss-
neskan hreim til þess að auka áhrifin
eins og flestir rússneskir uppistand-
arar gera. Það fær fólk vissulega til
að hlæja en það væri ekki af réttum
ástæðum. Ég tala auðvitað eitthvað
um staðalímyndir en reyni að ýta
ekki undir þær,“ segir Denisov.
Talar um menningarmun
„Það fyrsta sem rússneskir uppi-
standarar eru spurðir um er hvort
þeir segi brandara um Pútín. Ég segi
alveg einhverja Pútín-brandara en
það er ekki í aðalhlutverki eins og hjá
mörgum rússneskum grínistum sem
koma fram erlendis. Þeirra sýningar
eru einungis pólitískar. Ég er hins
vegar pólitískur þegar ég kem fram í
Rússlandi en þegar ég er á alþjóða-
vettvangi þá tala ég mikið um menn-
ingu og menningarmuninn á Vestur-
löndum og fyrrum Sovétríkjum. Ég
held að fordómarnir sem fólk á
Vesturlöndum hefur um Rússa og
Rússar hafa um fólk á Vesturlöndum
nái dýpra en sem nemur pólitík eins
manns eða einnar stjórnar, þetta er
dýpri menningarmunur sem á rætur
sínar margar kynslóðir aftur,“
útskýrir Denisov og heldur áfram:
„Fólk sem bjó í Sovétríkjunum hefur
til dæmis sérstakt samband við upp-
lýsingapólitík og það hvort maður
kannar uppruna þeirra upplýsinga
sem maður fær frá stjórnvöldum.
Þetta snýst ekki bara um Pútín eða
Trump. Ég tala um þennan menning-
armun í uppistandinu, til dæmis áhrif
klassískra rússneskra bókmennta.
Þær geta mótað mann mjög mikið ef
maður elst upp við að lesa þær.
Hvers konar manneskja mótast við
allt þetta tal um að vilja taka eigið líf?
Og hvernig getum við miðlað þessu
til fólks í öðrum löndum með alþjóð-
legum vísunum?“
Saga uppistands í Rússlandi er að
sögn Denisovs líklega ekki lengri en
tíu til tólf ár. Hann segir það hafa
verið ágætt að stunda uppistand þar í
landi undanfarið en þegar hann byrj-
aði fyrir fimm árum gat fólk tekið því
illa ef grínistar gagnrýndu stjórn-
völd. Að hans sögn hefur orðið fram-
þróun síðan þá. „Í stærri borgum
landsins, eins og Moskvu og St. Pét-
ursborg, styður fólk pólitískt grín, en
það á bara við um að standa á sviði,
maður getur ekki farið með þetta
efni í sjónvarpið og ef maður fær of
mikla athygli gæti maður lent í vand-
ræðum. Það er búið að setja ný lög
um að ekki megi valda fólki í ríkis-
stjórninni skaða og maður getur
fengið sekt ef maður segir eitthvað
sem er hægt að túlka þannig. Maður
getur líka lent í því að myndbönd-
unum manns er eytt. Svo það er verið
að loka á alls konar tjáningu póli-
tískra skoðana. En uppistandarar
sem troða upp á sviði hafa enn sem
komið er ekki orðið fyrir miklum
áhrifum af þessu.“
Rætt um stjórnmál í eldhúsinu
Denisov segir mikla hugsjón vera
með þessu gríni sínu. „Ég er líka
framleiðandi og bókari og stofnaði
minn eigin klúbb í Moskvu sem er
fyrsti þrítyngdi uppistandsklúbb-
urinn í Evrópu. Þar eru reglulega
sýningar á rússnesku, ensku og
spænsku,“ segir Denisov og bætir við
til útskýringar að margt fólk frá
Suður-Ameríku sé búsett í Moskvu.
Hann vill hafa áhrif með gríninu og
opna umræðuna í rússnesku sam-
félagi. „Samfélagið var þannig að fólk
deildi ekki pólitískum skoðunum sín-
um utan síns nánasta hrings, treysti
oft ekki vinnufélögum eða nágrönn-
um, auk þess sem það fór ekki mikið
af bæ, á veitingastaði eða kaffihús til
dæmis. Þess vegna er talað um „eld-
hústal“ þegar átt er við pólitíska um-
ræðu. Og þetta hefur að einhverju
leyti haldist svona til dagsins í dag. Í
mörgum Evrópulöndum hittist fólk á
hverfiskaffihúsinu og skiptist á skoð-
unum en þetta gerist ekki í Rúss-
landi. Svo hvers kyns viðburðir, svo
sem uppistand og fyrirlestrar, þar
sem fólk kemur saman og getur
hlustað á og deilt hugmyndum, þeir
færa samfélagið fram á við og það er
mikilvægt, sérstaklega í Rússlandi
og öðrum fyrrum Sovétríkjum.“
Grín öruggasti miðillinn
Denisov játar því að það sé örugg-
ara að tala opinskátt um stjórnmál
undir formerkjum uppistands en ef
um pólitíska aðgerðahyggju væri að
ræða. „Ég held það sé öruggasti mið-
illinn til þess að reyna að hafa áhrif.
Stjórnendur landsins hafa fundið
leiðir til að gera opinber mótmæli
ólögleg. Grín og listir og hvers kyns
menningarafurðir eru þess vegna
eina nokkuð örugga leiðin til að tjá
pólitískar skoðanir. Það er alltaf
hægt að búa til smá fjarlægð og segja
að það sem maður segi á sviði sé ein-
ungis til skemmtunar, ekki manns
raunverulegu skoðanir eða tilraun til
að hafa áhrif á skoðanir annarra.“
Denisov sýnir tvær ólíkar sýningar
á Fringe, annars vegar Russian Troll
sem hann hefur farið með um alla
Evrópu og sýnt sextíu sinnum og
hins vegar Economy Vodka sem er
glæný sýning um atburði síðasta árs.
Hann segir Rússa almennt hafa verið
nokkuð rólega yfir heimsfaraldrinum
og lausa við miklar allsherjarlokanir
en mikil hræðsla sé hins vegar við
bólusetningar, vegna þess að þar hafi
verið byrjað að bólusetja áður en lyf-
in höfðu farið í gegnum síðustu próf-
anir. Fólk treysti þess vegna ekki
bóluefninu. Denisov segir að verið sé
að þvinga fólk til þess að láta bólu-
setja sig með ýmsum leiðum, t.d. geti
fólk átt á hættu að missa vinnuna sé
það ekki bólusett.
Nánari upplýsingar um sýningar
Denisovs má finna á rvkfringe.is.
Uppistandari Hinn rússneski Oleg Denisov á sviði í St. Pétursborg. Hann reynir að hafa áhrif í heimalandinu með
gríninu og segir það, enn sem komið er, vera tiltölulega örugga leið til þess að tjá stjórnmálaskoðanir sínar.
Tjáir stjórnmálaskoðanir með gríni
- Rússneskur uppistandari, Oleg Denisov, kemur fram á Reykjavík Fringe - Talar um menningu og
menningarmun - Segir uppistand mikilvægan miðil í landi þar sem lítið tjáningarfrelsi ríkir