Morgunblaðið - 07.07.2021, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 7. J Ú L Í 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 157. tölublað . 109. árgangur .
KJÖTSÚPAN
SELST VEL VIÐ
GOSSTÖÐVAR
Í ÚRSLIT
EFTIR VÍTA-
SPYRNUKEPPNI
GRIPIR
HLAÐNIR
MINNINGUM
SIGUR ÍTALA 22 MISSIR, SÝNING Í HÚSINU 24VIÐSKIPTAMOGGINN
Urður Egilsdóttir
urdur@mbl.is
„Þetta er stór samgöngudagur,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráðherra,
en hann og Dagur B. Eggertsson,
borgarstjóri í Reykjavík, undirrituðu
í gær yfirlýsingu um lagningu Sunda-
brautar.
Stefnt er að því að framkvæmdir
við Sundabraut hefjist árið 2026 og
brautin verði tekin í notkun árið 2031.
Ríki og borg sammælast um það í yf-
irlýsingunni að Sundabraut verði lögð
alla leið í Kjalarnes í einni samfelldri
framkvæmd og að alþjóðleg hönnun-
arsamkeppni verði haldin um útlit
Sundabrúar, verði hún fyrir valinu.
Sigurður Ingi segir að yfirlýsingin
staðfesti sameiginlega sýn borgar og
ríkis.
Næsta skref verkefnisins verður að
gera félagshagfræðilega greiningu á
þverun Kleppsvíkur en að henni lok-
inni verði hafist handa við að undir-
búa breytingar á aðalskipulagi borg-
arinnar, sem feli í sér endanlegt
leiðarval Sundabrautar. Sigurður
Ingi nefnir einnig að eftir sé að leggj-
ast í umhverfismat og samtal við íbúa
og aðra hagaðila. „Þetta mun síðan að
lokum leiða til útboðs,“ segir Sigurður
Ingi og bætir við að þessi vinna muni
taka um fjögur til fimm ár.
Fjármagna með veggjöldum
Í vetur var kynnt skýrsla starfs-
hóps um legu Sundabrautar, en í
henni sátu fulltrúar Vegagerðarinn-
ar, Reykjavíkurborgar, Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
og Faxaflóahafna. Þar voru metnir
tveir valkostir við þverun Kleppsvík-
ur, annars vegar Sundabrú, sem
tengist Sæbraut til móts við Holtaveg
og hins vegar Sundagöng. Niðurstaða
hópsins var að Sundabrú væri um 14
ma.kr. ódýrari kostur en Sundagöng
miðað við frumkostnaðaráætlun eða
um 69 milljarðar. Sigurður Ingi segist
gera ráð fyrir að frekar verði lagst í
gerð Sundabrúar heldur en jarðgöng
fyrir legu Sundabrautar.
Í yfirlýsingunni er staðfest að
Sundabraut verði fjármögnuð með
veggjöldum og ekki er gert ráð fyrir
fjármögnun framkvæmdarinnar úr
ríkissjóði. Gjaldtaka skal þó ekki hefj-
ast fyrr en framkvæmdum lýkur og
stendur að hámarki í 30 ár.
„Þetta er miklu betri tenging milli
borgarhluta og myndar öryggisleið út
úr borginni. Þetta mun einnig tengja
Vesturland mun betur við höfuðborg-
ina,“ segir Sigurður Ingi og bætir við
að Sundabraut muni einnig hafa mikil
áhrif á umferðarflæði.
„Stór samgöngudagur“
- Yfirlýsing undirrituð um lagningu Sundabrautar - Framkvæmdir hefjast árið
2026 - Áætlaður kostnaður ef gerð verður Sundabrú um 69 milljarðar
MSundabraut að veruleika »4
Kollafjörður
Saltvík
Eiðsvík
Leirvogur
Viðey
Geldinga-
nes
GRAFARVOGURHOLTAVEGUR
MOSFELLS-
BÆR
KJALARNES
ÁlfsnesÞerney
Fyrirhuguð lega
Sundabrautar
Grunnkort/Loftmyndir ehf.
Heimild: Samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið/Vegagerðin
Seiglurnar komu í höfn í Reykjavík eftir hring-
ferð sína umhverfis Ísland á fimmtíu feta segl-
skútunni Esju um miðjan dag í gær. Hafn-
sögubáturinn Magni tók á móti skipinu og
sprautaði vatni til að heiðra áhöfn skipsins sem
var tilkomumikil sjón. Framtakið hefur vakið
nokkra athygli en 36 konur á öllum aldri tóku
þátt í siglingunni. Markmið verkefnisins var
meðal annars að virkja konur til siglinga.
Morgunblaðið/Eggert
Seiglurnar fengu hlýjar móttökur í Reykjavík
Guðmundur Daði Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri viðskipta og þróunar
hjá Isavia, segir að með því að yfir
tíu þúsund farþegar séu farnir að
koma dag hvern á Keflavíkur-
flugvöll sé umferðin aftur farin að
standa undir stækkun flugvallarins.
Hann segir aðspurður að til sam-
anburðar hafi 10-20 þúsund farþeg-
ar farið um flugstöðina að meðaltali
dag hvern í janúar á árunum 2017
til 2019. Því sé fjöldi farþega á
flugvellinum farinn að nálgast
fjöldann á rólegum vetrarmán-
uðum.
Hluti af stærra markmiði
Alls tuttugu flugfélög hafa hafið
flug til Keflavíkurflugvallar.
„Markmiðið var að fá sem flest
flugfélög til að hefja aftur flug til
Íslands, í stað þess að leggja aðal-
áherslu á að þau ættu að vera með
sama framboð af sætum og áður,“
segir Guðmundur Daði í samtali við
ViðskiptaMoggann. baldura@mbl.is
Morgunblaðið/Unnur Karen
Taka flugið Play er meðal flug-
félaga á Keflavíkurflugvelli.
Stendur
nú undir
stækkun
- Tuttugu flugfélög
fljúga til Keflavíkur
_ Vigdís Hauksdóttir, borgar-
fulltrúi Miðflokksins, hefur
áhyggjur af leikskólamáli Reykja-
víkurborgar. Að hennar mati er
um framúrkeyrslumál að ræða:
„Það er farið af stað með ein-
hverja frumkostnaðaráætlun sem
virðist bara vera gerð út í loftið.
Síðan stenst hvorki eitt né neitt
og þetta er komið hundruð millj-
óna fram úr áætlunun. Allt í sam-
bandi við börnin okkar þarf að
vera gert að vel ígrunduðu máli
eins og sjá má af Fossvogsskóla-
málinu.“
Pawel Bartoszek, borgar-
fulltrúi Viðreisnar og formaður
skipulagsráðs Reykjavíkurborgar,
segir ótímabært að tala um fram-
úrkeyrslu og segir nýbyggingar
ekki alltaf hentugustu lausnina:
„Ég skil þau sjónarmið en ef við
tökum til dæmis Kársnesskóla
sem var rifinn fyrir nokkru síðan
vegna mygluvandamála. Sá skóli
er enn þá í færanlegu húsnæði.
Þetta eru snúin mál. Þau mál sem
varða myglu eru aldrei auðveld
viðureignar.“ »2
„Braggalykt“ af
leikskólamálinu