Morgunblaðið - 07.07.2021, Side 2

Morgunblaðið - 07.07.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021 WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS STÖKKTU TIL TENERIFE 09. - 20. JÚLÍ FLUG OG GISTING VERÐ FRÁ: 66.500 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN. INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG HANDFARANGUR AÐRA LEIÐ TIL TENERIFE 09. JÚLÍ , INNIFALIÐ Í VERÐI FLUG OG HANDFARANGUR FLUG VERÐ FRÁ: 9.900 KR.* BEINT FLUG 9.900 KR. AÐRA LEIÐ Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Baldur S. Blöndal baldurb@mbl.is Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Við- reisnar og formaður skipulagsráðs Reykjavíkurborgar, hefur enn þá tröllatrú á uppbyggingu leikskóla við Kleppsveg í húsnæðinu sem áður hýsti Adam og Evu og arkitektastof- una Arkís, þrátt fyrir að ný kostn- aðaráætlun geri ráð fyrir að verkið muni kosta borgina tæpan milljarð. Það er um helmingi meira en upp- hafleg áætlun gerði ráð fyrir. „Ég hef alltaf samúð með því þeg- ar fólk hefur áhyggjur af kostnaði. Ég held samt að þegar hér verði kominn glæsilegur leikskóli með lóð sem mun nýtast fyrir nærumhverfið verði raddir þeirra sem vildu gera eitthvað annað á svæðinu ekki rétt- um megin sögunnar,“ segir Pawel. Pawel segist, aðspurður hvort um forsendubrest fyrir kaupunum sé að ræða, ekki vilja ganga svo langt. „Ég myndi ekki lýsa því þannig, ég vil alla vega ekki taka svo til orða. Ég hefði verið töluvert glaðari ef niður- staðan væri sú að verkefnið hefði verið ódýrara en frumkostnaðar- áætlun gerði ráð fyrir. Ég held engu að síður að þetta sé gott verkefni, það mun styrkja hverfið og verða því til sóma þegar upp er staðið.“ Húsin of dýru verði keypt Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, er ekki jafn hrifin og Pawel af verkefninu og segir „megna braggalykt“ af því: „Ég skildi aldrei í því hvers vegna þessir hjallar voru keyptir svona dýru verði. Borgin vissi að það væru raka- og myglu- skemmdir í húsinu þegar það var keypt,“ segir Vigdís. Pawel segir borgina meðal annars vera að horfa til sjálfbærni: „Það er líka ákveðin hugmyndafræði, við er- um sem samfélag orðin meira fyrir það að nýta það sem fyrir er. Þarna er kjarni sem er með ákveðna sögu og það er umhverfisvænna að nýta steypu sem þegar er á staðnum. Samt kemur alltaf til álita að rífa og byggja nýtt.“ Vigdís blæs á þau rök. „Að við- halda einhverju sem er haldið bæði raka og myglu og reyna að uppræta það, áður en farið er með börn inn í húsnæðið, er ekki forsvaranlegt mið- að við ástandið á húsinu. Þá spyr ég líka um ábyrgð þeirra sem tóku út húsið og ábyrgð meirihlutans og borgarstjóra fyrir að fara af stað með þessar breytingar vitandi að þessi heilsuspillandi galli væri í þessu húsnæði,“ segir Vigdís. Pawel vísar auk umhverfissjónar- miða til lengri verktíma og segir það flýta mikið fyrir verkinu að gera við gamla húsnæðið í stað þess að ráðast í byggingu nýs leikskóla. Segir hann að miðað við núverandi áætlun væri hægt að taka við börnum í leikskól- ann að ári liðnu sem er töluvert hrað- ar en ef allt væri byggt frá grunni. Vigdís kveðst ekki sammála þessu: „Það er hægt að koma ný- byggingum mjög hratt upp í stað þess að eyða fleiri og fleiri mánuðum í að rífa burt veggi og losna við myglu.“ Segir hún meirihlutann því vera á miklum villigötum í málinu. Borgin vill nýta þá steypu sem er til - Borgarfulltrúarnir ósammála um ágæti viðgerða - Pawel segir ástand húsanna ekki vera forsendu- brest - Vigdís segir „megna braggalykt“ af málinu - Ódýrara að jafna við jörðu og byggja nýtt Morgunblaðið/Eggert Leikskóli Húsnæðið þykir í löku ásigkomulagi og ágreiningur er um kostnað. Pawel Bartoszek Vigdís Hauksdóttir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í síðustu viku Vátryggingafélag Ís- lands til þess að greiða manni bætur úr slysatryggingu vegna slyss sem hann lenti í við störf sín á sjó. Ágreiningur aðila stóð um hvort sjómaðurinn ætti rétt á bótum úr slysatryggingu sjómanna vegna lík- amstjóns sem hann varð fyrir þegar hann féll niður á leið sinni í vélarrúm skips þar sem hann starfaði, Tjaldi SH-270, í janúar árið 2018. Komu samstarfsmenn mannsins að honum vönkuðum og blóðugum í vélarrúmi skipsins. Skipinu var siglt til Rifs á Snæfellsnesi og maðurinn fluttur með sjúkrabíl á spítala. Í sjúkraskrá sjómannsins segir að hann hafi fengið aðsvif í vélarrúmi og liðið hafi yfir hann og var hann- greindur með brot í hálshrygg og op- ið sár í hársverði. Varanlegur miski var metinn 5 stig og varanleg örorka 7%. Sjómaður hafði betur gegn VÍS - Fær bætur vegna slysfara á sjó Steinar Ingi Kolbeins steinar@mbl.is Rétt rúmlega tveir mánuðir eru frá því að um 56 hektara svæði í Heið- mörk varð eldi að bráð. Þrátt fyrir að skammur tími sé liðinn frá brun- anum, virðist náttúran byrjuð að taka við sér. Ágúst H. Bjarnason grasafræðingur gerði sér ferð í Heiðmörk nú á dögunum og kannaði ástandið á svæðinu. „Það er ótrúlegt hve margar plöntur hafa skotið rót- um þarna, vaxið upp og myndað breiðu yfir hluta svæðisins,“ segir Ágúst. „Það eru þarna stórar breið- ur af blágresi og krossmöðru.“ Báð- ar fyrrnefndar plöntur eru æð- plöntur, oft kallaðar háplöntur. Þá segir Ágúst blágresi nú hafa sprottið þar sem lúpínan var áður. Ekki allt sloppið jafn vel Ágúst segir þó að ekki sé allt svæðið byrjað að taka við sér. „Þar sem að gamburmosinn lá yfir, þar er nú þykkt svart lag og lítið komið upp.“ Ágúst segir ástæðuna fyrir þessu vera að mosinn skýtur ekki niður rótum, en í tilfelli háplantn- anna hafa ræturnar lifað af eldinn og því auðveldara fyrir gróðurinn að taka við sér. „Ræturnar virðast hafa lifað af í moldinni og eldurinn hefur ekki náð að hita jarðveginn nægilega mikið upp og ræturnar því sloppið.“ Þrjár til fimm mínútur Hann bendir á að hver fermetri sé í raun bara eldsmatur í svona þrjár til fimm mínútur og svo haldi hann áfram. Sökum þess hve lítið eldurinn hefur náð að skaða jarðveginn telur Ágúst að svæðið verði orðið „iðja- grænt aftur eftir þrjú ár“. Sú væri ekki raunin hefði eldurinn náð að hita jarðveginn upp. Hann bendir einnig á að svæðið sem varð eldinum að bráð sé svona víðfeðmt vegna þess hve stuttan tíma það tekur eld- inn að éta upp hvern fermetra. Plöntur farnar að vaxa í Heiðmörk Ljósmynd/Ágúst H. Bjarnason Blágresisbreiður Blágresi vex nú þar sem áður óx lúpína. - Rætur plantnanna sluppu - Mosabreiður gereyðilagðar Morgunblaðið/Eggert Sinubruni í Heiðmörk 56 hektarar urðu sinueldi að bráð í byrjun maí. Náttúran er þó farin að taka við sér.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.