Morgunblaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.07.2021, Blaðsíða 6
„Að sjálfsögðu verðum við klár með það.“ Heilbrigðismálin í deiglu Sigmar segir að þó að Evrópumál- in verði vissulega ofarlega á blaði hjá sínum flokki blasi við að heil- brigðismálin verði eitt helsta kosn- ingamálið, það eigi við um flesta ef ekki alla flokka. „Þessi ríkisstjórn sem nú situr ætlaði sér stóra hluti í heilbrigðis- málum, en að þessum fjórum árum liðnum eru biðlistar úti um allt.“ Hann segir ótrúlegan og óútkljáðan núning milli ríkisstjórnarflokkanna um eðli og uppbyggingu heilbrigð- iskerfisins. „Það er einhvers konar kennisetning og trúarkreddur hjá heilbrigðisráðherranum um að það megi hvergi vera einkarekstur í heil- brigðiskerfinu. – Við erum ekki þar,“ segir hann um stefnu Viðreisn- ar. Sigmar segir engin einkavæðing- aráform felast í því, heldur sé um að ræða að einkarekstur eigi víða við í heilbrigðiskerfinu nú þegar og gegni lykilhlutverki á ýmsum sviðum. „Umræðan um heilbrigðiskerfið er kannski á hugmyndafræðilegri nót- um oft. Og ef við ætlum að bæta þjónustuna og fjölga úrræðum, þá getur einkarekstur komið að góðum notum víða.“ Hann segir einkarekstur sem slík- an ekki vera sérstakt keppikefli, málið eigi að snúast um þjónustu ekki kreddu. Lýðréttindi og stjórnarskrá Sigmar segir bakgrunn sinn í fjöl- miðlum óneitanlega hafa töluverð áhrif á afstöðu hans í ýmsum málum og nefnir t.d. tjáningarfrelsið og önnur lýðréttindi, sem ekki megi taka sem gefnum hlut, og nefnir auk þess sjúkrahótelin. „Ég var mjög hugsi yfir því hvað það var auðvelt fyrir fólk að sætta sig við að borgarar væru lokaðir inni án þess að regluverkið í kringum það væri í lagi. Að vegna ytri ógnar væri hægt að ýta til hliðar sjálfsögð- um lýðréttindum.“ Það bendi til þess að lýðréttindin séu veikari en fólk almennt telji, reynslan úr bæði faraldrinum og hruninu sé umhugsunarverð í því samhengi. Athygli vakti fyrir ekki löngu að þingflokksformaður Viðreisnar vék frá stefnu flokksins í stjórnarskrár- málum og þurfti formaðurinn að árétta hana. Sigmar segir „margt ágætt í stjórnarskránni og margt mjög gott í nýju stjórnarskránni,“ en hann telji það varhugavert þegar grunnlög landsins séu í húfi, að „víkja þeim öllum í burt í einu lagi og láta eitthvað annað koma í staðinn.“ Hann segir miklu skipta að góð og víðtæk sátt ríki um stjórnarskrána, en það megi ekki koma í veg fyrir að henni sé breytt í takt við tímann. Evrópumálin áfram á oddinum - Sigmar Guðmundsson í viðtali í Dagmálum - Viðreisn vill taka upp aðildarviðræður við ESB á ný - Binding krónu við evruna enn á dagskrá - Ætla að gefa upp viðmiðunargengi fyrir kosningar Morgunblaðið/Hallur Viðreisn Sigmar Guðmundsson segir heilbrigðismál verða kosningamál í haust, þau megi ekki fylgja trúarkreddu. DAGMÁL Andrés Magnússon andres@mbl.is Sigmar Guðmundsson, 2. maður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjör- dæmi, segir að Evrópumálin verði áfram ofarlega á blaði flokks síns í komandi kosningum. „Við teljum að hagsmunum Íslands sé betur borgið innan Evrópusambandsins en utan þess.“ Hann segir mikilvægt að Ís- lendingar fái að taka afstöðu til þess í eitt skipti fyrir öll og til þess þurfi að ljúka aðildarviðræðum við Evr- ópusambandið (ESB). Sigmar segir að ókostir íslensku krónunnar sem gjaldmiðils kalli á aðrar lausnir og þar sé hin augljósa lausn að leita samstarfs við ESB um að binda krónuna við evruna. Þetta er meðal þess, sem fram kemur í viðtali við hann í Dagmálum, streymisþáttum á mbl.is, sem opnir eru öllum áskrifendum Morgun- blaðsins. Sigmar vill ekki tilgreina nú á hvaða gengi hann eða Viðreisn vilja binda íslensku krónuna við evruna, það sé útfærsluatriði. „Ég er ekki með einhverja tölu hér til þess að henda fram í því, enda er hagfræði- menntað fólk betur til þess fallið að reikna það út,“ segir Sigmar. Við blasir að það skipti verulegu máli fyrir efnahagslíf landsins og peningamál á hvaða gengi krónan væri bundin við evruna ef slíkt myntráð yrði ofan á. „Það þarf að vera á gengi, sem tryggir gott jafn- vægi milli allra atvinnugreina,“ segir Sigmar en ítrekar að það verði gert skýrt í komandi kosningabaráttu. 6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Fékk bíllinn ekki skoðun? Aktu áhyggjulaus í burt á nýskoðuðum bíl Sameinuð gæði BJB-Mótorstilling þjónustar flesta þætti endurskoðunar anngjörnu verði og að ki förum við með bílinn n í endurskoðun, þér kostnaðarlausu. á s au þin að Brúarfoss, nýjasta skip Eimskipa- félagsins, lagðist að bryggju í Sunda- höfn í gær eftir siglingu frá Árósum, en í farteski skipstjórans, Jóns Inga Þórarinssonar, var íslenskur fáni, sem Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, hafði áritað. Mun fán- inn vera annar tveggja með áritun af þessu tagi, en Sveinn gaf fánana á uppboð til styrktar uppgjafar- hermönnum úr síðari heimsstyrjöld. Gripurinn var nýverið boðinn upp hjá danska uppboðshúsinu Bruun Rasmussen og voru hæstbjóðendur Vinafélag Þjóðminjasafnsins, Minjar og saga, en áður hafði þjóðminja- vörður í samráði við starfsmenn safnsins lagt mat á gildi fánans fyrir safneignina. Þá var einnig gengið úr skugga um að áritun Sveins væri sannarlega hans.Var m.a. leitað til Þjóðskjalasafnsins í því skyni. Vinafélagið leitaði samstarfs við Eimskipafélagið um kaup á fán- anum, en það þótti ekki síst viðeig- andi í ljósi þess að Sveinn Björns- son var kjörinn fyrsti formaður stjórnar Eimskipafélagsins á stofn- fundi þess þann 17. janúar árið 1914. Jón Ingi skipherra afhenti í gær Stefáni Einari Stefánssyni, for- manni Minja og sögu, fánann. Fór afhendingin fram á brúarþaki Brú- arfoss, en stefnt er að því að Þjóð- minjasafnið veiti fánanum formlega viðtöku síðar í sumar. Í fréttatilkynningu frá Vinafélagi Þjóðminjasafnsins segir að margir hafi lagt hönd á plóg við að koma fánanum heim til Íslands. Þannig tók Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmanna- höfn, vel í erindi Minja og sögu um að vitja fánans hjá Bruun Rasmus- sen og koma honum í hendur starfs- manna Eimskipafélagsins. Fáninn var sendur til Árósa með sjóflugvél, og síðan fluttur yfir hafið með Brúarfossi eins og áður er getið. Skipið hóf þjónustu í siglingakerfi Eimskips í október 2020 og er ásamt systurskipi sínu, Dettifossi, stærsta gámaskip sem tilheyrt hefur íslensk- um kaupskipaflota. Það er 180 metra langt, 31 metri að breidd og getur borið 2.150 gámaeiningar. Vinafélag Þjóðminjasafnsins var stofnað árið 1988. Meðal skil- greindra verkefna þess er að afla safninu merkra muna sem að áliti sérfræðinga eru best varðveittir í safninu. Þjóðfáninn með eiginhand- aráritun Sveins Björnssonar bætist senn í hóp margra gripa sem félagið hefur áður afhent safninu. Einstakur fáni til landsins - Brúarfoss kom til landsins í gær með fána áritaðan af Sveini Björnssyni - Vinafélag Þjóðminjasafnsins keypti Morgunblaðið/Unnur Karen Afhendingin Sverrir Kristinsson, fyrrum formaður Minja og sögu, Stefán Einar Stefánsson, núverandi formaður félagsins, Jón Ingi Þórarinsson, skipstjóri á Brúarfossi, og Stefán Árni Auðólfsson, stjórnarmaður Minja og sögu. Greiðsluskjól Hótels Sögu rennur út í dag. Að sögn Sigurðar Kára Kristjáns- sonar, lögmanns og umsjónar- manns með fjár- hagslegri endur- skipulagningu hótelsins, er enn óvíst hver næstu skref verða. „Við- ræður eru enn í gangi við þá sem við höfum verið í einkaviðræðum við,“ segir Sigurður og bætir við að þó að greiðsluskjólið sé runnið út þýði það ekki að fasteignin þurfi að vera seld. „Við erum að reyna að vinna málið hratt og vel áfram, þetta er auðvitað stórt og flókið verkefni sem tekur tíma.“ Hótel Saga er í eigu Bændasam- taka Íslands en meðal þeirra sem hafa viljað kaupa fasteignina er Há- skóli Íslands. Fasteignamat hótels- ins er tæpir 4,6 milljarðar króna. Framtíð Hótel Sögu enn óráðin - Greiðsluskjól hótelsins rann út í gær Sigurður Kári Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.