Morgunblaðið - 07.07.2021, Page 18

Morgunblaðið - 07.07.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. breytingar á eldri hú .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin vinnustofa kl. 9-12. Bónusbíllinn, frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Dansleikfimi kl. 13.30. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. Sími 411 2600. Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10. Frjáls spila- mennska kl. 12.30-15.45. Opið kaffihús kl. 14.30. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi, spjall og blöðin kl. 8.10-11. Opin Listasmiðja kl. 9-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Listasmiðja kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Pool-hópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11. Bridse í Jónshúsi kl. 13. Hreyfihópur í garði Ísafoldar, farið frá Jónshúsi kl. 13.30. Smiðjan, Kirkjuhvoli opin kl. 13-16. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8.30, heitt á könn- unni. Félagsvist frá kl. 13. Útifjör, ganga, teygjur og fleira með Höllu Karenu og Bertu, frá kl. 13 fer eftir veðri hvort farið er út. Alltaf allir velkomnir. Gjábakki Botsía verður alla miðvikudaga í sumar kl. 10. Opin vinnu- stofa í allt sumar á þriðjudögum og fimmtudögum milli kl.13 og 15. Á staðnum verður boðið upp á málningu, pensla og blöð. Gullsmári Systurnar Ingibjörg og Herdís Linnet munu flytja íslensk þjóðlög og dægurlög föstudaginn 9 júlí kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Dans- og stólaleikfimi með Auði Hörpu kl. 10. Fram- haldssaga kl. 10.30. Opin vinnustofa kl.13-16. Korpúlfar Gönguhópur Korpúlfa leggur af stað frá Borgum kl. 10, þrír styrkleikahópar og kaffispjall að lokinni göngu. Útifjör fyrir alla hressa verður kl. 9.30-10.20. Félagsvist kl. 13 í Borgum. Skákhópur Korpúlfa kl. 12-16. Njótum og höfum gaman. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum frá kl. 9, Botsía í salnum, Skóla- braut kl. 10. Handavinna og samvera í salnum, Skólabraut kl. 13, Samfélagsmiðlanámskeið í salnum, Skólabraut kl. 13.30. Smáauglýsingar » Smíðavinna » Múrvinna » Málningarvinna Þjónustum einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög prostone@prostone.is 519 7780 » Jarðvinna » Drenlagnir » Hellulagnir » Þökulagnir Þjónustum einstaklinga, fyrirtæki og húsfélög prostone@prostone.is 519 7780 GarðarHúsviðhald ✝ Helga Guð- mundsdóttir fæddist í Reykjavík þann 18. febrúar 1938. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Sólvangi í Hafnarfirði 20. júní 2021. Helga var dóttir hjónanna Elínar Jónasdóttur, f. 1914, d. 2002, og Guðmundar Sigurvins Sigurðs- sonar, f. 1913, d. 1984. Þau sem dó aðeins þremur dögum eftir fæðingu hans, f. 1954, d. 1954. Helga giftist Magnúsi Magn- ússyni, f. 1935, árið 1957. Þau eignuðust þrjú börn, Guðmund Sigurvin, f. 1957, d. 2017, Rúnar Magnús, f. 1959, og Elínu Ragn- heiði, f. 1965. Helga og Magnús bjuggu lengst af á Móaflöt 6 í Garðabæ en fluttu síðar á Norðurbakka 17 í Hafnarfirði. Helga var í barnaskóla Aust- urbæjar og fór svo í Gagnfræða- skóla Vesturbæjar en útskrif- aðist síðar sem læknaritari og vann sem slíkur út starfsævina. Helga fór snemma að vinna og starfaði á Vífilsstöðum, svo á Landspítalanum. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. bjuggu fyrst á Vífilsgötu 18 í Reykjavík en byggðu svo hús- næði í Bólstaðar- hlíð 35 í Reykjavík þar sem Helga bjó stærstan hluta upp- vaxtarára sinna. Helga var elst fjög- urra systkina. Systkini hennar eru Sigurður Guð- mar, f. 1941, Guðríður Júlíanna, f. 1947, og óskírður drengur Elsku systir okkar og mág- kona, Helga, er látin. Þó við vitum að það bíði okkar allra, þá erum við aldrei viðbúin þeg- ar ástvinur okkar kveður. Við kveðjum hana með þakklæti og virðingu fyrir öll góðu árin og geymum þau í hjarta okkar. Margar góðar minningar fylla hug okkar í dag þegar við minnumst Helgu. Helga var hæglát kona og tranaði sér ekki fram. Við minnumst þess ekki að hún hafi talað mikið um sjálfa sig, hún spurði frekar um hag annarra og hlustaði. Aldrei heyrði maður hana tala illa um nokkurn mann. Helga var mikil hannyrðakona og það var sama hvort það voru vettlingar, sokkar, lopapeysur, útsaumur rókókóstóla eða mynd- ir, allt var þetta listavel gert. Eftir að Helga hætti að vinna nutu þau Maggi þess að fara í sund nánast á hverjum degi, einnig fór hún að læra að pútta og þegar hún var spurð hvort hún ætlaði ekki að fara að spila úti á velli eftir langan tíma í púttinu þá svaraði hún: Maður verður nú að kunna að pútta fyrst. Það var mikið áfall þegar Helga og Magnús misstu Guð- mund Sigurvin son sinn á besta aldri 2017. Helga sagði: Það er alltaf sárt að missa en að missa barnið sitt, sem ætti að lifa mann, ætti ekki að gerast. En þú tókst þessu með æðruleysi eins og öllu öðru. Helga naut lengst af góðrar heilsu. Síðustu árin voru erfið eftir að hún missti sjónina og gat því ekki prjónað, lesið né annað það sem hún hafði ánægju af. Síðasta ár dvaldi Helga á Hjúkr- unarheimilinu Sólvangi. Ég veit ekki hvort þú hefur huga þinn við það fest að fegursta gjöf sem þú gefur er gjöfin sem varla sést. Ástúð í andartaki. Auga sem glaðlega hlær. Hlýja í handartaki, hjartað sem örar slær. Allt sem þú hugsar í hljóði heiminum breytir til. Gef því úr sálarsjóði sakleysi, fegurð og yl. (Úlfur Ragnarsson) Um leið og við þökkum Helgu fyrir samfylgdina send- um við Magga og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Guðríður og Hallgrímur Sigurður og Helga. Helga Guðmundsdóttir, eig- inkona Magnúsar Magnússon- ar og móðir þriggja barna, lést þann 20. júní sl. Við hjónin vorum góðir vinir á Móaflötinni í Garðabæ hvor í sínu einbýlishúsinu frá árinu 1967. Börn þeirra Helgu og Magn- úsar voru þrjú; Guðmundur, Rúnar og Elín. Guðmundur dó úr veikindum fyrir fáum árum. Við höfum ætíð haldið góðu sambandi við Helgu og Magn- ús og ræddum oft gömlu góðu dagana. Helga var dugnaðarkona og vann meðal annars við umönn- unarstörf. Þá var Helga góð heim að sækja og allir fundu sig velkomna á heimili þeirra hjóna. Dagarnir eru minnisstæðir á Móaflötinni í afmælum, á há- tíðisdögum og á spilakvöldum, þegar húsin voru ólæst og örugg. Sólarhornin voru falleg og minnisstæð til suðurs með litlu börnunum þeirra og okkar, hressum og fallegum. Það hefur alltaf verið gott að vera Garðbæingur. Ferðir að sumarlagi með kaffibrúsa, flatkökur og pönnukökur eru eftirminnileg- ar. Seljalandsfoss, Gljúfrabúi og Vík í Mýrdal svo fátt eitt sé nefnt. Helga hefur kvatt okkur þar til við hittumst öll að nýju. Guð gefi fjölskyldunni styrk. Gísli og Ida. Helga Guðmundsdóttir Amma mín, hún Rannveig, var alveg frábær. Hún var svona ekta amma. Eftir að hafa fyllt á magann var laumað að manni þúsund kalli við brottför. Alltaf var svo gott að koma í heimsókn, það voru svo mikil rólegheit og ég fann hvað hún elskaði mig mikið. Mér leið alltaf vel hjá henni og alltaf tók hún mér Rannveig G. Kristjánsdóttir ✝ Rannveig G. Kristjánsdóttir fæddist 24. nóv- ember 1929. Hún lést 17. júní 2021. Útför Rann- veigar fór fram 5. júlí 2021. opnum örmum. Hún opnaði dyrnar fyrir mér og minni fjöl- skyldu þegar við þurftum mest á því að halda og það gerði okkur svo sannarlega nánari. Eitt sinn þeg- ar ég var að reyna að strauja skyrtuna mína varð amma, þá 86 ára, mjög hneyksl- uð á mér því ég gerði það vitlaust. Amma stökk til og kenndi mér þar með að strauja.Ég á margar ljúfar og góðar minning- ar um þig og okkur saman og þær mun ég geyma að eilífu. Þín verður saknað, ég elska þig ávallt. Stefán Hólm. ✝ Ólafía Alberts- dóttir, alltaf kölluð Lóa, fædd- ist í Hafnarfirði 9. maí 1930. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Sólvangi í Hafnarfirði 27. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru hjónin Al- bert Erlendsson, f. 1896, d. 1979, og María Þórðardóttir, f. 1894, d. 1971. Systur hennar eru Margrét, f. 1926, d. 2012, Erla, f. 1932, d. 1991, Kristín Árný, f. 1941, d. 2014, og Ingveldur, f. 1943. Þann 9.11. 1968 giftist Lóa Gunnari Guðmundssyni, f. 1925, d. 2002. Foreldrar hans voru Guðmundur Árnason, f. Friðbert Guðmundsson, þeirra dætur eru: a) Helena, f. 1995, maki Arnór Freyr Styrmisson, þeirra dóttir er Sara María, f. 2021, og b) Rakel, f. 2003. Áð- ur átti Friðbert soninn Eyþór, f. 1987, hans synir eru Aron Rafn, f. 2011, og Hafsteinn Mikael, f. 2017. Fyrir átti Gunnar soninn Sævar Björn, f. 1948. Lóa bjó alla sína ævi í Hafnarfirði. Sem barn bjó hún á Selvogsgötu 10 ásamt for- eldrum sínum og systrum, en þegar hún kynntist eiginmanni sínum byggðu þau sér heimili að Köldukinn 23. Þar bjó hún alla tíð eða þar til hún flutti á Sólvang 2013, þar sem hún lést. Eftir barnaskólapróf fór Lóa að vinna. Hún starfaði megnið af sinni starfsævi við fiskvinnslu, lengstan hluta í Bæjarútgerð Hafnarfjarðar og Norðurstjörnunni. Útför Lóu fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 7. júlí 2021, kl. 13. 1877, d. 1954, og Árnína Marzibil Björnsdóttir, f. 1889, d. 1940. Börn þeirra eru: 1) Viðar, f. 1957, maki Þuríður Jóns- dóttir, þeirra dæt- ur eru: a) Halla, f. 1981, maki Bjarni Þór Pétursson, þeirra dóttir er Ylfa Katla, f. 2016, b) Hanna, f. 1981, maki Dagur Gunnarsson, þeirra börn eru Karen, f. 2008, Gunnar Kári, f. 2010, og Viðar Máni, f. 2018, c) Kristín Lóa, f. 1987, maki Víg- lundur Mettinisson, þeirra dæt- ur eru Emilía, Rut f. 2013, og Sara Björk, f. 2018, d) Sigrún, f. 1990, og e) Hildur Ýr, f. 1994. 2) María, f. 1969, maki Elsku amma Lóa. Ég var svo heppin að hafa þig þegar ég ólst upp. Ég hef saknað þín í langan tíma. Það er sárt að kveðja þig en á sama tíma er gott að þú sért komin til afa og líði loksins betur. Við vorum mikið saman og áttum góðar stundir. Smátt og smátt tók alzheimer þig meira frá okkur, en þrátt fyrir það hugsaðir þú alltaf fyrst um fjölskylduna á meðan þú gast. Ég minnist þess hversu einstaklega góð þú varst við alla og húmorinn aldrei langt und- an. Ég á ótal minningar af okkur saman. Endalausir göngutúrar um Hafnarfjörð niður að tjörn þar sem fuglarnir slógust um brauðið. Þú varst alltaf tilbúin til að eyða tíma með mér þar sem þú hugsaðir vel um mig og kenndir mér margt. Í Köldu- kinn var líka alltaf til góður matur, þar á meðal „ömmumat- ur“ sem ég komst að síðar að heitir Engjaþykkni. Ömmumat fæ ég mér í spari og hugsa allt- af til þín, elsku amma mín. Sara María dóttir mín kom í heiminn í apríl síðastliðnum og þú fékkst að hitta hana á af- mælinu þínu. Því miður fær hún ekki að kynnast þér en ég mun segja henni frá þér þegar hún eldist. Fjölskyldan þín er svo lán- söm að hafa átt þig að. Þú ert og munt alltaf vera fyrirmyndin mín. Helena Friðbertsdóttir. Mig langar í nokkrum orðum að minnast Lóu systur minnar sem er nú horfin til Sumar- landsins, níutíu og eins árs. Lóa var næstelst okkar fimm systra og var alltaf í mjög góð- um tengslum við okkur Stínu og var nær daglegur gestur til okkar og foreldra okkar á æskuheimilið á Selvogsgötu 10. Lóa var mjög félagslynd og átti margar vinkonur og héldu æskuvinkonur hennar af Sel- vogsgötunni úti saumaklúbbi og var mér stundum boðið á þessar skemmtilegu kvöldstundir, þar sem mikil gleði og hlátur ríkti. Lóa og Binna vinkona hennar fóru saman á húsmæðraskólann Hverabakka í Hveragerði og þar bættust margar vinkonur í hópinn. Sögur Lóu um dvölina þar urðu til þess að Erla systir fetaði í fótsporin næsta ár á eft- ir. Lóa kynntist Gunnari sínum ung og um svipað leyti kynntist Erla systir Einari. Fóru þau mikið saman í ferðalög og úti- legur. Lóa vann lengst af í fiski í Bæjarútgerðinni, bæði við snyrtingu og vélar enda hörku- dugleg, ósérhlífin og gleðigjafi í hópi samstarfsmanna. Upp úr sjötugu fór að bera á Alzheimersjúkdómnum, sem smám saman ágerðist, eins og gerist með þennan erfiða sjúk- dóm. Lóa kvartaði þó aldrei og lengst af þekkti hún mig og allt- af tók hún á móti mér með sínu fallega brosi. En núna er hún komin til betri staðar södd líf- daga og megi hún hvíla þar í guðs friði. Starfsfólkinu á Sól- vangi, þar sem Lóa dvaldi, bið ég guðs blessunar og bestu þakkir fyrir þá frábæru alúð sem það sýnir heimilisfólkinu sem þar dvelur. Elsku Lóa, takk fyrir allar góðu stundirnar sem við áttum saman og elsku Viðar og María, fjölskyldum ykkar sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur og megi sorg ykkar verða að fallegum minn- ingum um góða konu. Ingveldur (Inga) systir. Ólafía Albertsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla út- gáfudaga. Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í öðr- um miðlum nema að fengnu samþykki. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðn- ir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru ein- göngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.