Morgunblaðið - 07.07.2021, Page 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021
GEFÐU STARFSFÓLKINU
DAGAMUN
Suðurlandsbraut 30 | 577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
„ÉG SKAL LÁTA ÞIG HAFA TVÆR
MISMUNANDI KOSTNAÐARÁÆTLANIR –
EINA GÓÐA, AÐRA SLÆMA.“
„NEI, HERRA MINN. ÞETTA ER
EKKI GRÍSKUR VEITINGASTAÐUR.
MATSEÐILLINN ER Á HVOLFI HJÁ ÞÉR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að hafa verið skotin í
honum frá upphafi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ÞORI AÐ VEÐJA AÐ ÞÚ
ERT BYRJUÐ AÐ KAUPA
JÓLAGJAFIRNAR, EKKI SATT?
ÉG ER BÚIN ÉG ELSKA HANA OG
HATA SVO MIKIÐ
JAFNVÆGI
ER GOTT
ÉG ÞOLI EKKI VIÐ EINN DAG ENN Í
ÞESSARI DIMMU DÝFLISSU
ÞAÐ VAR AÐ LOSNSA FANGAKLEFI
SEM SNÝR Í AUSTUR!
EN ÉG HEPPINN!
Á afmælisdaginn verður haldið
mikið sveitapartí og vinahópurinn
undirbýr veisluna og það verður
hljómsveit og dansað. Það er aldrei að
vita nema einhverjir salsa-smellir
verði spilaðir, en Ari Víðir tók upp á
þeirri suðrænu sveiflu fyrir nokkrum
árum. „Lífið er skemmtilegt og gam-
an að koma sjálfum sér á óvart.“
Fjölskylda
Ari Víðir var giftur Önnu Margréti
Guðmundsdóttur, f. 29.7. 1965, en þau
skildu. Börn þeirra eru 1) Auður
Björk, f. 29.7. 1991, tölvunarfræðingur
í Kópavogi. Maki hennar er Viktor
Davíð Sigurðsson og þau eiga börnin
Klöru Mist Melin, Óliver Ara Vikt-
orsson og Ísabel Önnu Viktorsdóttur.
2) Axel Guðmundur, f. 23.1. 1996, há-
skólanemi í sambúð með Elfi Örlygs-
dóttur, f. 3.4. 1998. 3) Matthildur Ara-
dóttir, f. 11.12. 1999, háskólanemi.
Systur Ara Víðis eru Hulda lyfja-
tæknir, f, 20.11. 1947; Álfdís Elín
kennari, f. 1950, gift Martin Kennelly
og Erla Dís læknir, f. 1959, gift Pétri
H. Hannessyni lækni.
Foreldrar Ara Víðis eru hjónin Ax-
el V. Magnússon garðyrkjuráðunaut-
ur, f. 30.9. 1922, d. 14. 11. 1989 og Sig-
urlína Gunnlaugsdóttir
garðyrkjufræðingur, f. 29.7. 1924, d.
19.5. 2015.
Ari Víðir
Axelsson
Sigurlína Valgerður
Kristjánsdóttir
húsfreyja á Svalbarðseyri og
Akureyri
Guðmundur Pétursson
útgerðarmaður á Svalbarðseyri
og Akureyri
Hulda Guðmundsdóttir
húsfreyja á Akureyri og í
Reykjavík
Gunnlaugur Jónsson
kaupmaður í Reykjavík, síðast
á Ólafsfirði
Sigurlína Gunnlaugsdóttir
garðyrkjufræðingur á Reykjum
og síðar í Reykjavík
Sigurbjörg Kristín
Marteinsdóttir
húsfreyja á Skeggjabrekku,
Ólafsfirði, Eyj.
Jón Marteinn Gunnlaugsson
bóndi á Skeggjabrekku,
Ólafsfirði, Eyj.
Valgerður Þórunn Jónsdóttir
húsfreyja í Stærra-Árskógi og á
Völlum í Svarfaðardal, Eyj.
Tómas Hallgrímsson
prestur í Stærra-Árskógi og á
Völlum í Svarfaðardal, Eyj.
Rannveig Tómasdóttir
húsfreyja á Hofsósi
Magnús Einar Jóhannsson
læknir á Hofsósi
Guðríður Magnúsdóttir
húsfreyja í Árbæ í Reykjavík
Jóhann Runólfsson
tómthúsmaður í Árbæ í
Reykjavík
Úr frændgarði Ara Víðis Axelssonar
Axel Valgarð Magnússon
garðyrkjukennari á Reykjum,
síðar garðyrkjuráðunautur í
Ölfushreppi
Á Boðnarmiði hefurAnton Helgi
Jónsson skrifað þessa limru
við mynd af fallegum ketti með
skýringunni: „Felis Catus rifjar upp
mótunarárin“:
Ég mjálmaði margoft hjá fæti
og mikilvægt hlaut ég þar æti
en bravó ég fékk
ef breima ég hékk
á baklóð við Einskismannsstræti.
Hér eru „tvær vefjur“ eftir Egg-
ert J. Levy: ·
Laxavefja ljúffeng er
lystaukandi fæða
næringin er nokkuð sér
njótið þeirra gæða.
Skinkuvefja skipar sess
skarti búin forðum
aldrei fáum aftur stress
undir matarborðum.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
og kallar „Fyrr og nú“:
Lífið var enginn leikur,
menn lifðu við fátækt og basl,
en nú er hér nóg af öllu,
næturlíf, bílar og drasl.
Í sveitinni undi fólk áður
og iðkaði sagnalist
og trúði á hrúta og huldufólk
og herrann Jesú Krist.
Til bjargar kom blessað stríðið.
Við blómstrandi efnahag
hófst stríðsgróða darraðardansinn,
því Djöfullinn kann sitt fag.
Til útlanda fólk nú flykkist
sem finnst vera heima trist
og trúir á tækninnar undur,
en talsvert minna á Krist.
Þó velmegun virðist hér ríkja,
má vera hún reynist tál,
ef glötuð er guðstrú og æra
og geðbiluð önnur hver sál.
Ingólfur Ómar yrkir um
sumarblíðuna:
Ljómar sunna logaskær
lýsir jökulskalla.
Ótal myndir á sig fær
ásýnd blárra fjalla.
Jón Gissurarson svarar:
Hendingarnar heilla finn
hjá mér yndið tæpast dvín.
Vel þú yrkir, vinur minn,
vermir hugann staka þín.
Friðrik Steingrímsson sendir
kveðju að norðan:
Ótta sumra eldgos vekur,
ýmsa covid leikur grátt.
Drynja fljótin, drullan lekur
í djöflaheimi nú er kátt.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Kattalimra dagsins
og laxavefjur