Morgunblaðið - 07.07.2021, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021
Alls verða fjórir íslenskir
keppendur á Ólympíuleikunum í
Tókýó sem hefjast 23. júlí í Jap-
an. Þrír karlar og ein kona en
þetta er fámennasta sveit Ís-
lands á sumarólympíuleikum í 57
ár. Ísland átti síðast fjóra kepp-
endur á Ólympíuleikum árið
1964 á leikunum í Tókýó en þá
voru einmitt þrír karlar og ein
kona í sveitinni.
Sundmaðurinn Anton
Sveinn McKee var sá eini af nú-
verandi keppendum Íslands sem
náði lágmarki fyrir leikana. Ás-
geir Sigurgeirsson, skotfimi,
Guðni Valur Guðnason, frjálsar
íþróttir, og sundkonan Snæfríður
Sól Jórunnardóttir komust öll
inn á leikana í gegnum svokallað
kvótakerfi sem gerir minni þjóð-
um kleift að komast á leikana.
Á leikunum í Ríó í Brasilíu ár-
ið 2016 átti Ísland átta fulltrúa
og á leikunum í London 2012 átti
Ísland hvorki meira né minna en
27 fulltrúa. Reyndar voru átján
þeirra hluti af karlalandsliði Ís-
lands í handknattleik en engu að
síður voru fulltrúar úr öðrum
íþróttagreinum alls níu.
Kórónuveirufaraldurinn
hefur gert íslensku afreks-
íþróttafólki afar erfitt um vik
enda hefur það reynst þrautinni
þyngra að taka þátt í keppn-
ismótum á erlendri grundu
vegna faraldursins. Raunveru-
leikinn er sá að íþróttafólk hér á
landi er ekki samkeppnishæft
þegar kemur að styrkjum og fjár-
veitingum eins og í löndunum í
kringum okkur.
Íslenskt stjórnmálafólk
verður að vakna núna og hugsa
betur um afreksíþróttafólkið
okkar, sem hefur verið stolt þjóð-
arinnar í ansi mörg ár.
BAKVÖRÐUR
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Guðmundur Steinn Hafsteinsson er
genginn til liðs við knattspyrnulið
Fylkis í Árbænum en hann fékk
leikheimild með Árbæingum í gær.
Framherjinn, sem er 32 ára gamall,
lék með Abtswind í þýsku E-
deildinni síðasta vetur en
alls á hann að baki 145 leiki í
efstu deild þar sem hann hefur
skorað 37 mörk, en hann hefur leik-
ið með uppeldisfélagi sínu Val, HK,
Víkingi frá Ólafsvík, Fram, ÍBV,
Stjörnunni og KA hér á landi. Fylk-
ir er með 11 stig í níunda sæti úr-
valsdeildarinnar eftir tíu leiki.
Framherji
í Árbæinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fylkir Guðmundur skoraði 6 mörk í
17 leikjum með KA síðasta sumar.
Ómar Ingi Magnússon, landsliðs-
maður Íslands í handknattleik og
leikmaður Magdeburg í Þýska-
landi, var valinn í lið ársins í þýsku
1. deildinni í stöðu hægri skyttu, en
liðið var opinberað í gær. Selfyss-
ingurinn átti frábært tímabil með
Magdeburg og stóð uppi sem
markakóngur deildarinnar með
274 mörk í 38 leikjum. Magdeburg
hafnaði í þriðja sæti deildarinnar
með 53 stig, 15 stigum minna en
Kiel og Flensburg, en Ómar var þrí-
vegis valinn í lið mánaðarins síð-
ustu fimm mánuði tímabilsins.
Morgunblaðið/Eggert
Lið ársins Ómar Ingi fór á kostum í
Þýskalandi á keppnistímabilinu.
Skaraði fram úr
í Þýskalandi
SELFOSS – VALUR 1:2
0:1 Mist Edvardsdóttir 48.
1:1 Hólmfríður Magnúsdóttir 55.
1:2 Elín Metta Jensen 77.
M
Guðný Geirsdóttir (Selfossi)
Bergrós Ásgeirsdóttir (Selfossi)
Eva Núra Abrahamsdóttir (Selfossi)
Unnur Dóra Bergsdóttir (Selfossi)
Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi)
Mist Edvardsdóttir (Val)
Ásdís Karen Halldórsdóttir (Val)
Ída Marín Hermannsdóttir (Val)
Dóra María Lárusdóttir (Val)
Elín Metta Jensen (Val)
Dómari: Aðalbjörn H. Þorsteinsson – 7.
Áhorfendur: 107.
ÞRÓTTUR R. – BREIÐABLIK 2:3
0:1 Tiffany McCarthy 28.
1:1 Linda Líf Boama 64.
2:1 Katherine Cousins 76.
2:2 Agla María Albertsdóttir 87.
2:3 Vigdís Edda Friðriksdóttir 90.
M
Íris Dögg Gunnarsdóttir (Þrótti)
Linda Líf Boama (Þrótti)
Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (Þrótti)
Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki)
Áslaug M. Gunnlaugsdóttir (Breiðabliki)
Chloé Vande Velde (Breiðabliki)
Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Breiðabliki)
Tiffany McCarty (Breiðabliki)
Dómari: Helgi Ólafsson – 6.
Áhorfendur: Um 200.
STJARNAN – TINDASTÓLL 0:1
0:1 María Dögg Jóhannesdóttir 8.
MM
Amber Michel (Tindastóli)
María Dögg Jóhannessdóttir (Tindastóli)
M
Betsy Hassett (Stjörnunni)
Gyða Kristín Gunnarsdóttir (Stjörnunni)
Bryndís Rut Haraldsdóttir (Tindastóli)
Kristrún maría Magnúsdóttir (Tindastóli)
Aldís María Jóhannsdóttir (Tindastóli)
Jacqueline Altschuld (Tindastóli)
Dómari: Þórður Már Gylfason – 7.
Áhorfendur: 137.
FYLKIR – ÍBV 1:2
0:1 Þóra Björg Stefánsdóttir 44.
0:2 Olga Sevcova 47.
1:2 Bryndís Arna Níelsdóttir 78.
M
Kolbrún Tinna Eyjólfsdóttir (Fylki)
Shannon Simon (Fylki)
Þórdís Elva Ágústsdóttir (Fylki)
Bryndís Arna Níelsdóttir (Fylki)
Delaney Baie Pridham (ÍBV)
Clara Sigurðardóttir (ÍBV)
Hanna Kallmair (ÍBV)
Liana Hinds (ÍBV)
Viktorija Zaicikova (ÍBV)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson – 8.
Áhorfendur: 213.
KEFLAVÍK – ÞÓR/KA 1:2
0:1 Jakobína Hjörvarsdóttir 21.
0:2 Margrét Árnadóttir 66.
1:2 Amelía Rún Fjeldsted 89.
M
Natasha Anasi (Keflavík)
Dröfn Einarsdóttir (Keflavík)
Amelía Rún Fjeldsted (Keflavík)
Jakobína Hjörvarsdóttir (Þór/KA)
Colleen Kennedy (Þór/KA)
Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
Margrét Árnadóttir (Þór/KA)
Hulda Karen Ingvarsdóttir (Þór/KA)
Hulda Björg Hannesdóttir (Þór/KA)
Dómari: Guðmundur P. Friðbertsson – 8.
Áhorfendur: 135.
Ótrúleg endurkoma Blika
Breiðablik skoraði tvö mörk á
lokamínútunum og tryggði sér
dramatískan 3:2-sigur gegn Þrótti
úr Reykjavík þegar liðin mættust á
Eimskips-vellinum í Laugardal.
„Blikar þurftu að grafa djúpt til
þess að ná að knýja fram þennan sig-
ur og virtist um tíma í síðari hálf-
leiknum sem liðið myndi tapa þriðja
leik sínum af síðustu fjórum,“ skrif-
aði Gunnar Egill Daníelsson m.a. í
umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is.
_ Agla María Albertsdóttir skor-
aði sitt áttunda mark í deildinni í
sumar og er markahæst ásamt Elínu
Mettu Jensen.
Langþráður sigur Tindastóls
María Dögg Jóhannesdóttir
reyndist hetja Tindastóls þegar liðið
vann afar óvæntan 1:0-sigur gegn
Stjörnunni á Samsung-vellinum í
Garðabæ.
„Stjörnukonur fengu mun fleiri
færi en Amber Michel fór á kostum í
marki Tindastóls. Hún varði hvað eft-
ir annað glæsilega og á stærstan þátt
í góðum sigri,“ skrifaði Jóhann Ingi
Hafþórsson m.a. í umfjöllun sinni um
leikinn á mbl.is.
_ Þetta var annar sigurleikur
Tindastóls í deildinni í sumar en fyrir
leik gærdagsins var Tindastóll án sig-
urs í síðustu sex deildarleikjum sín-
um, þar af hafði liðið tapað fimm
þeirra.
_ Sauðkrækingurinn María Dögg
Jóhannesdóttir skoraði sitt fyrsta
mark í efstu deild.
Eyjakonur nýttu færin sín
ÍBV er komið í sjötta sæti deild-
arinnar eftir 2:1-útisigur gegn Fylki á
Würth-vellinum í Árbænum.
Leikurinn var bæði opinn og
skemmtilegur en Eyjakonur nýttu
færin sín betur en Árbæingar og var
það stærsti munurinn á liðunum að
mati Stefáns Stefánssonar sem
fjallaði um leikinn á mbl.is.
_ Eyjakonan Þóra Björg Stef-
ánsdóttir, sem er fædd árið 2004,
skoraði sitt annað mark í sumar og
jafnframt annað mark í efstu deild á
ferlinum í 30 deildarleikjum.
Þriðji útisigur Þórs/KA
Þór/KA vann sinn þriðja deild-
arleik í sumar þegar liðið heimsótti
Keflavík á HS Orku-völlinn í Keflavík
en leiknum lauk með 2:1-sigri Ak-
ureyringa.
„Þegar á heildina er litið þá var
sigur Þór/KA verðskuldaður þar sem
þær spiluðu betur megnið af leiknum
og náðu að skapa sér betri færi,“
skrifaði Skúli B. Sigurðsson m.a. í
umfjöllin sinni um leikinn á mbl.is.
_ Akureyringurinn Jakobína
Hjörvarsdóttir skoraði sitt fyrsta
mark í efstu deild en hún er fædd árið
2004 og á að baki 23 leiki í efstu deild
þrátt fyrir ungan aldur.
- Tindastóll vann sinn annan leik í efstu deild gegn Stjörnunni - ÍBV á beinu
brautina eftir sigur í Árbænum - Akureyringar gerðu góða ferð til Keflavíkur
Seiglusigrar toppliðanna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Átök Agla María Albertsdóttir og Linda Líf Boama takast á í Laugardal.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skalli Eyjakonan Delaney Baie Pridham í baráttunni í Árbænum.
FÓTBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Elín Metta Jensen reyndist hetja
Vals þegar liðið heimsótti Selfoss í
úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu,
Pepsi Max-deildinni, á Jáverk-
völlinn á Selfossi í 9. umferð deild-
arinnar í gær.
Elín Metta skoraði sigurmark
leiksins í síðari hálfleik en Vals-
konur eru með 20 stig og tveggja
stiga forskot á Breiðablik á toppi
deildarinnar eftir úrslit gærdagsins.
„Valskonur voru beittari, sköp-
uðu fleiri færi og unnu sanngjarnan
sigur,“ skrifaði Guðmundur Karl
Sigurdórsson m.a. í umfjöllun sinni
um leikinn á mbl.is.
_ Eftir rólega byrjun á tíma-
bilinu hefur Elín Metta skorað sjö
mörk í síðustu fjórum deild-
arleikjum Vals.
Evrópumeistaramót í liðakeppni
áhugakylfinga fer fram á fjórum stöð-
um í Evrópu í karla-, kvenna-, pilta-
og stúlknaflokki í vikunni.
Karlalið Íslands keppir í efstu deild
á Evrópumeistaramóti í liðakeppni á
PGA Catalunya-vellinum á Spáni
dagana 6.–10. júlí en liðið er skipað
þeim Kristófer Karli Karlssyni, Dag-
bjarti Sigurbrandssyni, Hlyni Bergs-
syni, Sverri Haraldssyni, Hákoni
Erni Magnússyni og Aroni Snæ Júl-
íussyni.
Kvennalandslið Íslands keppir í
efstu deild á Evrópumeistaramóti í
liðakeppni á Royal County Down GC-
vellinum á Norður-Írlandi dagana 6.–
10. júlí en liðið er skipað þeim Ragn-
hildi Kristinsdóttur, Heiðrúnu Önnu
Hlynsdóttur, Huldu Clöru Gests-
dóttur, Jóhönnu Leu Lúðvíksdóttur,
Andreu Ýri Ásmundsdóttur og
Andreu Bergsdóttur.
Þá keppir piltalið Íslands á Estoni-
an G&CC í Eistlandi dagana 6.–10.
júlí í næstefstu deild en liðið er skipað
þeim Gunnlaugi Árna Sveinssyni,
Degi Fannari Ólafssyni, Bjarna Þór
Lúðvíkssyni, Birni Viktori Viktors-
syni, Böðvari Braga Pálssyni og
Aroni Inga Hákonarsyni.
Stúlknalið Íslands keppir svo á
Montado Golf Resort í Portúgal dag-
ana 6.–10. júlí í efstu deild en liðið er
skipað þeim Söru Kristinsdóttur,
Maríu Eiri Guðjónsdóttur, Katrínu Sól
Davíðsdóttur, Berglindi Erlu Bald-
ursdóttur, Perlu Sól Sigurbrands-
dóttur og Helgu Signýju Pálsdóttur.
Golflandsliðin
á ferð og flugi
í vikunni