Morgunblaðið - 07.07.2021, Síða 24

Morgunblaðið - 07.07.2021, Síða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021 Ljósmyndir Rutar og Silju Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is | Opið alla virka daga kl. 10-17 Passamyndir Tímapantanir í síma 568 0150 eða á rut@rut.is Tryggjum tveggja metra fjarlægð og gætum ítrustu ráðstafana Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Hugmyndin að þessari sýningu spratt upp úr einum hlut sem er í eigu safnsins, kistlinum hans Helga litla Guðmundssonar frá Arabæjar- hjáleigu í Flóa, en hann var fimm ára þegar hann dó úr botnlangabólgu að talið er, árið 1937. Foreldrar hans varðveittu kistilinn með gullinu hans, litaboxi, boltum, bursta, skrifblokk og fleiru. Kistillinn fór að foreldrum látnum til systur Helga litla og hún geymdi hann þar til hún var orðin háöldruð kona, en þá kom hann hingað á safnið til varðveislu. Ég hugsaði með mér í hvert sinn sem ég sá ofan í kistilinn að þessari fegurð þyrfti að deila með öðrum, því þetta snertir við fólki og þessir gripir hafa mikið tilfinningagildi,“ segir Linda Ásdísar- dóttir en hún setti upp sýninguna Missi, sem nú stendur yfir í Húsinu á Eyrarbakka, Byggðasafni Árnesinga. Á sýningunni er varpað ljósi á gripi sem eru hlaðnir minningu þeirra sem missa ástvin. Í sýningarskrá kemur fram að „þegar ástvinur deyr verða persónu- legir hlutir gjarnan dýrgripir eftirlif- enda og bera því oft mun dýpri sögu en virðist í fyrstu. Þar sem hönd hélt um leikfang eða vann við handverk getur einhver seinna strokið um eða virt fyrir sér og endurlifað nánd. Ein- hverjir gripir hvíla í skúffum og kistl- um hjá eftirlifendum, aðrir hanga á veggjum. Á sýningunni er ljósinu beint að þessum fallega sið og tilfinn- ingagildi gripanna heiðrað. Sögð er saga ólíkra persóna frá fyrri hluta 20. aldar þegar ekki þótti sjálfsagt að all- ir næðu háum aldri.“ Þá var engin sorgarmeðferð Linda segir að næstum allir hlutir á sýningunni séu úr eigu safnsins. „Þetta eru átta manneskjur sem gestir kynnast á sýningunni og munir frá aðeins tveimur af þeim eru að hluta til úr einkaeigu. Yngst meðal þessara einstaklinga sem áttu hlutina á sýningunni er hún Helga Eiríks- dóttir frá Hátúni hér á Eyrarbakka, en hún dó í bílslysi aðeins fjögurra ára. Elst er Ólafía Lilja Sigurð- ardóttir, eða Lóa eins og hún var jafnan kölluð, sem bjó á Berghyl í Hrunamannahreppi og dó vegna inn- anmeins þegar hún var 42 ára. Á þeim tíma sem flestir þessir ein- staklingar dóu, við lok nítjándu aldar og upphaf þeirrar tuttugustu, þá voru ekki til margar ljósmyndir af fólki og fyrir vikið verður hver og einn gripur sem þeim tilheyrði mjög dýrmætur fyrir eftirlifandi ástvini. Þá dóu líka margir ungir og barnadauði var miklu algengari en nú er, fyrir vikið var algengt að fólk stæði frammi fyrir mjög erfiðum áföllum. Þá var engin sorgarmeðferð í boði og kannski eina sem fólk gat gert var að halda upp á hluti sem tilheyrðu þeim látnu og orna sér þannig við minningarnar. Við tengjum öll við þetta, því það er sammannlegt að geyma hluti sem minna á látna manneskju sem stóð hjarta nær,“ segir Linda og bætir við að gripir með tilfinningaþunga líkt og þeir sem eru á sýningunni séu svo mikilvægir fyrir fjölskylduna að þeir fara ekki úr eigu þeirra fyrr en allir eru dánir sem minnast þeirra. Þá komi þeir á safn, eftir að hafa þjónað tilgangi sínum. Ástarsagan á sýningunni Linda sat löngum stundum í leit að þessu fólki og einhverju sem tengdist því. Hún segist afar þakklát fyrir góða samvinnu við ættingja, ekki síst syskini Helgu litlu. Hún segir sög- urnar á bak við hlutina og eigendur þeirra gefa þeim dýpri merkingu. „Á þessum tíma var lífshættulegt að fæða barn, og ein af þessum átta manneskjum, Kristín Stefánsdóttir Stephensen frá Laugardalshólum í Laugardalshreppi, lést af barns- förum aðeins 36 ára. Hún dó frá sex ungum börnum. Þetta var því miður allt of algengur veruleiki. Jóhann Kristinn Guðmundsson frá Iðu í Bisk- upstungum lést 39 ára og kona hans Bríet stóð þá ein uppi með stóran föð- urlausan barnahóp. Heimili Bríetar var ekki leyst upp og börnunum ekki komið fyrir á öðrum bæjum, heldur hlupu sveitungar hennar í Ung- mennafélaginu undir bagga með henni og skiptu niður á sig kindunum hennar, veturinn sem Jóhann veikt- ist, til að fóðra þær. Prestshjónin tóku af skarið og útveguðu Bríeti ráðsmann, Loft Bjarnason, til að hjálpa henni við búskapinn. Hann var hjá henni og sinnti þessari fjölskyldu það sem eftir var hans ævi, en þau voru samt aldrei hjón. Ég held að Bríet hafi verið eins manns kona, enda bera gripirnir sem Bríet geymir eftir hann ást hans vitni. Þetta eru gripir sem hann skar nafn Bríetar fagurlega í, enda var hann mikill hag- leiksmaður. Eftir að Bríet féll frá varðveittu börnin þeirra þessa hluti áfram. Mér finnst saga Bríetar og Jó- hanns vera ástarsagan á sýningunni.“ Á meðal þeirra þriggja frá Eyrar- bakka sem fjallað er um á sýningunni er Kristinn Á. Sigurðsson frá Túni, en hann var í blóma lífsins, 19 ára, þegar hann fórst á sjó með bátnum Sæfara árið 1927. „Bátnum hlekktist á í innsigling- unni á Eyrarbakka og sökk í briminu með átta manna áhöfn. Hið drama- tíska er að Kristinn hafði slasast á hendi og átti ekki að fara í þessa sjó- ferð, en hann var sóttur fyrir ein- hvern misskilning,“ segir Linda og bætir við að Sigurður yngri bróðir hans hafi geymt minningarskjöld og ljósmynd af Kristni bróður sínum. „Hann hengdi þetta tvennt upp við rúmið sitt, svo það væri það fyrsta sem hann sæi þegar hann vaknaði á morgnana. Það er virkilega dýrmætt að fá að vita þessa sögu um gripina.“ Sýningin Missir er opin í sumar kl. 11-18 alla daga vikunnar. Gripir sem eru hlaðnir minningu - Þegar ástvinur deyr verða persónulegir hlutir gjarnan dýrgripir eftirlifenda - Sýningin Missir, í Húsinu á Eyrarbakka, varpar ljósi á þann sið að varðveita gripi og tilfinningagildi þeirra er heiðrað Gull Foreldrar Helga litla varðveittu gullin hans í kistli drengsins til minn- ingar um hann. Þar eru boltar hans, bursti, litir, teikningar og fleira. Minning Brúða Helgu Eiríksdóttur, samúðarkort, sendibréf, baukur og kjóll hennar eru í einkaeign systra hennar. Hún lést 4 ára í bílslysi 1964. Helgi Bóndasonurinn Helgi frá Arabæjarhjáleigu í Flóa var næstyngstur í hópi fimm systkina. Dó úr botnlangabólgu að talið er, árið 1937, fimm ára. Fallegt Margrét Aldís Árnadóttir lést átta ára 1909. Faðir hennar smíðaði leikföngin en hún saumaði útsauminn. Jólaskór hennar líka varðveittir. Linda Ásdísardóttir Prúðbúin Margrét Aldís frá Eyrar- bakka var einkabarn foreldra sinna. Listasmíð Hagleiksmaðurinn Jóhann skar út prjónastokk handa Bríeti konu sinni með nafni hennar, einnig heklunálar, lítinn ask og blóm. Kristinn Var frá Eyrarbakka, fórst 19 ára þegar Sæfari sökk 1927.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.