Morgunblaðið - 07.07.2021, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 07.07.2021, Qupperneq 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 2021 Sjálfsævisögulegi heimildasöngleik- urinn Góðan daginn faggi var for- sýndur á menningarhátíð á Café Dunhaga á Tálknafirði um helgina. Sýningin er samstarfsverkefni Þjóðleikhússins og leikhópsins Stertabendu og eru höfundar og að- standendur verksins Bjarni Snæ- björnsson leikari, Gréta Kristín Óm- arsdóttir leikstjóri og Axel Ingi Árnason tónskáld. „Góðan daginn faggi er einleikur þar sem fertugur söngleikjahommi leitar skýringa á skyndilegu tauga- áfalli sem hann fékk upp úr þurru einn blíðviðrisdag. Eftir vandasaman leiðangur um innra líf sitt, fortíð og samtíma rekst hann á rætinn homma- hatara á óvæntum stað. Sýningin er berskjaldandi leiðangur um skömm og mennsku og einlægt samtal við drauminn um að tilheyra. Hlátur, grátur og glæný söngleikjatónlist sem lætur engan ósnortinn,“ segir í tilkynningu og að sýningin hafi verið í vinnslu í þrjú ár og unnin í nánu samtali við Tálkn- firðinga, en Bjarni Snæbjörnsson ólst upp á Tálknafirði. Verkið var forsýnt þar um helgina þar sem sveitungum Bjarna og öðrum gestum gafst tæki- færi til að sjá sýninguna fyrstum allra og taka þátt í umræðum. Sýningin verður frumsýnd í Þjóðleikhúskjallaranum 5. ágúst. Bréfið Bjarni að lesa bréfið sem hann skildi eftir undir kodda móður sinnar. Með þessu bréfi kom hann út úr skápnum. Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Forsýning á Góðan daginn faggi R agnheiður Gestsdóttir sendi frá spennusöguna Úr myrkrinu fyrir um tveimur árum og nú heldur hún áfram á sömu braut með bókinni Farangri. Hvenær fremur maður glæp og er réttlætanlegt að fara á svig við lögin, jafnvel brjóta þau, í þeim til- gangi að gera heiminn betri? Flestir svara sennilega seinni spurningunni á jákvæðan hátt og sínum augum lítur hver á silfrið eru hugsanleg viðbrögð við þeirri fyrri. Farangur fjallar um þessi við- fangsefni. Ylfa, helsta sögupersónan, hefur búið með Sture, drykk- feldum ofbeld- ismanni, í Sví- þjóð undan- farin ár. Sambandið hefur verið erfitt og hún hyggst stinga af. Þá gerist ým- islegt sem kemur flatt upp á hana, hún veltir málinu fyrir sér, vegur og metur möguleika, skynjar hættu hér og þar, en lætur hyggju- vitið ráða för. Fyrsti fimmtungur sögunnar einkennist af hugarangri Ylfu. Hvernig á hún að bregðast við? Hvað á hún að gera? Hvað ef? Hún spyr sig siðferðislegra spurn- inga og tekur ákvarðanir í kjölfar- ið. Eðlileg viðbrögð? Því verða les- endur að svara. Hvað myndi ég gera í slíkum aðstæðum? Þegar taka þarf ákvörðun á svipstundu getur eitt feilspor skipt miklu máli en auðvelt er að vera vitur eftir á. Siðfræðin er merkileg og mik- ilvæg og þessi kafli er gott innlegg í þarfa umræðu. Lausnin er ekki jafn vel ígrunduð og vandamálið afgreitt á frekar auðveldan hátt. Samt leynast þar áfram ýmsar spurningar og svör um til dæmis tengsl fólks og hvaða áhrif þau hafa á gjörðir þess, þegar það á hlut að máli. Ástin á sér engin tak- mörk og spennan, sem getur verið óbærileg á stundum, heldur les- andanum við efnið. Geymt en ekki gleymt Spennusaga Farangur bbbnn Eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Kilja. 266 bls. Björt 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Höfundur Ragnheiður Gestsdóttir. Umskiptingur, nýtt barnaleikrit eftir Sigrúnu Eldjárn, verður frumsýnt í Þjóðleikhúsinu á næsta leikári, í lok janúar, og var það valið úr 150 leikverkum sem bár- ust þegar Þjóðleikhúsið kallaði eftir leikritum og hugmyndum að leikritum fyrir börn. Ragnhildur Gísladóttir semur tónlistina en hún hefur áður samið tónlist við barnaleikritin Pílu Pínu og Glám og Skrám í Sælgætislandi. Sara Marti leikstýrir verkinu og segir í tilkynningu að í því sé brugðið á leik með minnið um umskipting- ana úr þjóðsögunum. Þetta er annað barnaverk Sigrúnar á fjöl- um Þjóðleikhússins, það fyrsta var Kuggur og leikhúsvélin sem var sett upp árið 2014. Þjóðleikhúsið auglýsti í fyrra eftir handritum eða vel útfærðum hugmyndum að barnaleikritum til að efla starfsemi leikhússins í þágu barna og hvetja til ritunar nýrra, íslenskra barnaleikrita og var það jafnframt í fyrsta sinn sem auglýst var eftir barna- leikritum með þessum hætti og viðbrögðin létu sannarlega ekki á sér standa, segir í tilkynningu en sem fyrr segir bárust 150 umsókn- ir. „Í Umskiptingi segir frá systk- inunum Sævari og Bellu. Einu sinni sem oftar þarf Sævar að gæta litlu systur sinnar, sem satt að segja getur verið alveg ferleg frekjudolla! En Bella er alveg ein- staklega krúttleg og þegar tröll- skessa með óslökkvandi fegurð- arþrá sér hana ákveður hún að skipta á henni og hinum stór- gerða, uppátækjasama og hjarta- hlýja syni sínum, tröllastráknum Steina. Nú eru góð ráð dýr, en í ljós kemur að hjálpar má vænta úr ólíklegustu áttum!“ segir um efni barnaleikrits Sigrúnar. Barnaleikrit eftir Sigrúnu Eldjárn sýnt í Þjóðleikhúsinu Samstarfskonur Sara Marti leikstýrir verki Sigrúnar Eldjárn. Bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Richard Donner er allur, 91 árs að aldri. Donner leikstýrði mörgum kvikmyndum sem náðu bæði mikl- um vinsældum og aðsókn og má þar nefna fyrstu Superman-kvikmynd- ina frá árinu 1978, Lethal Weapon- myndirnar, sem urðu fjórar, The Goonies og Scrooged. Fyrsta smell- inn, Superman, gerði Donner þegar hann var að nálgast fimmtugt og hafði þá leikstýrt fjölda sjónvarps- þátta og kvikmynda allt frá árinu 1960. Margir vinir og samstarfs- menn hafa minnst Donners, m.a. kollegi hans, Steven Spielberg, með þeim orðum að Donner hafi verið afar hæfileikaríkur og varðveitt barnið í hjarta sér. Richard Donner dáinn, 91 árs að aldri Allur Richard Donner leikstýrði mörgum bíósmellinum. Vikulegar hádegisleiðsagnir verða veittar á miðviku- dögum kl. 12 -12.30 í júlí og ágúst um sýninguna Eilíf endurkoma í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni mynda verk Jóhannesar S. Kjarvals þráð sem tengir tvenna tíma og er verkum hans teflt fram með verkum myndlistarmanna sem sett hafa svip sinn á íslenskt listalíf hin síðustu ár. Aðgöngumiði á safnið gildir í leiðsögnina og frítt er fyrir handhafa Árskorts Listasafns Reykjavíkur og Menningarkorts Reykjavíkur. Hádegisleiðsagnir í júlí og ágúst Jóhannes S. Kjarval

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.