Morgunblaðið - 07.07.2021, Page 28
Rebekka Líf Ingadóttir
rebekka@mbl.is
Hjartasteinn til heiðurs tónlistar-
manninum Björgvini Halldórssyni
var afhjúpaður við Bæjarbíó í Hafn-
arfirði í gær. Um er að ræða heið-
ursverðlaun tónlistarhátíðarinnar
Hjarta Hafnarfjarðar sem hefst í
kvöld og fer nú fram í fimmta sinn.
Hátíðin er haldin í Bæjarbíói og mun
Björgvin stíga þar á svið í kvöld.
Fyrir um tveimur árum lét Hafn-
arfjarðarbær fjarlægja stjörnu sem
var sett í gangstéttina fyrir framan
Bæjarbíó til heiðurs Björgvini vegna
kvörtunar frá Viðskiptaráði í Holly-
wood í Kaliforníu. Þótti ráðinu
stjörnunni svipa mjög í útliti til
þeirra sem er að finna á Frægð-
argötunni í Hollywood (e. Hollywood
Walk of Fame). Ráðið sagði þetta
gert í heimildarleysi og því ætti bær-
inn að láta af öllu slíku þegar í stað.
Fyrsta hellan af mörgum
„Þá kviknaði sú hugmynd að búa
til okkar eigin virðingarvott og þá
var farið í logo Hafnarfjarðar sem er
hjarta, hjarta Hafnarfjarðar,“ segir
Björgvin í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins.
„Það eiga væntanlega margar
svona hellur eftir að koma, þetta
verða ekki bara tónlistarmenn held-
ur hafnfirskir listamenn, sem er
náttúrulega alveg æðislegt því það
er nóg af þeim í Hafnarfirði,“ segir
Björgvin. „Hugmyndin er að gæða
miðbæ Hafnarfjarðar lífi sem sífellt
fer stækkandi, setja svona virðing-
arvott eftir allri Strandgötunni, þá
verður þetta svolítið sérstakt.“
Páll Eyjólfsson, rekstraraðili
Bæjarbíós, segir hátíðina Hjarta
Hafnarfjarðar hafa farið stækkandi
á síðustu árum. Hann segir hátíðina
núna vera stærstu tónlistarhátíðina
á landinu, en hún mun standa næstu
þrjár vikurnar, til 24. júlí.
„Við höfum haldið í ákveðnar
hefðir, Björgvin Halldórsson opnar
alltaf hátíðina enda ekki tilefni til
neins annars,“ segir Páll. Fjöldi tón-
listarmanna mun koma til með að
troða upp á hátíðinni, þar á meðal
Stebbi og Eyfi, Stjórnin, JóiPé og
Króli, Sóldögg og Eyþór Ingi og Lay
Low. Þá lýkur hátíðinni á PAPA-
böllum föstudaginn 23. og laug-
ardaginn 24. júlí.
Páll segir að reynt sé að halda
tryggð við hafnfirska listamenn eins
og Friðrik Dór sem er bæjar-
listamaður Hafnarfjarðar í ár og
mun einnig koma fram á hátíðinni.
„Við erum í samstarfi við bæinn, þau
koma að þessu með okkur. Við erum
með hérna risastórt útisvæði á bak-
við Bæjarbíó þar sem við munum
einnig varpa tónleikunum út á
stórum LED-skjá. Þar verður einnig
um 200 manna tjald og er frítt inn á
útisvæðið fyrir þá sem ekki komast
inn. Svo verðum við með böll og
diskótek um helgar. Það er því
óhætt að segja að þetta er risastór
hátíð,“ segir Páll.
Ljóst er að tónlistarhátíðin er eitt-
hvað sem landsmenn mega ekki láta
fram hjá sér fara, enda nánast þrjár
vikur stútfullar af húllumhæ. „Fyrir
mig er þetta hjartans mál, hérna
sem ungur strákur fór ég í bíó og sá
allar helstu myndirnar í þessu bíói,
sem er enn í dag alveg eins og það
var fyrir um 55-60 árum. Þess vegna
er ég mjög stoltur af strákunum fyr-
ir að hafa tekið að sér Bæjarbíó sem
er orðið eitt vinsælasta tónleikahús
landsins,“ segir Björgvin.
„Hafnarfjörður hefur svo mikið
upp á að bjóða og fólk flykkist að til
að búa hérna, svo við erum bara í
skýjunum með þetta,“ segir Björg-
vin að lokum og Páll tekur undir.
Hlýtur fyrsta Hjarta-
stein Hafnarfjarðar
- Björgvin heldur fyrstu tónleikana í Bæjarbíói í kvöld
Morgunblaðið/Eggert
Hjartasteinn Þeir Björgvin Halldórsson og Páll Eyjólfsson, framkvæmda-
stjóri Bæjarbíós, voru kátir við afhjúpun steinsins á Strandgötunni í gær.
www.rafkaup.is
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ 188. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Valur er með tveggja stiga forskot á toppi úrvalsdeildar
kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildarinnar, eftir 2:1-
sigur gegn Selfossi á Jáverk-vellinum á Selfossi í 9.
umferð deildarinnar í gær. Á sama tíma vann Breiðablik
afar dramtískan 2:1-sigur gegn Þrótti úr Reykjavík á
Eimskipsvellinum í Laugardal en Blikar voru 1:2-undir
þegar þrjár mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Þá vann Tindastóll gríðarlega mikilvægan sigur gegn
Stjörnunni í Garðabæ. ÍBV lagði Fylki að velli í Árbæn-
um og Þór/KA vann Keflavík í Keflavík. »23
Topplið úrvalsdeildar kvenna lentu
bæði í kröppum dansi á útivelli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Tónleikar á vegum Jazzklúbbsins Múlans verða haldnir í
kvöld, 7. júlí, kl. 20 í Flóa í Hörpu. Á þeim koma fram
söngkonan Guðrún Ýr Eyfjörð, sem kallar sig GDRN, og
Magnús Jóhann. Þau kynntust í Tónlistarskóla FÍH þeg-
ar leiðir þeirra lágu saman á ABBA-tónleikum á vegum
skólans og hafa upp frá því unnið saman að fjölda verk-
efna. Bæði hafa gefið út tvær sólóplötur og komið mik-
ið fram saman undanfarin ár og þá bæði sem tvíeyki og
með hljómsveit. Þau hafa lengi vel unnið að hljómplötu
þar sem íslenskar tónlistarperlur eru í forgrunni og
munu gefa forsmekkinn að henni í kvöld og jafnvel
flytja nokkrar af perlum ABBA.
GDRN og Magnús í Múlanum