Morgunblaðið - 12.07.2021, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 12.07.2021, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 1 2. J Ú L Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 161. tölublað . 109. árgangur . Við finnum fullkominn áfangastað fyrir þig og þína. Ótal möguleikar í boði fyrir allar stærðir og gerðir hópa. Finndu þína hópferð á vita.is SKRAPP Í STUTTA FLUGFERÐ ÚT Í GEIMINN UNGUR BREIK- DANSARI Í AFGANISTAN FÉÐ STEKKUR Í GRÖSUGA SUMARHAGANA ÓTTAST TALIBANA, 13 SAUÐFÉÐ REKIÐ 4ÚT Í GEIM 12 Ítalía er Evrópumeistari karla í knattspyrnu eftir drama- tískan sigur gegn Englandi í vítakeppni á Wembley-leik- vanginum í London á Englandi í gær. Luke Shaw kom Eng- landi yfir strax á 2. mínútu áður en Leonardo Bonucci jafnaði metin fyrir Ítalíu á 67. mínútu. Í vítakeppninni reyndist mark- vörður Ítala, Gianluigi Donnarumma, hetjan en hann varði þrjár spyrnur frá leikmönnum enska liðsins og tryggði sínum mönnum 3:2-sigur en Donnarumma var valinn besti leikmað- ur mótsins í leikslok. »27 AFP Ítalía Evrópumeistari eftir sigur gegn Englandi í vítakeppni Staðan í efnahagslífinu dag er um margt eftirsóknarverð og henni megum við ekki tapa. Efnahagsmál- in hljóta því að verða áhersluatriði í kosningabaráttu haustsins. Þetta segir Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, í samtali við Morgun- blaðið. Víða uppbygging Fulltrúar samtakanna hafa að undanförnu tekið hús á atvinnurek- endum víða um land og kynnt sér stöðuna. „Fyrirtækin hafa flest feng- ið byr í seglin og þau verða, að því er virðist, fljót úr al- gjörri kyrrstöðu í eðlilegt ástand,“ segir Halldór. Víða séu stór uppbyggingar- verkefni og fjár- festingar. Á veg- um sveitarfélaga sé víða unnið að umhverfisbótum og innviðagerð. Í ferðaþjónustu er margt í gangi og sama megi segja um sjávarútveg og sprotana þar. Í uppsveiflunni nú vanti víða fólk til starfa. „Að undanförnu höfum við heyrt frá stjórnendum fyrirtækja, svo sem í sjávarútvegi, verslun og þjónustu og ferðaþjónustu, sem segja að þrátt fyrir talsvert atvinnuleysi gangi illa að fá fólk til vinnu. Slíkt gengur ekki. Íslenski hugsunarhátturinn er sá að við eigum að taka þeirri vinnu sem býðst hverju sinni. Ef þau viðhorf eru breytt þarfnast það umræðu, ekki bara í atvinnulífinu, verkalýðs- hreyfingu og stjórnmálunum, heldur við eldhúsborðið á öllum heimilum landsins,“ segir Halldór. Eftirsóknarverð staða - Fyrirtækin hafa fengið byr í seglin og þurfa fólk til starfa M Fljótt úr »10 Halldór Benjamín Þorbergsson _ Úrskurðarnefnd í vátrygginga- málum þurfti að skera úr um hvernig skilgreina ætti óslétta ak- braut í einu þeirra 443 mála sem vísað var til hennar á síðasta ári. Eigandi bíls sem skemmdist þegar hann lenti á steini á malar- vegi og vátryggingafélag voru ekki sammála um bótaskyldu. Í úr- skurði nefndarinnar segir m.a. að jafnvel þótt fallist yrði á það með bíleigandanum að „óslétt“ akbraut kunni að vera teygjanlegt hugtak verði að líta svo á að vegur sem á kafla sé, samkvæmt lýsingu bíleig- andans, eins og þvottabretti, og á séu steinar á stærð við ½ lítra gos- flösku, hljóti að falla undir það hugtak. Því var bótaskyldu hafn- að. »14 Óslétt akbraut er teygjanlegt hugtak _ Stangveiðimenn hafa víða haft áhyggjur af sein- um og lélegum laxagöngum það sem af er sumri. Hafa margir horft til stórstreymis sem er í dag og telja að nú komi í ljós hversu gott eða slæmt veiði- sumarið verði. Ágætt hljóð var í þeim sem rætt var við á bökkum ánna í gær. Um- sjónarmaður veiðinnar í Elliða- ánum sagði til að mynda mikið af laxi hafa gengið síðustu daga og bætti umsjónarmaður Barnadaga sem voru við árnar um helgina við að „áin væri malbikuð af laxi“. »6 Bíða spenntir eftir stórstreyminu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.