Morgunblaðið - 12.07.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 12.07.2021, Síða 20
✝ Pétur Hafstein Skaptason fæddist í Reykjavík 21. janúar 1945. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja 23. júní 2021 eftir skamm- vinn en erfið veik- indi. Foreldrar hans voru hjónin Mar- grét Borghild Haf- stein, f. 1919, d. 2008, og Skapti Jónsson, skipstjóri frá Hrísey, f. 1914, d. 1986. Systkini Péturs eru Elín Ebba Skaptadóttir, f. 1941, d. 2020, Þórunn Sóley Skaptadóttir, f. 1943, og Jón Skaptason, f. 1951. Pétur kvæntist hinn 11. sept- ember 1965 Huldu Guðbjarts- dóttur, sem lést fyrir aldur og Óðin Hanssyni, og Ína Björk á þrjú börn, Laufeyju Ebbu, Þóri Sólbjart og Ellert Orra. 3) Gerður fræðslustjóri, f. 11. des. 1969, maki Jón Ben Einarsson, þau eiga Maríu og Skapta Benjamín. 4) Guðbjartur, veit- ingamaður í Danmörku, f. 11. des. 1969, maki Ragnheiður Jónsdóttir, þau eiga þrjár dæt- ur, Anitu, Soffíu Huldu og Helgu Sigurbjörgu. 5) Hulda Sóley, framkvæmdastjóri Sam- skipa í Englandi, f. 6. okt. 1973, maki Leslie Robbins, Hulda á tvö stjúpbörn, Jessicu og Luke. 6) Iðunn viðskiptafræðingur, f. 23. ág. 1974, maki Stefán Krist- inn Guðlaugsson, Iðunn á tvö börn, Svövu Tönju og Jón Georgsbörn, og Stefán á Fríðu, Kristin Frans og Atla Dag. Langafabörn Péturs eru nú 14 talsins. Pétur bjó í Reykjavík fyrstu fjögur ár ævi sinnar en fluttist síðan með fjölskyldu sinni til Akureyrar. Þegar Skapti, faðir Péturs, réð sig til starfa hjá Matvælastofnun Sameinuðu þjóðanna árið 1957 fluttist fjöl- skyldan til Indlands. Síðan bjó Pétur einnig með foreldrum sínum í Úrúgvæ og Argentínu en fluttist aftur til Íslands til að ljúka gagnfræðaskólanámi. Pétur lauk námi í vélvirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1962 og hlaut meist- araréttindi í sömu grein árið 1982. Pétur starfaði hjá Vélsmiðj- unni Héðni í Reykjavík meðan á námi stóð og eftir að hann út- skrifaðist og starfaði hann þar alls í 12 ár. Pétur hóf störf í Vélsmiðjunni Kópi í Innri- Njarðvík eftir að fjölskyldan fluttist til Keflavíkur árið 1974. Árið 1979 hóf Pétur störf sem verkstjóri hjá vélaverkstæði Keflavíkurbæjar og starfaði þar í 18 ár. Síðustu ár starfs- ævinnar vann hann hjá Teiti Jónassyni við farþegaflutninga og í Skipasmíðastöð Njarðvík- ur. Útför Péturs fer fram 12. júlí 2021 kl. 13.30 í Kálfatjarnar- kirkju í Vogum. fram árið 2005. Foreldrar hennar voru hjónin Svava Arnórsdóttir, f. 1919, d. 1989, og Guðbjartur Stef- ánsson, bókari hjá Tollstjóraembætt- inu, f. 1919 í Reykjavík, d. 1975. Börn Huldu og Péturs eru: 1) Svava, lektor við Háskóla Íslands, f. 10. feb. 1966, maki Gunnar Halldór Gunnarsson, Svava á tvo syni, Pétur og Jón Guðmundssyni. Gunnar á þrjár dætur, Kristínu Hrönn, Lilju Björgu og Berg- þóru Sól. 2) Margrét, löggiltur endurskoðandi, f. 1. jan. 1968, maki Ína Björk Hannesdóttir. Margrét á tvo syni, Hans Þór „Nei, þetta má ekki gerast, hann er uppáhaldsmanneskjan mín í öllum heiminum,“ sagði systir hans er ég bar henni frétt- ir af alvarlegum veikindum föður míns. Pabbi var mikill ljúflingur, hjálpsamur með eindæmum, glettinn og skemmtilegur sögu- maður. Líf pabba var kaflaskipt eins og flestra í þessari veröld. Æskan var í byrjun tíðindalítil, fæddist í Reykjavík, fluttist til Akureyrar og gekk þar í barna- skóla í tvö ár. Árið 1957 dró til tíðinda þegar öll fjölskyldan fylgdi Skapta afa mínum til Ind- lands vegna starfa hans. Pabbi fór bara einn dag í skóla í Ind- landi, að hans sögn, kennarinn sló hann utan undir, hann sló til baka og amma sagði stopp. Pabbi eyddi því dögunum í að skoða umhverfið og lenda í ævintýrum. Einn vetur var hann sendur heim í Héraðsskólann á Laug- arvatni en náði bara tæpri önn því nú fluttist fjölskyldan til Arg- entínu og síðar Úrúgvæ. Ömmu, sem sjálf var stúdent frá MR, fannst ómögulegt að pabbi fengi ekki menntun og sendi hann heim „til að verða eitthvað“ eins og pabbi sagði. Hann fór í Gaggó Vest, kláraði verklega línu og „datt síðan inn í Vélsmiðjuna Héðin“ sem var á næstu grösum. Þar og í Iðnskólanum í Reykja- vík lauk hann prófi í vélvirkjun og ílengdist í Héðni næstu árin. Þá var komið að næsta kafla, pabbi kynntist ungri Reykjavík- urmey, Huldu Guðbjartsdóttur, sem starfaði á Tollstjóraembætt- inu. Tilhugalífið var stutt og giftu þau sig 11. september 1965. Fyrsta barnið kom í heiminn í ár- ið 1966 og átta árum síðar voru ungu hjónin orðin sex barna for- eldrar. Fyrstu árin bjuggu þau í húsnæði foreldra pabba eða til 1974 þegar þau fjárfestu í sínu fyrsta húsnæði. Fyrir valinu varð viðlagasjóðshús í Keflavík, fjarri ættingjum og vinum, svo segja má að þau hafi einangrast fé- lagslega. En þau voru samhent og kvörtuðu aldrei. Þeirra bestu stundir voru í sumarbústað fjöl- skyldu mömmu í Þrastaskógi. Síðar keyptu þau sér tjaldvagn og ferðuðust um landið. Skyndi- lega dró ský fyrir sólu, mamma lést eftir skammvinn veikindi að- eins 59 ára gömul. Þetta fékk mikið á pabba og hann þurfti að finna nýjan takt. Gamlir draumar voru dregnir fram, að keyra þvert yfir Indland á mót- orhjóli var of langsótt en draum- urinn um að eignast húsbíl rætt- ist. Það var eins og pabbi endurfæddist á þessum árum, hann varð félagslyndari og sótti mikið til barna sinna og varð tíð- ur gestur á heimili systra sinna, sem áttu í honum trúnaðarvin. Lokakaflinn hófst árið 2008 þeg- ar hann tók það gæfuspor að flytjast í Voga á Vatnsleysu- strönd. Okkur öllum að óvörum tók hann ríkan þátt í starfi eldri borgara og eignaðist marga góða vini. Fyrir fjórum árum fluttist hann í Álfagerði, íbúðir eldri borgara. Pabbi varð fljótt mað- urinn sem íbúar leituðu til, það þurfti t.d. að stilla hita í íbúð- unum og skutla til læknis og hon- um líkaði vel að geta aðstoðað nágranna sína. Á móti fékk hann félagsskap og lífsfyllingu. Það er sorg í hjarta mínu vegna fráfalls pabba, en jafn- framt þakklæti fyrir að hafa átt svona góðan föður. Farðu í friði, elsku pabbi. Meira á www.mbl.is/andlat Gerður Pétursdóttir. Elsku pabbi minn er farinn yf- ir móðuna miklu eins og hann átti sjálfur til að segja. Þegar ég hugsa um tímann sem ég hef átt með pabba frá því að mamma kvaddi fyllist ég svo miklu þakklæti en ég og pabbi vorum bestu vinir og áttum sam- an margar góðar stundir. Pabbi hafi mjög gaman af því að ferðast og fórum við stundum saman til útlanda, m.a. nokkrum sinnum á sólarströnd og það var aldrei stund sem okkur leiddist. Pabbi vissi næstum því bara allt held ég og fróðari mann hef ég engan hitt. Það var alveg sama hvar drepið var niður, saga, stjórn- mál, landafræði, hann vissi það og var snillingur að setja nútíma- atburði í sögulegt samhengi þannig að unun var að hlusta á hann og fræðast. Pabbi hafði líka gaman af því að segja sögur af eigin lífi og lífi foreldra sinna, þá sérstaklega frá framandi lönd- um, Indlandi, Argentínu og Úrú- gvæ þar sem þau bjuggu um tíma. Stundum voru sögurnar lyginni líkastar og hann hafði einnig gaman af því að krydda þær með smá ýkjum þannig að oft vorum við í vafa um hvort þær voru sannar. Þá sögðum við „nei þetta er nú lygasaga“ og þá glotti hann og sagði „en ég lýg aldrei.“ Þannig gátum við setið heilu dagana, ég að hlusta á hann segja sögur og við að ræða um menn og málefni. Ég sagði alltaf við strákana mína að „afi vissi allt“ og að við ættum bara að hringja í hann ef okkur vantaði að vita eitthvað. Ég held svei Pétur Hafstein Skaptason HINSTA KVEÐJA Afi minn hann frábær er, alltaf er gaman með þér. Ólsen-ólsen við spilum og gaman það er. Á ísrúnt ég fer með þér og gaman það er. Afi minn á hjarta úr gull því hann er enginn vingull. Afar sjaldan segir hann bull og hjartað enn úr gull. Í veganesti hann gefur mér allar þær sögur og ný orð til að segja þér og mér. Afi minn Pétur gull af manni er. Ávallt þykir mér vænt um þig. Í hjarta mér og öðrum þú ert. Mundu að þú bestur ert. Svava Tanja Georgsdóttir. 20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021 ✝ Ívar Júlíusson fæddist 1. jan- úar 1935 á Húsavík. Hann lést 30. júní 2021 á gjörgæslu- deild Sjúkrahússins á Akureyri. Foreldrar hans voru Júlíus Sig- urjónsson, f. 1903, d. 1974, og Aðal- björg Kristjáns- dóttir, f. 1910, d. 1941. Systir Ívars er Bjargey, f. 1940. Ívar var kvæntur Björgu Skarphéðinsdóttur, f. 23.11. 1936, d. 12.1. 2018, og eignuðust þau fimm börn: 1) Júlíus, f. 1956, kvæntur Guðrúnu Elsu Finn- bogadóttur, f. 1955. Þau eiga fjögur börn: a. Valdimar, f. 1973, kvæntur Svandísi Ríkharðs- dóttur. Þau eiga tvo syni, b. Ívar, f. 1978, kvæntur Sæunni Mar- geirsdóttur. Þau eiga tvær dæt- ur. c. Elva, f. 1980. Hún á tvö tvo syni: a. Máni, f. 2001, kærasta hans er Embla Sól Logadóttir, b. Dagur, f. 2006. Ívar fæddist á Húsavík eftir að foreldrar hans höfðu hætt bú- skap í Naustavík árið 1934. Hann ólst upp og bjó allt sitt líf á Höfðaveginum á Húsavík. Ívar fæddist á Höfðavegi 17, for- eldrar hans byggðu á Höfðavegi 13, þar bjó hann líka fyrstu árin með Björgu. Síðar byggðu þau sitt eigið hús á Höfðavegi 10 þar sem hann bjó til æviloka. Ívar stundaði sjómennsku lengstan hluta ævi sinnar. Hann var fyrst um sinn á vertíðum í Keflavík, á bátum sem báru nafn- ið Hilmir. Ívar kynnist eiginkonu sinni, Björgu Huldu Skarphéð- insdóttir, á þessum árum í Kefla- vík. Árið 1961 fer Ívar í útgerð ásamt frændum sínum úr Nátt- faravíkum. Bátur þeirra fékk nafnið Fanney ÞH 130 og urðu bátarnir tveir með því nafni. Út- gerðin var farsæl alla tíð. Ívar vann við veiðarfæragerð og beitningu á Húsavík eftir að hann hætti útgerð. Útför Ívars fer fram frá Húsa- víkurkirkju í dag, 12. júlí 2021, og hefst athöfnin klukkan 14. börn. d. Hlynur, f. 1990, kvæntur Yönnu Bartolata. 2) Aðalbjörg, f. 1961, gift Gylfa Sigurðs- syni, f. 1962. Þau eiga þrjú börn: a. Björgvin, f. 1978, kvæntur Jónu Birnu Óskarsdóttur. Þau eiga tvö börn. b. Hrannar, f. 1984, í sambúð með Eygló Sófusdóttur. Þau eiga þrjú börn. c. Líney, f. 1993, í sambúð með Kristjáni Elinóri Helgasyni. 3) Skarphéðinn, f. 1966, í sambúð með Arnhildi Pálmadóttur, f. 1972. Þau eiga tvö börn: a. Björg, f. 1989, b. Arnar, f. 1998, í sam- búð með Emblu Óðinsdóttir. 4) Elín, f. 1968, gift Benedikt Krist- jánssyni, f. 1970. Þau eiga þrjú börn: a. Rut, f. 1998, b. Hrund, f. 2000, c. Kristján, f. 2005. 5) Hrönn, f. 1978, gift Hafsteini Halldórssyni, f. 1972. Þau eiga Það var seinnipartur októ- bermánaðar árið 1981 niðri við Húsavíkurhöfn. Það var komið kvöld og Húsavíkurbátarnir voru að tínast í land, einn af öðrum. Við vorum að leggja upp að bryggju á Sæborginni. Ég stóð frammá, tilbúinn að hoppa í land með springinn. Það skopp- aði eitthvert klink upp úr úlpu- vösum mínum þegar ég lenti á bryggjunni. Líklega bara krón- ur og aurar. Ég veitti manni sem stóð álengdar enga athygli og gekk frá endum á okkar bát. Sem ég er að fara um borð aft- ur, er klappað létt á öxlina á mér. „Þú misstir þetta vinur.“ Stór maður, dökkur á brún og brá rétti fram hönd með klink- inu sem hafði hrokkið úr vösum mínum. Ég tók eftir höndunum, stórum og þykkum. Svo sá ég góðlátlegt andlit og stór óvenju ljósblá augu í skini frá vinnu- ljósum Sæborgar. Ég tók við klinkinu, svolítið vandræðaleg- ur. Ég spurði strákana um borð, hver þetta hefði verið. „Þetta var Íbbi á Fanney“ var svarað. Nokkru seinna var ég gestkomandi sunnudag einn á Höfðavegi 10. Kærastan vildi kynna mig fyrir foreldrum sínum. Hús- freyja var að taka af borðinu eftir hádegismatinn. Ég sá bak og forsíðu Moggans lóðrétt við borðið, sem stórar þykkar hendur héldu um. Mogganum var flett og ég beið, svolítið óstyrkur. „Hmm … voruð þið að fiska í gær?“ var loks spurt. Ég varpaði öndinni léttar. Þarna var eitthvað sem ég gat talað um við pabba hinnar heittelskuðu, hugsaði ég með mér. „Já, við vorum með 3,5 tonn,“ svaraði ég. Aftur þögn. Það var greini- lega eitthvert bitastætt efni í Mogganum - kannski Fiski- fréttir. Ég beið enn. Að lokum sigu bak og forsíða niður og ég sá í stór ljósblá augu og sólbrúnt, hýrt og góðlegt andlit. Þarna var þá kominn Íbbi á Fanney, sem síðar varð tengda- faðir minn. Hann var af gamla skólanum. Stór maður og sterkur og harð- duglegur til allra verka. Hann fór ungur á vertíð suður með sjó, til Keflavíkur, og þar hitti hann konuna í lífi sínu, hana Björgu, sem flutti svo með hon- um til Húsavíkur. Þar reistu þau sér hús og Ívar stofnaði út- gerð með frændum sínum árið 1961. Útgerðin og sjórinn áttu hug hans allan í tæp 30 ár. Fanneyjarútgerðin hafði orð á sér fyrir að vera vel rekin og sjómenn sóttust eftir því að fá pláss á Fanney ÞH 130. Ívar var hafsjór af fróðleik. Minnugur og hafði gaman af því að rifja upp síldarárin gömlu. Hann var afar glaðvær, þreyttist aldrei á að segja sög- ur og átti fjölda vina. Eftir að þeir Naustavíkurfrændur hættu útgerð árið 1988 fór hann að vinna við veiðarfæragerð. Þar var hann á heimavelli og hætti ekki þar fyrr en um sjötugt. Hann fór í berjamó þegar berin urðu blá og hafði afar gaman af að koma færandi hendi með ber í fötu. Það var ekki rusl í berja- fötunni hans Ívars Júlíussonar. Ívar setti svip á bæjarlífið, einkum „neðan við Bakkann“ sem var bryggjan og bátarnir, og hvert sem hann fór var hann hrókur alls fagnaðar. Hann gat talað við alla og það skipti ekki máli hvort hann þekkti viðmæl- andann eða ekki. Hann dáði börn sín og barna- börn og taldist svo að afkom- endur sínir og Bjargar væru orðnir 30 og nr. 31 á leiðinni. Á Höfðaveginum var oft mann- margt og ósjaldan var boðið upp á nýsteiktar kleinur og fleira góðgæti. Ívar hélt í sinn síðasta róður síðasta dag júnímánaðar, sáttur við lífshlaup sitt, Guð og menn. Ljúfur og góður maður er genginn og ég kveð tengda- pabba minn með söknuði. Megi hann hvíla í friði. Gylfi Sigurðsson. Elsku afi. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar. Gef mér kærleik, gef mér trú gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér, svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli frá Uppsölum) Hvíldu í friði, við söknum þín. Rut, Hrund og Kristján. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæll á ljóssins friðarströnd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Við erum/vorum á leiðinni til hans eins og undanfarin ár síð- an við fengum húsbílinn 2009. Á hverju sumri, oft yfir sumarið, á Höfðaveginn, þar sem hann tók frá stæði við húsið sitt fyrir okkur, enginn mátti taka stæð- ið okkar þegar við vorum vænt- anleg. Það var mikið grínast með þetta stæði, og síðan var hann búinn að hella upp á kaffið og taka til brauðið í ristina á morgnana. Síðan beið hann eftir að við dröttuðumst á fætur og kæmum inn í morg- unkaffið. Það voru gæðastundir fyrir okkur. Hann hafði svo gaman af að stríða mér og við grínuðumst mikið saman. Síðan sátu þeir Jón tímunum saman og ræddu áhugamál þeirra beggja, sjómennsku og sjávar- útvegsmál. Jóni fannst hann einhver sá vænsti maður sem hann hafði kynnst, og hann var búinn að hlakka til að koma á Höfðaveg- inn í sumar eins og vanalega, þeim varð svo vel til vina. En svona fór þetta, okkur finnst þetta ótrúlegt, sorglegt og er- um ekki búin að meðtaka þetta. Okkar sumarferðir verða ekki þær sömu í framtíðinni. Hann kom inn í líf fjölskyldu minnar þegar hann náði í kær- ustuna sína systur mína, Björgu frá Syðri-Tungu, þar sem við bjuggum þá. Hann fór með hana norður til Húsavíkur og hún varð eiginkonan hans, og þar bjuggu þau alla tíð. Þau voru yndisleg hjón sam- an, alltaf jafn hamingjusöm með hvort annað, ég sagði oft að þau væru alltaf eins og nýtrúlofuð. Foreldrar okkar Bjargar, tengdaforeldrar hans, og hann voru mikilir vinir og þar var sko gagnkvæm vinátta. Hann Ívar missti svo mikið þegar Björg lést. En hann hélt ótrauður áfram, og hans bestu stundir voru þegar börnin hans, afabörnin, og langafabörnin voru hjá honum, eða hann hjá þeim. Það var alltaf mikið fjör og margt um manninn á Höfða- veginum á Mærudögunun, allir að skemmta sér saman. Þau elskuðu að fara til Gran Canaria, þar sem við áttum margar góðar stundir saman. Vinir okkar þar urðu líka vinir þeirra, þeir biðja margir fyrir samúðarkveðjur til ættingja hans. Við Jón þökkum fyrir vinátt- una við þennan mæta mann og biðjum góðan Guð að blessa hann og Björgu, og minningu þeirra sem aldrei var önnur en góð. Börnunum hans sem hafa verið mér eins og systkini, afa- börnunum, langafabörnunum yndislegu sem voru honum svo mikils virði, vottum við samúð okkar, þeirra missir er mikill. Rakel mágkona og Jón svili og vinur. Leiddu mig nú til lífsins hæða áný, í ljóssins geim. Lýstu mér Drottinn loks er aftur sný, úr langför heim. Vísa mér leið og varða mína för. og við mér tak er ýti nú úr vör. Ívar eða Íbbi í Vogum eins og hann var oftast nefndur átti ættir að rekja handan yfir Skjálfandaflóann til Naustavík- ur þar sem Náttfari nam land nokkru áður en Ingólfur settist að í Reykjavík. Í Naustavík bjó afi Íbba góðu búi og þar var faðir hans fæddur og upp alinn en hann fluttist síðan til Húsa- víkur og settist að í Vogum við Höfðaveginn á Húsavík þar sem Íbbi fæddist og ólst upp með systur sinni Bjargey hjá föður sínum, ömmum og afa en móður sína misstu þau mjög ung að árum. Í Vogum bjó hann síðan sín fyrstu búskap- arár en byggði sér svo reisu- legt hús handan Höfðavegarins og bjó þar til æviloka. Sem sagt fæddist, ólst upp og bjó alla tíð við götuna sína ef frá eru taldar nokkrar vertíðir sem hann stundaði sjó frá Keflavík. Ívar Júlíusson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.