Morgunblaðið - 12.07.2021, Side 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
Ljósmyndakeppni
mbl.is
Vilt þú vinna farsíma frá Samsung eða
glæsilegan ferðavinning frá Icelandair?
Allar myndir sem sendar eru inn birtast á mbl.is og þemað er flug.
Það er líka hægt að taka þátt á Instagrammeð myllumerkinu #mblflug
1.-2. Sæti Samsung Galaxy s21+
3. Sæti 100.000 kr. gjafakort frá Icelandair
12. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.36
Sterlingspund 170.63
Kanadadalur 98.72
Dönsk króna 19.673
Norsk króna 14.148
Sænsk króna 14.363
Svissn. franki 134.8
Japanskt jen 1.1215
SDR 175.82
Evra 146.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.49
Hrávöruverð
Gull 1803.4 ($/únsa)
Ál 2435.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.67 ($/fatið) Brent
« Samkvæmt drögum að nýjum
reglum um skatta á eldsneyti vilja
ráðamenn innan Evrópusambandsins
smám saman hækka álögur á bens-
ín, díselolíu og flugvélaeldsneyti á
næstu tíu árum. Að sögn Financial
Times verða drögin kynnt síðar í vik-
unni og verði þau samþykkt af aðild-
arríkjum ESB yrði það í fyrsta skipti
sem samræmdur skattur yrði lagður á
flugvélaeldsneyti í Evrópu.
Er skattabreytingunum ætlað að
hjálpa ríkjum Evrópusambandsins að
ná því marki að minnka kolefnis-
losun sína um 55% fyrir árið 2030.
Verði breytingarnar að veruleika mun
kolefnishlutlaust eldsneyti ekki vera
skattlagt, né heldur flugvélaeldsneyti
sem framleitt er með sjálfbærum
hætti. Til að reglurnar taki gildi mun
þurfa einróma samþykki allra 27 aðild-
arríkja ESB.
Talsmenn fluggeirans benda á að
þær breytingar sem lagðar eru til geti
í reynd haft neikvæð umhverfis- og
efnahagsáhrif og að betra væri að
fara þá leið að selja losunarheimildir á
markaði. Sérstakur skattur á flug-
vélaeldsneyti innan ESB myndi
skekkja samkeppnisstöðu flugfélaga
bæði innan Evrópu og á flugleiðum til
annarra heimsálfa. ai@mbl.is
ESB vill hærri gjöld
á flugvélaeldsneyti
STUTT
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Fulltrúi Frakklands notaði tækifær-
ið á fundi fjármálaráðherra G20-
ríkjanna í Feneyjum um helgina og
lagði til að í stað þess að sammælast
um 15% lágmarksskatt á hagnað al-
þjóðafyrirtækja yrði stefnt að 25%
skatti.
Þegar fjármálaráðherrar G7-
hópsins funduðu í London fyrr í
sumar féllust þeir á tillögu Banda-
ríkjanna um breytingar á skattlagn-
ingu alþjóðafyrirtækja til að tryggja
að þau greiði að lágmarki 15% skatt
af hagnaði sínum. Líkt og Við-
skiptaMogginn fjallaði um sagði
Bruno Le Maire, fjármálaráðherra
Frakklands, við það tækifæri að
15% skattagólf væri bara byrjunin
og að Frakkland myndi beita sér
fyrir því að lágmarkið yrði eins hátt
og kostur er. Í dag þurfa frönsk
fyrirtæki að greiða ríkinu 32% af
þeim hagnaði sem þeim tekst að
skapa og á Íslandi er hlutfallið 20%.
Af Evrópuríkjum sem lenda undir
15% markinu má nefna Írland,
Liechtenstein, Búlgaríu og Ung-
verjaland sem leggja 9 til 12,5%
skatt á félög.
Samið um undanþágur
Á fundinum samþykktu ráðherrar
G20-ríkjanna megindrætti fyrirhug-
aðs skattasamstarfs en enn á eftir
að útfæra ýmis smáatriði og stefnt
er að því að reglurnar verði fullmót-
aðar í lok október þegar þjóðarleið-
togar G20-ríkjanna funda í Róm.
Að sögn Reuters eiga nýju
skattareglurnar m.a. að fela í sér að
ríki geti lagt 20-30% skatt á „um-
framhagnað“ fyrirtækja sem verður
til í hverju landi fyrir sig. Er „um-
framhagnaður“ skilgreindur sem
hagnaður sem er hærri en 10% af
tekjum. Munu reglurnar gilda um
fyrirtæki sem velta meira en 20
milljörðum evra á heimsvísu en
veltumörkin verði færð niður í 10
milljarða að sjö árum liðnum, að því
gefnu að skattasamráðið gefi góða
raun.
Reuters hefur eftir Paolo Gentil-
oni, fjármálaráðherra ESB, að á
þessu stigi sé m.a. deilt um hvort
miða eigi við 20 eða 10 milljarða
evra veltu og eins hvort þurfi að
undanskilja ákveðnar greinar eins
og iðnaðarfyrirtæki, en þegar hefur
verið samþykkt að hlífa námafyr-
irtækjum og fyrirtækjum í fjár-
málageira við reglum um sam-
ræmdan lágmarksskatt.
Bíða með sérskatta á
stafræna þjónustu
Mörg Evrópuríki hafa lengi haft
horn í síðu alþjóðlegra tæknirisa
sem hafa hagnast vel á sölu á vörum
og þjónustu á evrópskum mörkuð-
um en bókfært hagnaðinn í öðrum
löndum þar sem skattbyrðin er
minni. Voru sum lönd langt á veg
komin með að innleiða nýja skatta á
stafræna þjónustu og var Evrópu-
sambandið með frumvarp þar að
lútandi í smíðum. Financial Times
segir að í kjölfar fundarins í Fen-
eyjum hafi ráðamenn í Brussel til-
kynnt að hugmyndir um skatta á
stafræna þjónustu verði settar á ís
a.m.k. fram á haust til að auka lík-
urnar á að ríki heims sammælist í
staðinn um þær breytingar sem
G20-hópurinn vinnur að.
Upphaflega stóð til að kynna
drög að nýjum ESB-reglum um
skatta á stafræna starfsemi í þess-
ari viku en síðar var kynningunni
frestað til 20. júlí. FT hefur eftir
starfsmanni ESB að endanleg
ákvörðun um skatta á stafræna
þjónustu hafi ekki verið tekin og
velti framhaldið m.a. á niðurstöðu
fundar Janet Yellen, fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, og Ursulu
von der Leyen, forstjóra fram-
kvæmdastjórnar ESB, sem fram fer
í dag.
Frakkland vill taka upp
25% lágmarksskatt
AFP
Stórhuga Bruno Le Maire, fjármálaráðherra Frakklands, mætir til fund-
arins í Feneyjum. Ríki heims hafa sýnt skattasamráðinu mikinn áhuga.
Yfirboð
» Deilt er um hvort nýjar regl-
ur eigi að gilda um fyrirtæki
með 20 eða 10 milljarða dala
veltu.
» Fjármála- og námafyrirtæki
verða undanskilin.
» Evrópusambandið mun bíða
með reglur um sérskatt á staf-
ræna þjónustu til að liðka fyrir
verkefni G20-hópsins.
- Línurnar teknar að skýrast um undanþágur og útfærslur skattasamráðs
Breski auðkýfingurinn Richard
Branson, stofnandi Virgin-sam-
steypunnar, fékk á sunnudag far
með geimflaug Virgin Galactic upp
að ystu mörkum lofthjúps jarðar.
Með þessu skaut hann Jeff Bezos,
stofnanda Amazon, ref fyrir rass en
Bezos hyggst taka þátt í geimskoti
eldflaugafyrirtækis síns Blue Origin
20. júlí næstkomandi.
Financial Times segir útspil Bran-
sons marka kaflaskil í sölu og mark-
aðssetningu á flugferðum út í geim.
Fyrir tveimur vikum var ákveðið í
snarhasti að Branson skyldi taka
þátt í tilraunaflugi sunnudagsins
þegar ljóst var að Bezos væri á leið
út í geim, en upphaflega stóð til að
Branson myndi ferðast með Virgin
Galactic síðar á árinu. Með því að
flýta för sinni kom Branson í veg fyr-
ir að flug hans félli í skugga geim-
ferðar Bezos en fréttir af uppátæki
Bransons voru áberandi á öllum
helstu fréttavefjum um helgina.
Tvær leiðir að sama marki
Mikill munur er á geimflugstækni
Blue Origin og Virgin Galactic:
Geimflaug Bransons er borin af
stórri móðurflugvél upp í u.þ.b. 14
km hæð og er þá eldflaugarhreyfill
ræstur, geimflaugin losuð frá
móðurflugvélinni og henni flogið
undir eigin afli upp í 80 km hæð.
Bæði móðurflugvélin og geimflaugin
lenda á flugvelli í lok ferðarinnar.
Blue Origin notar hins vegar eld-
flaug til að bera farþegahylki upp að
mörkum lofthjúpsins. Hylkið er los-
að frá eldflauginni í ákveðinni hæð
og á hylkið að komast meira en 100
km frá yfirborði jarðar. Eldflaugin
er margnota og lendir lóðrétt á fyrir-
framákveðnum lendingarstað en
hylkið svífur til jarðar í fallhlíf.
Í báðum tilvikum fá farþegar að
upplifa þyngdarleysi í um það bil
fjórar mínútur.
Bæði Blue Origin og Virgin
Galactic hyggjst hefja farþegaflug á
næsta ári. ai@mbl.is
AFP
Draumur Branson var að vonum
glaður eftir ferðalagið.
Branson út í geim
á undan Bezos
- Hitnar í kolunum
á markaði fyrir far-
þegaflug út í geim