Morgunblaðið - 12.07.2021, Blaðsíða 27
_ Ian Jeffs er nýr þjálfari meistara-
flokks kvenna í knattspyrnu hjá ÍBV og
mun hann stýra liðinu út leiktíðina.
Andri Ólafsson lét af störfum sem
þjálfari kvennaliðs ÍBV um síðustu
mánaðamót eftir rúmlega eitt og hálft
ár í starfi. Jeffs, sem stýrði kvennaliði
ÍBV frá 2015 til 2018, stýrði sínum
fyrsta leik gegn Þór/KA á Akureyri í
gær þar sem liðin gerðu 1:1-jafntefli.
_ Martin Hermannsson, landsliðs-
maður í körfubolta, er ekki á förum frá
spænska stórliðinu Valencia, þrátt fyr-
ir orðróm þess efnis. Þetta staðfesti
Martin í samtali við Karfan.is.
Martin er samningsbundinn Valencia
út næsta tímabil en hann hefur m.a.
verið orðaður við gríska stórliðið Pa-
nathinaikos. Leikstjórnandinn samdi
við Valencia á síð-
asta ári eftir tvö
góð ár hjá Alba
Berlín í Þýska-
landi.
_ Handknattleiks-
markvörðurinn
Arnór Freyr Stef-
ánsson er genginn
til liðs við Stjörnuna og skrifaði hann
undir samning við félagið til ársins
2024. Hann kemur til liðsins frá Aftur-
eldingu en Arnór er uppalinn í Breið-
holtinu og spilaði ungur með ÍR. Hann
hefur einnig spilað í efstu deild með
HK og Aftureldingu og þá lék hann
sem atvinnumaður með Randers í
Danmörku í tvö ár. Stjarnan endaði í 5.
sæti í úrvalsdeild á síðustu leiktíð og
tapaði gegn Haukum í undanúrslitum
Íslandsmótsins.
_ Ástralska tenniskonan Ashleigh
Barty hafði betur gegn hinni tékk-
nesku Karolinu Pliskova í úrslitum í
einliðaleik á Wimbledon-mótinu og
vann þar með sitt fyrsta Wimbledon-
mót og sinn annan risatitil á ferlinum.
Barty vann 2:1-sigur í úrslitaleiknum
en hún vann fyrsta settið 6:3, tapaði
öðru settinu 6:7 og vann það þriðja,
6:3. Barty, sem er 25 ára gömul og í
efsta sæti heimslistans, vann sinn
fyrsta risatitil á Opna franska meist-
aramótinu árið 2019. Hún varð um
helgina fyrsta ástralska kona til þess
að vinna á Wimbledon í meira en fjóra
áratugi, en vinkona hennar og læri-
meistari, Evonne Goolagong Cawley,
gerði það síðast
árið 1980. Í karla-
flokki var það
Serbinn Novak
Djokovic sem
hafði betur gegn
Ítalanum Matteo
Berrettini í úr-
slitaleik. Djokovic
vann leikinn 3:1 en
Berrettini vann fyrsta settið 7:6.
Djokovic vann hins vegar 6:4, 6:4 og
6:3 í næstu settum á eftir og tryggði
sér þannig sigurinn. Djokovic hefur nú
unnið mótið þrisvar í röð og sex sinn-
um alls. Hann hefur fagnað sigri á
tuttugu risamótum alls og er nú jafn
Svisslendingnum Rodger Federer og
Spánverjanum Rafael Nadal sem báðir
hafa unnið tuttugu risatitla á ferlinum.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Domusnovav.: Leiknir R. – ÍA ............ 19.15
Meistaravellir: KR – Keflavík ............. 19.15
Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin:
Würth-völlur: Fylkir – Breiðablik ...... 19.15
Samsung-völlur: Stjarnan – Valur........... 20
Í KVÖLD!
Vináttulandsleikir karla
Frakkland – Spánn............................... 79:87
Bandaríkin – Nígería ........................... 87:90
Argentína – Ástralía............................. 84:87
Vináttulandsleikur kvenna
Frakkland – Spánn............................... 80:75
>73G,&:=/D
EM U19 kvenna
B-deild í Norður-Makedóníu:
Ísland – Hvíta-Rússland...................... 22:23
Vináttulandsleikir karla
Egyptaland – Brasilía .......................... 32:25
Þýskaland – Egyptaland .................... 29:27
- Alfreð Gíslason þjálfar Þýskaland.
Vináttulandsleikur kvenna
Spánn – Rúmenía ................................. 32:19
E(;R&:=/D
Rúmenía
Meistarabikarinn:
CFR Cluj – Universitatea Craiova......... 0:0
_ Uni. Craiova vann í vítakeppni: 4:2.
- Rúnar Már Sigurjónsson lék fyrstu 45
mínúturnar með CFR Cluj.
Bandaríkin
Orlando Pride – Racing Louisville........ 1:1
- Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir lék allan
leikinn með Orlando Pride.
_ Efstu lið: North Carolina 16, Orlando 16,
Portland 16, Houston 13.
Noregur
Sandviken – Vålerenga .......................... 3:0
- Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik-
inn með Vålerenga. Amanda Andradóttir
kom inn á sem varamaður á 68. mínútu.
Stabæk – Arna-Björnar .......................... 0:3
- Guðbjörg Gunnarsdóttir sat allan tím-
ann á varamannabekk Arna-Björnar.
_ Efstu lið: Rosenborg 24, Sandviken 22,
Vålerenga 18, Lilleström 18.
Svíþjóð
B-deild:
Kalmar – Sundsvall ................................. 1:0
- Andrea Thorisson lék fyrstu 80 mínút-
urnar með Kalmar.
Noregur
Molde – Odd.............................................. 5:0
- Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki
með Molde vegna meiðsla.
Rosenborg – Kristiansund...................... 1:0
- Hólmar Örn Eyjólfsson var ekki í leik-
mannahóp Rosenborg.
- Brynjólfur Willumsson kom inn á sem
varamaður á 87. mínútu hjá Kristiansund.
Sandefjord – Sarpsborg ......................... 2:0
- Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn með
Sandefjord og skoraði.
- Emil Pálsson lék fyrstu 56 mínúturnar
með Sarpsborg.
Brann – Tromsö....................................... 1:1
- Adam Örn Arnarson var ekki í leik-
mannahóp Tromsö.
Vålerenga – Lilleström........................... 2:2
- Viðar Örn Kjartansson lék ekki með
Vålerenga vegna meiðsla.
Viking – Strömsgodset ........................... 1:1
- Samúel Kári Friðjónsson lék fyrstu 82
mínúturnar með Viking.
- Ari Leifsson lék allan leikinn með
Strömsgodset, Valdimar Þór Ingimundar-
son var ónotaður varamaður.
Staðan:
Molde 13 9 2 2 33:12 29
Bodø/Glimt 13 7 3 3 27:13 24
Vålerenga 13 5 6 2 24:17 21
Kristiansund 12 6 2 4 11:12 20
Rosenborg 13 5 4 4 23:18 19
Viking 12 5 3 4 22:24 18
Lillestrøm 10 5 2 3 14:13 17
Odd 11 4 4 3 15:16 16
Haugesund 10 4 3 3 12:9 15
Sandefjord 10 5 0 5 14:16 15
Strømsgodset 11 3 4 4 15:20 13
Sarpsborg 11 3 3 5 8:14 12
Mjøndalen 10 2 4 4 12:11 10
Tromsø 12 2 4 6 11:21 10
Stabæk 10 1 3 6 11:22 6
Brann 13 1 3 9 12:26 6
Ameríkubikar karla
Úrslitaleikur:
Brasilía – Argentína................................. 0:1
Leikur um bronsverðlaun:
Kólumbía – Perú....................................... 3:2
KNATTSPYRNA
EM 2021
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Ítalía er Evrópumeistari karla í
knattspyrnu í annað sinn eftir
dramatískan sigur gegn Englandi í
úrslitaleik á Wembley-leikvanginum
í London í gær.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir
ítalska liðið því Luke Shaw kom
Englendingum yfir strax á 2. mín-
útu. Kieran Trippier átti þá frábæra
fyrirgjöf frá hægri á fjærstöngina
þar sem vinstri bakvörðurinn var
réttur maður á réttum stað og Shaw
stýrði boltanum laglega með innan-
fótarspyrnu í stöngina og inn.
Englendingar voru sterkari að-
ilinn í fyrri hálfleik, án þess þó að ná
að ógna marki ítalska liðsins að ein-
hverju ráði, og enska liðið leiddi því
1:0 í hálfleik.
Ítalir byrjuðu seinni hálfleikinn af
miklum krafti og Leonardo Bonucci
jafnaði metin fyrir Ítali á 67. mínútu
eftir hornspyrnu.
Domenico Berardi tók þá horn-
spyrnu sem Bryan Cristante skall-
aði áfram á fjærstöngina. Þar var
Marco Verratti mættur og hann átti
fastan skalla sem Jordan Pickford í
marki Englands varði frábærlega en
Bonucci var fyrstur til að átta sig í
teignum. Hann náði frákastinu, ýtti
boltanum yfir marklínuna af stuttu
færi, og staðan því orðin 1:1.
Sjötti bikar Ítalíu
Hvorugu liðinu tókst að bæta við
mörkum það sem eftir lifði leiks og
því var gripið til framlengingar. Þar
tókst hvorugu liðinu að koma bolt-
anum í netið og því ljóst að úrslitin
myndu ráðast í vítaspyrnukeppni.
Þar voru það Ítalir sem höfðu bet-
ur, 3:2, en Gianluigi Donnarumma í
marki Ítala varði frá þeim Marcus
Rashford, Jadon Sancho og Bukayo
Saka.
Pickford í marki enska liðsins
varði einnig tvær spyrnur í víta-
keppninni; frá Andrea Belotti og
Jorginho en það dugði ekki til.
Ítalir fögnuðu vel og innilega í
leikslok en Donnarumma í marki
ítalska liðsins var valinn besti leik-
maður mótsins í leikslok.
_ Þetta er í sjötta sinn sem Ítalía
vinnur stórmót í knattspyrnu en lið-
ið hefur fjórum sinnum orðið heims-
meistari og tvívegis Evrópumeistari.
_ Ítalía varð síðast Evrópumeist-
ari árið 1968 eftir sigur gegn gömlu
Júgóslavíu í úrslitaeinvígi. Leikið
var í Róm á Ítalíu en fyrri úrslitaleik
liðanna lauk með 1:1-jafntefli eftir
framlengingu og því mættust liðin
öðru sinni, tveimur dögum síðar, þar
sem Ítalir fögnuðu 2:0-sigri.
_ Þetta var í annað sinn sem úrslit
Evrópumótsins ráðast í víta-
spyrnukeppni en það gerðist fyrst
árið 1976 á EM í gömlu Júgóslavíu
þegar Tékkland vann Vestur-
Þýskaland í vítakeppni í Belgrad í
Serbíu.
_ Leonardo Bonucci, markaskor-
ari Ítala í leiknum, er elsti leikmað-
urinn til þess að skora í úrslitaleik á
Evrópumóti en hann var 34 ára og
71 dags gamall þegar hann skoraði í
gær.
_ England hefur aðeins unnið
tvær vítakeppnir af níu á stórmótum
í knattspyrnu eða 22% vítakeppna
sinna.
Ítalir Evrópumeistarar
- Ítalía hafði betur gegn Englandi í úrslitaleik á Wembley-leikvanginum í London
- Markvörðurinn Gianluigi Donnaromma varði þrjár spyrnur í vítakeppninni
AFP
2 Ítalir fagna sigri með Evrópubikarinn á Wembley í gær en þetta er í annað sinn sem Ítalía verður Evrópumeistari.