Morgunblaðið - 12.07.2021, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. JÚLÍ 2021
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Tæplega 20 ár eru nú liðin frá því
talibanar réðu ríkjum í Afganistan
en yfirráð þeirra einkenndust með-
al annars af strangri túlkun á íslam,
skerðingu á kvenfrelsi og hörðum
bönnum á ýmsum athöfnum og iðj-
um sem mörgum kann að þykja
sjálfsagðar. Lögðu þeir meðal ann-
ars blátt bann við því að fljúga flug-
drekum, sápuóperum, skrautlegum
hárgreiðslum og því að spila tónlist.
Eftir að Bandaríkjaher yfirgaf
miðstöð hernaðaraðgerða gegn
uppreisnarhópum í Afganistan á
dögunum þykir aukin hætta á því
að talibanar nái aftur völdum af
afganska hernum í landinu. Ótti
hefur í kjölfarið aukist meðal
margra innfæddra við þá frels-
isskerðingu sem yfirráð öfga-
mannana myndu hafa í för með sér
fyrir heimamenn. Fréttastofa AFP
skoðaði fólkið á bak við ýmsar iðjur
sem talibanar bönnuðu á síðasta
valdaskeiði sínu á árunum 1996-
2001 og ræddu um upplifun þess á
óvissunni í landinu.
Tónlistarmaðurinn
Sayed Mohammad er einn þeirra
sem upplifðu á eigin skinni harð-
stjórn talibana en hann hefur frá
barnæsku leikið á svokallað japani,
japanskt strengjahljóðfæri, og
byggir afkomu sína á hljóðfæraleik.
Mohammad segist enn sjá það ljós-
lifandi fyrir sér þegar talibanar
brutust inn í hús þar sem hann og
vinir hans sátu saman, spiluðu tón-
list og sungu. Voru drengirnir allir
barðir fyrir athæfið og þeim bannað
að spila tónlistina en samkvæmt
strangri túlkun talibana á íslam má
eingöngu framleiða tónlist með
raddböndunum og aðeins til að lof-
syngja guð.
„Ég var ungur svo ég var barinn
minna en vinir mínir. Ég gat samt
ekki staðið í þrjá daga,“ segir Mo-
hammad, sem nú er fertugur, í sam-
tali við AFP. Segist hann raunar
hafa verið heppinn og bendir á að
einn vinur hans hafi misst fingurna
eftir að hafa spilað á japani-
hljóðfærið. Segist hann hafa haldið
upp á ósigur talibana 2001 með því
að fara á tónleika.
„Þegar ég heyrði tónlistina fann
ég gríðarlegan ánægjuhroll fara um
líkamann,“ segir Mohammad.
Í lítilli snyrtistofu í Kabúl, höfuð-
borg Afganistan, starfar sminkan
Farida. Þrátt fyrir verulegar vin-
sældir stendur snyrtistofa Faridu
frammi fyrir mikilli óvissu vegna
talibana en á síðustu valdatíð þeirra
var starfsemi snyrtistofa algerlega
bönnuð auk þess sem réttindi
kvenna og stúlkna voru verulega
skert og þeim bannað að vinna. Fa-
rida sérhæfir sig sérstaklega í
brúðarförðun og snyrtingu og er af-
ar vinsæl meðal verðandi brúða.
„Ef þeir ná aftur völdum þá mun-
um við aldrei hafa það frelsi sem við
höfum núna. Þeir vilja ekki að kon-
ur vinni,“ segir Farida sem vildi
ekki koma fram undir fullu nafni af
ótta við öfgamenn en hún segist
viss um að talibanar myndu loka
stofunni ef þeir næðu völdum.
Flugdrekasmiðurinn
Flugdrekasmiðurinn Zelgai seg-
ist ætla að halda ótrauður áfram
starfi sínu, sem hafi fylgt fjölskyldu
hans í margar kynslóðir, hvort sem
talibanar nái völdum eða ekki.
Á valdatíð sinni bönnuðu talib-
anar flugdrekaflug sem samkvæmt
þeirra túlkun á íslam dró athygli
ungra manna frá trúnni. Fjölskylda
Zelgai lét þetta þó ekki á sig fá og
hélt áfram að smíða og selja flug-
dreka.
„Auðvitað gerðum við þetta í
leynum,“ segir Zelgai sem rekur af-
ar litríkan flugdrekamarkað í Ka-
búl. Segir hann að flugdrekasala
hafi blómstrað árin eftir ósigur tal-
ibananna og geri enn en í réttum
veðurskilyrðum má sjá þúsundir
flugdreka á sveimi á bláum himni
Afganistan. Vinsældir flugdreka
hafa aðeins aukist eftir að skáldsag-
an Flugdrekahlauparinn, frá 2003,
eftir Afganann Khaled Hosseini var
kvikmynduð.
Breik-dansarinn
Manizha Talash segist hafa vitað
að hún yrði skotmark fyrir talibana
frá því hún byrjaði að dansa en hún
er eini kvendansarinn í breik-dans-
hópi sem samanstendur aðallega af
drengjum úr minnihlutahópi haz-
ara. Hópurinn sýnir yfirleitt listir
sínar í leynum en Talash dreymir
um að fá að keppa fyrir hönd Afg-
anistan á Ólympíuleikunum.
Það er ekki nóg með að Talash,
sem er 18 ára, sé kona sem stundar
iðju sem öfgamönnunum þykir ósið-
leg, heldur er hún einnig tengd við
samfélag hazara-Afgana sem hafa
sætt miklum ofsóknum af hálfu tal-
ibana. Því leikur enginn vafi á því
að hún væri í stórhættu ef talibanar
ná aftur völdum í landinu.
„Ef talibanarnir hafa ekki breyst
og vilja enn læsa konur inni á heim-
ilunum og traðka niður réttindi
þeirra, þá yrði lífið tilgangslaust
fyrir mig og fyrir milljónir annarra
kvenna í Afganistan,“ segir Talash í
samtali við AFP. Þrátt fyrir að hóp-
urinn hafi þurft að breyta um æf-
ingastaði vegna líflátshótana segist
hún harðákveðin í að fylgja ástríðu
sinni.
„Ég tók þá áhættu að ég gæti
orðið skotmark. Ég er hrædd en ég
mun ekki gefast upp,“ segir Talash.
AFP
Flugdrekasmiður Zelgai ætlar að halda áfram sölu á flugdrekum hvort sem talibanar ná völd-
um eða ekki en fyrirtæki hans var einnig starfandi á síðustu valdatíð öfgamannanna.
AFP
Tónlist Sayed Mohammad upplifði á eigin skinni grimmd talibana þegar
hann var barinn fyrir að spila tónlist með vinum sínum sem ungur drengur.
Óttast að verða „tali-bönnuð“ á ný
- Margir Afganar telja að frelsi sínu og lífsviðurværi
yrði ógnað ef talibanar ná völdum í landinu
- „Ég tók þá áhættu að ég gæti orðið skotmark.
Ég er hrædd en ég mun ekki gefast upp“
AFP
Hugrökk Það leikur enginn vafi á því að ungi breik-dansarinn Talash væri í stórhættu ef talib-
anar ná völdum í Afganistan. Hún heldur þó ótrauð áfram að fylgja ástríðu sinni.