Morgunblaðið - 16.07.2021, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 | 105 Reykjavík | Sími 568 0150 | www.rut.is |
Opið alla virka daga kl. 10-17
Passamyndir
Tímapantanir
í síma 568 0150
eða á rut@rut.is
Tryggjum
tveggja metra fjarlægð
og gætum ítrustu
ráðstafana
2021 ALÞINGISKOSNINGAR
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Ríkisstjórnin nýtur stuðnings meiri-
hluta þjóðarinnar, en fengi ekki þing-
styrk til þess að halda velli ef kosið
yrði í dag. Raunar blasir við að rík-
isstjórnarmyndun yrði flóknari en
nokkru sinni fyrr, því svo virðist sem
níu stjórnmálaflokkar næðu kjöri á
Alþingi. Þetta er meðal þess, sem lesa
má úr niðurstöðum spurningavagns
MMR.
Ríkisstjórnin nýtur sem oftast áður
meirihlutastuðnings kjósenda, en
samkvæmt könnuninni styðja 55%
ríkisstjórnina en 45% ekki.
Hins vegar ná stjórnarflokkarnir
ekki meirihluta, hvorki þegar horft er
til samanlagðs fylgis, né dreifingar
þingsæta. Þeir fá samanlagt 48%
fylgi, en miðað við fylgisdreifingu
allra flokka kæmi þá aðeins 31 þing-
maður í hlut stjórnarflokkanna.
Þó ber að geta að útreikningur á
dreifingu þingsæta miðast við fylgi
flokka á landinu öllu, en fylgi flokka í
einstökum kjördæmum getur ráðið
hvernig þingsæti falla. Þegar þrjú
framboð eru á mörkunum að ná 5%
þröskuldinum eins og nú geta sáralitl-
ar breytingar haft mikil áhrif.
Enginn sigurvegari
Þegar litið er á fylgi flokkanna er
erfitt að halda fram að þar sé nokkur
sigurvegari. Sósíalistar gætu að vísu
hrósað sigri yfir að ná inn á þing, en
sem fyrr segir er afar mjótt á munum
og ekkert í hendi. Eins gætu Píratar
fagnað því að bæta við sig þremur
prósentustigum og tveimur þingsæt-
um, nú eða Samfylkingin, sem fengi
tvö ný sæti fyrir aðeins eins prósentu-
stigs fylgisaukningu. Það má kalla
góða nýtingu.
Framsóknarmenn og sjálfstæðis-
menn hafa án efa vonast eftir meiri
árangri en þeim að halda sama fjölda
þingsæta. Og hvað geta Vinstri græn
þá sagt, flokkur hins vinsæla for-
sætisráðherra í stjórn, sem flestum
ber saman um að hafi komist betur í
gegnum heimsfaraldurinn og senni-
lega kórónukreppuna en flest önnur
stjórnvöld geta státað af.
Færu kosningar á þessa leið í haust
gætu núverandi stjórnarflokkar leit-
að liðsinnis hvaða annars þingflokks
sem væri til að mynda fjögurra flokka
stjórn. Á hinn bóginn væri svo auðvit-
að hægt að reyna að mynda ríkis-
stjórn án Sjálfstæðisflokksins, en hún
þyrfti þá að vera fimm flokka hið
minnsta, en þar yrðu Píratar á meðal,
sem óvíst er að myndu þola stjórn-
arsamstarf vel. Eða aðrir flokkar
samstarfið við þá. Án bæði Sjálfstæð-
isflokks og Pírata þyrfti hins vegar að
mynda sex flokka ríkisstjórn og væri
hún þó með tæpan meirihluta, rétt yf-
ir 51% fylgi og aðeins 33 þingmenn,
svo sú stjórn gæti verið í gíslingu
tveggja stjórnarþingmanna.
Þetta sýnir hversu þröng staðan
væri með níu flokka á þingi, þar sem
meðalfylgi annarra flokka en Sjálf-
stæðisflokks er um 9% og meðal-
þingflokkurinn með 6 manns.
8
16
6 3
3
9
7
8
3
B
Framsókn
12,9% (+2,2%)
8 (0)
ÞINGSÆTI
C
Viðreisn
9,4% (+2,7%)
6 (+2)
ÞINGSÆTI
D
Sjálfstæðisflokkur
24,6% (-0,7%)
16 (0)
ÞINGSÆTI
M
Miðflokkur
5,2% (-5,7%)
3 (-6*)
ÞINGSÆTI
P
Píratar
12,2% (+3,0%)
8 (+2)
ÞINGSÆTI
S
Samfylking
13,1% (+1,0%)
9 (+2)
ÞINGSÆTI
V
Vinstrigræn
10,7% (-6,2%)
7 (-4*)
ÞINGSÆTI
F
Flokkur fólksins
5,1% (-1,8%)
3 (+1*)
ÞINGSÆTI
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
J
Sósíalistar
5,6% (—)
3 (+3)
ÞINGSÆTI
0%
5%
10%
15%
20%
25%
30%
’21’20’19’18K
**Þingstyrkur er reiknaður samkvæmt aðferð D’Hondt en miðast við heildartölur. Útkoman tekur ekki mið af mismiklu fylgi flokka í einstökum kjördæmum, sem getur haft áhrif á þingmannafjölda.
*Bæði Flokkur fólksins og Vinstri grænmisstu tvo þingmenn úr þingflokknum sínum á kjörtímabilinu, en Miðflokksmönnum fjölgaði um tvo þegar þingmenn fluttu sig milli flokka.
24,6%
12,9%
5,2%
9,4% 5,1%
13,1%
10,7%
12,2%
5,6%
1,29%
Fylgi flokka og áætlaður þingstyrkur**
úr spurningavagni MMR 8. - 14. júlí
Stjórnarmyndun ákaflega erfið
- Með níu flokka á þingi og flesta smáa
gæti reynst snúið að berja saman ríkis-
stjórn og viðbúið að 4-8 flokka þyrfti til
- Stjórnarflokkar ná ekki meirihluta
Könnun þessi á fylgi stjórn-
málaflokkanna er sú fyrsta í sam-
starfi rannsóknafyrirtækisins
MMR við mbl.is og Morgunblaðið.
MMR stundar umfangsmiklar
markaðsrannsóknir og gerir einnig
reglulegar fylgismælingar og tíð-
ari en aðrir rannsóknaraðilar.
Mælingarnar gefa mikilvægar
vísbendingar um hið pólitíska
landslag. Samstarfið mun gefa
mbl.is og Morgunblaðinu kost á að
dýpka og bæta fréttaflutning til
lesenda.
Könnunin var gerð dagana 8. til
14. júlí og var hluti af spurninga-
vagni MMR. Í úrtakinu voru ein-
staklingar 18 ára og eldri valdir
handahófskennt úr hópi álitsgjafa
MMR sem valdir eru úr þjóðskrá.
Reglulegar fylgiskannanir
SAMSTARF MMR OG MBL.IS OG MORGUNBLAÐSINS