Morgunblaðið - 16.07.2021, Qupperneq 12
BAKSVIÐ
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Ferðaþjónustan virðist vera að koma
til baka hraðar en áætlað var og
ferðamenn eru þyrstir í að heim-
sækja skemmtileg íslensk söfn.
Hjörtur Gísli Sigurðsson, safnstjóri
Hins íslenzka reðasafns, segir að
loksins sé aðsókn í safnið að aukast
til muna.
„Það er bara bein leið upp loksins;
það er stöðug aukning. Við erum
með okkar hlutdeild og þetta helst
bara í hendur við þann fjölda sem
kemur til landsins. Það eru svona
4-5% af þeim ferðamönnum sem
koma til Íslands sem heimsækja
safnið,“ segir Hjörtur.
Hann segir að ferðamannastraum-
urinn hafi byrjað í safnið seinni hluta
maí en nú í júlí hafi aðsókn margfald-
ast og hátt í tvo hundruð ferðamenn
sótt safnið heim á degi hverjum.
„Við finnum fyrir daglegri aukn-
ingu; okkar kúnnar eru 99,5% er-
lendir ferðamenn þannig þetta er al-
gjörlega háð þeim.“
Hjörtur segir að þau hafi ekki ver-
ið viðbúin fyrir þessum hraða við-
snúningi og séu nú undirmönnuð eft-
ir samdrátt vegna faraldursins.
„Við þurftum að draga svo mikið
saman í gegnum Covid-tímabilið því
þá var allt nánast stopp hjá okkur.
Ferðamennirnir sem eru að koma
eru alls staðar frá en þetta eru mikið
Bandaríkjamenn, sérstaklega í júní
en fjölbreytnin er að aukast núna í
júlí.“
Bindur vonir við næstu ár
Hann segist vera fullur bjartsýni
fyrir komandi mánuði.
„Þetta fer hraðar af stað en maður
þorði að vona og hefur skilað sér
hraðar til okkar þannig við erum
bara bjartsýn.“
Hjörtur bindur vonir við að á
næstu tveimur árum verði ferða-
þjónustan komin á sama stað og 2018
sem var þeirra besta ár en er ánægð-
ur með stöðuna núna.
„Þegar sem flestir heimsóttu safn-
ið komu dagar þar sem sáum 300-400
manns mæta til okkar. Árið 2018
komu 90.000 manns á safnið, þannig
þú sérð að það er langt í það. Við er-
um flutt síðan þá og erum með miklu
betri aðstöðu.“
Hann bætir við að árið 2020 hafi
verið fyrsta árið í langan tíma þar
sem safnið var rekið í tapi en nú horfi
til betri vegar. Hann býst við hagn-
aði á þessu ári og segir að Íslend-
ingar megi vera duglegri að heim-
sækja safnið.
„Þetta var fyrsta lélega árið í
mörg ár en við búumst við hagnaði í
ár, þar að auki erum með bestu kaffi-
vél landsins.“
Þóra Matthildur Þórðardóttir,
rekstrarstjóri hjá Special Tours sem
rekur hvalasafnið á Granda, tekur
undir með Hirti og segir aðsóknina
hafa verið stigvaxandi síðan í maí og
segist hafa séð gríðarlega aukningu
á heimsóknum í þessari viku.
„Straumurinn byrjaði í júní og
hefur aukist jafn og þétt og núna
finnum við virkilega fyrir því að hlut-
irnir eru byrjaðir að rúlla aftur.
Þetta er ekki orðið eins mikið og fyr-
ir Covid en það er allt komið í gang
og á réttri leið,“ segir Þóra.
Hún bætir við að þau hafi líklega
verið aðeins of bjartsýn.
„Ég held við höfum verið svolítið
bjartsýn, við héldum að þetta myndi
fara aðeins hraðar af stað í júní en
þetta er ekkert langt frá því sem við
bjuggumst við.“
Þóra segir að í maí hafi um 90%
gesta verið Íslendingar en það hafi
aldeilis breyst í júlí þar sem nú eru
um 70% gesta safnsins ferðamenn,
aðallega frá Bandaríkjunum.
„Suma daga erum við með yfir 200
gesti sem koma til okkar. Við búumst
við því að þetta muni halda áfram að
aukast í ágúst, svo í september og
október ættum við að vera komin á
fína siglingu, sérstaklega á meðan
landamærin haldast nokkuð opin. Ég
held það sé langsótt að búast við að
við verðum á sama stað og fyrir Co-
vid strax. Ætli það taki ekki 2-4 ár að
ná því. Þetta fer alla vega vel af stað
og við vonum það besta.“
Hraður viðsnúning-
ur í ferðaþjónustu
- Aðallega Bandaríkjamenn - Stöðug aukning síðan í maí
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Safn Reðasafnið er vinsæll ferðamannastaður í höfuðborginni, safnstjóri
safnsins segir Íslendinga ekki nógu duglega að koma í heimsókn.
Hjörtur Gísli
Sigurðsson
Þóra Matthildur
Þórðardóttir
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Sími 4 80 80 80
25 ára reynsla
INNFLUTNINGUR AF NÝJUM
OG NOTUÐUM BÍLUM
VERKSTÆÐI
VARAHLUTIR
STUTT
« Hlutabréfaverð flugfélaganna tveggja, Icelandair og
Play, lækkaði talsvert í Kauphöll Íslands í kjölfar frétta
af aukinni útbreiðslu kórónuveirunnar hér á landi. Upp-
lýsingafundur almannavarna var haldinn kl. 11 í gær-
morgun og eftir því sem línur skýrðust á vettvangi
hafði það meiri áhrif á hlutabréfaverðið. Þegar upp var
staðið höfðu bréf Play lækkað um tæp 7% í ríflega
74 milljóna króna viðskiptum. Hafa bréfin ekki endað á
lægra dagslokaverði frá því að þau voru skráð á First North-markaðinn í liðinni viku.
Bréf Icelandair hófu daginn á nokkurri lækkun en hjörnuðu við uns klukkan sló 11 og
tóku þá nokkuð snarpa dýfu. Dagslokaniðurstaðan var 3,4% lækkun í tæplega 96
milljóna króna viðskiptum. Þótt talsverðar sveiflur hafi verið á bréfum flugfélaganna
bliknuðu þær í samanburði við það hrun sem varð á bréfum Solid Clous sem lækk-
uðu um 14,9% í takmörkuðum viðskiptum upp á 4,3 milljónir króna. Hafa bréf félags-
ins misst 36% af verðgildi sínu frá hlutafjárútboði sem fyrirtækið réðst í undir lok júní-
mánaðar.
Flugfélögin tóku á sig högg í Kauphöll í kjölfar
frétta af aukinni útbreiðslu kórónuveirunnar
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Miðbaugur ehf., sem sinnir heild- og
smásölu á gleraugum, m.a. undir
merkjum Optical Studio, skilaði 82,9
milljóna króna hagnaði á árinu 2020
og jókst hagnaðurinn um 25,4 millj-
ónir frá árinu 2019 þegar hann nam
57,5 milljónum.
Líkt og fram kemur í skýrslu
stjórnar með ársreikningi Miðbaugs
hafði heimsfaraldur kórónuveirunnar
talsverð áhrif á rekstur fyrirtækisins
sem m.a. hefur rekið um langt árabil
verslun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
á Keflavíkurflugvelli. Þannig má sjá á
reikningum félagsins að vörusala nam
788,5 milljónum króna og dróst sam-
an um 128,3 milljónir króna eða 14%.
Á sama tíma dróst kostnaðarverð
seldra vara saman um 44 milljónir og
nam 311,3 milljónum króna.
Laun og launatengd gjöld námu
248,8 milljónum og drógust saman
um 82,1 milljón króna. Ársverk hjá
fyrirtækinu voru 25 en líkt og fram
kemur í fyrrnefndri skýringu var
starfsmannafjölda haldið í lágmarki á
liðnu ári vegna stöðu mála í samfélag-
inu.
Annar rekstrarkostnaður dróst
saman um tæpar 50 milljónir og nam
102,7 milljónum. Eigið fé Miðbaugs
nam 161,3 milljónum í lok árs 2020 og
hafði aukist um tæpar 50 milljónir frá
árslokum 2019.
Eigandi Miðbaugs er Kjartan
Bragi Kristjánsson.
Gleraugnasalan góð
- Optical Studio hagnast um 82,9 milljónir þrátt fyrir tals-
verðan samdrátt í sölu - Reksturinn skapar 25 ársverk
Gleraugnasala Optical Studio hefur fyrir löngu skipað sér í fremstu röð í
gleraugnasölu á Íslandi. Hefur verslunin í Keflavík notið mikilla vinsælda.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
« Elmar Ásbjörnsson hefur verið ráðinn í starf fram-
kvæmdastjóra bankasviðs Seðlabanka Íslands. Elmar hefur
gegnt starfinu án auglýsingar frá ársbyrjun, eða frá þeim
tíma þegar Finnur Sveinbjörnsson, þáverandi fram-
kvæmdastjóri bankasviðs, lét af störfum.
Starfið var auglýst laust til umsóknar í lok júní. Elmar hóf
störf hjá Fjármálaeftirlitinu árið 2011 sem sérfræðingur og
var frá 2014-2020 forstöðumaður áhættugreininga fjár-
málafyrirtækja hjá FME og síðar sameinaðri stofnun Seðla-
banka Íslands.
Elmar er með MSc.-gráðu í fjármálum fyrirtækja frá Há-
skóla Íslands og hefur auk þess lokið löggildingu í verð-
bréfamiðlun.
Elmar Ásbjörnsson tekur við stöðu framkvæmda-
stjóra bankasviðs hjá Seðlabanka Íslands
Elmar
Ásbjörnsson