Morgunblaðið - 16.07.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 16.07.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Eru sparifötin hrein? Hollenski blaðamaðurinn Peter R. de Vries er látinn eftir að hafa orðið fyrir skotárás á götu úti í Amst- erdam í síðustu viku. Vries, sem var 64 ára, er hvað þekktastur fyrir að hafa komið upp um glæpagengi og eiturlyfjahringi og hefur hann að- stoðað lögreglu við rannsókn fjöl- margra áberandi sakamála.Vries var skotinn fimm sinnum, meðal annars í höfuðið, er hann yfirgaf upptökuver eftir að hann kom fram í spjallþætti. Tveir voru handteknir í kjölfar árásinnar, annar er 35 ára Pólverji og hinn er 21 árs Hollend- ingur. „Peter barðist alveg til enda en hann gat ekki unnið baráttuna,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu blaðamannsins. Hann hafi látist í faðmi fjölskyldu sinnar. Trúnaðarmaður lykilvitnis Vries fjallaði á ferli sínum um fjöl- mörg áberandi sakamál, meðal ann- ars ránið á bjórjöfrinum Freddy Heineken árið 1983. Árið 2013 var William Holleeder, maðurinn sem rændi Heineken, dæmdur fyrir að hóta Vries. Holleeder var dæmdur árið 2019 í lífstíðarfangelsi fyrir þátt sinn í fimm morðum. Þá hefur Vries áður notið verndar lögreglu í kjölfar hótana vegna aðkomu hans að saka- málum sem rannsóknablaðamaður. Í fyrra gerðist hann trúnaðarmaður lykilvitnis í máli gegn einum af ill- ræmdustu glæpamönnum Hollands, Ridouan Taghi, sem er efstur á handtökulista lögreglu. Lögmaður vitnisins var skotinn til bana fyrir framan heimili sitt fyrir tveimur ár- um. Fjölmiðlar hafa því tengt Taghi við morðið á Varies. AFP Morð Vries varð fyrir skotárás á götu úti í Amsterdam í síðustu viku. Hollenski blaða- maðurinn látinn - Vries var skotinn fimm sinnum Yfirvöld á Kúbu hafa tímabundið aflétt tollum af mat, lyfjum og öðr- um nauðsynjarvörum. Stærstu mót- mæli frá stjórnarbyltingunni á sjötta áratugnum standa nú yfir í landinu, en mikil óánægja ríkir gagnvart stjórnvöldum. Skortir landsmenn rafmagn, vatn og mat, svo eitthvað sé nefnt. Á sama tíma hefur ástandið í heilbrigðiskerfinu versnað vegna fjölgunar Covid-19- smita. Frá og með næsta mánudegi verða engar takmarkanir á inn- flutningi ferðamanna á nauðsynja- vörum. KÚBA Tollum aflétt á nauðsynjavörum Mótmæli Óánægja ríkir á Kúbu. Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Fleiri tugir manna eru látnir af völd- um flóða og úrhellisrigninga í vest- urhluta Evrópu og tuga til viðbóta er saknað. Að minnsta kosti 59 eru látn- ir í Þýskalandi og átta í Belgíu. Ástandið er einna verst í sam- bandsríkjunum Rheinland-Pfalz og Nordrhein-Westfalen í Þýskalandi en flóð herja einnig á austurhluta Belg- íu, Lúxemborg, Holland og Frakk- land. Ár hafa flætt yfir bakka sína eftir metúrkomu á svæðinu. Flóðin hafa hrifið með sér hús og vatn streymir stríðum straumum eftir götum og eru því margir vegir lokaðir. Þá eru þús- undir heimila án rafmagns og skólar í vesturhluta Þýskalands lokaðir. Veð- urspár gera ráð fyrir að ekki dragi úr úrhellinu fyrr en í kvöld. „Þetta er sturlað“ Hundruð björgunarmanna eru við störf en meðal látinna eru tveir slökkviliðsmenn sem unnu að björg- un fólks í nauðum. Þá taka hermenn einnig þátt í björgunarstörfum í Þýskalandi. Lögregla þar í landi hef- ur komið á neyðarlínu þar sem fólk getur tilkynnt um ástvini sem er saknað. Fólk er beðið um að senda inn myndir og myndbönd sem geta aðstoðað björgunaraðila við leitina. „Enginn átti von á þessu, hvaðan kom öll þessi rigning? Þetta er sturl- að,“ sagði Annemarie Müller, eftir- launaþegi í Mayen í sambandsríkinu Rheinland-Pfalz, þar sem hún stóð á svölum í íbúð sinni og horfði yfir bíl- skúrinn og garðinn sem var á floti. Müller segir miklar drunur hafa fylgt flóðinu og hún óttaðist um tíma að flóðið myndi brjóta sér leið inn í íbúð- ina. AFP hefur eftir forsætisráðherra Rheinland-Pfalz að óveðrið og afleið- ingar þess eigi sér engin fordæmi í ríkinu. Kanslari Þýskalands, Angela Merkel, er stödd í Bandaríkjunum en hún segir hug sinn vera hjá Þjóðverj- um. Þá sendi hún aðstandendum lát- inna samúðarkveðjur. „Við vitum ekki enn hversu margir eru látnir, en það verða margir. Allt verður gert til þess að finna þá sem enn er saknað.“ Hún segir mörg önnur lönd hafa boð- ið fram aðstoð sína. Meðal leiðtoga sem hafa boðið fram aðstoð er forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, Ursula von der Leyen, og Boris Johnson, forsætisráherra Bret- lands. Samgöngur í lamasessi Íbúar í öðrum löndum Vestur-Evr- ópu hafa einnig fengið að kenna á flóðunum. Verst er ástandið í Liege- héraði í Belgíu. Þar hafa fjórir fund- ist látnir. Íbúar Liege-borgar eru beðnir um að yfirgefa svæðið og þeir sem komast ekki í burtu eru beðnir um að dvelja á efri hæðum húsa sinna. Þá er lestarkerfi Belgíu í lama- sessi. Yfirvöld í hollenska bænum Valkenburg, sem stendur nærri landamærum Þýskalands og Belgíu, rýmdu hjúkrunarheimili og líknar- deild þegar aðalgata borgarinnar umbreyttist í fljót. Óvenjumikið regn hefur sömuleiðis fallið í Norðaustur- Frakklandi og valdið samgöngutrufl- unum. Síðustu tvo daga hafa sum svæði þurft að þola regn sem jafn- gildir tveggja mánaða úrkomu. Tugir látnir eftir flóð og úrhelli í Vestur-Evrópu - Flóðin hafa hrifið með sér hús og vatn streymir stríðum straumum eftir götum AFP Flóð Á sumum svæðum í Vestur-Evrópu hefur úrkoma undanfarinna daga verið á við tveggja mánaða úrkomu. Björgunaraðgerðir Þúsundir manna hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Mál bandarísku söngkonunnar Britney Spears var tekið fyrir í dómstólum í fyrradag og sagðist Spears vilja kæra föður sinn fyrir að mis- nota aðstöðu sína sem for- ráðamaður henn- ar. Söngkonan hefur verið undir forsjá föður síns frá árinu 2008. Spears gaf vitnisburð í gegnum síma fyrir dómstólnum. „Ég er hér til að leggja fram ákæru. Ég er reið og ég mun fara alla leið,“ sagði Spears. Dómarinn í máli hennar hefur samþykkt að veita henni leyfi til að ákveða sjálf hvaða lögmaður flytur mál hennar. Fyrri lögfræð- ingur Spears sagði nýverið af sér en hann hafði séð um mál söngkon- unnar frá árinu 2008. BANDARÍKIN Britney Spears Britney Spears vill kæra föður sinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.