Morgunblaðið - 16.07.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 16.07.2021, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Sanntrúaðir vinstrimenn voru forðum fastheldnir á áróð- ur sem þeir höfðu kokgleypt um framfarir og fé- lagslegt forskot í Sovétríkjunum sálugu. Fram- bjóðandinn Bernie Sanders var baráttuglaður og beittur og með mikla yfirferð eins og sýndi sig í prókjörsbaráttu hans í flokki demókrata í Bandaríkjunum þegar velja skyldi forseta- frambjóðanda. Og honum var ekki auðveldlega haggað frá þeirri mynd af sósíalismanum sem hann hafði gefið sér ungur. Hann fór í brúðkaupsferð til Moskvu forðum fyrir rúmri hálfri öld og hann réttlætti „ástandið á Kúbu“ eftir áratuga valdaeinokun þeirra Kastró- bræðra. Benti hann á að Fidel hefði náð góðum árangri við að láta kenna kúbönskum börnum lestur. Við hér þekkjum svipaða réttlætingu á sovétinu með vís- un til fjölda lækna þar í sam- anburði við Vesturlönd, skv. „áreiðanlegum“ opinberum töl- um eystra. Á daginn kom að ekki var heil brú í þeim frægð- arsögum yfirvalda. Fæst sjúkrahús þar eystra hefðu reyndar fengið starfsleyfi á Vesturlöndum vegna lélegs að- búnaðar, hraklegs tækjakosts og reyndar fárra lækna! Og þau fáu hús sem kannski hefðu get- að þrengt sér í gegnum slíkt mat voru einungis fyrir allra æðstu spírur flokksins. Á Vesturlöndum tók samheitið „nomenklatura“ til þessarar hæstu hirðar kommúnista- flokksins í ríki jöfnuðarins. Obama forseti slakaði veru- lega á þeim þrýstingi sem báðir stóru flokkarnir voru lengst af einhuga um að beita skyldi stjórnvöld á Kúbu og draga ekki af nema að einræðisstjórnin í Havana slakaði á klónni gegn almenningi. Sendiskrifstofur voru opnaðar í löndunum. En ekki löngu síðar kom í ljós að leyniþjónusta Kastróbræðra hafði beint hættulegum geislum að sendiráðinu í Havana svo fjöldi starfsmanna þar sýktist og þurfti að kalla þá heim! Lengi vel leituðust Kreml- verjar við að styrkja Kúbu svo hún kæmist yfir hungurmörk í þessu sólarríki og allsráðendur í Venesúela og Íran lögðu sig fram um að halda Kastró- stjórninni gangandi og nokkur ríki á Vesturlöndum fóru í þann félagsskap. Þótt Rússland hafi enn taugar til Kúbustjórnar hefur það ekki afl til þess að beita sér. Einræðisstjórnum sósíalista í Venesúela tókst að koma einu ríkasta olíuríki heims á kaldan klaka svo það hefur orðið að draga að sér hönd- ina og hefur jafnvel sjálft þurft að fá að- stoð varðandi elds- neyti frá Íran! Vegna veirufarald- urs hefur enn þrengt að kröpp- um kjörum almennings á Kúbu sem mátti ekki við miklu. Óánægja og reiði brýst út á göt- um og torgum þrátt fyrir þá miklu hættu sem slíku fylgir, enda hika yfirvöld ekki við að beita þegna sína harðræði. Tekið er eftir því í Bandaríkj- unum hversu slöpp og bitlaus viðbrögðin þeirra sem sjá um ákvarðanir Hvíta hússins hafa verið. Demókratar hafa tapað bar- áttunni um Flórída í tvennum forsetakosningum í röð og hin veiku andmæli gegn hörku yfir- valda í Havana eru ekki líkleg til að breyta afstöðunni til demókrata í bráð. Sérlega at- hyglisvert er að fylgjast með at- beina marxísku hreyfingar- innar, Black Lives Matter, við harðneskjunni á Kúbu. BLM styður yfirvöld á Kúbu opin- berlega og fordæmir afstöðu Bandaríkjastjórnar, þótt hún geti ekki verið veikari og vand- ræðalegri. Það er reyndar einkennilegt að fylgjast með hvernig hóp- viðbrögð eru austan Atlantshafs við hverju einu sem blásið er upp í Bandaríkjunum og virðist litlu breyta hversu mikill fárán- leikinn er. Í aðdraganda kosninganna 2016 fóru samtökin BLM í að knýja demókrata til uppgjafar við stefnu sína með því að hleypa upp fundum einstakra frambjóðenda. Þeir frambjóð- endur demókrata sem hálf- hræddir stundu því upp að „öll líf skiptu máli“ gerðu það ekki nema einu sinni. Þeir voru hundeltir fund af fundi sem voru eyðilagðir þar til þeir beygðu sig undir kröfuna um að einungis „black lives matters“. Þó gæti það ekki átt við þegar líf týndust í stórum stíl í skot- árásum bræðra og systra sín á milli. BLM á samkvæmt skil- greiningunni einni aðeins við særist litaður maður eða falli fyrir hvítum manni, helst lög- reglumanni. Eru þau tilvik þó sárafá miðað við hin tilvikin! Það gerir svo vitleysuna að hreinum fáránleik þegar knatt- spyrnumenn í Evrópu telja sig nauðbeygða til að hefja hvern leik þar á að falla á annað hnéð vegna upplausnarinnar í Banda- ríkjunum og lýsa þar með yfir samstöðu með hreinum öfga- samtökum vestan hafsins! Þar eiga meðvirkir fjölmiðlar illan hlut að. Það er áhyggjuefni hve fjölmiðlar í Evrópu gleypa flest hrátt sem berst þeim austur yfir haf} Fara út af í fyrstu beygju L andbúnaður er ein stærsta atvinnugrein Íslands. Samkvæmt vefsíðu at- vinnuvegaráðuneytisins teljast eftirfarandi grein- ar til landbúnaðar: garðyrkja, alifugla- rækt, eggjaframleiðsla, æðarrækt, svínarækt, geitfjárrækt, hrossarækt, jarðrækt, loðdýrarækt, nautgriparækt, sauðfjárrækt og skógarframleiðsla. Landbúnaður er jafnframt ein stærsta atvinnugreinin í Norðvest- urkjördæmi og því skiptir miklu máli fyrir okkur sem þar búa hvernig um- gjörð stjórnvalda um málaflokkinn er háttað. Í núverandi skiptingu ráðu- neyta deila sjávarútvegur og landbún- aður heimili. Það er að vissu leyti skilj- anlegt þar sem báðar atvinnugreinarnar eiga margt sameiginlegt eins og að stuðla að matvælaframleiðslu. Þó virðist þessi sambúð þeirra hafa orðið til þess að landbún- aðurinn hafi því miður gleymst, a.m.k. að hann hafi ekki fengið þá athygli og þá þyngd innan ráðuneytisins sem honum ber. Sú ákvörðun um sameiginlegt sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti er, eins og öll önnur verk okkar, ekki meitluð í stein og henni er vel hægt að breyta sé fyrir því vilji. Sá sem tekur við málaflokki landbúnaðarins á næsta kjörtímabili mun mæta mörgum áskorunum og krefjandi verkefnum, og að okkar mati er gríðarlega mik- ilvægt að málaflokkurinn fái þá athygli sem honum svo sannarlega ber. Því teljum við að sú skipting ráðuneyta sem nú er viðhöfð verði breytt og aftur verði komið á sér- stöku landbúnaðarráðuneyti með sérstökum ráðherra. Ís- lenskur landbúnaður á það skilið. Landbúnaður og sjávarútvegur skipta höfuðmáli fyrir fæðu- og mat- vælaöryggi Íslendinga, en vegna þess hve harðbýlt er á Íslandi þurfa þessar atvinnugreinar töluvert meiri stuðn- ing en á suðlægari svæðum. Einnig eru íslensku búfjárstofnarnir við- kvæmir fyrir sjúkdómum vegna marga alda einangrunar, en það hefur einnig stuðlað að miklu heilbrigði ís- lenskra dýra sem og minni þörf á lyfjanotkun í landbúnaði. Á Íslandi er lyfjanotkunin í landbúnaði sú minnsta í heiminum. Á síðasta ári kom bersýni- lega í ljós hversu viðkvæm staða okkar getur verið þegar flutningur milli landa raskaðist verulega í kjölfar Covid-19. Heimsfaraldurinn varð til þess að innflutningur og út- flutningur vara var óstöðugur og þar kom mikilvægi þess að lönd tryggi eigin matvælaframleiðslu vel í ljós. Við viljum viðhalda sterkum landbúnaði sem landsmenn geta treyst á. Íslenskur landbúnaður á að vera sterkur og unninn með sjálfbærni að leiðarljósi. Það er mikilvægt fyr- ir umhverfið, fyrir fæðuöryggið, fyrir byggðirnar, fyrir neytendur og fyrir framtíðina. Framtíðarsýn landbúnaðarins verður að vera okkur öll- um skýr og við viljum tryggja það að hann fái aukna at- hygli hjá næstu ríkisstjórn. Það gerum við m.a. með nýju öflugu ráðuneyti landbúnaðarmála. Pistill Íslenskur landbúnaður á sjálfstætt landbúnaðarráðuneyti skilið Höfundar eru varaþingmenn Framsóknar og sitja í 1. og 2. sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi. Stefán Vagn Stefánsson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Guðni Einarsson gudni@mbl.is T alið er líklegt að Grímsvötn hlaupi á þessu ári. Litlar líkur eru taldar vera á mjög stóru hlaupi nema í upphafi öflugs eldgoss sem yrði á vatnasviði Grímsvatna en utan öskjunnar. Í því tilviki gæti flóðtoppur orðið stór ef vatnið sem fer af stað verður heitt vegna eldgoss. Síðast hljóp úr Gríms- vötnum í júní 2018. Þetta kemur fram í greinargerð Finns Pálssonar verkfræðings og Eyjólfs Magnússonar, vísindamanns hjá Jarðvísindastofnun HÍ (JH). Þeir fengu styrk úr Rannsóknasjóði Vega- gerðarinnar til að rannsaka Gríms- vatnahlaup. Aðstæður í Grímsvötnum voru kannaðar í fyrra og vatnshæð, flatarmál og rúmmál Grímsvatna mæld. Vegagerðin gaf skýrsluna út í júní 2021 og er hún aðgengileg á vef stofnunarinnar. Mikið vatn er nú að safnast í Grímsvötn. Í ársbyrjun 2020 voru þar 0,4 km3 vatns. Nú í júní 2021 voru þar 0,67-0,72 km3. Ef ekki hleypur úr vötnunum bætast við 0,1-0,2 km3 fram á haustið. „Þröskuldur í Grímsvatnaskarði hefur þykknað um ~10 m síðan í síð- asta jökulhlaupi haustið 2018 og skýr- ir líklega af hverju nú hefur safnast meira vatn í Grímsvötn en verið hefur síðan 2004. Líklegt er að vatn hlaupi úr Grímsvötnum á árinu og að flóð- toppur verði nokkru hærri en í hlaup- inu 2010 (~3000 m3s-1) og geti orðið 4000-5000 m3s-1. Í ljósi þessa er haft vakandi auga með vatnshæðinni á mælistöðvum bæði JH og Veðurstofu á íshellu Grímsvatna og óróa á skjálftamæli Veðurstofunnar á Grímsfjalli,“ segir í skýrslunni. Óvíst að eldstöðin sé tilbúin Þá segja þeir að vatnshæð í Grímsvötnum sé nú hærri en fyrir gosið í maí 2004. Þá er talið að skyndi- legur þrýstiléttir vegna jökulhlaups hafi breytt spennusviði efst í skorp- unni þannig að gos hófst. „Þrýstilétt- irinn virkaði eins og gikkur á eldstöð- ina sem var „tilbúin“ til að gjósa, hvað varðar kvikusöfnun og þrýsting í kvikuhólfi“. „Það er aðallega tvennt sem við getum notað til að meta hvort Grímsvötn eru tilbúin í gos. Það er annars vegar landris og tilfærsla á mælistöðinni á Grímsfjalli. Hún er komin í hærri stöðu en var fyrir síð- asta gos en landrisið og tilfærslan hefur ekki verið sérlega mikil síðasta árið. Hitt sem er jafnvel mikilvægara er að samkvæmt reynslunni vex jarðskjálftavirkni í Grímsvötnum fyrir gos. Síðasta árið hefur ekki ver- ið tiltakanlega mikil skjálftavirkni þar. Hún hefur ekki aukist eins og fyrir gosin 1998, 2004, og 2011,“ sagði Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði við HÍ. Hann sagði það því alls óvíst að eldstöðin sé tilbúin til að gjósa. Það geti komið hlaup úr Grímsvötnum, án eldgoss, og mögulega geti hlaup úr vötnunum nægt til að hleypa af stað eldgosi. „Það vantar aukninguna í skjálftavirkninni og landrisið hefur ekki verið eins greinilegt og fyrir undanfarin gos þannig að það er mjög óvíst hvernig þetta verður,“ sagði Magnús Tumi. Hann sagði að óvissan um hvort vænta mætti goss væri mikil. „Sérstaklega hefur jarðskjálftavirknin ekki verið tiltakanlega mikil síð- asta árið. Það vantar skýra forboða og jafn skýrir for- boðar og komu fyrir síðustu gos hafa ekki komið fram.“ Grímsvatnahlaup líklegt en óvíst með eldgos Grímsvötn eru virkasta eldstöð Íslands og eru þekkt meira en 60 eldgos í og við Grímsvötn frá því um 1200. Jafnframt eru þau eitt öflugasta jarðhitasvæði landsins, að því er segir í ritinu Náttúruvá á Íslandi (Reykjavík 2013). Grímsvötn eru í Vatna- jökli nálægt norðurenda sam- nefnds eldstöðvakerfis sem er yfir 100 kílómetra langt og nær suður fyrir Lakagíga. Stór hluti þess er undir Vatnajökli. Stöðuvatn er í öskju Gríms- vatna undir jöklinum. Það endurnýjast stöðugt vegna jarðhitans og eldgosa. Bræðsluvatn safnast þar fyrir þar til það sprettur fram í jökulhlaupum sem kennd eru við Gríms- vötn eða Skeiðará. Stærstu Gríms- vatnahlaup eru miklar hamfarir. Virkasta eld- stöð Íslands GRÍMSVÖTN Magnús Tumi Guðmundsson Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Grímsvatnagos Gosmökkurinn reis hátt upp úr skýjunum þegar Gríms- vötn gusu síðast í maí 2011. Gos hafa verið tíð í Grímsvötnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.