Morgunblaðið - 16.07.2021, Page 18

Morgunblaðið - 16.07.2021, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 ✝ María Jóns- dóttir, eins og hún var ávallt köll- uð, fæddist á Mikl- hóli í Skagafirði 27. september 1923. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar 6. júlí 2021. Foreldrar henn- ar voru Ingibjörg Þorgrímsdóttir, f. 27. maí 1893, d. 9. september 1975, og Jón Árnason, f. 15. júní 1878, d. 13. janúar 1939. Fósturfaðir hennar var Sig- urjón Gíslason, f. 27. september 1891, d. 30. júní 1977. Systkini hennar sammæðra: Fjóla, Rafn, Sigríður, Dúi og Benedikt. Öll látin nema Dúi. María átti tvo fósturbræður, þá Braga og Þorgrím, og eru þeir báðir látnir. Bræður, samfeðra, Hjörtur, Runólfur, Páll og Ingólfur og eru þeir allir látnir. María giftist 29. júlí 1943 Jóni Frímanni Sigurbjörnssyni frá Ökrum, f. 27. júlí 1914, d. 30. október 1987. Foreldrar hans voru Friðrikka Magnea Þór og Unu Dagnýju með Hreiðari Jóhannssyni. Ömmu- börnin eru 16, langömmubörn- in eru 35 og eitt langalang- ömmubarn. María og Jón byrjuðu sinn búskap 1943 í Skútu og fóru þaðan að Hólsbúinu á Hóli. Ár- ið 1957 fluttu þau að Suð- urgötu 30 og þaðan að Hóla- vegi 18 árið 1960 og 1968 fluttu þau á Lindargötuna. Síðustu árin dvaldi hún á Skálarhlíð og svo á Heilbrigðisstofnun Siglu- fjarðar. María fór snemma að heiman eða að verða 16 ára, hún fór þá til Siglufjarðar sem vinnukona hjá Kristjansen og Sissu. Hún fór sem ráðskona að Sólgörð- um í Fljótum þá með son sinn ungan. María vann við alls kon- ar störf en lengst af við skúr- ingar í Barnaskóla Siglu- fjarðar. Hún var mikið í Neskoti í Fljótum hjá móður sinni og Rafni bróður sínum að hjálpa til, en þar var stórt heimili. Á síldarárunum var hún með margt fólk á heimili sínu að hjálpa til við pössun á börnum, kostgangara o.fl. Fjölskyldan var henni allt og var hún mjög stolt af þeim öll- um. Útför Maríu fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 16. júlí 2021 klukkan 14. Hún verð- ur jarðsett í gamla kirkjugarð- inum. Símonardóttir og Sigurbjörn Jós- efsson. Börn Maríu og Jóns eru fimm, þau eru: 1) Sigurbjörn Friðrik, f. 12. des- ember 1945, kvæntur Ingi- björgu Jónatans- dóttur, börn þeirra eru Óðinn og Hlín. 2) Ingibjörg Ása, f. 16. mars 1951, gift Sigurbirni Jóhannssyni og börn þeirra eru María Elín, Jón Heimir og Jó- hann Már. 3) Sverrir, f. 8. febr- úar 1953, kvæntur Guðnýju Sölvadóttur, f. 14. september 1954, börn þeirra eru Sigurður, Ása Guðrún og Dóra María. 4) Lovísa Hermína, f. 5. sept- ember 1957, gift Arne Buhl Petersen, f. 11. mars 1948, d. 11. nóvember 2015, dætur þeirra eru Cecilie og María og fyrir átti Lovísa, Pálínu Ingu, með Arnari Ingólfssyni. 5) Mar- grét, f. 5. ágúst 1959, gift Óm- ari Frey Sigurðssyni, synir þeirra eru Sigurður Þór og Kristinn Freyr og fyrir átti Margrét Sigþór Inga, Hilmar Elsku mamma mín. Það er víst komið að kveðju- stund. Nú ertu komin í sum- arlandið og bíður tilhlökkunar endurfunda við pabba og þína nánustu vini. Að fara í bíltúr og koma við í bakaríinu það fannst þér gaman. Einnig fannst þér mjög gaman að fara í sveitina til okkar Sigurbjörns. Að labba á pallinum með göngugrindina og fara í heimsóknir til ná- granna, þú varst alltaf endur- nærð við að koma til okkar. Að fá nýveiddan silung, það var það besta. Þú svafst svo vel og lengi í sveitinni og varst svo kát og glöð. Eitt verð ég að skrifa um, sem þú varst búin að biðja mig um, væntumþykju þína í garð Ellu þinnar Gests, hún kom til ykkar pabba þegar hún var tveggja ára. Mamma henn- ar, Friðfinna Símonar, var veik og fór á Kristnes, þá kom Ella til ykkar og var hjá ykkur í 1½ til 2 ár. Heimilið ykkar var allt- af opið fyrir henni, hún mátti koma og fara eins og hún vildi, eins og ein af fjölskyldunni. Ella átti alltaf stað í þínu hjarta sem verður ekki tekið frá þér. Nú ertu horfin í himnanna geim, nú þjáningum leyst ertu frá. Ein sit ég eftir í veraldarheim, en Guði þú situr nú hjá. En minningin um þig í hjarta ég geymi, er kúrðum við saman um nætur. Stundunum okkar þeim aldrei ég gleymi, Því sálin þín festi í mér rætur. (Guðrún Hrefna Bragadóttir) Blessuð sé minning þín, elsku mamma mín. Far þú í friði, þín dóttir, Ása Jónsdóttir. Það verður skrítið að koma í fjörðinn fagra og engin amma til að heimsækja, en það var al- veg nauðsynlegt hjá Dísu Maríu og Eyju Rós að koma að lág- marki einu sinni til ömmu í hverri ferð. Hlý og góð, hrein og bein finnst mér lýsa ömmu best. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Góða ferð, elsku amma, og kysstu afa frá okkur. Sigþór Ingi og fjölskylda. Ég hlakkaði alltaf til skóla- loka á vorin. Það var ekki vegna þess að mér leiddist í skólanum. Ég hlakkaði til því á sumrin fór ég og dvaldi hjá ömmu á Sigló. Amma Mæja var frábær amma. Henni tókst einhvern veginn að láta öllum líða eins og þeir væru hennar uppáhald. Árið 1986 var fyrsta sumarið mitt sem ég fór og var ein hjá ömmu og afa. Ég var 6 ára. Fyrstu nóttina mína á Sigló skreið ég uppí til ömmu og afa. Afi Jón lét eitthvað aðeins heyra í sér og fannst algerlega ótækt að fullorðið barnið væri að koma uppí. Þegar kom svo að því að þurfa að pissa þá þorði ég ekki að vekja þau til að segja þeim að mér væri mál þannig að ég lét bara vaða og pissaði undir. Það var skárra en að raska svefninum aftur hjá ömmu og afa. Eftir þessa nótt flutti afi upp á loft og ég svaf uppí hjá ömmu restina af dvöl minni þetta sumarið. Þetta setti tóninn fyrir næstu 20 árin. Ann- aðhvort svaf ég uppí hjá ömmu eða á dýnu inni hjá henni, meira að segja eftir að hún flutti á Skálahlíð. Það eru ótal margar minn- ingar sem ég á af ömmu og dvöl minni hjá henni á Lindargöt- unni. Ég man samt ekki eftir að hafa nokkurn tímann verið svöng á Siglufirði. Í minning- unni var alltaf matur á eldhús- borðinu. Morgunmatur, morg- unkaffi, hádegismatur, kaffi, kvöldmatur og svo kvöldkaffi; þetta tengdist allt. Það var allt- af eitthvað á borðinu og alltaf einhver sem sat við borðið að fá sér kaffisopa og með því, það var gestagangur langt fram á kvöld enda var amma gestrisin með eindæmum. Amma Mæja var vinkona mín. Það er ein minning sem mér finnst einstaklega skemmtileg af einni heimsókn- inni í seinni tíð. Við sátum í her- berginu hennar á Skálahlíð og vorum að spjalla og fá okkur kaffi og með því. Það var kveikt á sjónvarpinu og verið var að sýna frá frjálsum íþróttum á Ólympíuleikunum. 110 m grindahlaup karla. Allt einu hættum við að tala og horfum dáleiddar á þessa kroppa í hægri endursýningu stökkva yfir grindurnar. Amma segir svo loks á innsoginu: mikið ofsalega eru þessir menn vel af guði gerðir. Þar vorum við amma sammála. Ég er þakklát fyrir allar góðu samverustundirnar og góðu minningarnar sem ég á af ömmu Mæju, en ég er þakklát- ust fyrir nýjustu minninguna sem reyndist einnig vera kveðjustundin okkar. Nú geng- ur hún í sínu fínasta pússi á fund afa Jóns í sumarlandinu eftir langan aðskilnað. Takk fyrir samfylgdina, góða ferð og ég bið að heilsa Þín Hlín. Það var fallegur sumardagur á Sigló þegar elsku amma mín kvaddi og fór í sumarlandið góða. Eftir sitja svo margar minningar frá því ég var lítil stelpa og til dagsins í dag. Með okkur var einstakt samband, alltaf gat ég leitað til þín hvað sem var að eða ekki að, þú varst alltaf tilbúin að taka á móti mér og hlusta á allt sem maður hafði að segja. Svo var líka alveg frá- bært að hlusta á þig tala um gamla tíma allt frá því að þú varst lítil stelpa í sveit og svo þegar þú kynntist honum afa og ykkar sögu. Minningarnar frá Lindargötu 6b eru ofarlega í huga, það skipti ekki máli hvort nánast öll fjölskyldan var sam- ankomin í afmæli eða jólaboði, alltaf var nóg pláss fyrir alla því Lindargata 6b var eins og höll í augum okkar krakkanna, það var farið í feluleiki, eltinga- leiki, pílukast, plata sett á fón- inn og dansað í stofunni. Þú varst einstaklega hlý og góð kona sem öllum líkaði við og ekki skrítið að sumar af vin- konum mínum kölluðu þig ömmu Mæju. Ég er svo þakklát fyrir allan okkar tíma saman og þakklát er ég að börnin mín fengu að þekkja ömmu Mæju. Þú varst alltaf svo innilega stolt af öllum þínum stóra barnahópi. Í dag kveð ég þig, elsku amma mín, og þakka fyrir alla tryggðina, traustið, hlýjuna, umhyggjuna og allt það sem þú kenndir mér. Allar góðar minn- ingar geymi ég í hjartanu og varðveiti um ókomna tíð. Hún amma mín sagði mér sögur er skráðust í huga minn inn, sumar um erfiðu árin aðrar um afa minn. Og þá var sem sól hefði snöggvast svipt af sér skýjahjúp því andlitið varð svo unglegt og augun svo mild og djúp. (Rafnar Þorbergsson) Þín ömmustelpa, Ása Guðrún Sverrisdóttir. Það er komið að kveðjustund, elsku Maja systir. Fyrsta minn- ing mín um þig er enn ljóslif- andi í huga mínum, þótt ég hafi ekki verið mikið eldri en þriggja til fjögurra ára og þú tíu árum eldri. Þá hafði ég fallið ofan í pytt í bæjarlæknum við Steinavelli og var víst hætt kominn. Þú bjargaðir þá lífi mínu, Maja mín, því þér tókst að draga mig upp úr pyttinum. Þú barst mig í fanginu heim í bæ, þurrkaðir mér og huggaðir. Fyrir foreldra okkar og systk- ini varstu stoð og stytta. Alltaf var hægt að leita til þín með hin ýmsu málefni og ekkert verk- efni var of stórt fyrir þig að leysa. Það var þér í blóð borið að bera hag og velferð annarra fyrir brjósti. Þú varst alla tíð reiðubúin að rétta fram hjálp- arhönd hvort sem um var að ræða ástvini þína eða aðra. Allt frá unga aldri tókstu fullan þátt í öllum verkum sem þurfti að vinna á Steinavöllum, jafnt úti sem inni. Lífsbaráttan var hörð og nútímaþægindi, svo sem raf- magn og rennandi vatn, höfðum við ekki á Steinavöllum. Mér er minnisstætt hversu dugleg þú varst að hjálpa móður okkar, bæði við heimilisstörfin og einn- ig að sinna okkur, yngri systk- inum þínum. Kraftur, dugnaður og góðmennska einkenndu þig og þú varst höfðingi heim að sækja. Alltaf tókstu á móti mér og mínum með opinn faðminn. Takk fyrir samfylgdina elsku Maja. Guð geymi þig. Fjöl- skyldu þinni votta ég samúð mína. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma, öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Þinn bróðir, Kristján Dúi. Elsku Mæja mín. Nú ertu farin á annað tilverustig eftir langa og viðburðaríka ævi. Á þessari stundu er þakklæti til þín mér efst í huga. Hugurinn reikar aftur til ársins 1948. Það ár veiktist mamma mín alvar- lega og þurfti að dvelja á Krist- neshæli næstu misserin. Tókst þú mig undir þinn verndarvæng aðeins 2ja ára gamla. Kann ég þér hjartans þakkir fyrir hlýjuna og elskuna. Upp frá því var ég heimagangur hjá þér og þínum og hafðir þú ætíð á orði að ég væri þér eins og dóttir, sem var mér mikils virði og gaf mér hlýju í hjarta. Alltaf var gaman að heimsækja ykkur fjölskylduna. Seinna meir vildu Jóna, Magga og Stína, dætur mínar, koma við hjá þér og þiggja kaffisopa og sykurmola og jafnvel aðstoða þig við að vefja sígarettur sem þær höfðu mest gaman af. Ég á þér mikið að þakka, elsku Mæja, fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig og mína fjölskyldu. Hjartans þakkir fyr- ir elskuna og tryggðina. Nú leitar minning ljúf á huga minn með kærri þökk er endar lífsins ganga. Og ennþá finn ég heitan lófa þinn er strauk mér blítt sem barni um hár og vanga. Elsku aðstandendur. Mínar innilegustu samúðarkveðjur. Guð blessi og varðveiti góða konu. Elín A. Gestsdóttir (Ella). Salbjörg Kristín María Jónsdóttir Elsku besta vin- kona. Orð fá ekki lýst hversu mikið ég sakna þín og hversu vænt mér þótti um þig. Þrátt fyrir yfir 20 ár hvor í sínu land- inu þá hafa vináttubönd okkar aldrei trosnað og þó að við hitt- umst ekki oft sökum fjarlægðar þá áttum við yndislegar stundir saman og löng og góð samtöl þar sem við gátum talað um allt sem okkur lá á hjarta. Ég gleymi því aldrei hvernig við kynntumst fyrir tæpum 30 árum, ég nýbyrjuð í Hlíðardals- skóla, hlédræg og feimin og komin á heimavist í fyrsta sinn. Fyrstu dagarnir voru einmana- legir og þú virtist hafa áttað þig á vandræðum mínum og bauðst mér eftir stutt spjall að flytja inn til þín. Frá þeim degi urðum við perluvinkonur og varð það vin- átta sem entist allt til loka, ekki var hægt að hugsa sér betri her- bergisfélaga. Árin okkar saman í Hlíðar- dalsskóla voru einn besti tími ævi minnar og þrátt fyrir að hafa búið saman í litlu herbergi í 2 ár þá sinnaðist okkur aldrei enda ekki hægt að finna hjartahlýrri, opnari og vingjarnlegri mann- eskju en þig. Þú varst og verður líklega alltaf eina manneskja sem ég hef kynnst sem aldrei dæmdir eða talaðir illa um aðra. Í þínum huga voru allir yndisleg- ir og þú trúðir alltaf á það það góða í öllum. Í gegnum árin höfum við upp- lifað margt eins og árin okkar saman í Hlíðardalsskóla, Þýska- landssiglinguna, kanínurnar, all- ar heimsóknirnar, sveitaböllin, þjóðhátíð og svo margt fleira og að ég tali nú ekki um í seinni tíð heimsóknir okkar til þín í Dan- Freyja Egilsdóttir Mogensen ✝ Freyja Egils- dóttir Mogen- sen fæddist 9. nóv- ember 1977. Hún lést 2. febrúar 2021. Hún verður jarðsungin frá Selfosskirkju í dag, 16. júlí 2021, klukkan 14. mörku þar sem börnin okkar léku sér saman á strönd- inni, með dádýrun- um og fleira. Öll plönin sem við gerð- um þar sem við ætl- uðum að eyða góð- um tíma saman bara við tvær í Danmörku í smá mæðrafríi sem nú mun aldrei verða að veruleika. Hvernig þú varst hrifsuð á brott frá okkur öllum, börnunum þínum, fjölskyldu og vinum, er eitthvað sem verður erfitt að komast yfir og fyrirgefa. En ég hugga mig við það að þú trúðir því ætíð að þegar að þinn tími kæmi myndir þú fara og vera hjá Stellu þinni. Og oft ræddum við að Stella þín og Tristan minn væru saman að passa upp á hvort annað þar til við kæmum til þeirra. Ég vona innilega að þú sért nú að njóta samveru við Stellu og lítir kannski til með litla englinum mínum líka. Þú varst yndisleg sál, ævin- týragjörn, hugulsöm, fyndin, hjartahlý, opin, heiðarleg, besti vinur sem hugsast getur og ekki síst ástrík og góð mamma. Þú lifðir lífinu meira lifandi en flest- ir sem ég hef þekkt. Kannski varstu að reyna að upplifa sem mest þar sem tíminn þinn varð jafn stuttur og raun bar vitni. En síðustu skiptin sem við töl- uðum saman varstu svo ham- ingjusöm og spennt fyrir lífinu og framtíðinni sem virtist blasa við þér. Ég á enn erfitt með að átta mig á að ég muni aldrei sjá þig eða tala við þig aftur. Í hvert sinn sem ég man að þú ert farin fæ ég sting í hjartað. Ég mun alltaf hugsa til þín og minnast þess hversu yndisleg vinkona þú varst og hversu dýrmæt vinátta okkar var. Ég votta allri fjölskyldunni innilega samúð mína og vona að minningarnar um þig, einstaka konu, lifi með okkur þar til við hittumst á ný. Þín vinkona Jónína. Vinur minn, Baldur Sigurðsson, er allur, besti vinur sem ég hef átt. Við Baldur hittumst fyrst sumarið 1950 er við vorum á reknetabátum, hann 15 ára með pabba sínum, Sigga Gunna, á Morgunstjörnunni frá Ísafirði og ég 14 ára með stjúpa mínum, Ragnari, á Teddý. Við urðum strax miklir vinir og hittumst þegar við mögulega gátum. Þarna tókum við ákvörð- un sem reyndist okkur gæfurík, að verða bindindismenn bæði á tóbak og vín. Veturinn 1952 vorum við svo saman á vetrarvertíð á Farsæl GK með Ragnari, ef annar sást einhvers staðar var öruggt að hinn var nálægur og fengum við gælunöfnin „spyrðurnar“. Það var svo sumarið 1953 að ég sótti um að komast á mót- ornámskeið í Reykjavík, en fékk neitun á þeim forsendum að ég Baldur Sigurðsson ✝ Baldur Sig- urðsson fædd- ist 1. nóvember 1935. Hann lést 2. júlí 2021. Útför Baldurs fór fram 15. júlí 2021. væri of ungur. Baldur, þá orðinn 18 ára, var að fara á mótornámskeið á Ísafirði og talaði við skólastjórann þar sem bauð mig velkominn í námið og prófskírteinið yrði sent á hrepps- jórann í Grindavík til árs varðveislu. Vera mín á Ísa- firði með Baldri var með skemmtilegri tímabilum í lífi mínu. Nokkrum árum seinna flutti svo Baldur með foreldrum sínum til Hafnarfjarðar þar sem hann lærði vélvirkjun í Vél- smiðju Hafnarfjarðar. Seinna gerðist svo Baldur útgerðamað- ur og reri frá Ísafirði ásamt Nóa, bróður sínum, sem var skipstjóri. Þeir störfuðu svo all- mörg ár við Álverið í Straums- vík og enduðu sína starfsævi þar. Kæri vinur nú koma upp í huga minn hin mörgu skemmti- legu ár sem við áttum saman og ég hlakka svo sannarlega til að hitta þig í Sumarlandinu. Sigríði og fjölskyldu sendum við innilegar samúðarkveðjur. Þinn vinur Hafsteinn Sæmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.