Morgunblaðið - 16.07.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 16.07.2021, Síða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 ✝ Atli Pálsson fæddist á Stóru-Völlum í Landsveit 18. ágúst 1933 og bjó lengst af í Garða- stræti 47. Hann lést 11. júlí 2021. Foreldrar hans voru Páll Jónsson og Sigríður Guð- jónsdóttir. Systk- ini Atla voru Jens Ríkharður, Jón, Sigríður, Þór, Óðinn, Vallaður, Gunnur, Þýðrún, Ragnheiður, Ása og Guðrún. Eiginkona Atla var Margrét S. Einarsdóttir, f. 22.5. 1939, d. 16.7. 2020, en þau giftust 30.11. 1957. For- eldrar hennar voru Einar Guð- mundsson og Jóhanna K.S.A. Hallgrímsdóttir. Börn Margrétar og Atla: 1) Einar, f. 5.6. 1958, d. 28.6. 2015, blikksmíðameistari 2) í Landsveit í stórum systkina- hópi en alls voru systkinin 12 talsins. Af systkinahópnum eru Gunnur, Ása og Guðrún enn á lífi. Skólaganga Atla var takmörkuð og lauk form- legri skólagöngu um 12 ára aldur. Hann var um tíma vinnumaður í Múla í Landsveit og sinnti sveitastörfum á Stóru-Völlum en þegar móðir hans brá búi árið 1950 flutti Atli til Reykjavíkur. Atli starf- aði um tíma á Keflavík- urflugvelli og síðar sem bif- reiðastjóri hjá Sendibílastöðinni. Frá 1964 starfaði hann hjá Heildverslun Björgvins Schram sem bif- reiðastjóri, lager- og af- greiðslumaður og síðar hjá GÁP ehf. (sem keypti Heild- verslun Björgvins Schram rétt fyrir aldamótin 2000). Atli var lengi áhugamálari, sótti námskeið og hélt eina málverkasýningu árið 1976. Útför Atla fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi í dag, 16. júlí 2021, klukkan 13. Hallgrímur, f. 20.8. 1959, blikk- smíðameistari. Maki: Guðbjörg Jónsdóttir. Börn: Margrét Thelma, börn hennar eru Evert Krummi og Þura Fanndís, og Einar Atli. Stjúp- synir Hallgríms og synir Guðbjargar eru Jón Árni Árnason og Gísli Már Árnason, dóttir hans er Jenný Freyja 3) Guðjón, f. 1.8. 1964, fram- kvæmdastjóri. Maki: Ana Iso- rena Atlason. Börn: Bryndís María, börn hennar eru Áróra Dís, Þórinn Snær, Sara Ísey og Hanna Mae 4) Atli, f. 8.10. 1966, viðskiptafræðingur. Maki: Elín Svarrer Wang. Börn: Elvar Wang, Eva Margit Wang og Atli Wang. Atli ólst upp á Stóru-Völlum Faðir minn, Atli Pálsson, lést 11. júlí síðastliðinn saddur líf- daga. Við kveðjum hann í dag, 16. júlí, á eins árs ártíð mömmu, Margrétar S. Einarsdóttur. Mamma og pabbi giftust 30. nóvember 1957 og áttu því sam- an tæp 63 ár. Þau bjuggu okkur bræðrum gott heimili og voru alltaf til staðar fyrir okkur. Á æskuheimilinu gekk oft mikið á enda við bræðurnir á stundum óstýrilátir og lentum í ýmsum ævintýrum sem þau þurftu oftar en ekki að leysa úr með útsjón- arsemi og visku. Þau voru af þeirri kynslóð sem þurfti að hafa talsvert fyrir lífinu og unnu alla tíð mikið til að halda heimilinu gangandi. Auk heimilisstarfa og fullrar vinnu sinnti mamma ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hin ýmsu félög og nefndir. Pabbi vann lengst af meira en eitt starf og má segja að heiðarleiki, dugn- aður og samviskusemi hafi ein- kennt hann. Er þess til dæmis ekki minnst að hann hafi misst dag úr vinnu á sínum starfsferli. Frítími mömmu fór að mestu í trúnaðar- og félagsstörf ýmiss konar en hún var m.a. varaborg- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins 1974-1986, formaður Landssam- bands sjálfstæðikvenna, formað- ur Sjúkraliðafélagsins, í stjórn Kvenréttindafélags Íslands, sat í Tryggingaráði og síðar stjórn Tryggingastofnunar í áratugi og átti sæti í undirbúningsnefnd fyrir fyrsta kvennafrídaginn ár- ið 1975 svo eitthvað sé nefnt. Þau voru mjög samrýmd og studdi pabbi vel við mömmu í hennar félagsstörfum alla tíð. Frítími pabba fór að mestu í að mála myndir framan af en hann var frístundamálari og hélt eina sýningu í Eden í Hveragerði árið 1976. Eftir hann liggja nokkrar myndir sem eru okkur bræðrum og fjöl- skyldum afar kærar. Pabbi var berdreyminn og dreymdi oft fyrir hinum ólíklegustu hlutum og þá sá hann ýmislegt sem öðr- um var hulið. Árið 1980 fluttu þau sumar- bústað fjölskyldunnar frá Elliðavatni austur á Stóru-Velli á æskuslóðir pabba. Þar bjuggu þau sér sinn sælureit og undu sér vel við gróðursetningu og aðra dægrastyttingu og njótum við bræðurnir nú verka þeirra þar. Það var þeim til mikillar gleði og hamingju þegar barnabörnin fóru að koma og þau minnast nú afa og ömmu sem gaman var að heimsækja og sækja sögur og þekkingu til, en bæði voru þau vel lesin og frændrækin og þekktu því vel til ætta sinna. Þau voru stolt af afrekum barnabarnanna og áföngum í líf- inu en alltaf til í að gefa góð ráð og aðstoða þegar á þurfti að halda. Heilsu þeirra beggja tók að hraka hin síðari ár, sérstak- lega eftir að Einar bróðir lést árið 2015 og tók sorgin sinn skerf af heilsunni hjá þeim báð- um. Ég kveð þau með söknuði en þakklæti fyrir allt það sem þau voru mér og mínum alla tíð og engin orð ná yfir. Bænir okkar fylgja þeim yfir móðuna miklu, að ströndinni hinum megin, þar sem ríkir eilíft vor, birta og friður. Megið þið hvíla í friði. Atli Atlason. Í dag kveðjum við tengda- föður minn, Atla Pálsson, og langar mig að minnast hans með fáeinum orðum. Ég kynntist honum fyrir hátt í 30 árum og hefur ekki borið skugga á okkar samband öll þessi ár. Hann var mér einstaklega góður og ljúfur vinur. Austur í Landsveit kenndi hann mér fjallahringinn og sýndi mér náttúrufegurðina á Stóru-Völlum, þar sem hann sjálfur fæddist og bjó til 17 ára aldurs. Í Reykjavík kynntist hann eiginkonu sinni og frá fyrstu tíð var hann hennar stoð og stytta. Hann var afskaplega stoltur af henni og öllu því sem hún tók sér fyrir hendur. Þegar Atli hætti að vinna aðstoðaði hann okkur mikið með dóttur okkar þegar hún var lasin og komst ekki til dagmömmunnar. Hann var einstaklega góður afi og skipti til dæmis á bleyjum. Það þótti Maggý óhemju skemmtilegt en hún hafði enga trú á að hann gæti gert það rétt. En afar geta alveg lært, að minnsta kosti ef þeir eru eins og Atli, sem lærði allt lífið þrátt fyrir stutta skólagöngu. Hann var berdreyminn og eru þær margar sögurnar um drauma hans. Hann sagði okkur frá þegar vandamál komu upp í lífi okkar og hann hafði dreymt að hlutirnir myndu fara vel. Það var mikil hjálp í því og stuðn- ingur. Hann var einstaklega góður og ljúfur en samt maður sem stóð fast á sínum skoðun- um. Hann hafði áhuga á list, málaði sjálfur falleg málverk og eigum við nokkrar myndir eftir hann. Hann var litblindur en lit- irnir í málverkum hans báru þess ekki merki. Hann þekkti litina vel en var ekki alltaf með sama heiti á þeim og við hin. Hann gat sagt „þessi rauði eða brúni litur þarna“ af því hann vissi að við nefndum litina þess- um nöfnum. Eina sem ég gat sett út á var þegar hann tók sig til einn daginn og málaði loftið í eldhúsinu í Garðastræti í mjög sérstökum grænum lit. Mig grunar að hann hafi ætlað að hafa hann drapplitan eða eitt- hvað þvíumlíkt. Atli var mjög handlaginn og úrræðagóður, hann hafði ein- staklega gott minni og gaman af lífinu. Með árunum fóru að hrjá hann ýmsir sjúkdómar og þrátt fyrir að hann væri andlega hress allt lífið var líkaminn far- inn að gefa sig og undir lokin langaði hann mest að komast yf- ir móðuna miklu og hitta Maggý á ný. Nú mun hann hvíla við hlið hennar og Einars en við sem eftir lifum eigum góðar minn- ingar um ljúfan og glæsilegan mann. Ég sendi innilegar samúðar- kveðjur til sona hans, tengda- dætra, barnabarna, barnabarna- barna auk eftirlifandi systkina hans. Blessuð sé minning Atla Pálssonar. Elin Svarrer Wang. Við systkinin finnum nú fyrir sárum missi okkar elskulega afa, Atla Pálssonar. Afi var ljúf- ur og góður við alla sem á vegi hans urðu. Hann var einstak- lega góður eiginmaður ömmu okkar, Margrétar Sigríðar Einarsdóttur, svo að fólki fannst hjónaband þeirra til eft- irbreytni. Í dag verður afi okkar jarðsunginn, á eins árs ártíð ömmu Maggýjar. Síðastliðið ár án hennar hefur reynst afa erf- itt og einmanalegt og því getum við glaðst yfir sameiningu þeirra á ný. Afi passaði vel upp á okkur og sýndi með umhyggju sinni hve annt honum var um fjöl- skyldu sína. Hann var glað- lyndur maður með góða nær- veru, alltaf hress og kátur. Reynslubanki hans var fullur af skemmtilegum sögum úr sveit- inni, af mannlífi Reykjavíkur eða af hinu yfirnáttúrulega. Við eigum margar góðar minningar með afa í bústaðnum á Stóru-Völlum í Landsveit. Þar var hann á heimavelli og þau amma höfðu komið sér upp prýðilegri aðstöðu. Hann sýndi þar mikinn dugnað í gróður- setningu og viðhaldi og setti gott fordæmi með iðni og natni. Rústirnar af bænum sem afi er fæddur í standa enn á landinu, sem áminning um fjarlægan raunveruleika Íslendinga fyrr á tímum. Fyrir okkur borgar- börnin er gott að minnast ís- lenskra róta sinna, og afi okkar og Stóru-Vellir hafa verið ein helsta táknmynd þeirra í okkar lífi. Á síðari árum heimsóttum við ömmu og afa mikið í Garða- bæinn og við afi fórum gjarnan í göngutúra við sjóinn eða í berjamó, síðan stoppuðum við í bakaríinu á leiðinni heim. Þá komum við með vínarbrauð til baka til ömmu og áttum huggu- lega stund saman. Við spiluðum mikið eða áttum góð samtöl um hitt og þetta úr lífi þeirra eða okkar. Við systkinin viljum senda föður okkar, Atla, og bræðrum hans, Guðjóni og Hallgrími, innilegar samúðarkveðjur á þessum tímum. Þá sendum við að auki systkinum afa hlýjar kveðjur og öðrum sem stóðu honum nær. Elsku afi, hvíl í friði. Elvar, Eva Margit og Atli Wang. Fyrstu kynni mín af Atla voru þegar hann var fenginn til að dreifa vörum fyrir heildversl- un Björgvins Schram. Heild- verslunin hafði einn fastráðinn bílstjóra en þegar ávaxtasend- ingar bárust, þurfti á liðsauka að halda og sendibílar kallaðir til. Atli Páls- son var sá fyrsti sem kallaður var til á sínum Garant, austur- þýzkum bíl með trégrind, hálf- gerðum kassabíl. Atli vann sér strax inn traust heildsölunnar með heiðarleika sínum og glað- værð. Síbrosandi, snar í snún- ingum, greiðvikinn, vildi allt fyrir alla gera, taldi ekkert eftir sér. Þegar svo bílstjórastarfið var laust hjá heildsölunni, var Atla boðin staðan, sem hann þáði. Varð eflaust feginn að losna við kassabílinn og harkið sem honum fylgdi. Betri starfs- mann var ekki hægt að fá. Hann vann alla tíð síðan hjá heildsölunni, svo lengi sem hún lifði og síðan hjá Adidas-umboð- inu. Þegar við kærustuparið hugðumst stofna til heimilis fór- um við á stúfana að leita að hús- næði og leituðum víða þar til einn daginn að Atli sagði: „Það var að losna íbúð í stigagang- inum í Árbæjarhverfinu þar sem við Maggý erum kaupa okkur íbúð“. Átti ekki að kosta meir en 400 þúsund. Okkur leist með vel á þessa lausn og ekki skemmdi fyrir að vera í nábýli við Atla og Maggý. Við gátum tekið að okkur vinnu við bygg- inguna sem gekk upp í kaup- verð. Við byggingavinnuna kynntust allir íbúarnir vel og vinskapur myndaðist milli allra. Sérstaklega var mikill samgang- ur að Hraunbæ 68 og kynnt- umst við því vel fjölskyldu Atla og Maggýjar og strákunum fjórum. Árbærinn var afskekkt- ur að mati Vesturbæinga, nán- ast uppi í sveit, eins konar þorp úti á landi, meiri háttar ferðalag að fara í bæinn. Þá var gott að hafa góða sambýlinga og geta þegið kaffisopa, spjallað og tek- ið í briddsspil. Við þökkum góð ár með góðu fólki. Við vottum Hallgrími, Guð- jóni, Atla og öðrum aðstand- endum, okkar innilegustu samúð. Elsti sonurinn, Einar, lést 28. júní 2015. Blessuð sé minning Atla, Maggýjar og Einars. Hekla og Björgvin. Atli Pálsson ✝ Atli Benedikts- son fæddist 30. júní 1941 í Hvassa- felli í Saurbæjar- hreppi í Eyjafirði. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Lög- mannshlíð á Akur- eyri 6. júlí 2021. Foreldrar hans voru Álfheiður Jónsdóttir og Benedikt Hólm Júlíusson. Systkini samfeðra, Halla og Haukur sem bæði eru látin og Þuríður og Einar sem lifa bróður sinn. Atli kvæntist 27.8. 1966 Steinþóru Vilhelmsdóttur frá Siglufirði. Dætur Atla og Steinþóru eru: 1) Álfheiður, f. 1966, maki Sigtryggur Sig- tryggsson. Börn þeirra eru Sólrún Hulda og Atli Þór. 2) Kristveig, f. 1969, maki Heimir Finnsson. Börn þeirra eru Steinþóra Sif, Finnur og Aldís Ásta. 3) Þóra, f. 1980, maki Klara Ósk Bjartmarz. Sonur þeirra er Óskar Þór. Barna- barnabarn er Heimir Atli Finns- son. Atli ólst upp í Hvassafelli. Hann fór í Mennta- skólann á Akureyri og útskrif- aðist þaðan 1962. Um haustið fór hann til Danmerkur í land- búnaðarskóla í eitt ár. Eftir að hann kom heim fór hann að læra húsasmíði, tók sveinspróf 1968 og árið 1971 fékk hann meistarabréf. Atli starfaði við húsasmíðar á Akureyri alla sína starfsævi. Útförin fer fram frá Akur- eyrarkirkju í dag, 16. júlí 2021, klukkan 13. Í dag kveðjum við kæran pabba okkar. Hann háði harða baráttu við Parkinson-sjúkdóm- inn síðustu árin og það reyndi á þrautseigan í þeirri viðureign. Pabbi fæddist í Hvassafelli í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Móðir hans, Álfheiður Jónsdóttir, var þar systur sinni Rósu til að- stoðar en hún var ljósmóðir í sveitinni. Faðir hans var Bene- dikt Hólm Júlíusson, eiginmaður Rósu, en Benedikt og Rósa áttu fjögur börn: Höllu, Hauk, Þuríði og Einar. Þrátt fyrir að þetta hljóti að hafa skapað einhverjar flækjur þá leystust þær ljúflega, sambýlið hélt áfram og systurnar voru ætíð bestu vinkonur. Pabbi ólst upp yngstur systkinanna og að auki voru tvö frændsystkin, Bragi og Hólmfríður, hluti af hópnum en þau höfðu misst for- eldra sína þegar þau voru tólf og tíu ára. Börnin í Hvassafelli voru því sjö, fædd á níu árum. Bragi og pabbi voru sérlega góðir vinir alla tíð. Skák var pabba hugleikin og hann var virkur félagsmaður í Skákfélagi Akureyrar og tefldi einnig fyrir UMSE. Við systur munum skákmótin og ferðalögin sem hann fór í og hversu mikil- vægur félagsskapurinn og vinátt- an sem skapaðist milli skák- mannanna var fyrir pabba. Annars hafði pabbi mikinn áhuga á íþróttum almennt og studdi Arsenal í ensku knatt- spyrnunni og KA hér heima. Eftir að pabbi varð fullorðinn fór hann að stunda hlaup, hjólreiðar og gönguskíði og fannst gott að reyna á sig. Hann fór meðal ann- ars í Vasa-skíðagönguna í Svíþjóð þegar hann varð sextugur og það var mikið ævintýri fyrir hann. Á sjötíu ára afmælisdaginn fór hann í sitt síðasta almennings- hlaup, Akureyrarhlaupið. Þarna var Parkinson-sjúkdómurinn far- inn að láta nokkuð á sér kræla og farið að halla undan fæti. Pabbi kynntist mömmu á Siglufirði 1962. Samband þeirra þróaðist, mamma fór í Hjúkrunarskólann og áður en námi lauk fæddist fyrsta barnið 1966. Þau giftu sig sama ár og 1967 fluttu þau í Suðurbyggð 6 á Akureyri þar sem þau bjuggu mestallan sinn hjúskap. Á milli þeirra ríkti samheldni og virðing. Þau ferðuðust um landið með okkur í tjaldútilegur og síðar út fyrir landsteinana. Þessar ferðir veittu þeim mikla ánægju. Í Suðurbyggðinni ólumst við systur upp við öryggi og ástúð. Á heimilinu var líka Heiða amma sem létti undir, passaði okkur systur og fleira. Samband pabba og Heiðu ömmu var sterkt og ein- kenndist af hlýju. Pabbi var lið- tækur við heimilisstörfin innan dyra en var í essinu sínu utan dyra. Þar sá hann um allt viðhald og garðvinnu. Hann ræktaði kartöflur og gulrætur og lagði metnað sinn í að það gengi vel. Barnabörnin muna sérstaklega eftir dísætum gulrótum, nýupp- teknum, sem þau gæddu sér á. Við systur fengum hvatningu til að mennta okkur og pabbi var duglegur að hjálpa okkur við námið. Hann var áhugamaður um íslenskt mál og tungumál yfir- leitt. Eftir að heilsu pabba fór að hraka varð smám saman erfiðara að búa í einbýlishúsi með þeirri vinnu sem því fylgir og 2018 fluttu mamma og pabbi í Breka- tún 2, í íbúð sem hentaði þeim betur. Mamma var óþreytandi að aðstoða pabba og sinna hans þörfum eftir því sem veikindin ágerðust. Þau gerðu sér daga- mun með því að fara í bíltúra og þá var gjarnan farinn litli Eyja- fjarðarhringurinn. Pabbi náði að verða áttræður tæpri viku áður en hann lést og gat notið þess að vera með fólk- inu sínu og bjóða til veislu á hjúkrunarheimilinu Lögmanns- hlíð þar sem hann dvaldi frá því í apríl síðastliðinn. Minningin um afmælisdaginn er okkur ofarlega í huga og yljar um hjartarætur. Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín. (Kahlil Gibran) Álfheiður, Kristveig og Þóra Atladætur. Okkur langar að minnast Atla í nokkrum orðum. Hann birtist okkur sem hæglátur, einlægur en jafnfram mjög jákvæður og hlýr maður. Atli sýndi fjölskyldu okk- ar alla tíð mikla hlýju og góðvild. Heimili hans og Góu systur, að Suðurbyggð 6, stóð okkur alltaf opið þegar leiðin lá norður, hvort sem það voru sumarfrí eða skíða- ferðir um páska. Atli var mikill útivistarmaður og eigum við minningar um skemmtilegar ferðir með honum og Góu víðs vegar um landið. Það var farið á skíði, gengið á fjöll, farið í frá- bærar veiðiferðir og hjólaferðir að ógleymdum berjaferðum í Hólsgerði. Við eigum einnig skemmtilegar minningar um ótal utanlandsferðir með þeim hjón- um um Evrópu og Bandaríkin. Óhætt er að segja að upp úr standi ferð okkar til Banda- ríkjanna árið 2007 þar sem við áttum ógleymanlegar stundir saman. Hápunktar ferðarinnar voru heimsóknir í þjóðgarða og dvöl okkar í San Francisco þar sem gengið og skokkað var yfir Golden Gate-brúna. Við minnumst Atla með mikl- um hlýhug og þökkum fyrir ára- langa samferð. Minning um góðan vin mun lifa. Jakobína og Ólafur. Elsku afi er dáinn. Minningarnar úr Suðurbyggð eru margar og góðar. Það var alltaf nóg að gera með afa, hvort sem það var í kartöflugarðinum, taka upp gulrætur eða að fá að brasa og smíða í bílskúrnum. Einnig minnumst við skemmti- legra stunda í Hólsgerði þar sem hann keyrði okkur um í hjól- börum, sló grasið og lék við okkur. Afi kenndi okkur systkinum að tefla og þykir okkur vænt um þær minningar. Við spiluðum líka mikið og það mátti ekki missa af spilakvöldum um jól og áramót. Það var alltaf gott að koma í Suðurbyggð til ömmu og afa, þar var tekið á móti okkur með hlýju og opnum örmum og ekki skemmdi fyrir að fá nýsteiktar kleinur og ferskar gulrætur. Elsku afi, takk fyrir allar stundirnar og allt sem þú kenndir okkur. Við munum njóta góðs af því í okkar lífi. Steinþóra Sif, Finnur og Aldís Ásta. Atli Benediktsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.