Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 25

Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 „HVAÐA DROLL ER ÞETTA Á ÞÉR MAÐUR. HENTU FRISBÍ DISKNUM!“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... húðflúr fyrir hana. DÓMARI, VIÐ HÖFUM KOMIST AÐ NIÐURSTÖÐU … ÞESSI FÆR POTTÞÉTT SOKKA ÓÞEKKUR! „JÓLI Í KVIÐDÓMI“ SNÝR AFTUR EFTIR AUGLÝSINGAR ÉG GET EKKI SOFIÐ! ÉG GET EKKI HÆTT AÐ HUGSA UM ÞESSA TÍU FÉLAGA SEM VIÐ GLÖTUÐUM Í BARDAGANUM Í DAG! VINN FYRIR MAT GET ÉG EINHVERN VEGINN? HJÁLPAÐ JÁ! FINNDU ÞESSA TÍU LIÐHLAUPA! „ÉG ÞARF AÐ HITTA FASTEIGNA- MATSNEFND Í HÁDEGINU. GETUR ÞÚ LEYST MIG AF?“ þingið og mínir menn í Sjálfstæðis- flokknum og Framsókn sýndu þessu gríðarlega andstöðu og þess vegna fór þetta ekki lengra en raun bar vitni. Svo er vandamálið líka það að við erum ekki að tala um sömu hlut- ina. Sauðfjárbændur og Land- græðslan eru ekki sammála um hvað sé sjálfbær landnýting,“ segir Elli og bætir við að ef bændur væru að níð- ast á landinu, myndi það koma þeim sjálfum fyrst í koll. „En við sjáum þetta, sem höfum farið þarna um hálendið árum saman, að það er gífurlegur munur á gróð- urþekju, sem er á blússandi ferð þótt sauðfé sé að bíta gras. Það er okkar tilfinning, en við förum um landið sjálft og skoðum það, en sitjum ekki fyrir sunnan í tölvum og metum land- ið þaðan. Þótt tölvur séu góðar þá þarf að lesa landið sjálft í þessum málum.“ Elli lifir og hrærist í búskapnum og segir að það sé bæði starfið og helsta áhugamálið. „En það er líka svo sem ekkert launungarmál að ég hef mjög gaman af íþróttum, þótt maður hafi ekkert getað í þeim,“ segir hann kím- inn og bætir við að síðan sé mjög gaman að ferðast um landið. „Maður þyrfti að gera meira af því.“ Fjölskylda Eiginkona Erlendar er Guðlaug Berglind Guðgeirsdóttir, f. 29.4. 1976, bóndi í Skarði á Landi. Foreldrar hennar eru hjónin Guðgeir Sum- arliðason, f. 29.10. 1937, og Anna Sig- ríður Þorbergsdóttir, f. 23.7. 1938, d. 10.1. 2013, bændur í Austurhlíð í Skaftártungu. Börn Erlendar og Berglindar eru Sumarliði, f. 21.12. 2006; Helga Fjóla, f. 26.2. 2009, og Anna Sigríður, f. 28.12. 2012. Alsystk- ini Erlendar eru drengur Ingvarsson, f. 19.11. 1984, d. 19.11. 1984, og Guðni Ingvarsson, f. 15.7. 1986. Samfeðra systkini Eru Guðlaug, f. 7.5. 1963; Ingólfur, f. 20.7. 1966, og Sæmundur, f. 19.2. 1969. Foreldrar Erlendar eru hjónin Eggert Ingvar Ingólfsson, f. 15.5. 1940, d. 21.2. 2010, og Helga Fjóla Guðnadóttir, f. 7.11. 1957, búsett í Skarði. Erlendur Ingvarsson Helga Fjóla Pálsdóttir húsfreyja í Reykjavík Sæmundur Sæmundsson kaupmaður í Reykjavík Sigríður Theodóra Sæmundsdóttir húsfreyja í Skarði á Landi. Hún hlaut fálkaorðuna fyrir safnaðar- og félagsmálastörf Guðni Kristinsson bóndi í Skarði á Landi Helga Fjóla Guðnadóttir verkakona og fv. hreppsnefndarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, bús. í Skarði á Landi Sigríður Einarsdóttir ljósmóðir og húsfreyja í Skarði Kristinn Guðnason hreppstjóri og bóndi í Skarði á Landi Lilja Elínborg Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík Eggert Thorberg Grímsson sjómaður og verkamaður í Reykjavík Þorbjörg Eggertsdóttir húsfreyja í Neðri-Dal undir Eyjafj. og síðar á Hvolsvelli Ingólfur Ingvarsson b. í Neðri-Dal undir Eyjafjöllum, síðar bús. á Hvolsvelli Guðbjörg Ólafsdóttir húsfreyja í Neðri-Dal undir Eyjafjöllum Ingvar Ingvarsson bóndi í Selshjáleigu og Neðri-Dal undir Eyjafjöllum Úr frændgarði Erlendar Ingvarssonar Eggert Ingvar Ingólfsson vélvirkjameistari á Hvolsvelli, síðar bús. í Skarði á Landi Á laugardag orti Guðmundur Arnfinnsson á Boðnarmiði og kallaði „Gosvísu“: Rýkur á Reykjanesi, rennur hraun og brennur, dylur móða dali, drunur fylgja bruna, gneistar fljúga og gnestur grjóts í ölduróti, djúpt í heljardýpi djöflar væla og æla. Jóhnn Sveinsson frá Flögu segir svo í Vísnasafni: „Sagnir hafa geng- ið um að Bólu-Hjálmar hafi heim- sótt Bjarna amtmann Thorarensen á Möðruvöllum í Hörgárdal. Er þá venjulega talið, að förin hafi verið farin vegna þjófnaðarmáls þess, er Hjálmar lenti í. Þá er sagt að Bjarni hafi kveðið: Margur heimsins girnist glys og gálaust eftirlæti. En Hjálmar hafi átt að svara: Hæg er leið til helvítis; hallar undan fæti. Aðrir hafa talið vísuna eftir Hjálmar einan. Fylgir þá sú sögn, að hann hafi dottið, er hann kom út úr búðinni í Grafarósi, og hafi þá kveðið vísuna. Er þá fyrri helming- urinn með nokkuð öðru orðalagi: Oft hefur heimsins gálaust glys gert mér ama úr kæti. Eggert J. Levy orti um „þraut- seigju“ á sunnudag: Nú skal fá sér blíðan blund binda hugarflæði vakna eftir stutta stund starta nýju kvæði. Broddi B. Bjarnason orti á sunnudag, – gott ef hann var ekki á Djúpavogi eða austanlands að minnsta kosti: Dagar ljúfir líða lekur bjór af krana. Enn er blessuð blíða bregður ekki vana. Ágúst H. Bjarnason yrkir, – og karlinn á Laugaveginum tekur þetta ekki til sín! Söguburður komst á kreik og karlinn spurði frétta. Heyra vild‘ann hálfsannleik heldur en það rétta. Hér er limra eftir Vigfús M. Vig- fússon: Dag einn hún laushenta Lóa Sig lamdi af festu hann Bóas Sig. Honum til ama. svo heyrðist hann stama að hún skyldi reyna að róa sig. Benedikt Jóhannsson birtir mynd af ryðguðum hjólbörum á hvolfi í grjóturð: Efnið nagar tímans tönn það tærist upp og gleymist, meðan andans afurð sönn í efnisleysi geymist. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Rýkur á Reykjanesi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.