Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 26
Morgunblaðið/Unnur Karen
Mikilvægt Árni Vilhjálmsson á leið upp að marki Racing þar sem Dwayn
Holter, til hægri, felldi hann og fékk rauða spjaldið. Árni skoraði síðan, 2:0.
EVRÓPUKEPPNI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Breiðablik og FH tryggðu sér í gær
sæti í 2. umferð Sambandsdeildar
Evrópu í fótbolta með sterkum sigr-
um en Stjarnan er úr leik eftir dapra
frammistöðu í Dublin. Ísland verður
með þrjá fulltrúa í 2. umferð því Val-
ur bætist við eftir tap fyrir Dinamo
Zagreb í Meistaradeildinni.
Breiðablik vann öruggan 2:0-sigur
á Racing Union frá Lúxemborg á
Kópavogsvelli og einvígið samanlagt
5:2 eftir magnaða endurkomu í fyrri
leiknum ytra. Um leið og Jason Daði
Svanþórsson kom Kópavogsliðinu
yfir á 50. mínútu var ekki að spyrja
að leikslokum. Árni Vilhjálmsson
gulltryggði sigurinn á 74. mínútu,
fimm mínútum eftir að Dwayn Hol-
ter í liði gestanna sá rautt spjald,
fyrir að brjóta á Árna sem var ný-
kominn inn á sem varamaður.
„Heildarbragurinn á Breiðabliks-
liðinu var góður í kvöld og það var
greinilega einum gæðaflokki fyrir
ofan mótherjana. Við verðum þó að
taka tillit til þess að lið Racing er ný-
komið úr sumarfríi, deildinni í Lúx-
emborg lauk í maí og hefst ekki aft-
ur fyrr en í ágúst. En frammistaðan
og úrslitin tala sínu máli. Breiðablik
fór allsannfærandi í gegnum þetta
einvígi þrátt fyrir að lenda 2:0 undir
snemma í fyrri leiknum,“ skrifaði
Víðir Sigurðsson m.a. um leikinn á
mbl.is. Breiðablik mætir Austria Vín
frá Austurríki í næstu umferð.
Lennon aftur hetjan
Skoski framherjinn Steven Len-
non sá alfarið um að skora mörk FH
í 3:1-samanlögðum sigri á Sligo Ro-
vers frá Írlandi. FH vann 2:1-
útisigur í gær eftir að Lennon kom
liðinu í 2:0. Forskoti FH var ekki
ógnað að ráði, þrátt fyrir að Írarnir
hafi minnkað muninn undir lokin.
Lennon kom FH yfir á 44. mínútu
með marki gegn gangi leiksins og
hóf síðan seinni hálfleikinn á að
skora úr víti á 49. mínútu. Johnny
Kenny minnkaði muninn á 84. mín-
útu. Sligo er í öðru sæti írsku úrvals-
deildarinnar, með átta stigum meira
en Bohemians sem Stjarnan mætti.
Það áttu því flestir von á að einvígið
yrði gríðarlega snúið fyrir FH, en
Hafnarfjarðarliðið kláraði verkefnið
að lokum með sannfærandi hætti.
„Eftir fremur erfiðan fyrri hálf-
leik þar sem FH komst varla í sókn
en náði samt að skora eitt mark var
allt annað að sjá til liðsins í þeim síð-
ari. Líflegur sóknarleikur var þar í
forgrunni, auk þess sem varn-
arleikur liðsins var mjög góður lang-
stærstan hluta leiksins,“ skrifaði
Gunnar Egill Daníelsson m.a. um
Ljósmynd/Inpho Photography
Sigur Matthías Vilhjálmsson, Jónatan Ingi Jónsson og Pétur Viðarsson
fagna í leikslok í Sligo eftir að FH lagði heimaliðið að velli, 2:1.
leikinn á mbl.is. FH mætir Rosen-
borg frá Noregi í 2. umferð.
Stjörnumenn yfirspilaðir
Stjarnan bauð upp á afar dapra
frammistöðu gegn írska liðinu Bo-
hemians á útivelli, en lokatölur urðu
3:0 Írunum í vil og 4:1 samanlagt.
Stjörnumenn voru hikandi og var-
kárir frá fyrstu mínútu og virkuðu
stressaðir á hinum magnaða Aviva-
velli, þjóðarleikvangi Íra. Írska liðið
var ögn betra í 1:1-jafnteflinu í fyrri
leiknum og miklu betra í gær.
„FH sýndi með sigrinum á Sligo
að íslensk lið geta hæglega slegið út
írska andstæðinga, en til þess þarf
að spila vel. Stjarnan gerði það alls
ekki. Liðið skapaði sér lítið sem ekki
neitt og var algjörlega undir á mið-
svæðinu,“ skrifaði undirritaður m.a.
um leikinn á mbl.is.
Að ná í fjóra sigra af sex mögu-
legum í einvígunum þremur er afar
kærkomið fyrir íslenskan fótbolta,
eftir einn sigur í átján tilraunum þar
á undan. Ísland verður aðeins með
þrjú lið í Evrópukeppni á næstu leik-
tíð, þar sem íslenska deildin var fall-
in niður í 53. sæti á styrkleikalista
UEFA. Með sigrunum fjórum er Ís-
land komið upp í 49. sæti, í bili hið
minnsta, og fær því fjögur lið í Evr-
ópukeppni á þarnæsta tímabili ef frá
heldur sem horfir. Hver Evrópu-
sigur er dýrmætur og það birtir til í
íslenskum fótbolta að ná í fjóra á
skömmum tíma. Liðin þurfa hins-
vegar að spila gríðarlega vel gegn
sterkum andstæðingum í næstu um-
ferð, ef þeir eiga að verða fleiri í ár.
_ FH vann sinn 23. leik í Evr-
ópukeppni, af 71, og er komið með
fimm sigurleikjum meira en næsta
íslenska félag, KR. Þetta var um leið
tólfti sigurleikur FH á útivelli og fé-
lagið hefur því unnið fleiri útisigra
en heimasigra í Evrópukeppni. Ár-
angur FH í 35 útileikjum er 12 sigr-
ar, 11 jafntefli og 12 töp.
_ Þá hefur FH nú komist fjórtán
sinnum áfram í Evrópukeppni, oftast
allra íslenskra liða. KR kemur næst,
hefur komist tólf sinnum áfram.
_ Steven Lennon skoraði öll þrjú
mörk FH í einvíginu við Sligo. Hann
er þar með orðinn næstmarkahæsti
FH-ingurinn í Evrópukeppni frá
upphafi með átta mörk. Atli Guðna-
son skoraði 11. Lennon fór uppfyrir
Atla Viðar Björnsson sem skoraði
sjö Evrópumörk fyrir FH.
_ Markaskorarar Blika, Jason
Daði Svanþórsson og Árni Vil-
hjálmsson, skoruðu báðir sitt fyrsta
mark fyrir félagið í Evrópukeppni.
_ Breiðablik hefur nú unnið sex af
17 Evrópuleikjum sínum, tapað sjö
sinnum, og er með besta sigurhlut-
fall allra íslenskra liða í Evr-
ópukeppni í karlaflokki.
Tvö af þremur áfram
- Breiðablik sannfærandi á heimavelli - Glæsilegur sigur FH á Írlandi - Döpur
frammistaða Stjörnumanna í Dublin - Ísland fer upp styrkleikalista UEFA
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021
Lengjudeild karla
Fram – ÍBV............................................... 1:1
Selfoss – Kórdrengir................................ 0:1
Grótta – Fjölnir ........................................ 2:1
Afturelding – Víkingur Ó......................... 6:1
Staðan:
Fram 12 10 2 0 34:10 32
ÍBV 12 7 2 3 21:12 23
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Grindavík 11 5 4 2 22:20 19
Grótta 12 5 2 5 23:20 17
Fjölnir 12 5 2 5 14:14 17
Afturelding 12 4 4 4 27:24 16
Vestri 11 5 1 5 16:21 16
Þór 11 4 3 4 23:18 15
Selfoss 12 2 3 7 19:28 9
Þróttur R. 11 2 1 8 20:28 7
Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2
2. deild karla
KV – Kári .................................................. 2:0
Staðan:
Þróttur V. 11 7 3 1 25:11 24
KV 12 6 4 2 24:16 22
Njarðvík 11 5 5 1 26:12 20
KF 11 5 2 4 20:17 17
Völsungur 11 5 2 4 22:23 17
ÍR 11 4 4 3 22:18 16
Haukar 11 4 3 4 25:24 15
Reynir S. 11 4 3 4 22:21 15
Magni 11 3 4 4 21:24 13
Leiknir F. 11 4 0 7 17:27 12
Kári 12 1 3 8 15:28 6
Fjarðabyggð 11 0 5 6 6:24 5
3. deild karla
Ægir – Augnablik..................................... 3:0
Staðan:
Höttur/Huginn 11 7 2 2 17:13 23
Augnablik 12 6 3 3 27:18 21
Ægir 12 5 5 2 18:12 20
KFG 11 5 4 2 17:14 19
Elliði 11 6 0 5 26:16 18
Sindri 11 5 3 3 23:17 18
Dalvík/Reynir 11 4 2 5 18:16 14
Víðir 11 3 4 4 16:19 13
ÍH 11 2 5 4 16:23 11
Tindastóll 11 2 4 5 22:23 10
KFS 11 3 1 7 13:26 10
Einherji 11 2 1 8 14:30 7
Lengjudeild kvenna
KR – Augnablik ........................................ 3:2
Staðan:
KR 10 8 1 1 28:13 25
FH 10 6 2 2 20:9 20
Afturelding 10 5 4 1 23:11 19
Víkingur R. 10 3 4 3 18:18 13
Grótta 10 4 1 5 15:18 13
Haukar 10 3 3 4 14:15 12
ÍA 10 3 1 6 9:22 10
HK 9 2 3 4 13:20 9
Grindavík 10 1 5 4 12:18 8
Augnablik 9 1 2 6 12:20 5
Sambandsdeild Evrópu
1. umferð, seinni leikir:
Sligo Rovers – FH ........................... 1:2 (1:3)
Bohemians – Stjarnan..................... 3:0 (4:1)
Breiðablik – Racing Union.............. 2:0 (5:2)
Newtown – Dundalk ........................ 0:1 (0:5)
Ararat Jerevan – Fehérvár ............ 2:0 (3:1)
Struga – Liepaja .............................. 1:4 (2:5)
Kauno Zalgiris – Europa................. 2:0 (2:0)
Gagra – Sutjeska.............................. 1:1 (1:2)
KuPS Kuopio – Noah Jerevan........ 5:0 (5:1)
Uratru – Maribor............................. 0:1 (0:2)
Valmiera – Suduva........................... 0:0 (1:2)
Dinamo Batumi – Tre Penne .......... 3:0 (7:0)
Santa Coloma – Mons Calpe........... 4:0 (5:1)
St. Joseph’s – Levadia Tallinn........ 1:1 (2:4)
NSÍ Runavík – Honka..................... 1:3 (1:3)
Petrocub – Sileks ............................. 1:0 (2:1)
Dila – Zilina ...................................... 2:1 (3:6)
FCSG – Partizani Tirana ................ 2:3 (4:8)
The New Saints – Glentoran........... 2:0 (3:1)
Gzira – Sant Julia........ 1:1 (5:3 í vítakeppni)
Lac – Podgorica ............................... 3:0 (3:1)
Llapi – Shkupi .................................. 1:1 (1:3)
Swift Hesperange – Domzale ......... 1:1 (1:2)
Puskás Akadémia – Inter Turku.... 2:0 (3:1)
Larne – Bala..................................... 1:0 (2:0)
Spartak Trnava – Mosta ................. 2:0 (4:3)
La Fiorita – Birkirkara ................... 1:1 (1:2)
Decic – Drita .................................... 0:1 (1:3)
Vllaznia – Siroki Brijeg ................... 3:0 (4:3)
KÍ Klaksvík – RFS Riga ........ (frl.) 2:4 (5:6)
Slask Wroclaw – Paide .................... 2:0 (4:1)
Sarajevo – Milsami .......................... 0:1 (0:1)
Coleraine – Velez Mostar................ 1:2 (2:4)
_ Samanlögð úrslit í svigum, sigurliðin fara
í 2. umferð keppninnar.
4.$--3795.$
EM U19 kvenna
B-deild í N-Makedóníu:
A2-riðill:
Ísland – Pólland.................................... 24:24
Hvíta-Rússland – Finnland ................. 32:17
_ Lokastaðan: Hvíta-Rússland 6, Pólland
3, Ísland 3, Finnland 0.
%$.62)0-#
Úrslitakeppni NBA
Fjórði úrslitaleikur:
Milwaukee – Phoenix ....................... 109:103
_ Staðan er 2:2 og fimmti leikur í Phoenix
aðfaranótt sunnudags.
4"5'*2)0-#
BREIÐABLIK – RACING 2:0
1:0 Jason Daði Svanþórsson 50.
2:0 Árni Vilhjálmsson 74.
Rautt spjald: Dwayn Holter (Racing)
69.
Dómari: Vitaliy Romanov, Úkraínu.
Áhorfendur: 710.
_ Breiðablik áfram, 5:2 samanlagt, og
mætir Austria Vín 22. og 29. júlí.
SLIGO ROVERS – FH 1:2
0:1 Steven Lennon 44.
0:2 Steven Lennon 49.(v)
1:2 Johnny Kenny 84.(v)
Dómari: Luis Teixeira, Portúgal.
Áhorfendur: 400, uppselt.
_ FH áfram, 3:1 samanlagt, og mætir
Rosenborg 22. og 29. júlí.
BOHEMIANS – STJARNAN 3:0
1:0 Georgie Kelly 34.
2:0 Georgie Kelly 54.
3:0 Liam Burt 75.
Dómari: Jason Barcelo, Gíbraltar.
Áhorfendur: 6.000, uppselt.
_ Bohemians áfram, 4:1 samanlagt, og
mætir Dudelange 22. og 29. júlí.
_ Liðsuppstillingar, viðtöl og greinar
um leikina – sjá mbl.is/sport/fotbolti.
Ljósmynd/Inpho Photography
Dublin Daníel Laxdal fyrirliði og miðvörður Stjörnunnar stöðvar sókn-
armann Bohemians á síðustu stundu á Aviva-leikvanginum í gær.