Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 28

Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Þetta er svokallaður súlukaktus með nokkrum öngum. Ég fékk hann í af- mælisgjöf frá bestu vinkonu minni, þegar ég varð 25 ára, svo hann er að verða sextugur. Hann var ósköp lítill þegar ég fékk hann, átta eða níu sentimetrar, en nú er hann um það bil einn metri á hæð. Mig óraði ekki fyrir framtíð hans og vexti,“ segir Jenný Karlsdóttir um kaktus þann sem leik- ur hlutverk á sýningu hennar, Ég nálina þræði, sem opnuð verður á Hótel Djúpavík á morgun, laugardag 17. júlí, kl. 16. Á sýningunni er að finna útsaumsverk Jennýar gerð með nál þessa merka kaktuss sem hefur fylgt listakonunni í tæplega 60 ár. „Kaktusinn er með mjög stóra og svera gadda svo ég fékk vinkonu mína, snillinginn Lene Zachariassen á Hjalteyri, til að vita hvort hún gæti ekki borað auga á þessa gadda. Lena getur ýmislegt sem aðrir geta ekki og hún átti örfínan bor svo henni tókst að bora auga, en það er mjög hart í þessum göddum. Þegar augað var komið var mér ekkert að vanbúnaði að nota kaktusnálina til að sauma út, en mig hafði lengi dreymt um að gera það.“ Þegar Jenný er spurð að því hvort það hafi ekki verið sérstök og gleðileg tilfinning að nýta afurð af sínum kaktusi til útsaums, játar hún því að bragði. „Jú, það spruttu fram ýmsar hug- renningar við þá iðju. Þetta hefur verið mikið ævintýri.“ Mikið verið talað við kaktusinn Kaktusinn á þó nokkra sögu, hann var lengi í fóstri hjá kunningja Jenný- ar, Ásgrími Ágústssyni ljósmyndara, sem rak ljósmyndastofuna Norður- mynd á Akureyri. „Hann var í nokkuð mörg ár hjá honum á stofunni en þegar Ásgrímur hætti rekstrinum fór hann heim með kaktusinn. Hann lenti stundum í vandræðum með hann þar, því kakt- usinn var orðinn ansi stór og með þessum ofsalega stóru göddum. Hann rak sig stundum í hann og stakk sig, en var ekkert að kippa sér upp við það heldur sagði „fyrirgefðu góði“. Það hefur verið talað mikið við þennan kaktus, enda er hann mikill höfðingi. Kona Ásgríms hafði stund- um orðið fyrir stungum frá kaktus- num og lýsingar Ásgríms voru á þá leið að „það lá við að nálarnar kæmu út um bakið á henni“. Dag einn þurfti hann að losa sig við kaktusinn og mér fannst ekki annað hægt en taka hann heim til mín. Það var ekki einfalt verk, hann var í litlum plastpotti og mikil yfirvigt, þannig að ég var komin með öll handklæði heimilisins og eitt- hvað af rúmfötum líka, svo ég gæti komið honum í almennilega stöðugan pott. Hann hefur verið hjá mér síðan í góðu yfirlæti og þegar hann varð fimmtugur þá fékk hann rauða slaufu og hann vill ekki sleppa henni aftur. Hann á sitt heiðurssæti hjá mér á sól- stofunni og engin hætta á að fólk skaði sig á honum þar,“ segir Jenný og bætir við að kaktusinn hafi blómstrað tveimur blómum í fyrsta sinn í sumar. Feikilega miklar kjarnakonur Ekki er það tilviljun að Jenný velur Djúpavík á Ströndum sem sýningar- stað fyrir verkin sem hún hefur saumað út með kaktusnálinni, því hún á margar formæður í þeim lands- hluta. Hún tileinkar sýninguna Jens- ínu Óladóttur (1825–1911), langömmu sinni í Ófeigsfirði, og Karólínu Guð- brandsdóttur (1858–1947), ömmu sinni, sem var með búskap á Felli í Norðurfirði 1889–1896. „Mér fannst það vel við hæfi, en ég hef lengi haft mikinn áhuga á sögu þessara formæðra minna. Ég ólst upp með Karólínu, ömmu minni, en ég sá aldrei Jensínu, langömmu mína. Ég hef lengi spáð í sögu Jensínu og lífskjör fólks yfirleitt hér áður. Þetta voru feikilega miklar kjarnakonur og mér finnst það einkenni á mörgum þarna á Ströndum, að það bar meira á þessum sterku konum en körlum, þær voru frekar nefndar en menn- irnir þeirra, sem er svolítið sérstakt. Kannski vegna harðrar lífsbaráttu á þessu landsvæði, það var svo mikið af karlmönnum sem fóru í sjóinn, þær þurftu að standa á sínu og gerðu það. Þessar konur voru geysilegar hetjur sem reru til fiskjar og sáu um börn og bú. Þær áttu yfirleitt hóp af börnum og oft komst ekki nema helmingur þeirra upp. Amma mín eignaðist níu börn, en aðeins fjögur þeirra komust upp, þetta var ekki óalgengt. Fólk þurfti að gera allt sjálft og hvert heimili varð að vera sér nægt um allt sem þurfti, fatnað og annað. Spurn- ingin var ekki hvað fólk langaði til að gera, heldur hvað þurfti að gera og hvort það gæti komið því í verk. Þá var allur fatnaður heimaunninn og sauðkindin sá fólkinu fyrir mjólk í mat og ull í fat. Öllum flíkum var slit- ið, þær voru algjörlega notaðar þar til ekkert var eftir af þeim. Fyrir vikið hefur ekki margt varðveist af hvers- dagsklæðum frá fyrri tímum.“ Ása Ketils ætlar að kveða Jenný hefur alla tíð sinnt fjöl- breyttu handverki meðfram heimilis- og kennslustörfum og hún hefur lengi safnað gömlum munstrum og hand- verki. „Fólk var að fá hjá mér munstur af hinu og þessu svo ég fór að taka þetta saman í einföld hefti, til að koma ein- hverju af þessu gamla handverki og upplýsingum um það inn í nútíma handverksvakningu. Ég vildi að fólk gæti á auðveldan hátt nálgast þetta og unnið með þetta áfram, hannað og kynnst þessu. Ég á óhemjumikið safn af textíl sem vinkona mín var að skrá- setja með mér í vetur og draumurinn er að það geti einhvern tíma verið til sýnis, því mér finnst svo mikilvægt að þessi menningararfur og handverkið sé sýnilegt,“ segir Jenný og bætir við að vinkona hennar, kvæðakonan Ása Ketilsdóttir á Laugalandi í Skjald- fannardal, ætli að koma og kveða glænýtt frumort ljóð við opnun sýn- ingarinnar. Sjálf setti Jenný saman eftirfarandi vísu, þaðan sem heiti sýn- ingar hennar kemur: Ég nálina þræði um nóttlaust vor og nýt þess að vera til. Ég hugsa um kynslóða horfin spor og hendur er struku þil. „Þessi vísa kom nú bara óvart, en þegar maður er orðin svona gamall þá fylgir því kæruleysi, maður lætur bara vaða og tekur sjálfan sig ekki eins hátíðlega og maður gerði hér áð- ur. Það er mikið frelsi. Mér finnst líka ákveðið frelsi í því að ég er ekki myndlistarmenntuð og ekki í neinum kreðsum eða klafa. Ég er frjáls að því að gera það sem mig langar til og mér finnst ég vera að leika mér alla daga.“ Sýningin, Ég nálina þræði, stendur fram í miðjan september. Kaktusinn Hann fékk rauða slaufu þegar hann varð fimmtugur. Jenný „Ég er frjáls að því að gera það sem mig langar til.“ Útsaumur Eitt af verkum Jennýjar sem hún saumaði út með kaktusnál. „Þetta hefur verið mikið ævintýri“ - Jenný Karlsdóttir notaði nál af sextugum kaktusi sínum til að sauma út verk sem hún sýnir á Hótel Djúpavík - Hún tileinkar sýninguna formæðrum sínum á Ströndum, hetjum sem reru til fiskjar Franski myndlistarmaðurinn Christian Boltanski lést í fyrradag, 14. júlí, 76 ára að aldri. Hann var fæddur árið 1944 í París, hóf feril- inn sem myndlistarmaður og varð frægur fyrir innsetningar sínar, sem hann setti upp um allan heim. Boltanski var áberandi í frönsku samtímalistasenunni og sérstak- lega frægur fyrir verk sín þar sem missir, minni og áföll komu fyrir. Síðari heimsstyrjöldin hafði mikil áhrif á list hans, enda var faðir hans gyðingur og ólst hann því upp við sögur af afdrifum fjölskyldu og vina. Faðir hans hafði til dæmis verið falinn undir gólfborðum í íbúð fjölskyldunnar í eitt og hálft ár. Sýningar hans tengdar helför- inni vöktu mikla athygli. Hann vann meðal annars með gríðar- stórar fatahrúgur, sem áttu að minna á fórnarlömbin, sem og mik- ið safn ljósmynda af gyðingabörn- um, teknum á árunum fyrir heims- styrjöldina og meðan á henni stóð. Allur Christian Boltanski er látinn. Christian Boltanski látinn, 76 ára

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.