Morgunblaðið - 16.07.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 16.07.2021, Síða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 S tina Jackson stimplaði sig rækilega inn í heimi glæpa- sagna með Silfurveginum og hún heldur áfram á svip- aðri braut í Norður-Svíþjóð í Leys- ingum. Ekki er aðeins um spennu- sögu að ræða heldur raunsæja frásögn af ógnvænlegri veröld sem leynist víðar en margir vilja vera láta. Lífið getur verið undarlegt ferða- lag. Börn fæðast saklaus en um- hverfið hefur síðan áhrif á gang mála. Margar sögur eru til af bar- áttu einstæðra mæðra, ást og mis- notkun, einelti, smáglæpum barna og unglinga sem þróast í alvarleg afbrot, ofríki, hatri og dómstól götunnar. Stina Jackson tekur á þessu öllu í Leys- ingum, kryfur málin og kemur með lausnir. Oft er það svo að það sem virðist vera slétt og fellt á yfirborðinu þolir illa eða ekki dags- ljósið. Eins er með ýmislegt sem er á allra vitorði. Þöggunin ræður ríkj- um. Þannig er um ýmislegt í fá- menna þorpinu Ödesmark. Misjafn- lega brotnar fjölskyldur og einstak- lingar halda sig að sínu, samskipti þess utan eru lítil enda vandinn nægur heima fyrir. Hver hefur sinn djöful að draga. Eymdin hefur misjöfn áhrif á fólk. Vanja er bjartasta vonin, fimm ára dóttir Liams, sem deilir framtíðar- óskum hennar þrátt fyrir að vera djúpt sokkinn í heim, sem hann vill yfirgefa en gengur illa. Þrátt fyrir erfitt líf föðurins er dóttirin helsta haldreipi hans, eina vonin um bjarta framtíð. Liv er líka einstætt foreldri, en öf- ugt við Liam virðist hún hafa gefist upp, sætt sig við orðinn hlut. Hún hefur þurft að þola margt, átt sér- lega erfitt, en í öllu svartnættinu leynist birta. Þar sem er vilji þar er von. Sagan hverfist að miklu leyti um baráttu eða baráttuleysi þessara einstaklinga. Þeir bogna stöðugt og það er aldrei til góðs, en samt er ein- hver neisti í þeim, sem heldur þeim gangandi. Ákveðin þrá smýgur í gegnum allt mótlætið en erfitt er að horfast í augu við það sem liðið er og viðburðir líðandi stundar bæta ekki ástandið. Spennusagan Leysingar er mögn- uð bók. Höfundur tekur á mörgum mikilvægum þáttum mannlífsins, baráttu lífs og dauða. Þegar öllu er á botninn hvolft er fólkið ekki svo ólíkt rándýrunum en það eru fleiri dýr í skóginum og þau eru ekki öll grimm og vond. Ljósmynd/Stefan Tell Mögnuð Leysingar Stinu Jackson er mögnuð bók og höfundur tekur á mikilvægum þáttum mannlífsins. Eitraður heimur hat- urs, ofbeldis og ástar Spennusaga Leysingar bbbbm Eftir Stinu Jackson. Friðrika Benónýsdóttir íslenskaði. Kilja, 356 bls. Ugla, 2021. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Dagskrá tónlistarhátíðarinnar Innipúkans liggur nú fyrir og eru á henni 22 tónlistarmenn og hljóm- sveitir. Nýjasta viðbótin eru Aron Can, Ásta, BSÍ, Good Moon Deer, Karitas og sideproject. Hátíðin fer að venju fram um verslunarmanna- helgina og auk fyrrnefndra flytj- enda má nefna Bjartar sveiflur, Bríeti, Emmsjé Gauta, Flona, GDRN, Hipsumaps, Mammút, Reykjavíkurdætur og Teit Magn- ússon. Á opnunarkvöldi hátíð- arinnar munu Birgitta Haukdal og hljómsveitin Moses Hightower og koma fram saman í fyrsta sinn. Innipúkinn fer fram á nýjum stað, fer frá Grandanum yfir í Ing- ólfsstræti og fer aðaltónleika- dagskráin fram innandyra, eins og nafnið gefur til kynna, í Gamla bíói og á efri hæð Röntgen. Á svæðinu verður hátíðarstemning og fara tónleikar fram föstudags-, laug- ardags- og sunnudagskvöld, 30. júlí til 1. ágúst. Miðasala á hátíðina er hafin og fer fram á tix.is. GDRN Tónlistarkonan kemur fram á Inni- púkanum um verslunarmannahelgina. Dagskrá Innipúkans liggur fyrir Sigursveit Músíktilrauna í ár, Ólafur Kram, kemur fram á fimmtu tón- leikum raðarinnar Sumartónleikar í garðinum, í dag kl. 17. Garðurinn er fyrir aftan verslunina 12 tóna sem stendur fyrir tónleikunum. Ólafur Kram er skipuð Birgittu Björgu, Ey- dísi Kvaran, Guðnýju Margréti, Ið- unni Gígju og Sævari Andra. Segir á síðu tónleikanna á Facebook að þau spili furðulega tónlist sem erfitt sé að skilgreina með súrrealískum textum og undir alls konar tónlistar- áhrifum. Dísætur söngur heyrist í bland við djöflaöskur og fíflagang, djass hljómi með diskótakti og ým- islegt fleira bíði þeirra sem koma og hlusta. Verslunin 12 tónar er við Skólavörðustíg 15. Sigursveit Hljómsveitin Ólafur Kram, sigurvegari Músíktilrauna 2021. Ólafur Kram á sumartónleikum Ný sýning verður opnuð á morgun, laugardag, kl. 15 í galleríinu Y í Hamraborg í Kópavogi. Á henni má sjá verk eftir Þór Sigurþórsson og er titill sýningarinnar Ferð. Um sýninguna segir í tilkynningu að verkin á henni hafi öll með framrás tímans að gera. „Höfuðpúðarnir eru ferðalagið, flæðandi, hlykkj- óttur tími. Í klukkuverkunum benda vísarnir á vísindalegri, rök- rænni hugmynd um tíma. Þyrp- ingar vísanna vísa í fjölvíddir tíma og rúms. Skafmiðaefnið hylur tíma- bundið efni, fréttir dagsins. Huldir undir skafmiðaefninu eru atburðir dagsins sveipaðir dulúð. Naum- hyggjan tekur við af ofhlæði upp- lýsinga, hlutirnir eru einfaldaðir. Atburðir líðandi stundar eru gerðir óræðir,“ segir um verkin og sýn- inguna. Y er í rými sem áður hýsti bensínstöð Olís. Í Y Þór Sigurþórsson myndlistarmaður. Ferð Þórs Sigurþórssonar í Y

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.