Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.07.2021, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Hægindastóll model 7227 Leður – Stærðir XS-XL Verð frá 389.000,- NJÓTTU ÞESS AÐ SLAKA Á Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (með Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Á vefnum fullveldi.is var á dög- unum greint frá því að sam- kvæmt könnun MMR væru, af þeim sem afstöðu taka, 62% andvíg inn- göngu Íslands í Evrópusambandið en 38% hlynnt. Þetta hefði ver- ið á svipuðu róli undanfarin ár en talsvert meiri andstöðu hafi allajafna verið „fyrir að fara á meðan unnið var að því að Ísland gengi í Evrópusambandið í tíð þáverandi ríkisstjórnar Sam- fylkingarinnar og Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs á ár- unum 2009-2013. Eftir að málið var tekið af dagskrá af nýrri rík- isstjórn dró hins vegar nokkuð úr henni.“ Þá er á fullveldi.is bent á að „[v]axandi umræða um samruna- skref í tengslum við Evrópusam- bandið hefur í gegnum tíðina haft ríka tilhneigingu til þess að leiða til aukinnar andstöðu við þau, bæði hér á Íslandi og erlendis, en komi til þess að innganga í sambandið verði aftur sett aftur á dagskrá hér á landi verður ekki komist hjá auk- inni umræðu.“ - - - Það er út af fyrir sig athygl- isvert, þó að það komi ekki á óvart, að aukin umræða um Evr- ópusambandið dragi úr áhuga fólks á því. Um leið er umhugs- unarvert að þegar umræðan minnkar skapast skárri jarðvegur fyrir þá sem hlynntir eru aðild að draga upp villandi mynd af sam- bandinu. - - - Þetta hefur Viðreisn til að mynda reynt nú fyrir kosn- ingar í umræðum um evru og um það hvað umsókn um aðild er. Við- reisn heldur áfram að tala eins og þá fari af stað „samningaviðræður“ þegar öllum má ljóst vera, einkum eftir reynsluna fyrir um áratug, að ekki er um neitt að semja. Meiri umræða, minni stuðningur STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Landsbankinn hefur úthlutað námsstykrkjum úr samfélagssjóði bankans til framúrskarandi náms- manna, alls 15 talsins. Heildarupphæð styrkjanna nem- ur alls sex milljónum króna en í ár bárust rúmlega 600 umsóknir. Veittir eru styrkir í fimm flokk- um: til framhaldsskólanema, iðn- og verknema, háskólanema í grun- námi og framhaldsnámi og list- nema. Þrír einstaklingar hlutu síð- an styrk í hverjum flokki, alls 15. Styrkir til framhaldsskólanáms voru hver um sig 200 þúsund krón- ur á meðan styrkir til iðn- og verk- náms, auk grunnáms í háskóla voru 400 þúsund hvor um sig. Hæstu styrkirnir voru til framhaldsnáms á háskólastigi auk listnáms en þeir voru sex talsins og hver um sig 500 þúsund. Öll eiga þau sem hlutu styrk sameiginlegt að vera afburða námsmenn. ari@mbl.is Landsbankinn styrkir 15 góða námsmenn Ljósmynd/Landsbankinn Námsstyrkir Fulltrúar Landsbankans og flestra styrkþega. Fyrri hluti júlímánaðar hefur verið hlýr og þurr. Fyrri hluti júlí er sá hlýjasti á öldinni um landið norðan- og austanvert og á miðhálendinu, en á Suðurlandi er hann í 9. hlýjasta sæti (af 21), í því 8. við Faxaflóa og 7. við Breiðafjörð. Hann er sá þriðji hlýjasti á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í bloggi Trausta Jónssonar veðurfræðings, Hungurdiskum. Hlýjast að tiltölu hefur verið við Upptyppinga, hiti þar 6,2 stigum ofan meðallags síð- ustu 10 ára. Kaldast, að tiltölu, hefur verið á Patreksfirði og Garð- skagavita þar sem hiti er -0,3 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri er meðalhiti nú 14,1 stig, það hlýjasta sem vitað er um þar á bæ að minnsta kosti síðan 1936. Hiti er 3,3 stigum ofan með- allaganna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára. Meðalhiti í Reykjavík er 11,5 stig, +0,3 stigum ofan meðallaganna 1991 til 2020 og síðustu tíu ára. Þetta er það 10. hlýjasta (af 21) á öldinni. Hlýjastir voru þessir sömu dagar árið 2007, meðalhiti þá var 13,2 stig, en kaldastir voru þeir 2013, meðalhiti 9,6 stig. Á langa list- anum er hitinn í Reykjavík í 37.sæti (af 147). Óvenju þurrt hefur verið á land- inu. Úrkoma hefur aðeins mælst 4,9 mm í Reykjavík og hefur aðeins átta sinnum verið minni (125 ár), síðast 2016. Það sem gerir úrkomuleysið enn óvenjulegra er að suðlægar áttir hafa verið ríkjandi á sama tíma, seg- ir Trausti. Á Akureyri hefur verið enn minni úrkoma, þar hafa aðeins mælst 2,3 mm - sem er þó ekki met. Sólskinsstundir hafa mælst 50,5 í Reykjavík - 35 stundum færri en í meðalári - en þær hafa þó oft verið færri sömu daga, fæstar 15,5 árið 1980 og 18,0 árið 2018. sisi@mbl.is Hlýjasta júlíbyrjun á Norðausturlandi - Óvenju þurrt hef- ur verið á landinu Morgunblaðið/Hari Akureyri Sundlaugin hefur verið vel sótt í blíðviðrinu undanfarið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.