Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 32

Morgunblaðið - 17.07.2021, Side 32
_ Danski knattspyrnumaðurinn Mor- ten Beck Guldsmed er kominn aftur til FH eftir að hafa leikið með ÍA að láni fyrri hluta tímabilsins. Daninn sló ekki í gegn hjá ÍA því honum mistókst að skora í níu deildarleikjum með liðinu. _ Suður-Afríkumaðurinn Louis Oost- huizen er með tveggja högga forystu eftir tvo hringi á The Open á Royal St. George‘s-golfvellinum í Kent á Eng- landi, en mótið er eitt risamótanna á ári hverju. Oosthuizen var með eins höggs forskot eftir fyrsta hring og hef- ur því styrkt stöðu sína sem for- ystusauðurinn. _ Körfuknatt- leiksdeild Stjörn- unnar hefur geng- ið frá samningi við finnska landsliðs- manninn Shawn Hopkins og mun hann leika með liðinu á komandi tímabili. Hopkins er fæddur og uppalinn í bænum Nokia. Hann er framherji sem hefur alla tíð leikið í heimalandinu, fyrst með Nokia og svo Tampereen Pyrinto. _ Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir fór naumlega í gegn- um niðurskurðinn á Gant Ladies Open- mótinu í Finnlandi í gær. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi. _ Grindavík og Þór skildu jöfn, 2:2, í Lengjudeild karla í fótbolta í gær- kvöldi. Þórsarar komust í 2:0 en Grind- víkingar neituðu að gefast upp. Birgir Ómar Hlynsson kom Þór yfir á 29. mínútu með eina marki fyrri hálfleiks. Jóhann Helgi Hannesson bætti við öðru marki Akureyinga á 53. mínútu og kom Þórsurum í góða stöðu. Grindavík neitaði hins vegar að gefast upp því Aron Jóhannsson minnkaði muninn á 69. mínútu og sjö mínútum síðar jafnaði Sigurður Bjartur Halls- son í 2:2. _ Sænska knattspyrnufélagið Elfs- borg kynnti markvörðinn unga Hákon Rafn Valdimars- son formlega til leiks í gær en hann er kominn þangað frá Gróttu. Hákon er 19 ára gamall en hefur þó verið aðalmarkvörður Gróttu í þrjú og hálft ár og lék alla leiki liðsins í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. _ Þór frá Þorlákshöfn, Íslandsmeist- ari karla í körfubolta, hefur styrkt sig fyrir næstu leiktíð með tveimur er- lendum atvinnumönnum. Danski landsliðsmaðurinn Daniel Mortensen hefur samið við Þór en hann lék með sterkasta liði Dana, Bakken Bears, á Eitt ogannað 32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021 Mjólkurbikar kvenna Undanúrslit: Þróttur R. – FH........................................ 4:0 Breiðablik – Valur .................................... 4:3 _ Þróttur og Breiðablik mætast í úrslita- leik á Laugardalsvellinum 1. október. Lengjudeild karla Grindavík – Þór ........................................ 2:2 Staðan: Fram 12 10 2 0 34:10 32 ÍBV 12 7 2 3 21:12 23 Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22 Grindavík 12 5 5 2 24:22 20 Grótta 12 5 2 5 23:20 17 Fjölnir 12 5 2 5 14:14 17 Þór 12 4 4 4 25:20 16 Afturelding 12 4 4 4 27:24 16 Vestri 11 5 1 5 16:21 16 Selfoss 12 2 3 7 19:28 9 Þróttur R. 11 2 1 8 20:28 7 Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2 2. deild kvenna ÍR – Fram ................................................. 1:5 Staðan: FHL 8 7 0 1 35:11 21 Völsungur 8 7 0 1 21:9 21 KH 7 6 0 1 27:4 18 Fram 8 6 0 2 23:11 18 Fjölnir 7 5 0 2 31:9 15 Hamrarnir 8 3 1 4 20:18 10 ÍR 8 3 1 4 17:19 10 Hamar 7 2 2 3 13:17 8 Sindri 6 2 0 4 12:18 6 Einherji 7 1 3 3 5:12 6 SR 7 1 1 5 14:12 4 Álftanes 7 1 0 6 6:14 3 KM 8 0 0 8 1:71 0 Rúmenía CFR Cluj – U Craiova 1948 .................... 3:2 - Rúnar Már Sigurjónsson var ekki í leik- mannahópi Cluj að þessu sinni. Danmörk Midtjylland – OB...................................... 1:2 - Mikael Anderson kom inn á sem vara- maður á 59. mínútu hjá Midtjylland. Mark- vörðurinn Elías Rafn Ólafsson sat allan tímann á bekknum. - Aron Elís Þrándarson lék fyrstu 74 mín- úturnar með OB. Hvíta-Rússland Slusk – BATE Borisov ............................ 3:4 - Willum Þór Willumsson hjá BATE Bor- isov er frá keppni vegna meiðsla. 0-'**5746-' Vináttulandsleikur kvenna Bandaríkin – Ástralía........................... 67:70 4"5'*2)0-# Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Íslendingum í ítalska fótboltanum fjölgaði um tvo í gær þegar Hjörtur Hermannsson og Þórir Jóhann Helgason voru kynntir til leiks sem nýir leikmenn hjá liðum Pisa og Lecce sem leika bæði í ítölsku B- deildinni. Þar með eru þrír íslensk- ir leikmenn komnir í þá deild í sum- ar en Lecce fékk á dögunum til liðs við sig miðvörðinn Brynjar Inga Bjarnason frá KA. Þórir kemur til Lecce frá FH en hann er tvítugur miðjumaður og lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Mexíkó í lok maí. Þá voru einmitt hann, Brynjar Ingi og Hjörtur allir í byrjunarliði Íslands en Brynjar lék þar líka sinn fyrsta landsleik. Pisa fær Hjört frá Bröndby þar sem hann varð danskur meistari í vor en samningur hans við félagið rann út um síðustu mánaðamót. Hjörtur lék undanfarin fimm ár með Bröndby og spilaði alls 157 mótsleiki með félaginu. Íslendingar hafa til þessa ekki verið fjölmennir í ítalska fótbolt- anum en hafa aldrei verið fleiri en um þessar mundir. Andri Fannar Baldursson leikur með Bologna í A-deildinni og þeir Bjarki Steinn Bjarkason og Óttar Magnús Karlsson leika báðir með Venezia sem vann sér sæti í A- deildinni í vor. Sveinn Aron Guðjohnsen er samningsbundinn Spezia sem leik- ur í A-deildinni en hann er vænt- anlega á förum og æfir með Sön- derjyskE í Danmörku þessa dagana. Birkir Bjarnason er leikmaður Brescia í B-deildinni en hefur þó verið orðaður við önnur félög í sumar. Þá leikur Emil Hallfreðsson með Padova í C-deildinni en liðinu mistókst naumlega að komast upp um deild í síðasta mánuði. Guðný Árnadóttir er leikmaður AC Milan í A-deild kvenna eftir að hafa verið í láni þaðan hjá Napoli seinni hluta síðasta tímabils. Til viðbótar leika nokkrir ís- lenskir piltar með unglingaliðum ítalskra félaga. Íslendingum fjölgar ört í ítalska fótboltanum Þórir Jóhann Helgason Hjörtur Hermannsson KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Norðurálsvöllur: ÍA – Valur .................. L16 Greifavöllur: KA – HK ........................... S16 Kaplakriki: FH – Fylkir .................... S19.15 Meistaravellir: KR – Breiðablik ....... S19.15 1. deild karla, Lengjudeildin: Olísvöllur: Vestri – Þróttur R................ L13 2. deild karla: Ásvellir: Haukar – Leiknir F............ L13.30 Eskjuvöllur: Fjarðabyggð – Þróttur V L14 Rafholtsvöllur: Njarðvík – Magni......... L14 Ólafsfjarðarvöllur: KF – Reynir S........ L16 Hertz-völlur: ÍR – Völsungur................ L16 3. deild karla: Týsvöllur: KFS – Víðir........................... L14 Würth-völlur: Elliði – Sindri ................. L14 Samsung-völlur: KFG – Einherji.......... L14 Vilhjálmsv.: Höttur/Hug. – Tindastóll.. L16 Dalvíkurvöllur: Dalvík/Reynir – ÍH...... S16 2. deild kvenna: OnePlus-völlur: Álftanes – Sindri ......... L14 Vopnafjarðarvöllur: Einherji – KH ...... L14 Extra-völlur: Fjölnir – Hamrarnir ....... L14 Fjarðabyggðarhöll: FHL – SR ............. L18 Grýluvöllur: Hamar – Völsungur .......... S14 UM HELGINA! Morgunblaðið/Árni Sæberg Laugardalur Ólöf Sigríður Kristinsdóttir, sem skoraði fjórða mark Þróttar, í baráttunni við Sigríðu Láru Garðarsdóttur í Laugardalnum í gærkvöldi. BIKARINN Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Þróttur og Breiðablik tryggðu sér í gærkvöldi sæti í úrslitum Mjólk- urbikars kvenna í fótbolta. Breiðablik fer áfram eftir ótrúleg- an 4:3-sigur á Val á heimavelli. Ás- laug Munda Gunnlaugsdóttir skoraði sigurmark Breiðabliks í uppbót- artíma eftir að Fanndís Friðriks- dóttir hafði jafnað í 3:3 örskömmu áð- ur. Leikurinn var mjög kaflaskiptur því Agla María Albertsdóttir og Selma Sól Magnúsdóttir komu Breiðabliki í 2:0 en Mary Alice Vig- nola og Ída Marín Hermannsdóttir jöfnuðu fyrir Val. Hin bandaríska Taylor Ziemer kom Breiðabliki aftur yfir á 73. mínútu áður en ótrúlegur lokakafli tók við. Leikurinn gefur góð fyrirheit fyrir baráttu liðanna í deild- arkeppninni þar sem Valur er í topp- sætinu með 23 stig, tveimur stigum á undan Breiðabliki þegar deildin er hálfnuð. Breiðablik hefur leikið 18 sinnum til úrslita og tólf sinnum fagnað sigri í úrslitaleiknum. „Oft mæddi mikið á vörn Breiða- bliks en þrátt fyrir að Heiðdís Lillý- ardóttir og Kristín Dís Árnadóttir ættu stundum í basli tókst þeim þó að stöðva margar sóknir Vals. Miðjan náði sér ekki alveg á strik en í fram- línunni var Agla María alltaf líkleg til Morgunblaðið/Árni Sæberg Hetjan Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir í baráttu við Mary Vignola í gær. Áslaug skoraði sigurmarkið eftir ótrúlega dramatík á Kópavogsvelli. stórræða og Tiffany McCarty hélt vörn Vals líka við efnið. Ída Marín og Lára Kristín Pedersen voru öflugar hjá Val og í fremstu víglínu var Cyera Hintzen vörn Blika mjög erfið, nýtti sér öll mistök og kom sér í færi,“ skrifaði Stefán Stefánsson m.a. um leikinn á mbl.is. Fyrsti úrslitaleikur Þróttar Þróttur leikur til úrslita í fyrsta skipti eftir sannfærandi 4:0-sigur á 1. deildarliði FH á heimavelli. Lokatöl- urnar gefa ekki endilega rétta mynd af leiknum því FH-ingar léku vel þar til á lokakaflanum og hefðu getað jafnað í 1:1. Linda Líf Boama kom Þrótti yfir á 21. mínútu og þær Andr- ea Rut Bjarnadóttir, Dani Rhodes og Ólöf Sigríður Kristinsdóttir bættu allar við mörkum í seinni hálfleiknum. „Vendipunkturinn í leiknum var innkoma Bandaríkjakonunnar Rho- des, sem var að spila sinn fyrsta leik fyrir Þrótt eftir að hafa samið við liðið á dögunum. Á síðasta tímabili lék hún með Chicago Stars í atvinnu- mannadeildinni NWSL í heimaland- inu. Þótt hún hafi ekki spilað mikið þar er ljóst að ýmislegt er í hana spunnið. Miðað við þann rúma hálf- tíma sem hún spilaði í kvöld er hún kvik, útsjónarsöm og góður skotmað- ur. Hún átti stóran þátt í öðru mark- inu og skoraði svo það þriðja,“ skrif- aði Gunnar Egill Daníelsson m.a. um leikinn á mbl.is. Úrslitaleikurinn verður leikinn á Laugardalsvelli 1. október. Ellefu marka undanúrslit - Þróttur í úrslit í fyrsta sinn eftir stórsigur - Ótrúlegur markaleikur topp- liðanna á Kópavogsvelli - Áslaug Munda með sigurmark í uppbótartíma ÞRÓTTUR R. – FH 4:0 1:0 Linda Líf Boama 21. 2:0 Andra Rut Bjarnadóttir 69. 3:0 Dani Rhodes 71. 4:0 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir 89. Dómari: Guðgeir Einarsson. Áhorfendur: Um 800. BREIÐABLIK – VALUR 4:3 1:0 Agla María Albertsdóttir 21. 2:0 Selma Sól Magnúsdóttir 47. 2:1 Mary Alice Vignola 48. 2:2 Ída Marín Hermannsdóttir 64. 3:2 Taylor Ziemer 73. 3:3 Fanndís Friðriksdóttir 90. 4:3 Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 90. Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson. Áhorfendur: 325.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.