Morgunblaðið - 17.07.2021, Page 35
MENNING 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 2021
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Inga Björk er músíkmeðferðarfræð-
ingur (þerapisti) og starfar sem slík-
ur í Hljómu, sem er hennar eigin
meðferðarstöð, staðsett í Hafn-
arfirði. Þar var þessi nýja plata
hennar einnig tekin upp en áður hef-
ur platan Rómur komið út (2018). Á
henni var lýruleikur Ingu í aðal-
hlutverki en Inga söng einnig yfir
lögunum. Plata sú býr yfir blíðri og
upplyftandi áferð og alþýðutónlist
Íra og vísnasöngur frá Norð-
urlöndum kom í hugann við hlustun.
Útsetningar og upptökustjórn á
Blæ & stillu var í höndum lista-
mannsins, en Haraldur V. Svein-
björnsson tók upp og hljóðblandaði.
Sigurdór Guðmundsson hljómjafn-
aði. Flytjendur á plötunni eru svo
Inga Björk Ingadóttir, Haraldur V.
Sveinbjörnsson, Fríða Dís Guð-
mundsdóttir og Sigrún Kristbjörg
Jónsdóttir. Ýmis hljóðfæri, kunn-
ugleg sem ókunnugleg, koma við
sögu. Inga á sjálf lög og
texta en laglína „Snæ-
drottningarinnar“ er eft-
ir Achim Zitzmann.
Blær & stilla er
fyllri en forverinn, sum-
part poppaðri á ákveðinn
hátt. Það er meiri hljóm-
sveitarandi, sökum þess
sem hefur verið greint frá, og tilfinn-
ingin er sú að það sé meðvitað verið
að losa sig undan ham skrifaðrar og
skólagenginnar tónlistar og finna
með því fyrir frelsisbundnum
vængjaslætti sem fylgir gjarnan
hefðum popp- og rokkheima, hvar
Bjóðum bjartan hljóm
oft er lengra í höft og Excel-skjöl
(sem getur engu að síður verið til
bölvunar bæði og blessunar, höfum
það alveg á hreinu).
Blær & stilla situr eiginlega á
mörkum tveggja heima. Margt
hérna er ævintýralegt (sjá t.d. glæsi-
legt umslagið, sem er prýtt teikn-
ingum eftir Birgittu Sif) og næft í
einhverjum skilningi en
platan nær þó aldrei að
sveiflast yfir í að vera full-
burða barnaplata. Ekki
frekar en plötur múm, sem í
upphafi léku sér að minnum
úr barnæsku og máluðu
upp sakleysislegar og ang-
urværar myndir. Upp-
hafslag plötunnar, „Bjóðum bjartan
hljóm“, ber t.d. með sér þjóðlaga- og
vögguvísusnið Róms á meðan
„Lirfulag“ myndi vissulega smell-
passa inn á einhverja barnaplötuna,
er einfaldlega þannig í sniðinu. Í
þriðja laginu er svo aftur breytt um
kúrs, fullorðinslendur taka við og
lagið rúllar eins og eitthvað úr ranni
Belle & Sebastian eða Joönnu New-
som. Restin af plötunni er aðallega í
þessum síðastnefnda gír; dansar á
mörkum neðanjarðar- og nútíma-
tónlistar, með viðkomu í næfum
þjóðlagalendum þar sem tilveran er
í senn falleg, dulúðug og ævin-
týraleg.
Í janúar var Inga Björk gestur í
Popplandi á Rás 2, hvar Lovísa Rut
Kristjánsdóttir ræddi við hana og í
maí spjallaði hún við Sigurlaugu M.
Jónasdóttur í Segðu mér á Rás 1. Í
báðum þáttum reifaði hún hvernig
aðkoma hennar að tónlistarmeðferð-
inni sem hún vinnur við undirstingur
tónlistina sem hún semur á svo
margvíslegan hátt. Tónlistin bankar,
virðist vera, harkalega í Ingu um
þessar mundir, vill að hún semji sig
og sem einslags kitlur að Blæ &
stillu komu smáskífurnar Straumur
og Skammdegi út í fyrra. Þá ber að
minnast á vefsíðu Ingu (inga-
bjork.com) hvar hægt er að finna
ýmsan fróðleik um aðkomu hennar
að hinum ýmsu verkefnum. Trausti
Dagsson hefur þar ofið glæsilegan
vef sem er í fullkomnum samhljómi
við listrænar eigindir Ingu, hálfgert
ævintýraland þar sem allt virðist
mögulegt, rétt eins og á sjálfri plöt-
unni. Hana er svo hægt að kaupa á
vínyl og nálgast á Bandcamp (inga-
bjork.bandcamp.com).
»
... dansar á mörk-
um neðanjarðar-
og nútímatónlistar,
með viðkomu í næfum
þjóðlagalendum þar
sem tilveran er í senn
falleg, dulúðug og
ævintýraleg.
Inga Björk Ingadóttir,
lýru- og hörpuleikari,
söngkona, tónskáld
og margt fleira tekur
markviss skref fram
á við á plötu sinni
Blær & stilla.
Fjölhæf Ingu Björk
er margt til lista lagt.
Sýningin Nokkuð þægilegt / Kinda
verður opnuð í dag kl. 16 í Gallery
Porti. Þar sýna hjónin Óskar Hall-
grímsson og Ma Riika verk sem þau
hafa ofið. Titill sýningarinnar vísar
til mýktar efniviðarins, ullar og
akrýls, og eru verkin handsaumuð
teppi sem tengjast saman sem ein
sería og mynda ímyndaðan heim,
eins og segir í tilkynningu. „Teppa-
serían tekst á við það sem hefur
verið óaðgengilegt og fjarlægt okk-
ur, á þessari smitvarnaröld, sýnir
hvernig mjúk og þægileg teppi
gætu kannski komið í stað mann-
legrar snertingar,“ segir þar. Ósk-
ar er grafískur hönnuður og ljós-
myndari og Riika úkraínskur
listmálari.
Nokkuð þægilegt
Sýnendur Hjónin Óskar og Riika.
Skuggamyndir frá Býsans leika á
morgun, sunnudag, kl. 16 í Hall-
grímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði.
Eru það þriðju tónleikar sveit-
arinnar í kirkjunni og leikur hún
tónlist frá Suðaustur-Evrópu, Balk-
antónlist, sem sögð er annáluð fyrir
dulúð og tilfinningahita.
Leikin verður rjóminn af pró-
grammi Skuggamynda undanfarin
11 ár sem og nokkur íslensk þjóð-
lög í austrænum búningi. Hljóm-
sveitina skipa Haukur Gröndal, Ás-
geir Ásgeirsson, Erik Qvick og
Þorgrímur Jónsson.
Skuggamyndir frá
Býsans í Hvalfirði
Balkan Skuggamyndir frá Býsans.