Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
Á fleygiferð Riddarar götunnar um þessar mundir eru rafskútureiðmenn, sem æða um borg og bý á fleygiferð, líkt og þessi í Austurstræti í vikunni, með rettuna í munnvikinu og nokkuð svalur.
Árni Sæberg
Grunnstefna At-
lantshafsbandalagsins
hefur ekki verið endur-
skoðuð og uppfærð frá
árinu 2010, það er fjór-
um árum áður en staða
öryggismála í Evrópu
gjörbreyttist vegna
áreitis og árása Rússa
á Úkraínumenn og
ólögmætrar innlim-
unar Krímskaga í
Rússland. Unnið er því að semja
nýja grunnstefnu NATO í nafni 30
aðildarríkja bandalagsins. Höfuð-
drættir hennar liggja þegar fyrir í
skjalinu NATO 2030, sem full
ástæða er til að íslenska, og í álykt-
un ríkisoddvitafundar bandalags-
þjóðanna frá því í júní 2021.
Rússnesk stjórnvöld birtu nýja
þjóðaröyggisstefnu sína 2. júlí 2021,
44 bls. skjal sem Dmitri Trenin við
Moskvudeild Carnegie segir annað
og meira en uppfærslu á sambæri-
legu skjali frá árinu 2015, ári eftir að
allt breyttist í öryggismálum Evr-
ópu vegna atburðanna í Úkraínu. Þá
var andrúmsloftið þó þannig að
rússnesk stjórnvöld töldu aðeins um
tímabundinn núning í samskiptum
við NATO-ríkin að ræða.
Innhverf stefna
Trenin segir að árið 2015 hafi
rússneska þjóðaröryggisstefnan og
orðalag skjalsins enn borið svip af
ýmsu sem var í tísku á tíunda ára-
tugnum þegar í megindráttum var
litið á á heiminn sem sameinaða
heild. Nú svífi allt annar andi yfir
skjalinu, mikilvægustu strategísku
yfirlýsingu rússneskra stjórnvalda.
Þar sé ekki aðeins fjallað um þjóð-
aröryggismál heldur
heilmargt annað, efna-
hagsmál, umhverfismál
og gildismatið að baki
öflugum vörnum.
Skjalið sé stefnu-
yfirlýsing breyttra
tíma sem mótist af sí-
fellt meiri hörku í sam-
skiptum við Bandarík-
in og bandalagsríki
þeirra; horft sé til hefð-
bundinna rússneskra
gilda og sagt að ný
tækni og loftslagsmál
hafi úrslitaþýðingu fyrir framtíð
Rússlands. Kjarni stefnunnar snúi í
raun að Rússum sjálfum.
Við mótun þjóðaröryggisstefn-
unnar er lagt til grundvallar að upp-
nám ríki á alþjóðavettvangi. Banda-
ríkin og fylgiríki þeirra glati
yfrburðum sínum sem leiði til meiri
og alvarlegri átaka en áður. Rússar
búi við óheiðarlega samkeppni og
höft sem eigi að valda þeim tjóni.
Meiri hætta sé á valdbeitingu í sam-
skiptum þjóða en áður. Hefðbundin
gildi Rússa og söguleg afrek þeirra
séu virt að vettugi. Á heimavelli
verði Rússar að glíma við vélráð út-
lendinga sem hafi að markmiði að
grafa undan stöðugleika í þjóðlífi
þeirra. Ekki er talið að Rússar hafi
ástæðu til að óttast eitthvert eitt
ógnaratvik heldur búi þeir við lang-
varandi ógn sem valdi öryggisleysi.
Dmitri Trenin segir í greininni
sem hann birti á vefsíðu stofnunar
sinnar 6. júlí að þessi svarta grein-
ing á ástandi heimsmála og stöðu
Rússa sérstaklega leiði til þess að
þjóðaröryggisstefnan sé mjög inn-
hverf. Þar sé litið á lýðfræðilega
þróun í Rússlandi, pólitískan stöðug-
leika og fullveldi, þjóðarsátt og jafn-
vægi, efnahagslega framvindu með
nýrri tækni, vernd umhverfisins og
aðlögun að loftslagsbreytingum, síð-
ast en ekki síst sé lagt mat á and-
legan og siðferðilegan styrk þjóð-
arinnar.
Herstyrkurinn einn dugar ekki
Dregin er sú ályktun af hruni Sov-
étríkjanna fyrir 30 árum að það sé
ekki herstyrkurinn einn sem tryggi
mátt stjórnkerfis heldur innri kraft-
ur þjóðlífsins. Hernaðarlega hafi
Sovétríkin aldrei verið öflugri en
þegar þau hrundu. Þeim var ekki
ógnað af neinu erlendu ríki eða
bandalagi ríkja. Þau voru hins vegar
orðin grautfúin að innan.
Af grein Trenins má ráða að þeir
sem nú fari með völd í Rússlandi átti
sig á því að ekki dugi fyrir þá til að
halda völdum að endurhervæðast
eins og þeir hafi gert, þeir verði
einnig að fá þjóðina í lið með sér.
Þar blasi við stórverkefni eins og
dæmin sanna.
Í skjalinu er í löngu málið fjallað
um ýmis innanlandsmál. Undir hatti
þjóðaröryggis eru vaxandi fátækt,
alvara þess að vera um of háður inn-
fluttri tækni, græn orka og lofts-
lagsmál. Að rússnesk stjórnvöld við-
urkenni alvöru loftslagsbreytinga er
nýmæli. Það stafar meðal annars af
þeim vanda sem við blasir í nyrstu
héruðum landsins þegar sífreri
hverfur úr jörðu og undirstöður
margra lykilmannvirkja og
mannabústaða raskast. Afneitun
rússneskra yfirvalda á áhrifum
loftslagsbreytinga er úr sögunni.
Hver áhrif þess verða í norðri kem-
ur í ljós en áherslan á nýtingu nátt-
úruauðlinda þar og hervæðingu er
og hefur verið mikil undanfarin ár.
Í stefnuskjalinu er ekki litið fram
hjá siðrænum og siðferðilegum hlið-
um þjóðaröryggis. Birtur er listi yfir
hefðbundin rússnesk gildi og farið
mörgum orðum um þau. Því er hald-
ið fram að vestræn áhrif ógni þess-
um gildum og vestræn öfl vilji svipta
Rússa menningarlegu fullveldi sínu
fyrir utan tilraunir til að afvegaleiða
Rússa með endurritun sögunnar.
Trenin segir að inntak þessa boð-
skapar í skjalinu feli í sér fráhvarf
frá frjálsyndu viðhorfi til samskipta
við aðra sem einkenndi tíunda ára-
tuginn, þess í stað birtist ný siðræn
viðmið með rætur í gamalgrónum
hefðum þjóðarinnar. Í stefnunni sé
þó ekki vikið að meginundirrót efna-
hagslegra og félagslegra vandamála
meðal Rússa, að ráðandi öfl í landinu
setji eigin fjárhagslega hagsmuni of-
ar öllu öðru, virði ekki önnur gildi en
efnisleg. Þar skari hver eldi að eigin
köku og láti sig alls engu skipta hag
almennra borgara, allir kraftar
„nýju stéttar“ Rússlands beinist að
því að nota aðstöðu sína innan ríkis-
kerfisins til að auðgast sem mest
sjálfur. Fé – eða frekar stórfé – sé í
fyrsta sæti hjá þessum hópi og eyði-
leggjandi máttur fégræðginnar grafi
nú helst undan rússnesku samfélagi.
Þarna leynist líklega mesti veikleiki
Rússlands nútímans.
Áhrifin í norðri
Þjóðaröryggisstefnan sýnir að
Rússar ætla að „standa á eigin fót-
um“ á alþjóðavettvangi. Bandaríkin
og NATO eru í aukahlutverki. Lýst
er hollustu við Sameinuðu þjóðirnar.
Íslendingar eiga samleið með
Rússum í norðurskautsráðinu og af-
hentu þeim nýlega formennsku þar
til tveggja ára. Ætla Rússar að
„standa á eigin fótum“ þar og draga
úr samstarfi þjóðanna átta í ráðinu?
Láta Rússar eigin öryggis- og
efnahagssjónarmið ráða innan norð-
urskautsráðsins án tillits til ann-
arra? Í þjóðaröryggisstefnunni frá
2015 var rætt um „gagnkvæman hag
af alþjóðasamvinnu á norð-
urslóðum“. Nú segir í skjalinu „að
tryggja skuli hagsmuni Rússlands“
á svæðinu. Áður en Rússar tóku við
formennsku í norðurskautsráðinu
stofnuðu þeir sérstaka norður-
slóðanefnd innan rússneska þjóð-
aröryggisráðsins og áréttuðu nauð-
syn gæslu eigin hagsmuna í norðri.
Dmitríj Medvedev, fyrrverandi
forseti og forsætisráðherra Rúss-
lands, núverandi varaformaður
þjóðaröryggisráðs Rússa, sagði í
júni 2021 að rússnesk stjórnvöld
yrðu að nýta formennsku sína í
norðurskautsráðinu til að halda
fram þjóðaröryggishagsmunum sín-
um á norðurslóðum. Fjöldi ríkja
reyndi að þrengja þar að athafna-
frelsi Rússa vegna sóknar í jarð-
efnaauðlindir í Norður-Íshafi og til
að stjórna strategískum skipa- og
flugferðum á svæðinu. Þessi afskipti
útlendinga væru „algjörlega óvið-
unandi“, í þeim fælist bein ógn við
þjóðaröryggishagsmuni Rússa. Þess
vegna yrðu Rússar að „halda áfram
að styrkja norðurslóðaherinn með
nýtísku vopnabúnaði“.
Þarna fer ekkert á milli mála.
Rússar ætla að leita leiða til að nýta
norðurskautsráðið til að festa eigin
hagsmunagæslu í sessi. Það fellur að
nýrri þjóðaröryggisstefnu þeirra.
Eftir Björn
Bjarnason » Þjóðaröryggis-
stefnan sýnir
að Rússar ætla að
„standa á eigin fótum“
á alþjóðavettvangi.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Rússar trúa á mátt sinn og megin