Morgunblaðið - 23.07.2021, Blaðsíða 32
Tónlistarhátíðin Mannfólkið breytist í slím er haldin á
Akureyri í fjórða sinn í dag og á morgun. Það er lista-
kollektívið MBS sem stendur fyrir hátíðinni sem lýst er
sem óhagnaðardrifnu menningarverkefni með áherslu
á staðbundna grasrótar- og jaðarmenningu. Hátíðin er
haldin við Gúlagið, æfinga- og upptökurými MBS á
Oddeyrinni. „Flest atriðin sem koma fram í ár eru frá
Akureyri eða hafa sterka tengingu við útgáfufélagið
MBS. Markmiðið er að efla senuna á Norðurlandi í heild
með hjálp gesta sem koma annars staðar að og eru
framúrskarandi í sinni listsköpun,“ segir í tilkynningu.
Nánari upplýsingar má nálgast á Facebook-síðu MBS.
Mannfólkið breytist í slím
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 204. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Breiðablik á ágætismöguleika á að komast í þriðju um-
ferð Sambandsdeildar karla í fótbolta eftir óvænt en
verðskuldað jafntefli gegn Austria Wien í Austurríki í
gær, 1:1. Staðan er hins vegar erfið hjá bæði FH og Val
sem töpuðu heimaleikjum sínum gegn norsku liðunum
Rosenborg og Bodö/Glimt. »26
Óvænt jafntefli Blika í Vínarborg
en FH og Valur töpuðu á heimavelli
ÍÞRÓTTIR MENNING
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Sandvíkurfjara á Hauganesi við
Eyjafjörð hefur að undanförnu verið
heitur reitur og fjöldi fólks komið
þangað á hverjum degi til að sleikja
sól og svamla í sjó. Ágæt aðstaða;
búningsklefar með snyrtingu og
heitir pottar, hefur verið sett upp í
kambi fjörunnar
sem snýr mót
suðri, þar sem
nýtur sólar allan
daginn. „Senni-
lega er fjaran hér
á Hauganesi sú
eina hér á Norð-
urlandi sem snýr
móti suðri og fyr-
ir vikið eru hér
frábærar að-
stæður frá náttúrunnar hendi. Sam-
kvæmt staðháttum var farið í upp-
byggingu hér, en yfirleitt snúa
sandfjörur í þessum landshluta móti
norðri, vestri eða austri,“ segir at-
hafnamaðurinn Elvar Reykjalín.
Þorpið hefur tækifæri
Hauganes er við utanverðan
Eyjafjörð að vestan, og tilheyrir
Dalvíkurbyggð. Ríflega 100 manns
búa í þorpinu, þar sem sjávar-
útvegur hefur jafnan verið undir-
staða. Með fjölskyldu sinni á Elvar
og rekur salfiskverkunina Ektafisk
en hefur í vaxandi mæli snúið sér að
ferðaþjónustu. „Í raun hefur Hauga-
nes eðlisbreyst,“ segir Elvar. „Þetta
var sjávarpláss og er vissulega enn,
nema hvað ferðaþjónustan er komin
sterk inn. Baðstaður í fjöru, heitt
vatn, hvalaskoðun, tjaldsvæði og
veitingahús. Þetta allt hefur tekist
að virkja í eina heild sem skapar
þorpinu tækifæri.“
Byrjað var að útbúa baðaðstöðu á
Hauganesi árið 2015 sem svo hefur
verið bætt við, í takti við sífellt meiri
aðsókn. Síðustu vikur hefur raunar
verið bongóblíða á Norðurlandi sem
laðað hefur ferðamenn á svæðið og
þá kemur Hauganes sterkt inn.
„Í fyrra og nú í sumar varð
sprenging í aðsókn í Sandvíkurfjöru.
Gestir eru að stærstum hluta ís-
lenskt fjölskyldufólk, sem gjarnan
dvelst hér á tjaldsvæðinu sem hefur
verið stækkað til bráðabirgða. Nú
stendur til að bæta tjaldaðstöðuna
varanlega og ýmsar skemmtilegar
hugmyndir eru um hvað gera skuli
til eflingar ferðaþjónustu hér. Um-
sókn um deiliskipulag fyrir þá breyt-
ingu er hjá Dalvíkurbyggð en þeir
sem þar ráða eru að mér finnst já-
kvæðir í garð þróunar mála í ferða-
mannaþorpinu, eins og ég kalla
Hauganes,“ segir Elvar Reykjalín.
Sleikja sól og svamla
í sjónum á Hauganesi
- Fjara mót suðri - Baðstaður af bestu gerð - Mikil aðsókn
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Busl Heitu pottarnir á svæðinu eru fjórir og þessi er með leiktækjum.
Ljósmynd/Elvar Reykjalín
Fjaran Frá náttúrunnar hendi er frábær baðströnd á Hauganesi þangað
sem fólk hefur flykkst undanfarið til að njóta sumars og sólarblíðu.
Elvar Reykjalín