Morgunblaðið - 23.07.2021, Page 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
„ÉG FRÉTTI ÞAÐ AÐ EIGINMAÐUR ÞINN
VÆRI BÚKTALARI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... að elska gráu hárin
hennar.
DÆS
26. DESEMBER ER
NÆSTSORGLEGASTI
DAGUR ÁRSINS
DAGUR HUNDSINS
ER SORGLEGRI
HRÓLFUR RÆNDI ALEIGU OKKAROG
ÞÚ FELLIR EKKI EITT EINASTA TÁR!
ÞAÐ ER ALLT Í LAGI
AÐ GRÁTA! SJÁÐU, ÉG
GRÆT!
ÞÚ ERT EKKI MEÐ
MASKARA!
„JÆJA, TÝNDIRÐU BENSÍNLOKINU ENN
EINA FERÐINA?“
landsbanka og síðar Kaupþingi.
„Síðan árið 2010 ákvað ég að fara
aftur að þjálfa og tek enn og aftur
við mínu gamla liði, FH, og þjálfa
það í þrjú ár og við náðum að verða
Íslandsmeistarar aftur 2011. Það
var bara æðislegt að koma aftur í
handboltann.“
Kristján er einn af leikja- og
markahæstu landsliðsmönnum Ís-
lands frá upphafi og hefur skorað
1.123 mörk í 245 landsleikjum. Bæði
fjölskyldan og stórfjölskyldan eru
mjög áhugasöm um íþróttir en nú
hefur Þorgerður Katrín tekið við
boltanum í pólitíkinni. „Ég er mjög
stoltur af minni konu, enda er hún
að gera frábæra hluti. Það sem ég
hef lært í gegnum árin er að njóta
ferðalagsins, því lífið er núna og
ekkert hægt að bíða með það.“
Fjölskylda
Eiginkona Kristjáns er Þorgerð-
ur Katrín Gunnarsdóttir, f. 4.10.
1965, alþingsmaður og þau hafa
alltaf búið í Hafnarfirði nema þegar
þau bjuggu í Þýskalandi og á Spáni.
Foreldrar Þorgerðar eru hjónin
Gunnar H. Eyjólfsson leikari, f.
24.2. 1926, d. 21.11. 2016, og Guð-
ríður Katrín Arason fulltrúi, f.
12.12. 1926. Börn Kristjáns og Þor-
gerðar eru Gunnar Ari íþróttafræð-
ingur, f. 4.12. 1995; Gísli Þorgeir,
atvinnumaður í handknattleik, f.
30.7. 1999, og Katrín Erla nemi, f.
22.7. 1999. Systkini Kristjáns eru
Örn, f. 13.4. 1951; Erla, f. 29.5.
1953; Gísli Sigurður, f. 17.12. 1956,
d. 15.7. 1997; Kristjana, f. 23.6.
1959, og Arndís, f. 11.9. 1966.
Foreldrar Kristjáns eru hjónin
Ari Magnús Kristjánsson skipstjóri,
f. 15.1 1922, d. 7.8. 2001, og Hulda
Júlíana Sigurðardóttir verslunar-
maður, f. 30.7. 1929. Þau bjuggu öll
sín hjúskaparár í Hafnarfirði.
Kristján
Arason
Sigríður Beinteinsdóttir
húsfreyja í Gíslahúsi í Hafnarfirði
Gísli Bjarnason
húsbóndi í Gíslahúsi í Hafnarfirði
Gíslína Sigurveig Gísladóttir
húsfreyja í Hafnarfirði
Sigurður Árnason
kaupmaður í Hafnarfirði
Hulda Júlíana
Sigurðardóttir
verslunarkona í Hafnarfirði
Júlíana Guðmundsdóttir
vinnuk. víða, síðast húsfreyja á
Glaumbæ, Holtastaðasókn, Hún.
Árni Sigurðsson
sjómaður á Skagaströnd, drukknaði.
Guðmundína Magnúsdóttir
húsfreyja í Fremrihúsum í Arnardal
Guðmundur Helgi Kristjánsson
sjómaður í Arnardal
Kristjana Guðmundsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Kristján Einarsson
bóndi í Efstadal og á Hjöllum í Ögurhreppi, N-Ís.
Jónína Jónsdóttir
frá Steingrímsfirði, bús. á Ísafirði
Einar Bjarnason
trésmiður á Reykjarfirði og Ísafirði
Úr frændgarði Kristjáns Arasonar
Ari Magnús Kristjánsson
sjómaður og síðar
verslunarmaður í
Hafnarfirði
Hallmundur Guðmundsson orti
„Sumarljóð“ á þriðjudag og
birti á Boðnarmiði:
Þegar uppi eldar sól
hún alltaf fylgir stefinu;
að verma tinda, bala og ból
og brenna mig á nefinu.
Guðmundur Arnfinnsson yrkir
um „vandræðagepil“:
Hún Gróa var bitin af bjöllu
í boði hjá Svenna og Höllu.
Samkvæmt venju hún var
til vandræða þar
með nefið niðri í öllu.
Magnús Halldórsson bætir við:
Hann virtist að sönnu til verka fús
í veislu og þáði hið sterka djús.
Mjög raunar brá,
er Mikka þar sá.
En taldi hann samt nokkuð merka mús.
Enn yrkir Guðmundur og nú um
„afdrifaríkan koss“:
Það varð angist og uppnám hjá konum
og ekki nema að vonum,
þegar filmstjarna ein
kyssti afgamla Svein
og andlitið datt af honum.
Helgi Ingólfsson yrkir:
Já, það gerðist með Gróu hans Flosa,
sem glögglega hætt er að brosa.
Ein nösin er snúin
og nú er hún, frúin,
með nef sem að passar á Gosa.
Friðrik Steingrímsson er holl-
ráður:
Far’í rúmið fljóð og menn,
fljót er nótt að líða,
veiruskrattinn er víst enn
út um landið víða.
Sigrún Haraldsdóttir yrkir og
kallar „Huggun harmi gegn“:
Burt þótt gamlir vinir víki
vertu óbogin,
treysta því að trauðla svíki
trygga einsemdin.
Enn yrkir Sigrún og nú við mynd
af hjónum þar sem þau krjúpa við
hreindýr sem þau hafa fellt:
Eftir hlaup um mel og mýri
marga tíma í senn,
krjúpa yfir dánu dýri
drýldnir veiðimenn.
Björn Ingólfsson skrifar: „Á
morgungöngunni ýtti blómstruð
planta við óvirkum heilasellum.
Það leiddi til mjög óhagstæðs sam-
anburðar“:
Vex á stalli vallhumall
væn og falleg planta.
Úti að lalla er lotinn kall
ljótur á alla kanta.
Halldór Guðlaugsson bætir við:
Meðan kallinn fer á fjall
fljótt þó halli æfi
getur brallað bögur snjall
Björn, við allra hæfi.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Merk mús og nefið á Gosa