Morgunblaðið - 23.07.2021, Qupperneq 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bakverðir Alfons Sampsted, hægri bakvörður Bodö/Glimt, og Johannes Vall,
vinstri bakvörður Vals, tókust oft á um boltann á Hlíðarenda í gærkvöld.
EVRÓPUKEPPNI
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Breiðablik á raunhæfa möguleika á
sæti í þriðju umferð Sambandsdeild-
ar Evrópu í fótbolta eftir óvænt en
verðskuldað jafntefli gegn gamla
stórveldinu Austria Wien á Viola-
leikvanginum í Vínarborg í gær, 1:1.
Að sama skapi eru möguleikar FH
og Vals á að komast í þriðju umferð-
ina ákaflega litlir eftir ósigra gegn
norsku liðunum á heimavelli í gær-
kvöld. FH tapaði 0:2 fyrir Rosenborg
í Kaplakrika og Valur tapaði 0:3 fyrir
Bodö/Glimt á Hlíðarenda þannig að
yfirburðir norskra liða gegn íslensk-
um í Evrópukeppni halda áfram.
Seinni leikir liðanna verða næsta
fimmtudag þegar Austria Wien
mætir á Kópavogsvöll en Valur og
FH fara til Bodö og Þrándheims.
Betri á löngum köflum
Frammistaða Breiðabliks í Vínar-
borg í gær var frábær. Yfirleitt þurfa
íslensk lið að verjast með kjafti og
klóm gegn liðum sem eiga að vera
sterkari en þau í Evrópuleikjum en
það var alls ekki uppi á teningnum í
Austurríki.
Blikar voru betri aðilinn á löngum
köflum í leiknum og fengu betri færi
en Austurríkismennirnir. Patrick
Pantz í marki Austria varði mjög vel
frá Damir Muminovic strax á 6. mín-
útu og frá Viktori Karli Einarssyni
undir lok fyrri hálfleiks.
Þá hefði Gísli Eyjólfsson hæglega
getað fengið vítaspyrnu strax á 14.
mínútu leiksins en færeyski dóm-
arinn, Kári á Hövdanum, var ekki
tilbúinn til að benda á vítapunktinn.
Ekki var annað að sjá í sjónvarps-
útsendingunni en að um hreina víta-
spyrnu væri að ræða.
Blikarnir þorðu að spila boltanum
í Vín í gær og gerðu það vel, ekki síð-
ur en oft í deildinni hér heima. Þeir
pressuðu líka mótherjana ítrekað af
krafti á þeirra vallarhelmingi og
uppskáru einmitt mark sitt á þann
hátt. Sennilega komu þeir Austur-
ríkismönnunum talsvert í opna
skjöldu með djarfri spilamennsku
sinni og lýsandanum í sjónvarps-
útsendingunni sem undirritaður
fylgdist með varð tíðrætt um að
Breiðablik væri langt frá því að vera
dæmigert íslenskt lið.
Blikar kunna greinilega vel við sig
í Austurríki. Þeir unnu þar frækinn
sigur á Sturm Graz, 1:0, árið 2013 og
fylgdu því eftir með jafnteflinu í gær.
Við eigum fyrir höndum heldur bet-
ur áhugaverða viðureign á Kópa-
vogsvellinum næsta fimmtudags-
kvöld.
_ Alexander Helgi Sigurðarson
skoraði sitt fyrsta mark í Evrópu-
keppni þegar hann jafnaði fyrir
Breiðablik á 47. mínútu eftir
skemmtilegan samleik við Árna Vil-
hjálmsson.
_ Hlutfall Breiðabliks í Evrópu-
leikjum batnar enn. Liðið er með sex
sigra, fimm jafntefli og sjö töp í átján
Evrópuleikjum til þessa.
_ Sigurliðið í þessu einvígi mætir
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Kaplakriki Hólmar Örn Eyjólfsson, miðvörður hjá Rosenborg, hélt marki
sínu hreinu gegn Steven Lennon og samherjum hans í liði FH-inga.
væntanlega Aberdeen frá Skotlandi
sem vann stórsigur á Häcken frá Sví-
þjóð, 5:1, í gærkvöld.
Noregsmeistararnir mun betri
Noregsmeistarar Bodö/Glimt hafa
fengið mikið lof fyrir góðan fótbolta
undanfarin tvö ár þar sem þeir hafa
tekið norsku úrvalsdeildina með
trompi og þeir sýndu oft skemmtileg
tilþrif í 3:0-sigrinum á Val á Hlíð-
arenda í gær.
Valsmenn áttu þó að gera betur en
þetta á heimavelli en þeir voru
óheppnir að skora ekki undir lokin
þegar Arnór Smárason átti m.a.
hörkuskot í þverslá.
„Það er ákveðin lægð yfir Vals-
mönnum og Íslandsmeistararnir eru
búnir að tapa fjórum leikjum í röð í
öllum keppnum. Þótt það þurfi ekki
að skammast sín fyrir tap á móti
sterkum liðum í Evrópu, hefur
frammistaða Vals í sumar ekki verið
sérstök.
Valsmenn léku illa í kvöld og illa á
móti ÍA í síðasta deildarleik. Það hef-
ur dugað Valsmönnum ágætlega
hingað til í sumar að leika í besta falli
þokkalega. Liðið er nægilega vel
mannað til að vinna flest lið á Íslandi,
án þess að eiga sinn besta leik. Það
dugar hins vegar skammt í erfiðum
leikjum í Evrópukeppni,“ skrifaði
Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. í grein
um leikinn á mbl.is.
_ Alfons Sampsted lék allan leik-
inn í stöðu hægri bakvarðar hjá
Bodö/Glimt.
_ Bodö/Glimt á væntanlega fyrir
höndum einvígi við Prishtina frá Kó-
sóvó í þriðju umferð. Prishtina vann
Connah’s Quay frá Wales 4:1 í fyrri
leik liðanna.
FH nýtti ekki færin
Rosenborg á alla möguleika á að
slá íslenskt lið út í sjötta sinn, og í
fimmta sinn á ellefu árum, eftir sig-
urinn á FH í Kaplakrika, 2:0.
FH-ingar fengu þó fínustu mark-
tækifæri til þess að fara með hag-
stæðari úrslit í seinni leikinn í
Þrándheimi en með tveggja marka
forskot á bakinu er staða Rosenborg
afar sigurstrangleg.
„Hafnfirðingar þurfa að treysta á
aðra eins frammistöðu og í kvöld
ásamt því að nýta færin mun betur.
Hægara sagt en gert, sér í lagi þar
sem eldsnöggir og flinkir sókn-
armenn Rosenborg sýndu hvað þeir
gátu er líða fór á leikinn í kvöld og
FH-ingar hófu að þreytast. Þeir hafa
þó trú á verkefninu og mega gera
það,“ skrifaði Kristófer Kristjánsson
m.a. í grein um leikinn á mbl.is.
_ Hólmar Örn Eyjólfsson lék í
vörn Rosenborg allan tímann. Hann
hefur nú tvisvar leikið með liðinu hér
á landi en Hólmar spilaði einnig gegn
KR í Vesturbænum árið 2015. Þá
fagnaði hann 1:0-sigri.
_ André Hansen, sem varði mark
KR árið 2009, var FH-ingum erfiður
og varði glæsilega úr dauðafærum
sem þeir fengu.
_ Sigurliðið úr einvígi FH og Ros-
enborg mætir Domzale frá Slóveníu
eða Honka frá Finnlandi. Fyrri leik-
ur þeirra í Slóveníu endaði 1:1.
Blikar í bestu stöðunni
- Frábær frammistaða Breiðabliks gegn Austria - Alexander jafnaði í Vín
- FH og Valur eiga litla möguleika eftir töp gegn norsku liðunum á heimavelli
AUSTRIA – BREIÐABLIK 1:1
1:0 Marco Djuricin 32.
1:1 Alexander Helgi Sigurðarson 47.
Dómari: Kári á Hövdanum, Færeyjum.
Áhorfendur: 6.015.
FH – ROSENBORG 0:2
0:1 Carlo Holse 61.
0:2 Dino Islamovic 71.
Dómari: Filip Glova, Slóvakíu.
Áhorfendur: 605.
VALUR – BODÖ/GLIMT 0:3
0:1 Ulrik Saltnes 40.
0:2 Patrick Berg 52.(v)
0:3 Patrick Berg 55.
Dómari: Vitor Ferreira, Portúgal.
Áhorfendur: 623.
Ljósmynd/Kristinn Steinn Traustason
Skoraði Alexander Helgi Sigurðarson jafnaði metin fyrir Breiðablik gegn
Austria Wien í gær með laglegu marki í byrjun síðari hálfleiks.
Lengjudeild karla
Fjölnir – Þróttur R................................... 3:1
Staðan:
Fram 12 10 2 0 34:10 32
ÍBV 12 7 2 3 21:12 23
Kórdrengir 12 6 4 2 19:14 22
Grindavík 12 5 5 2 24:22 20
Fjölnir 13 6 2 5 17:15 20
Vestri 12 6 1 5 18:22 19
Grótta 12 5 2 5 23:20 17
Þór 12 4 4 4 25:20 16
Afturelding 12 4 4 4 27:24 16
Selfoss 12 2 3 7 19:28 9
Þróttur R. 13 2 1 10 22:33 7
Víkingur Ó. 12 0 2 10 15:44 2
2. deild karla
Þróttur V. – Njarðvík............................... 0:0
Reynir S. – Haukar .................................. 0:0
Staðan:
Þróttur V. 13 8 4 1 29:11 28
Njarðvík 13 5 7 1 27:13 22
KV 12 6 4 2 24:16 22
KF 12 6 2 4 23:17 20
Völsungur 12 6 2 4 25:24 20
Haukar 13 5 4 4 28:24 19
ÍR 12 4 4 4 23:21 16
Reynir S. 13 4 4 5 22:24 16
Magni 12 3 5 4 22:25 14
Leiknir F. 12 4 0 8 17:30 12
Kári 12 1 3 8 15:28 6
Fjarðabyggð 12 0 5 7 6:28 5
3. deild karla
Ægir – Elliði ............................................. 4:1
Staðan:
Höttur/Huginn 13 9 2 2 20:13 29
Ægir 13 6 5 2 22:13 23
KFG 12 6 4 2 19:15 22
Augnablik 12 6 3 3 27:18 21
Elliði 13 7 0 6 29:21 21
Sindri 13 5 3 5 24:20 18
Dalvík/Reynir 12 5 2 5 23:17 17
Víðir 12 3 4 5 18:22 13
KFS 12 4 1 7 16:28 13
ÍH 12 2 5 5 17:28 11
Tindastóll 12 2 4 6 22:25 10
Einherji 12 2 1 9 15:32 7
Sambandsdeild karla
2. umferð, fyrri leikir:
Hammarby – Maribor ............................. 3:1
- Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með
Hammarby.
Elfsborg – Milsami Orhei ....................... 4:0
- Hákon Rafn Valdimarsson var vara-
markvörður hjá Elfsborg.
Molde – Servette...................................... 2:0
- Björn Bergmann Sigurðarson var vara-
maður hjá Molde og kom ekki við sögu.
Dinamo Batumi – BATE Borisov .......... 0:1
- Willum Þór Willumsson hjá BATE er frá
keppni vegna meiðsla.
Riga – Shkëndija...................................... 2:0
- Axel Óskar Andrésson hjá Riga er frá
keppni vegna meiðsla.
Köbenhavn – Torpedo Zhodino............. 4:1
- Hákon Arnar Haraldsson var ekki í leik-
mannahópi Köbenhavn.
Gent – Vålerenga..................................... 4:0
- Viðar Örn Kjartansson hjá Vålerenga er
frá keppni vegna meiðsla.
Larne – AGF............................................. 2:1
- Jón Dagur Þorsteinsson fór meiddur af
velli hjá AGF á 48. mínútu.
Aberdeen – Häcken................................. 5:1
- Oskar Tór Sverrisson lék allan leikinn
með Häcken en Valgeir Lunddal Friðriks-
son var varamaður og kom ekki við sögu.
Valur – Bodö/Glimt................................. 0:3
- Alfons Sampsted lék allan leikinn með
Bodö/Glimt.
FH – Rosenborg....................................... 0:2
- Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Rosenborg.
Austria Wien – Breiðablik ....................... 1:1
Ararat Jerevan – Slask Wroclaw............ 2:4
Astana – Aris Saloniki.............................. 2:0
Panevezys – Vojvodina Novi Sad............ 0:1
KuPS Kuopio – Vorskla Poltava ............. 2:2
Olimpija Ljubljana – Birkirkara............. 1:0
Sotsjí – Keshla .......................................... 3:0
Qarabag – Ashdod.................................... 0:0
RFS Riga – Puslás Academica................ 3:0
Dinamo Tbilisi – Maccabi Haifa.............. 1:2
Dudelange – Bohemians.......................... 0:1
AEL Limassol – Vllaznia......................... 1:0
Apollon Limassol – Zilina ........................ 1:3
Petrocub – Sivasspor ............................... 0:1
Gzira United – Rijeka .............................. 0:2
Laci – Universitatea Craiova .................. 1:0
Lokomotiv Plodiv – Slovacko .................. 1:0
CSKA Sofia – Liepaja.............................. 0:0
Spartak Trnava – Sepsi ........................... 0:0
Suduva – Raków Czestochówa................ 0:0
Teuta Durres – Inter d’Escaldes............ 0:2
Viktoria Plzen – Dinamo Brest ............... 2:1
Arda Kardzhali – Hapoel Beer Sheva .... 0:2
HB Þórshöfn – Buducnost Podgorica .... 4:0
Shkupi – Santa Clara ............................... 0:3
Basel – Partizani Tirana .......................... 3:0
FCSB – Shakhter Karagandy................. 1:0
Velez Mostar – AEK Aþena .................... 2:1
Sutjeska – Maccabi Tel Aviv ................... 0:0
Hibernian – Santa Coloma ...................... 3:0
Linfield – Borac Banja Luka................... 4:0
Drita – Feyenoord.................................... 0:0
Dundalk – Levadia Tallinn ...................... 2:2
Hajduk Split – Tobol Kostanay............... 2:0
Partizan Belgrad – Dunajska Streda ..... 1:0
Pogon Szczecin – Osijek .......................... 0:0
Újpest – Vaduz ......................................... 2:1
Shakhtyor Soligorsk – Fola Esch........... 1:2
4.$--3795.$