Morgunblaðið - 23.07.2021, Page 27
SVÍÞJÓÐ
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Þetta gerðist frekar hratt. Ég
heyrði af áhuganum fyrir þremur
vikum síðan,“ sagði Guðrún Arn-
ardóttir, landsliðskona í fótbolta, í
samtali við Morgunblaðið. Miðvörð-
urinn samdi í gær við sænska stór-
liðið Rosengård til tveggja ára eftir
þrjú ár hjá Djurgården. Hún var
enn samningsbundin Djurgården og
þurfti Rosengård því að kaupa Guð-
rúnu, en hún fær treyju númer 3 hjá
nýja liðinu.
„Félögin þurftu að tala saman því
ég var enn samningsbundin Djur-
gården. Þau þurftu að komast að
samkomulagi sín á milli og því þurfti
ég að bíða eftir að það gengi í gegn.
Þegar það tókst þá gekk þetta frek-
ar hratt,“ sagði Guðrún.
Sterkt á Evrópumælikvarða
Hún er spennt fyrir því að spila
með liði sem hefur orðið sænskur
meistari ellefu sinum og þar af sex
sinnum frá árinu 2010. Á sama tíma
hefur Rosengård þrívegis orðið bik-
armeistari.
„Þetta er mjög spennandi. Þetta
er toppklúbbur og búinn að vera það
í nokkur ár. Liðið er að spila í Meist-
aradeildinni og er að standa sig vel á
evrópskan mælikvarða líka, ekki
bara í sænsku deildinni. Þetta er
mjög gott tækifæri fyrir mig til að
bæta mig, þetta er liðið og umhverf-
ið til þess. Ég hef alltaf verið í botn-
baráttunni með Djurgården, sem
hefur stundum verið erfitt. Það segir
sig sjálft að þegar maður fer í topp-
lið er meiri samkeppni og erfiðara að
komast í liðið. Að sama skapi getur
það gert mann betri líka. Þessi sam-
keppni, að þurfa að sanna sig á
hverjum einasta degi og æfa með
betri leikmönnum. Þetta er frábært
tækifæri,“ sagði hún.
Rosengård komst fimm sinnum í
átta liða úrslit Meistaradeildarinnar
á árunum 2011-2017 og er markmið
liðsins ávallt að verða meistari og
gera vel í Meistaradeildinni.
„Það er markmiðið hjá þeim sem
er mjög heillandi. Það er gaman að
geta komið inn í klúbb sem er með
svona háleit markmið, sem eru samt
sem áður raunhæf. Þetta er frábært
tækifæri fyrir mig og ég held þetta
sé líka rétta skrefið. Ég er búin að
vera í Djurgården í tvö og hálft ár og
það verður gott að breyta aðeins til
og takast á við nýjar áskoranir.“
Fyllir skarð Glódísar
Guðrúnu er ætlað að fylla það
skarð sem Glódís Perla Viggósdóttir
skilur eftir sig en Glódís gekk á dög-
unum í raðir Bayern München eftir
fimm tímabil hjá Rosengård.
„Það er stórt skarð að fylla í,
skarðið hennar Glódísar. Ég mun
reyna allt hvað ég get til að komast í
byrjunarliðið og spila. Ég get ekki
einbeitt mér of mikið að því sem var
áður, heldur bara að því sem ég get
gert,“ sagði Guðrún, sem ráðfærði
sig ekki við Glódísi áður en hún
samdi við félagið. „Ég gerði það
ekki. Hún var í raun og veru farin
frá félaginu en ég hef rætt við hana
áður um lífið og aðstæður í Rosen-
gård. Ég heyrði líka í henni í dag og
hún er spennt fyrir þessu líka.“
Fyrsta árið erfitt
Miðvörðurinn lék 98 úrvalsdeild-
arleiki með Breiðabliki og 12 B-
deildarleiki með Selfossi áður en
hún gerðist atvinnumaður árið 2019.
Hún viðurkennir að það hafi verið
erfitt fyrst um sinn, en síðustu tvö
ár hafi verið góð.
„Fyrsta árið, 2019, ég var ekki
sátt við það. Ég var hvorki sátt við
það hjá liðinu né mér persónulega.
Mér fannst ekki ganga vel en í fyrra
tókst mér að komast aftur á rétta
braut. Ég held ég geti verið ánægð
með frammistöðuna hjá mér árin
2020 og 2021. Það var ekki góð
stemning í liðinu árið 2019 sem
gerði þetta erfitt að mörgu leyti.
Það er alltaf tilbreyting að fara í
nýtt lið í nýju landi. Það voru líka
önnur atriði árið 2019 sem voru ekki
í toppstandi sem höfðu einnig áhrif,
en síðan þá hefur þetta verið gott,“
sagði Guðrún Arnardóttir, sem hef-
ur leikið ellefu A-landsleiki fyrir Ís-
land.
Rosengård er sem stendur í topp-
sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með
32 stig, sex stigum á undan Häcken.
Deildin er í fríi þar sem sænska
landsliðið er á Ólympíuleikunum í
Tókýó. Ljóst er að liðið mætir nokk-
uð breytt til leiks þegar deildin hefst
á ný um miðjan ágúst.
Ásamt Glódísi eru sænsku lands-
liðskonurnar Nathalie Björn og
Anna Anvegård farnar frá félaginu,
en þær fóru til Everton á Englandi.
Þá fór þjálfarinn Jonas Eidvall til
Arsenal. Í þeirra stað hefur félagið
samið við dönsku landsliðskonuna
Frederikke Thøgersen og sænsku
landsliðskonuna Loreta Kullashi
ásamt Guðrúnu.
Liðið og umhverfið til
þess fallið að bæta mig
- Guðrún komin í stórlið Rosengård - Fer úr botnbaráttunni í toppbaráttuna
AFP
Stórlið Guðrún Arnardóttir í leik með íslenska landsliðinu. Hún er komin í
eitt af sterkari liðum Evrópu eftir félagaskiptin yfir í Rosengård.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
Knattspyrnukonan María Cathar-
ina Ólafsdóttir Gros er gengin til
liðs við skoska félagið Celtic en hún
hefur undanfarin ár leikið með
uppeldisfélagi sínu, Þór/KA. María
hefur skrifað undir tveggja ára
samning við Celtic sem varð í öðru
sæti í Skotlandi síðasta vetur,
þremur stigum á eftir meistaraliði
Glasgow City. Þótt María sé ekki
nema átján ára hefur hún spilað 38
leiki í úrvalsdeildinni með Þór/KA
og skorað í þeim fjögur mörk. Hún
hefur leikið 24 leiki með yngri
landsliðum Íslands.
María komin til
liðs við Celtic
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
Celtic María Catharina Ólafsdóttir
Gros er farin til Skotlands.
Fjölnismenn lyftu sér í gærkvöldi
upp í fimmta sætið í 1. deild karla í
knattspyrnu með því að sigra Þrótt
úr Reykjavík, 3:1, í Grafarvogi. Jó-
hann Árni Gunnarsson skoraði eftir
hálftíma leik og Michael Bakare
bætti við öðru marki í lok fyrri hálf-
leiks. Sigurpáll Melberg Pálsson
skoraði þriðja markið á 55. mínútu
en fékk síðan rauða spjaldið seinna
í leiknum. Þróttarar náðu að klóra í
bakkann í uppbótartíma leiksins
þegar Baldur Hannes Stefánsson
minnkaði muninn í 3:1 úr víta-
spyrnu.
Fjölnir nálgast
efstu liðin
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mark Jóhann Árni Gunnarsson
skoraði fyrir Fjölni gegn Þrótti.
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Lengjudeildin:
SaltPay-völlur: Þór – Grótta .................... 18
Hásteinsvöllur: ÍBV – Grindavík ............. 18
Domusnovav.: Kórdrengir – Aftureld 19.15
Ólafsvíkurv.: Víkingur Ó. – Fram.... frestað
2. deild karla:
Húsavík: Völsungur – Fjarðabyggð ... 19.15
GOLF
Annar keppnisdagur af þremur á Íslands-
móti golfklúbba, efstu deild karla og
kvenna, er í dag en keppt er á Hlíðavelli í
Mosfellsbæ og Korpúlfsstaðavelli.
Í KVÖLD!
Norðurlandamót U20 karla
Svíþjóð – Ísland .................................... 80:76
Norðurlandamót U20 kvenna
Svíþjóð – Ísland .................................... 45:55
>73G,&:=/D
Vináttulandsleikur kvenna
Frakkland – Svartfjallaland................ 32:31
E(;R&:=/D
Guðmundur
Ágúst Krist-
jánsson, Har-
aldur Franklín
Magnús og
Bjarki Pétursson
léku í gær fyrsta
hringinn á Itali-
an Challenge-
mótinu í golfi í
Fubine á Ítalíu.
Mótið er hluti af
Áskorendamótaröðinni.
Guðmundur lék best Íslending-
anna eða á 71 höggi, á pari. Hann
er í 53.-82. sæti ásamt 29 öðrum
kylfingum.
Haraldur Franklín Magnús lék á
72 höggum, einu höggi yfir pari.
Hann er í 83.-99. sæti ásamt þó
nokkrum kylfingum. Loks lék
Bjarki Pétursson á 74 höggum,
þremur höggum yfir pari. Bjarki er
í 110.-129. sæti af 156 keppendum.
Englendingurinn Nathan Kimsey
er efstur eftir fyrsta hringinn á sex
höggum undir pari. Annar hring-
urinn verður leikinn í dag.
Guðmundur
lék best í gær
Guðmundur Ágúst
Kristjánsson
Bandaríkin
Inter Miami – New England................... 0:5
- Arnór Ingvi Traustason skoraði tvö
marka New England og lék allan leikinn.
New York City – CF Montréal ............... 1:0
- Guðmundur Þórarinsson lék í 83 mín-
útur með New York en Róbert Orri Þor-
kelsson var ekki í hópi Montréal.
Svíþjóð
B-deild:
Helsingborg – Värnamo ......................... 2:3
- Böðvar Böðvarsson lék allan leikinn með
Helsingborg.
Ólympíuleikar
Karlar, A-riðill:
Mexíkó – Frakkland................................. 4:1
Japan – Suður-Afríka............................... 1:0
Karlar, B-riðill:
Nýja-Sjáland – Suður-Kórea .................. 1:0
Hondúras – Rúmenía ............................... 0:1
Karlar, C-riðill:
Egyptaland – Spánn................................. 0:0
Argentína – Ástralía ................................ 0:2
Karlar, D-riðill:
Fílabeinsströndin – Sádi-Arabía............. 2:1
Brasilía – Þýskaland ................................ 4:2
_ Richarlison skoraði þrennu fyrir Brasilíu
á fyrsta hálftíma leiksins.
2. deild kvenna
Fram – Álftanes........................................ 3:0
Staðan:
FHL 9 8 0 1 43:12 24
Völsungur 9 7 1 1 22:10 22
KH 8 7 0 1 30:5 21
Fram 9 7 0 2 26:11 21
Fjölnir 8 5 1 2 32:10 16
Sindri 8 4 0 4 18:19 12
Hamrarnir 9 3 2 4 21:19 11
ÍR 8 3 1 4 17:19 10
Hamar 8 2 3 3 14:18 9
Einherji 9 1 3 5 7:19 6
SR 8 1 1 6 15:20 4
Álftanes 9 1 0 8 6:19 3
KM 8 0 0 8 1:71 0
KNATTSPYRNA
Sundfólkið Snæfríður Sól Jórunn-
ardóttir og Anton Sveinn McKee
verða fánaberar Íslands á setning-
arhátíð Ólympíuleikanna sem fer
fram í Tókýó í Japan í dag og hefst
klukkan 11 að íslenskum tíma.
Nú verða fánaberar í fyrsta
skipti tveir frá hverju landi, kona
og karl, en til þessa hefur einn
fánaberi farið fyrir hópi hverrar
þjóðar. Ísland er fremst þjóða í jap-
anska stafrófinu og íslenska sveitin
gengur því inn þriðja á eftir Grikkj-
um og sveit flóttamanna.
Snæfríður og Anton eru tvö af
þeim fjórum sem keppa fyrir Ís-
lands hönd á leikunum. Hin eru Ás-
geir Sigurgeirsson, sem keppir í
skotfimi, og Guðni Valur Guðnason
sem keppir í kringlukasti.
Ásgeir keppir fyrstur Íslending-
anna á leikunum á morgun, en
keppni í 10 metra loftskammbyssu
hefst klukkan fjögur í nótt að ís-
lenskum tíma. Komist Ásgeir í úr-
slitakeppnina heldur hann áfram
keppni klukkan hálfsjö.
Snæfríður Sól keppir síðan á
mánudag í 200 metra skriðsundi,
Anton Sveinn McKee á þriðjudag í
200 metra bringusundi og Snæfríð-
ur keppir aftur á miðvikudag í 100
metra skriðsundi. Guðni Valur
keppir síðastur Íslendinganna en
undankeppnin í kringlukastinu fer
fram á föstudaginn kemur.
Ljósmynd/ÍSÍ
Tókýó Snæfríður Sól Jórunnardóttir og Anton Sveinn McKee bera fánann.
Snæfríður og Anton
bera íslenska fánann