Morgunblaðið - 23.07.2021, Síða 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 2021
S: 555 0800 · Fornubúðum 12 · Hafnarfirði · sign@sign.is · facebook.com/signskart
WWW. S I G N . I S
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég valdi þessi verk af því ég er
mjög hrifinn af þessum tónskáldum,“
segir bandaríski píanóleikarinn
Andrew J. Yang sem mun leika verk
eftir Brahms og Liszt á tónleikum í
Hallgrímskirkju í Saurbæ í Hvalfirði
á sunnudag, 25. júlí, kl. 16. Tónleik-
arnir eru hluti af sumartónleikaröð í
kirkjunni. Þar verða tónleikar á
hverjum sunnudegi til og með 15.
ágúst.
Brahms og Liszt andstæður
Á tónleikunum á sunnudag mun
Yang leika sex verk eftir Johannes
Brahms (1833-1897) og Sónötu í b-
moll eftir Franz Liszt (1811-1866).
Yang segir að þrátt fyrir að
Brahms og Liszt hafi verið sam-
tímamenn og báðir starfað í Þýska-
landi hafi þeir verið afar ólíkir. Þeir
séu vissar andstæður og hafi ekki
verið hrifnir hvor af öðrum. „Þegar
Brahms heyrði Liszt-sónötuna sofn-
aði hann. Í Þýskalandi á þessum tíma
voru í raun tvennar herbúðir; fylgj-
endur Brahms og fylgjendur Liszts.
Tónskáldin tvö eru þó á vissan hátt
tengd í gegnum Schumann. Hann
var lærifaðir Brahms og líkaði líka
vel við Liszt. Liszt tileinkaði Schu-
mann meira að segja sónötuna. Svo
það er mikil tenging þar,“ segir
hann.
„Þessi sex verk eftir Brahms sem
ég mun spila innihalda djúpar tilfinn-
ingar en samt á klassískan hátt. En í
Liszt-verkinu, sem er 30 mínútur af
ótruflaðri tónlist, er risastór sögu-
bogi þar sem hann reynir að ná utan
um mannlega tilveru. Þannig að ég
hef sett þá saman sem andstæður en
líka með vissum tengslum.“
Búsettur á Patreksfirði
Yang er fæddur og uppalinn í Kali-
forníu. Hann lauk tvöfaldri bakkalár-
gráðu í hagfræði og píanóleik frá
Northwestern University og meist-
aranámi við Mannes School of Music.
Hann leggur nú stund á doktorsnám
í píanóleik við USC Thornton School
of Music í Los Angeles. Yang hefur
komið fram víða um heim, í Norður-
Ameríku, Evrópu og Asíu, bæði sem
einleikari og með hljómsveitum, og
hlotið mikið lof fyrir frammistöðu
sína í ýmsum samkeppnum.
Píanóleikarinn er nú fluttur til
Íslands og er búsettur á Patreks-
firði. „Ég er Bandaríkjamaður og
var að sinna doktorsnáminu mínu
þar en þegar Covid skall á áttaði ég
mig á því að ég myndi ekki geta
komið fram á tónleikum í langan
tíma svo ég ákvað að leita mér að
vinnu.“ Valið stóð á milli Patreks-
fjarðar og Hong Kong. Hann segist
aldrei hafa búið annars staðar en í
bandarískri stórborg og hafi langað
til að prófa eitthvað nýtt. Svo hafi
persónulegar ástæður orðið til þess
að Patreksfjörður varð á endanum
fyrir valinu. Yang leggur nú stund á
kennslu á píanó og fiðlu við Tónlist-
arskóla Vesturbyggðar auk þess
sem hann sinnir doktorsnáminu.
Spurður hvernig honum líki dvöl-
in á Patreksfirði segir hann kíminn á
ágætri íslensku: „Mjög dýrt,“ en
bætir svo við að sér líki hún mjög vel
en þetta sé líka viss áskorun fyrir
sig. „Hér er mjög fallegt og ég hef
gaman af því að ganga á fjöll, sér-
staklega á veturna.“ Hann segir um-
hverfið henta listamönnum vel, ein-
angrunin og náttúrufegurðin séu
góð fyrir listsköpun.
Áhugamaður um bardagalistir
Píanóið hefur ekki átt hug og
hjarta Yangs alla tíð. Hann var lengi
vel efnilegur íþróttamaður, þá helst í
bardagaíþróttum, og hefur lagt
stund á þær samhliða píanóferlinum.
„Þegar ég var 18 ára hætti ég
næstum í háskóla til þess að gerast
atvinnuboxari. Það var fyrst þegar
ég meiddist illa sem ég fór að æfa
meira á píanóið. Þannig að ég byrj-
aði mun seinna en flestir á þessum
píanóferli. Ég æfði auðvitað þegar
ég var krakki en ég tók þetta ekki
sérlega alvarlega.
Yang segist dá MMA, blandaðar
bardagalistir, og telur þær geta
komið öllum klassískum hljóðfæra-
leikurum til góða. „Maður fær mikla
útrás, öðlast meiri liðleika og hreyfi-
getu og fær góða hreyfingu eftir að
hafa setið allan daginn við hljóð-
færið.“
Náttúrufegurðin góð fyrir listina
- Bandaríski píanóleikarinn Andrew J. Yang kemur fram í Hallgrímskirkju í Saurbæ - Leikur
Liszt og Brahms - Áhugamaður um bardagaíþróttir, kennir í Vesturbyggð og sinnir doktorsnámi
Píanisti Andrew J.
Yang leikur Brahms
og Liszt í Hallgríms-
kirkju í Saurbæ.
John Lydon, fyrrum söngvari pönk-
sveitarinnar Sex Pistols, berst nú
hatramlega gegn samkomulagi sem
fyrrum hljómsveitarfélagar hans
hafa gert við framleiðendur sjón-
varpsþáttanna Pistol og fela í sér
að nota megi tónlist sveitarinnar.
Tekist er á um málið fyrir breskum
dómstólum. Fyrrum trommari
sveitarinnar, Paul Cook, gítar-
leikarinn Steve Jones, dánarbú Sid
Vicious og bassaleikarinn Glen
Matlock, sem kom í stað Vicious inn
í sveitina 1977, hafa allir samþykkt
laganotkunina í þáttunum, sem
Danny Boyle leikstýrir og Disney
framleiðir. Upptökur á þáttunum,
sem verða alls sex talsins, hófust í
mars og byggja á ævisögu Jones frá
2016 sem nefnist Lonely Boy: Tales
from á Sex Pistol.
Samkvæmt frétt BBC um málið
sagði lögmaður Lydon fyrir rétti
fyrr í vikunni að þættirnir drægju
upp „fjandsamlega og niðrandi
mynd“ af söngvaranum. Í dómsaln-
um vísaði Jones þessu á bug og
sagði gerð þáttanna ekki tilraun til
að koma höggi á einn eða neinn.
Ósætti hjá Sex Pistols um laganotkun
AFP
Ósáttur John Lydon, betur þekktur sem
Johnny Rotten, söngvari Sex Pistols.
Ef ég væri… æ, ekkert nefnist ein-
leikur sem sviðslistahópurinn OBB
sýnir í Tjarnarbíói í kvöld kl. 20.
Hópinn skipa Jökull Smári Jakobs-
son, sem leikstýrir, og Vigdís Halla
Birgisdóttir, sem leikur. „Þau eru
bæði leikaranemar við Listaháskóla
Íslands. Í sumar hafa þau verið að
vinna í einleik fyrir svið byggðum á
ljóðum eftir Anton Helga Jónsson
skáld. Út frá ljóðunum hafa þau
fundið persónur, uppákomur, að-
stæður og sögur,“ segir í tilkynn-
ingu. Þar kemur fram að verkið
spyrji hvað við séum og hvað ekki.
„Erum við það
sem við erum
ekki eða erum
við ekki það sem
við erum? Hver
ræður? Hver hef-
ur alræðisvaldið?
Sóley er ekki
með svörin en
hún leitar að
þeim þar sem
henni líður best,
með plöntunum sínum. Stundum er
eina leiðin að komast af sú leið að
koma sér undan… æ, ekkert.“
Ef ég væri … í Tjarnarbíói í kvöld
Anton Helgi
Jónsson