Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 4
0 1 0 2 5 10 7 13 10 11 38 56 78 82 95 88 71 123 123 118 Heimild: covid.is Heimild: LSH 118 ný innanlands- smit greindust sl. sólarhring 962 einstaklingur er í skimunarsóttkví 2.508 einstaklingar eru í sóttkví 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28.2020 2021 Einstaklingar undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH kl. 12.00 í gær Væg eða engin einkenni Covid-19 Aukin einkenni Alvarlegri einkenni, s.s. mikil andþyngsli og hár hiti 120 100 80 60 40 20 0 7.676 staðfest smit alls Fjöldi innanlandssmita frá 28. febúar 2020 106 100 123 965 einstaklingar eru undir eftirliti Covid-göngudeildar LSH 15 af þeim sem eru undir eftirliti flokkst sem gulir 3 flokkast sem rauðir 112 af þeim sem eru undir eftirliti eru börn 10 sjúklingar eru inniliggjandi á LSHmeð Covid-19 2 einstaklingar eru á gjörgæslu Fullbólusettir Bólusetning hafin Óbólusettir Fjöldi innanlandssmita frá 9. júlí eftir stöðu bólusetningar Ragnhildur Þrastardóttir Steinar Ingi Kolbeins Þóra Birna Ingvarsdóttir 118 ný kórónuveirusmit greindust í gær. Þó liggur ekki fyrir hvort fleiri smit hafi bæst í þegar leið á daginn, en sökum nýs verklags al- mannavarna verður sá háttur nú hafður á að ef ekki næst að setja inn allar smittölur þá bætast þær við í uppfærslu næsta dags. Alls eru nú 966 í einangrun og 2.508 í sóttkví. Már Kristjánsson, yfir- læknir smitsjúkdómadeildar á Landspítalanum, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að 20 sjúklingar væru gulir og því með nokkur einkenni, sex væru rauðir og því með alvarleg einkenni vegna veirunnar. Appelsínugult Ísland Ísland varð appelsínugult á upp- færðu korti Sóttvarnastofnunar Evrópu í gær. Stofnunin styðst þá við samræmdan litakóða þar sem hún flokkar lönd í mismunandi hættuflokka eftir fjölda nýgeng- inna smita. Kortið er uppfært viku- lega en tekið er mið af nýgengi smita síðustu tvær vikurnar. Ný- gengi smita náði yfir 200 í gær og gert var því ráð fyrir því að Ísland yrði rautt. En vegna þess hvernig gögnum er safnað saman varð nið- urstaðan appelsínugult Ísland. Bólusetja barnshafandi konur Bólusetningar á barnshafandi konum hófust í gær. Bólusett var með bóluefni frá Pfizer og Mod- erna. Þá var kona handtekin við Suðurlandsbraut, þar sem bólu- setningin fer fram, vegna óláta. Konan mótmælti bólusetningunum og veittist að heilbrigðisstarfsfólki með látum. Konan olli töluverðu uppnámi meðal þeirra sem biðu í röðinni. „Þið eruð að drepa börnin okkar“ og „óléttar konur eru að fara í sprautu og drepast“ er meðal þess sem konan hrópaði. Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, staðgengill sóttvarnalæknis, var spurð út í at- vikið á upplýsingafundi í hádeginu. „Hvað á maður að segja við fólk sem segir svona? Ég á ekki svör við því.“ Margrét Héðinsdóttir, verkefnastjóri bólusetninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir að bólusetningin hafi gengið vel þrátt fyrir þessa uppákomu. Rétt tæplega fimm hundruð manns mættu í bólusetningu í dag og voru um 90% þeirra barnshafandi konur. Upplýsa ekki um stök tilvik Landspítalinn tilkynnti í gær að spítalinn muni í samráði við sótt- varnalækni gefa út bólusetningar- stöðu þeirra sem þurfa að leggjast inn ef innlögnum fer að fjölga. Ekki verði slíkar upplýsingar gefn- ar út í einstaka tilvikum óski fjöl- miðlar eftir því. „Þetta eru svo fáir einstaklingar sem eru í þessari stöðu og þá vita þeir sem starfa hérna á spítalanum kannski meira en þeir ættu að vita um þá,“ segir Runólfur Pálsson, yfirlæknir Co- vid-göngudeildar spítalans. Hann segir einnig að þegar innlögnum fjölgi verði bólusetningarstaðan gefin út án þess að hægt sé að rekja hana til einstaklinga. Barnshafandi konur bólusettar - Ísland appelsínugult á samevrópsku korti - Gefa ekki út bólusetningarstöðu sjúklinga til fjölmiðla Morgunblaðið/Árni Sæberg Sprautað í vöðva Bólusetning fyrir barnshafandi konur hófst í gærdag. 4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 Kórónuveirufaraldurinn er á blúss- andi siglingu innanlands og nú er orðið daglegt brauð að yfir hundrað smit greinist. Yfirvöld hvetja alla til að sinna persónubundnum sótt- vörnum og hlaða niður C-19- rakningarforritinu. Ólafur Kristján Ragnarsson, verkefnastjóri staf- rænna lausna hjá embætti land- læknis, segir mikilvægt að sem flest- ir hlaði niður forritinu þar sem vægi þess mun halda áfram að aukast því lengur sem líður á faraldurinn. „Það eru í kringum 190 til 200 þúsund manns með appið núna. Við sjáum hvort fólk er með gömlu eða nýju uppfærsluna en það eru lang- flestir með nýjustu útgáfuna,“ segir Ólafur. Hann bætir við að inni í þessari tölu séu einnig ferðamenn, þótt lang- flestir séu Íslendingar, en nokkur þúsund ferðamenn hafa hlaðið niður forritinu og þá aðallega fólk frá Bandaríkjunum, Þýskalandi og Dan- mörku. „Það er væri best ef allir Íslend- ingar sem eiga snjallsíma myndu hlaða niður for- ritinu. Eins og staðan er núna eru það 200 þús- und, sem er mjög gott.“ Ólafur segir að ekki sé hægt að sjá hverjir eru með rakningar- forritið en það sé hægt að lesa úr línuriti fjölda virkra notenda. „Það virðist vera þannig að um leið og smitum fjölgar fer línuritið upp. Síðan þegar smitum fer fækk- andi fer fólk að eyða forritinu. En brottfallið er ekki jafn skarpt og fjölgunin.“ Hann telur að fólk eyði ekki forrit- inu til þess að komast hjá sóttkví þar sem að ef einstaklingur er útsettur fyrir smiti og fær tilkynningu um það í gegnum rakningarforritið, þá er viðkomandi ekki skráður í sóttkví. Enginn veit um tilkynninguna sem viðkomandi fékk, ekki einu sinni smitrakningarteymið. Það gerist ekki fyrr en einstaklingurinn skráir sig sjálfur í smitgát að rakningar- teymið veit af einstaklingnum og þá fer sá ekki endilega í sóttkví. „Þegar þú skráir þig í smitgát ertu ekki í sóttkví heldur einungis smitgát. Þú skráir þig og ert beðinn að fylgjast með einkennum. Síðan færðu strikamerki í sýnatöku eftir nokkra daga en þú ert ekki í sóttkví nema smitrakningarteymið hafi sérstaklega samband eða þú byrjar að finna fyrir einkennum.“ Ólafur segir að fólk geti hunsað tilkynninguna um að það sé útsett fyrir smiti en vonar að fólk passi sig og fylgist með einkennum hjá sér ef það geri það. Hann bætir við að það sé engin leið fyrir smitrakning- arteymið að sjá hve margir hunsa tilkynninguna um útsett smit. „Í rauninni þegar þú færð tilkynn- ingu frá forritinu þá vitum við hjá rakningarteymi ekkert um það, eða hvað margir fá tilkynningu og held- ur ekki hverjir. Þetta er algjörlega ópersónugreinanlegt.“ Ólafur segir tæknina vera gerða svona til þess að óprúttnir aðilar og stjórnvöld fari ekki að fylgjast með þegnum sínum, en tæknin er al- þjóðleg og notuð í mörgum öðrum löndum, til dæmis Bretlandi. „Það er engin leið fyrir hakkara eða ríkisstjórnina að fylgjast með þér í gegnum rakningarappið; það er ekki möguleiki.“ Ólafur telur að ef faraldurinn fari að dragast á langinn, og flestir bólu- settir, að rakningarforritið mun gegna lykilhlutverki í því að lífið komist aftur í eðlilegt horf. „Ef einstaklingur fær tilkynn- ingu um að hann sé útsettur fyrir smiti og á ömmu sem er veik fyrir, þá heimsækir viðkomandi hana ekki fyrr en sá er búinn að fara í sýnatöku. Ekkert smitrakning- arteymi eða svoleiðis, við höldum áfram með lífið en erum með svona tæki í einhvern tíma til þess að reyna að vernda viðkvæmasta hóp- inn.“ Ólafur segir að í raun hafi rakn- ingarforritið ekki nýst í fyrri bylgj- um þar sem fólk var mun meðvitaðra hvar það var búið að vera en nú og einnig að forritið var gert óvirkt um tíma vegna villu í reiknireglu forrits- ins. „Það nýtist ekki jafn vel og menn héldu í byrjun, en forritið virkar núna miklu betur eftir uppfærsluna og er sérstaklega gott fyrir þessa þriðju bylgju því fólk veit ekkert hvar það er búið að vera.“ Ólafur hvetur alla til að hlaða nið- ur rakningarforritinu og minnir á að það er mikilvægt að opna það. logis@mbl.is Rakningarforritið gegnir lykilhlutverki - Mikilvægt til þess að vernda viðkvæmasta hópinn - 200.000 niðurhöl - Óvirkt um tíma Morgunblaðið/Eggert Covid-19-smitrakningarforritið mun gegna lykilhlutverki. Ólafur Kristján Ragnarsson ÁHRIF KÓRÓNUVEIRUNNAR Á ÍSLANDI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.