Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI »Kvartett Maríu Magnúsdóttur söng- konu kom fram á tón- leikum Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu á mið- vikudagskvöldið var. Með henni léku Hjörtur Ingvi Jóhannsson á pí- anó, Sigmar Þór Matt- híasson á bassa og Svanhildur Lóa Berg- sveinsdóttir á trommur. Á dagskrá kvartettsins voru ýmsar djassperlur í útsetningu Maríu og sveitar hennar. Meðal gesta í salnum voru margir ferðamenn sem nutu sveiflunnar. Kvartett Maríu Magnúsdóttur kom fram í Múlanum Morgunblaðið/Unnur Karen Í sveiflu Kvartettinn, þau Hjörtur Ingvi, Sigmar Þór, Svanhildur Lóa og María, á sviðinu í Hörpu. Glaðbeittar Karen Sanders og Bridget Sanders voru meðal gesta. Skúli Malmquist hefur verið ráðinn nýr framkvæmda- stjóri Íslenska dansflokksins og hefur störf 1. september næstkomandi. Hann tekur við starfinu af Hlyni Páli Páls- syni sem hefur verið ráðinn í listrænt stjórnendateymi Borgarleikhússins. Skúli nam alþjóðaviðskipti og stjórnun í London Euro- pean Business School og hefur lokið MBA-prófi frá Há- skólanum í Reykjavík. Hann var einn af stofnendum Zik Zak Kvikmynda, var framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá árinu 1999 til 2018 og hefur þróað og framleitt yfir 20 kvikmyndir á þeim tíma. „Við hlökkum virkilega til að fá Skúla til liðs við Íslenska dansflokkinn og erum viss um að hans víðtæka reynsla við leikhús, kvikmyndir og aðrar list- greinar, innanlands, jafnt sem utan, muni nýtast mjög vel hjá flokknum,“ er í tilkynningu haft eftir Ernu Ómarsdóttur, listrænum stjórnanda Í.d. Skúli framkvæmdastjóri Dansflokksins Skúli Malmquist Í tengslum við Ólympíuleika eru ætíð settar upp alls kyns sýningar og myndlistarverk, sem kallast með margvíslegum hætti á við íþrótta- iðkan og menningu borganna þar sem leikarnir fara fram. Svo er einn- ig í Tókýó í Japan þessa dagana en einungis heimamenn fá þó notið uppákomanna þar gestir fá ekki að fylgjast með keppnisviðburðum. Meðal listviðburða í Tókýó nú er Tokyo Tokyo FESTIVAL Special 13, með allrahanda myndlistar- verkum og uppákomum sem kallast á einn eða annan hátt á við leikana. Þrettán listamönnum og listhópum var boðið að skapa verk. Þar á meðal er hinn breski Jason Bruges, sem skapaði verk úr vélmennum sem lát- laust draga ný form í möl í garði og kallast á við fornar garðyrkjuhefðir Japana. Argentínski leikstjórinn Marco Canale setti upp leikverk, á sýningunni What if Tokyo má sjá teikningar eftir marga þekktustu manga-teiknara Japana í dag og þá eru alls kyns gjörningar í jarð- lestakerfi borgarinnar. AFP Óstöðvandi Í Tókýó smellir maður mynd af verki Jasons Bruges, „Óstöðv- andi garðyrkjumenn“, vélmennum sem í sífellu móta myndir í möl. Myndlist og gjörningar í Tókýó

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.