Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 30.07.2021, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 30 ÁRA Elvar Páll fæddist í Reykja- vík og ólst upp í Smárahverfinu í Kópa- voginum. Hann hefur alla tíð haft mik- inn áhuga á íþróttum og frá 5 ára aldri æfði hann fótbolta með Breiðabliki. „Ég var samningsbundinn Breiðabliki til ársins 2015 þegar ég fór yfir til Leiknis í Reykjavík og spilaði með því til ársins 2018 þegar ég fótbrotnaði illa og þurfti að leggja skóna á hilluna.“ Elvar hefur spilað yfir 130 leiki í efstu og næstefstu deild á Íslandi. „Ég próf- aði margar íþróttir, t.d. tennis, en bróð- ir minn, hann Arnar Sigurðsson, er ein- mitt fimmtánfaldur Íslandsmeistari í tennis. Það voru of stór spor að fylla svo ég hélt mig við fótboltann þar sem ég hef alltaf fundið mig best. Svo var ég á fullu í hestamennskunni þegar ég var yngri og keppti til að mynda á landsmóti hestamanna árið 2006.“ Elvar Páll fór í Verzlunarskóla Íslands og þar kynntist hann Eyrúnu Rak- el sem er í dag unnusta hans. „Við kynntumst á lokahófi Knattspyrnu- sambands Íslands árið 2010 og ég var með Íslandsmeistaramedalíuna um hálsinn sem gaf mér sjálfstraust til að þora að tala við hana.“ Eftir Verzló fóru Elvar og Eyrún saman á fótboltastyrk til Bandaríkjanna í Auburn há- skólann í Alabama. Í dag eiga þau tvö börn, Elís Arnar, sem fæddist árið 2018, og Emmu Hjördísi, sem fæddist í febrúar á þessu ári. Elvar lauk BS- prófi í læknistengdri líffræði um jólin 2013 og kom heim í kjölfarið og fór að vinna við rannsóknir. Elvar ákvað árið 2015 að fara í HÍ og útskrifaðist árið 2017 með meistaragráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum. „Líffræði og viðskiptafræði er frábær blanda sem hefur hjálpað mér gríðarlega mikið í því sem ég er að gera í dag.“ Núna vinnur Elvar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Men&Mice þar sem hann er stafrænn markaðsstjóri. „Það er rosalega skemmtilegt að vinna hjá Men&Mice og fyrirtækið er á mjög spennandi veg- ferð.“ Fyrir utan boltann hefur Elvar mikinn áhuga á allri útivist, hestamennsku, göngum, veiðum og hlaupum. „Ég er þjálfaður af besta hlaupaþjálfara lands- ins, Arnari Péturssyni, og hef í raun aldrei verið betri.“ Elvar Páll Sigurðsson Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Vertu óhrædd/ur við að kanna hluti og draga síðan af þeim lærdóm sem þú getur nýtt þér til framtíðar. Ekk- ert er eins vont og óvissan. 20. apríl - 20. maí + Naut Þú færð stuðning við málstað þinn úr óvæntri átt og má segja að hann skipti sköpum fyrir þig. Látið smámuni ekki skemma fyrir. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú átt erfitt með að einbeita þér að því sem fyrir liggur. En mundu að hver er sinnar gæfu smiður. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þér finnst þú verða fyrir miklum þrýstingi frá samstarfsmanni þínum. Sýndu þolinmæði og umburðarlyndi gagnvart þessu í dag, það er fyrir bestu. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Nú getur þú ekki lengur vikist und- an því að bretta upp ermarnar og ganga á hólm við þær áskoranir sem bíða þín á vinnustað þínum. Ekki láta hlutina vaxa þér í augum. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Veltu þér ekki upp úr því sem lið- ið er enda geturðu hvort eð er engu breytt héðan af. Reyndu að gera eitthvað sem veitir þér ánægju í dag. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þú ættir að nota daginn til að heim- sækja foreldra þína eða aðra sem þú hefur tekið þér til fyrirmyndar. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú færð óvæntar gleðifréttir svo full ástæða er til að gera sér glaðan dag. Stutt ferðalag yrði þér til góðs. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Það væri ekki úr vegi að verja deginum í að fara í gegnum málin og finna út, hvað þú vilt og hvert skal stefna. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þú ert eins og milli steins og sleggju í ákveðnu máli. Hleyptu öðrum ekki að fyrr en þú veist að þeir séu traustsins verðir. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Þegar þú veist hvað þú átt að gera, er ekki um annað að velja en að gera það. En gefðu þér góðan tíma því mikið ríður á að framsetning þín sé ljós. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Þig langar til að eyða peningum í fallega hluti í dag. Allt á sinn tíma og nú er aðalmálið að halda fast utan um budduna. ari með Anderlecht og markakóng- ur belgísku deildarinnar og valinn besti maður deildarinnar og svo var hann valinn Íþróttamaður ársins 1987 á Íslandi. Þegar Arnór var sendur til franska liðsins Bordeaux á kaupleigusamningi voru belgískir aðdáendur óhressir og bréfum rigndi inn til Anderlecht þar sem þeir kröfðust þess að fá aftur „hvítu járnbrautalestina úr norðri“ í liðið. Ekki varð þó úr því og eftir stutt stopp hjá Häcken í Svíþjóð fór hann yfir til Örebro og var þar í fjögur ár, en þá kom hann til Íslands 1998 og spilaði með Val og síðar Stjörnunni. Arnór er leikjahæstur allra ís- lenskra knattspyrnumanna frá upp- hafi hvað deildaleiki með félags- A rnór Guðjohnsen fædd- ist á Húsavík 30. júlí 1961 og ólst þar upp til 9 ára aldurs. „Pabbi var í fótbolta í Völsungi og ég fór alltaf með honum á æfingu á kvöldin. Svo vorum við guttarnir bara að leika okkur í fótbolta allan daginn.“ Í bænum byrjaði Arnór að spila með Víkingi og það kom strax í ljós að þar færi strákur sem myndi ná langt. Arnór var langyngsti knattspyrnumaður landsins til að fara í atvinnumennsku á þeim tíma, en hann skrifaði undir samning við belgíska liðið Lokeren daginn fyrir 17. ára afmælið. „Þetta ár, 1978, urðu mikil kaflaskil í mínu lífi. Fót- boltinn hafði alltaf verið númer eitt hjá mér og ég spilaði með unglinga- landsliðinu í Póllandi snemma vors, byrjaði svo með meistaraflokki Vík- ings, var valinn í U21 liðið og spilaði með því einn leik á móti Norð- mönnum. Svo skrifaði ég undir samninginn og var valinn í lands- liðshópinn þetta sama ár og var svo farinn út í byrjun september.“ Ekki nóg með það, heldur átti Arnór von á sínu fyrsta barni, en hann varð að fara út áður en son- urinn fæddist. Þegar hann lenti í Brussel tók framkvæmdastjóri Lokeren á móti honum og lét hann fá skeyti. Í því stóð: „Sonur fæddur. Allt gekk vel. Kær kveðja, mamma.“ Næstu árin var Arnór hjá Loke- ren og Eiður Smári, fór alltaf með pabba sínum á leikina og það sást snemma að hann myndi feta í fót- spor föður síns. Margir höfðu auga- stað á fótboltamanninum ljóshærða og eftir fimm ár hjá Lokeren fór Arnór yfir til Anderlecht, þar sem hann var næstu sjö árin. „Ég var búinn að vera meiddur lengi fyrstu árin eftir að ég fór til Anderlecht og það tók meira og minna 2-3 ár að fá mig heilan. En það voru líka sætir sigrar þegar ég loksins kom til baka úr meiðslunum og árið 1986-7 er lík- lega hápunktur ferils míns og ég er bara ofsalega þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa við það sem ég elskaði að gera.“ Það er ekki orðum aukið að árið 1986-7 var rosalegt hjá okkar manni. Arnór varð belgískur meist- með hann.“ Í landsleik Íslands gegn Eistlandi í Tallinn 1996 léku feðg- arnir báðir með landsliðinu, en Eið- ur Smári leysti föður sinn af á vell- inum, sem er líklega í fyrsta skipti í sögunni sem feðgar spila í sama landsleik. Hugmyndin var að láta þá spila báða saman í landsleik á heimavelli mánuði síðar, en í milli- tíðinni fótbrotnaði Eiður Smári með unglingalandsliðinu svo ekkert varð úr því. Eins og allir vita er mikið fót- boltaveldi í fjölskyldunni og eru allir synir Arnórs og núna afadrengirinir að gera góða hluti í boltanum. „Þeir alast upp í þessum fótboltaáhuga eins og ég gerði á sínum tíma með pabba og núna eru afastrákarnir Arnór Guðjohnsen knattspyrnumaður – 60 ára Anderlecht Arnór varð belgískur meistari, marka- kóngur og valinn besti maður deildarinnar 1986-7. Hvíta járnbrautalestin úr norðri FeðgarArnór, Eiður Smári, Kjartan Borg og Arnór Borg. Ungur pabbi Arnór með Eið Smára. liðum varðar og lék líka í 18 ár með íslenska landsliðinu og var í hópi leikja- og markahæstu manna þess. Svo er ógleymanlegt þegar hann skoraði fjögur mörk í landsleiknum gegn Tyrkjum á Laugardalsvell- inum árið 1991. Síðan spannar at- vinnuferill hans 20 ár og ekki marg- ir sem leika það eftir. „Ég hafði bara svo hrikalega gaman af því að spila og reyndi bara að teygja það eins og ég gat og meðan ég gat gert eitthvert gagn á vellinum vildi ég vera með.“ Á sínum tíma sagði Arnór í viðtali í belgíska sjónvarpinu að hann myndi vilja spila landsleik með Eiði Smára. „Þetta var draumur hjá mér, því ég sá alveg hvert stefndi Til hamingju með daginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.