Morgunblaðið - 30.07.2021, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.07.2021, Qupperneq 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. JÚLÍ 2021 and i v e 35% AFSLÁTTUR 35% AFSLÁTTUR 100% NÁTTÚRULEGAR AFURÐIR 20% FERSKT KJÖT Kauptúni 3, Garðabæ | www.fisko.is Opið: Mán.-Fös. 10-19, Laug. 10-18, Sun. 12-18 ..kíktu í heimsókn DENTAL CARE SKIN COMPLEX STRENGTH & VITALITY Steinar Þór Ólafsson samskipta- fræðingur skrifar endahnút Viðskiptablaðsins þessa vikuna og ræðir þar nýjungina papparör og hina gömlu plast- poka sem nú eiga undir högg að sækja. - - - Hann víkur að pappírspok- unum sem mörg fyrirtæki hafi tekið í notkun og vitnar til rannsóknar danska umhverfis- og matvæla- ráðuneytisins sem hafi sýnt, „að pappírspokar þyrftu margfalt meiri orku og fleiri auðlindir til framleiðslu en plastpokarnir. - - - Til að pappírspokinn reynist umhverfisvænni þarf að nota hann að lágmarki 43 sinnum og lífræna bómullarpoka þarf að nota 20.000 sinnum til að hafa ekki verri áhrif á jörðina en einnota plastpoki sem flokkaður er á rétt- an hátt. - - - Það er í lokaorðum setningar- innar hér á undan sem hund- urinn liggur grafinn. Plast er ekki alslæmt heldur ræðst allt af því hvað við gerum við það. Hérlendis getur t.d. Pure North Recycling endurunnið plast að fullu með um- hverfisvænum orkugjöfum, hið svokallaða hringrásarhagkerfi í sinni tærustu mynd.“ - - - Þetta eru athyglisverðar hug- leiðingar. Ef það er rétt að nota þurfi pappírspokann 43 sinn- um til að hann sé vænni fyrir um- hverfið en plastpokinn, þá er ólík- legt að úthýsing plastpokanna skili sér fyrir umhverfisvernd. - - - Og hver ætli nái að nýta bóm- ullarpokann sinn 20.000 sinn- um? Er það mögulegt? Steinar Þór Ólafsson Pappír eða plast? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Níunda Lindex-verslunin á Íslandi var opnuð í gær. Verslunin er á Sel- fossi og er sú stærsta utan höfuð- borgarsvæðisins. „Það er sérlega gaman að koma heim ef svo má segja og loka hringn- um, sem hófst í bílskúr hér á Sel- fossi,“ er haft eftir Lóu Dagbjörtu Kristjánsdóttur, umboðsmanni Lindex, í fréttatilkynningu frá versl- uninni. „Með 75 þús. kr. í startfé lögðum við af stað í ferðalag um landið og markar þetta tímamót að nú, rúmlega tíu árum seinna, skulum við vera að opna í okkar heimabæ, meðal vina og ættingja. Sagt er að hver vegur að heiman sé vegurinn heim og við gætum ekki verið glað- ari með að geta fagnað með fólkinu okkar á þessari hátíðarstundu, en segja má að Lindex sé nú loks komið heim,“ segir Lóa Dagbjört enn frem- ur. Nýja verslunin er alls 800 fer- metrar. Ráðgert hafði verið að opna verslunina formlega í næsta mánuði en undirbúningur gekk framar von- um og vegna samkomutakmarkana var ákveðið að opna dyrnar í gær. Fyrsta Lindex-verslunin á Íslandi var opnuð árið 2011 í Smáralind og frægt varð að loka þurfti henni skömmu síðar vegna vöruskorts. Síðan þá hefur Lindex þanist út og nú starfa um 100 manns hjá fyrir- tækinu á Íslandi. Lindex opnar stórverslun á Selfossi - Ánægjulegt að opna í heimabænum, segja eigendur - Tíu ára velgengni Eigendur Albert og Dagbjört Lóa. Brennan á Fjósakletti er einn af há- punktum Þjóðhátíðar í Vestmanna- eyjum. Bálkösturinn, eins og annað í Herjólfsdal, er tilbúinn en sam- kvæmt upplýsingum sýslumannsins í Vestmannaeyjum í gær hefur ekki verið gefið út leyfi fyrir brennunni sem átti að lýsa upp Dalinn í kvöld. Ekki er enn útséð um hver örlög Þjóðhátíðar verða þetta árið, en þjóðhátíðarnefnd hefur gefið út að stefnt verði að því að halda hátíðina síðar í sumar. Þó liggur fyrir að hún verður ekki haldin nú um helgina. Brekkusöngnum verður þó streymt á netinu og ættu því allir sem vilja að geta fengið nasasjón af stemningunni, þótt það verði að vera heima í stofu þetta árið. Magn- ús Kjartan Eyjólfsson, söngvari Stuðlabandsins, stýrir söngnum. Miðasala fer fram á tix.is. Ljósmynd/Sigfús Gunnar Herjólfsdalur Ekki er útséð um hvort brennan fer fram í kvöld eða síðar meir. Allt klárt en enginn mætir í Herjólfsdal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.